Dagur - 27.01.1971, Blaðsíða 5

Dagur - 27.01.1971, Blaðsíða 5
4 5 Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri Síniar 1-11-66 og 1-11-67 Bitstjóri og ábyrgðarmaður: ERLINGUR DAVÍÐSSON Auglýsingar og afgreiðsla: JÓN SAMÚELSSON Prentverk Odds Bjömssonar h.f. KJARNAFRÆÐI Á ÆSKULÝÐSSÍÐU Morgunblaðs- ins 21. janúar sl. birtust myndir af ýmsum framlierjum Sjálfstæðis- flokksins á kosningavorinu 1971. Eitt af þessum andlitum kom sveit- arstjórnarmönnum hér nyrðra, kunnuglega fyrir sjónir. Þania var sem sé mynd af Lárusi Jónssyni fram kvæmdastjóra Fjórðungssambands- ins hér, ásamt borgarstjóranum í Reykjavík og þrem Heimdellingum. Á sömu síðu er svo grein eftir Lárus, sem ber yfirskriftina: Hvað er byggðastefna? Sumt er vel sagt í þeirri grein, annað orkar tvímælis. Spuming Lárusar vekur aðra spurningu: Er byggðastefna ekki það sama og landsbyggðarstefna? Á hún ekki að fela í sér jafnvægi milli landshluta? Kemur manni þá ekki í hug orðatiltækið, „jafnvægi í byggð landsins,“ sem Sigurður Bjamason núverandi sendiherra mun hafa bú- ið til fyrir 15—20 árum, um það leyti sem tveir hreppar í hinu gamla kjör- dæmi hans fóm í eyði? , Allir skilja hvað átt er við með landsbyggð og landsbyggðarstefnu, það er, að byggð sé þar sem kalla má um land allt, hið byggilega land. Jafnvægi milli landshluta er líka auðskilið. En hitt orðið, „byggða- stefna“ sem mun vera upprunnið í Seðlabankanum eða Efnahagsstofn- uninni, felur trúlega í sér meiri hag- ræðingarmöguleika, sem hefur sína kosti og ekki er ástæða til að amast við. En kannski þarf hún ekki að vera alveg það sama og landsbyggð- arstefnan. í för með henni em svo- nefndar kjarnakenningar. Kaupstað- irnir okkar og fjölmennustu þorpin, þar sem enginn kaupstaður er, skulu heita kjainar eða byggðakjarnar. Ef ekki þykir einsýnt um kjarnann, er búinn til „hliðarkjami.“ Akureyri, sem við létum okkur nægja að kalla höfuðstað Norðurlands, er nú „meg- inkjarni“ eða „aðalkjarni.“ Þessi kjarnafræði er með vísindablæ og mætti kannski gera úr henni „náms- braut.“ Kannski minnir þetta kjarnatal á hismið, sem er utan um kjamann í sáðkominu? Á f jórðungsþingi í fyrra neituðu Siglfirðingar því harðlega að heita „hliðarkjami,“ eins og til stóð og höfðu sitt fram. En Ólafs- fjörður heitir hvorki kjami eða „hliðarkjami“ síðan Lárus hvarf inn fyrir Múlann og býr þar þó kjama- fólk, sem kunnugt er. Það er ekki laust við, að Akureyri sé án verðskuldunar litin homauga af giimlum vinum sínuin, síðan hún var með nokkmm fyrirgangi gerð að miðdepli hinnar norðlenzku kjama- fræði. □ JÓNAS JÓNSSON ráðunautur: LANDIÐ OG FÓLKIÐ TVENNT er íslenzkri þjóð nú nauðsynlegast, ef litið er aðeins lengra en til þess að hafa til1 næsta máls: Það er að varðveita land sitt, eins og það verður börnum okkar og eftirkomend- um til metrar farsældar og gleði. Og að tryggj a okkur, og afkomendum okkar fullan og óskoraðan rétt yfir hafinu í kringum landið, og hafsbotnin- um út frá því svo vítt, sem fram ast er fært eða eins og þær þjóð ir sem mesta landhelgi hafa og víðtækasta lögsögu út frá ströndum landa sinna. Ég fer hér á eftir nokki-um orðum um fyrra atriðið, um ráð stöfun landsins, og nauðsyn þess að taka upp skipulega nýt- ingu þess. Við höfum lengi lifað í þeirri barnalegu trú, að við ættum svo mikið landrými, að þess þyifti ekki að gæta. Landið væri svo stórt, en fólkið svo fátt, að hér gæti hver hagað sér að vild, hér væri pláss til allra hluta. Þess- ari villu hefur fylgt hættulegt virðingarleysi, fyrir verðmæti landsins. Einstaklingar, og for- ráðamenn hvers kyns fram- kvæmda á almannavegum, vega gerðar, línulagna, bygginga og virkjana, hafa hagað sér, sem land væri einskisvirði og litt gætt þess að því væri ekki spillt meira en minnst mátti verða. Um þetta mætti nefna fjölmörg dæmi úr flestum héruðum. Virðingarleysi þetta birtist einn ig í því að hér á land mjög lágt metið til bóta ef því er spillt, og þar er m. a. að finna orsakir þessa. Sama er um það þegar land gengur kaupum og sölum. Á tímum stöðugrar og óðrar verðbólgu, ruglast allt mat á verðgildi. Ekkert samræmi er á milli verðgildismats peninga- manna í þéttbýlinu, þar sem velta þeirra er örust, og fólks- ins sem lifir með landinu. Því geta skyndigróðamennlmir eða hraðveltumennirnir, ekið út um sveitirnar með gilda bagga verð litilla seðla og keypt upp jarðir og sveitarhluta fyrir raunveru- legt gjafverð. Krónutalan kann að vera há í augum bóndans, sem selur en hann reynh- fljót- lega að verðgildið er lítið þegar hann kemur með peningana á mölina, og víst er að það verður enn minna á morgun. En landið, sem hann seldi er það eina sem blífur, allt hitt er forgengilegt. Enda er reynslan sú að undan- farin ár og áratugi hefur mai-gt höfuðbólið og mörg hlunninda- jörðin farið fyrir kjallaraholur í Reykjavik. íslenzkir bændur eiga þó enn langflestir jarðir sinar, og hlut- fallslega fleh-i en stéttarbræður þeirra i öðrum löndum, það sam svarar líka eðli íslenzks þjóð- félags. Þeir nytja einnig hálend- ið nær allt, það gefur þeir rétt til forræðis yfir því öllu þó um beina eign þeirra sé ekki að ræða nema á vissum hlutum þess. Bændur eru því eigendirr eða umráðendur nær alls lands- ins. Það eru mikil réttindi, en því fylgja einnig miklar skyld- ur. Þeim lýðst ekki að fara með landið hvernig sem þeim sýnist, að eigin geðþótta, hvorki laga- lega eða siðferðilega séð. Lögin setja þeim margskonar skorður og þyrftu þó jafnvel að vera fleiri og betur framfylgt. Þær er m. a. að finna í: áburð- arlögum, gróðurverndarlögum, jarðræktarlögum, veiðilögum og náttúruverndarlögum, og sjálfsagt víðar. Nokkuð hefur því verið gert af löggjafans hálfu til vemdar landinu þó að bteur megi ef duga skal. Siðferðilega séð ber bændum að líta svo á að landið hafi þeir fengið til varðveizlu, frá fyrri kynslóðum, og að þeim beri að skila því ekki aðeins jafngóðu og við var tekið, heldur betra og fegurra til kynslóðanna sem taka við.. Þeim mun betra, sem möguleikai' þeirra eru meiri en feðranna til að bæta það, þannig líta líka flestir bændur á hlut- verk sitt. Jónas Jónsson. Nauðsynlegt er að landið verði áfram í eigu bændanna og fólksins, sem býr í sveitunum. Það er lifsnauðsyn fyrir varð- veizlu byggðanna. Á sama hátt er nauðsynlegt að öll gæði jarð anna fylgi þeim og ekkert sé frá þeim tekið. Ef hlunnindi eru tekin frá jörðum með kaupum eða leigubraski eða góðjarðh' keyptar til annars en búskapar, holgrafast sveitirnar, smám saman og verða óbyggilegar eftir. Svo illa eru sumar sveitir farnar nú þegar, að helzt má líkja því við það, að allar auð- lindir þeh-ra væru skornar sam an í einn læk og honum veitt beint til Reykjavíkur. Þeirri framræslu fylgir svo sannarlega uppblásturshætta. Þeir eru líka margir straumar fjánnagnsins sem liggja frá landinu og sjón- um til viðskiptahallanna í Reykjavík, inn í hringiðu pen- inga lífsins þar. Það er því lífsnauðsyn fyrir byggðirnar að hvenær sem ein- stakir bændur verða að hverfa frá jörðum sínum og þær ekki hyggjast jafnóðum, verði sveit- arfélögunum tryggt eignarhald á jörðunum, hvað sem þær kosta. Það verður að gera þeim þetta kleift með einhvei-ju móti. Nú eru þessar línur ekki skrif aðar af illvilja til kaupstaðar- búa, þó einhverjum kynni að detta það í hug, þvert á móti, miklu fremur af umhyggju fyr- ir þeim, og því að þeir geti, sem allra flestir notið þess, sem sveitir landsins og náttúra þess hefur upp á að bjóða. Það er kaupstaðafólkinu til margvís- legrar ánægju, og þó umfram allt til aúkins hags, að sveitim- ar séu byggðar og landið sem bezt nytjað. Það er almenningi í bæjunum heldur enginn ánægjuauki, að jarðir með sér- staka náttúrufegurð eða hlunn- indi lendi í höndum fárra fé- sterkra aðila, sem „girða lönd- in fyrir sig.“ Þess eru engin dæmi, að við hlið, vegi eða girð- ingu bænda geti að lita áletr- anir, svo sem: „Einkavegur“ „Óviðkomandi bannaður að- gangur,“ eða annað í þeim dúr, sem ekki er fátítt þar sem land ér sundur girt í sumarbústaða- löndum einstaklinga. Slikt á ekki við í íslenzkri náttúru. Sumarbústaðahverfi á að skipu leggja á ákveðnum svæðum, þau svæði þarf að friða í heild, en ekki spila í sundur innbyrð- is. Á slíkum svæðum á að leigja löndin vægri leigu, eða jafnvel að bændur eða sveitarfélög byggi þai' bústaði til leigu. En sumarbústaðir og sumardvalir eiga allavega ekki að vera for- réttindi fárra, heldur þarf að gera þjóðfélagslegt átak til þess að, sem flestum verði kleift að njóta slíks. Þrátt fyrir þessa sérstöku og sjálfsögðu forsjá bændanna, er landið vissulega sameign allrar þjóðarinnar, og hún hefur því í heild skyldum við það að gegna. Þannig eiga allir fslend- ingar tilkall til landsins, skyld- urnar gefa þeim réttindi. Það liggur í frumeðli mannsins, að vilja halda tengslum við náttúr- una, og mjög margir vilja eiga eða geta eignað sér land, en að annast leiguland til lengri tíma er þessum mönnum jafn dýr- mætt fái þeir að rækta það og hlynna að því. Við verðum að viðurkenna og virða þörf þétt- býlismannsins á því að eiga sér griðland þar sem hann getur verið einn og fundið sjálfan sig. Velferðarþjóðfélög hljóta að virða þessar þarfir bæjarfólks- ins, fyrir afdrep, og fyrir tengsl við hið „einfalda líf“ með náttúr unni, alveg eins og hverjar aðr- ar þarfh', andlegar sem líkam- legar. Samfélagið byggir dýr sjúkra hús, með sér deildum fyrir mis- munandi sjúkdóma, og reynt er að gera þar ekki upp á milli, það er mannúðaratriði. En er það ekki lögmál að þörfin fyrir streitu og taugasjúkdómadeildir vaxi í beinu hlutfalli við svo- kallaða „aukna velmegun“? Get ur ekki „einfalt lífemi“ í snert- ingu við náttúruna komið í veg fyrir mikið af þessum sjúk- dómum og dregið úr þörfinni fyrh' slíkt sjúkrarými? Og er þá ekki komið að því að það sé hag kvæm fjárfesting að stuðla að því að fólkið haldi sambandinu við landið? Fólkinu fjölgar og þéttbýlið eykst enn örar, stærð þess verð ur meiri og fleiri og fleiri þreyt ast á hi-ingiðu þess. Eftirsókn landsmanna eftir landi eykst því hi'öðum skref- um, en ennþá örar eykst samt eftirspurn útlendinga eftir landi, hennar er þegar farið að gæta hér, og ekki mun standa á leppum fyrir þá erlendu háka sem hér kynnu að vilja festa fé í landi. Þessa gætir verulega í Noregi að þýzkir peningamenn sölsi undir sig land. Þarna verð ur að vera vel á verði, við meg- um aldrei gleyma því að landið verður því dýrmætara sem lengra líður og því vandasam- ara verður að gæta þess. Mjög brýn þörf er á því að nú á næstunni verði það tryggt bæði með skynsamlegri löggjöf, svo langt sem hún gteur náð, en einnig og ekki síður með rétt- um tíðai-anda, að samskipti manna við landið verði sem menningarlegust. Setja þarf, sem skýrust ákvæði um gagn- kvæm réttindi og skyldur land- eigenda og þeirra, sem njóta viljá landsins við útilíf ogí náttúruskoðun. í náttúruverndarfrumvai’p- inu, sem lagt var fyrir þingið í fyrra en fékk ekki að sjá dags- ins Ijós fyrir þinghlé um jólin, eru mörg góð ákvæði, sem að þessu stefna. En heyrzt hefur að sumum ráðandi öflum líki þar ekki við öll ákvæði svo sem um fjáröflun til náttúruverndar- mála. Það er þó borin von að nokkuð gerist að marki í þess- um málum nema að til þeirra sé tryggt verulegt fjánnagn. Bændum og sveitafólki á að vera ávinningur að því, að fei'ð- ir og dvalir bæjarbúa í sveitum verði sem tíðastur og mestai'. En allt verður að vera eftir ein hverju skipulagi. Skipuleggja þarf sumarbústaðalönd þannig, að þar fari vel saman byggðin, varðveizla náttúrunnar og það sem sumarbústaðafólkið sækist eftir að njóta. Allt þetta spill- ist, ef hömlulaus og skipulags- laus sala eða úthlutun sumar- bústaðalanda er leyfð. Löndin eru venjulega sundurgirt og hvað rekur sig á annars horn. Þeh bændur, sem selja stærri eða minni spildur úr jörðum sínum, gæta þess oft ekki hve þeir rýra þær, og að raunveru- lega eru þeir með því að éta upp arfinn, sem á að ganga til eftirkomendanna. Þeir sem selja jarðir sínar til annars en búskapar eða a. m. k. til fastrar búsetu á jörðunum eru að éta upp innviði sveitarfélaganna, þau geta þá fyrr eða síðar fallið saman af þeim sökum. Ég endurtek það, að ekki á að vinna gegn sumarbústaða- byggingum, heldur að hvetja til þeirra. Til þess eru einmitt sum arbústaðabyggingar í leigulönd um vel fallnar, vægt leigugjald er hægara að greiða en kaup- verð og það kemur byggðinni einnig að betri notum. Eftir- sóttar jarðh eiga sveitarfélögin að kaupa, ef þær seljast ekki til búreksturs, má segja, hvað sem þær kosta. Þetta verður að gera þeim þetta kleift, og er það verðugt verkefni fyrir jarða- kaupasjóð ríkisins. Hann þarf að efla og leyfa honum að kaupa jarðir hæi-ra en á fast- eignamatsverði. Það er augljóst, lýðræðislégt atriði, að allir þegn ar þjóðfélagsins hafi sem jafn- asta aðstöðu til þess að njóta landsins og þó ekki væri nema þess vegna, verður að stemma stigu við því, að fjársterkir aðilar sölsi undir sig lönd. Fegurstu sveitir, lönd og land ræmur með vötnum og ám verð ur alveg að friða fyrir sumar- bústaðabyggingum og hafa þau frjáls fyrir alla, sem fara með friði. Skipuleggja þarf að opin- beru frumkvæði næg sumarbú- staðalönd þannig, að þau verði fyrh sem flesta, til sem mestrar ánægju, en spilli sem minnstu. Við ræktun og aðhlynningu vatna til sportveiða getur sveita fólk og bæjarbúar hæglega tek- ið höndum saman. Stofna þarf öflugan fiskræktarsjóð, í hann ættu að renna gjöld af seldum veiðileyfum og ákveðinn hundr- aðshluti af allri orkusölu í land- inu. Sjóðurinn ætti að styrkja hvers konar fiskrækt í fersku vatni og sjó, þar sem mögu- leikar eru fyi-ir hendi. Jafn- framt ætti að kosta af almanna- fé íiskrækt í stórum „almenn- ingsvötnum" eða ám, sem til þess yrðu keypt eða leigð t. d. eins og í Þingvallavatni. Veiði í slíkujn. vöfnum yrði leigð á viðráðanlegu' verði fyi-ir almenn ing, ekki: hvað sízt fyrh börn og unglingá:'' Það eru ptal mörg atriði önn- ur, sem benda mætti á að bæta þarf í umgengni okkar við og rheðferð á landinu. Vonandi fara aú-gú-ekkár smám saman að opnast fyrh þeim. Þjóðin ætti að gefa sjálfri sér þá afmælisgjöf í minningu 11. alda byggðar, að hafa fyrir þann tíma gert verulegt átak, til skipulegra landsnota, raun- hæfrar landvemdar, Iand- græðslu og alhliða náttúru- verndar, þannig að á því af- mælisári höfum við örugglega snúið vörn í sókn á öllum þess- um sviðum og í báðum þeim málum sem ég nefndi hér í upp- hafi. □ Vöruflutningar eyþj óðarinnar MARGIR hafa veitt athygli til- lögu til þingsályktunar, sem 9 Framsóknarmenn fluttu á Al- þingi því er nú situr, um kosn- ingu 5 manna milliþinganefnd- ar til þess að athuga vöruflutn- inga landsmanna á landi og sjó og í lofti. í tillögunni segir, að nefndin skuli stefna að því með tillögugerð sinni, að flutninga- kerfi landsmanna verði sem hraðvirkast og hagkvæmast, án óhæfilegs tilkostnaðar, og að leita skuli leiða til jöfnunar á flutningskostnaði svo að allir landsmenn sitji við sama borð í þeim efnum, efth því, sem við verði komið. Hér er um stór- mál að ræða, sem ekki er auð- leyst og nokkurn tíma mun þurfa til að koma í höfn á við- unandi hátt. Lengj hefur verið litið svo á, að fyrir eyþjóð, þar sem hafnir eru víða, hljóti að vera hag- kvæmt að flytja vörur sjóleiðis með ströndum fram, og nú stendur yfir endurnýjun strand ferðaskipanna. Er gert ráð fyi'- ir, að hin nýju strandferðaskip Nýtt endurtryggingafélag Á FUNDI stjórnar Samvinnu- trygginga og Líftryggirigafélags ins Andvöku var 28. désember sl. stofnað Endurtryggmgafélag Samvinnutrygginga h.f. Hlutafé félagsins er kr. 20.000.000.00, og er aðal tilgangur þess að faka að sér endurtryggingar innan- lands og utan. Á undanförnum árum hefur það allmikið tíðkazt og færzt í vöxt, að íslenzk vétrygginga- félög tækju að sér endurtrygg- ingar, bæði inrilendar og erlend ar, og hefur þessi háttur í starf- semi Sarrivinriutrygginga aukizt verulega, sérstaklega síðustu ári'ri. Hefúr það verið skoðun forráðamanna félagsins, að eðli- legt sé áð halda viðskiptum þessum aðskildum frá öðrum tryggingagreinum félagsins á sama hátt og líftryggingar hafa verið eini vettvangur Andvöku. Stjórn Endurtryggingafélags Samvinnutrygginga h.f. skipa: Erlendur Einarsson, formaður, Jakob Frímannsson, Karvel Og- mundsson, Ragnar Guðleifsson og Ingólfur Ólafsson. Framkvæmdastjóri félagsins er Ásgeir Magnússon, lögfræð- ingur. Með tilkomu hins nýja endur tryggingafélags eru Samvinnu- tryggingafélögin á íslandi orðin þrjú, en þann 1. september n. k. verða 25 ár liðin frá því að Sam vinnutryggingar tóku til starfa. Fullvíst má telja, að iðgjalda- tekjui’ þessara þriggja félaga fari á þessu ári verulega fram úr 500 milljónum króna. (Fr éttatilky nning ) RAFVÆÐING A NORÐURLANDI (Framhald af blaðsíðu 8). fyrir Hitaveitu Húsavíkur að hverrnum Strúti. Norður-Þingeyjarsýsla. . Lögð var lína um 17 km. löng í Kelduhverfi .og 10 býli tengd ásamt sjónvarpsstöð á Auð- bj argarstaðarbrekku. í Axarfirðinum var um 7 km. löng lína lögð og 5 býli tengd. ÁR BARNSINS” EINS og mörgum er kunnugt nú þegar, hefir Hjálpræðisher- inn þegar hafið sókn þá er ber nafnið: „Ár barnsins 1971.“ Alþjóða aðalstöðvar Hjálp- ræðishersins hafa ákveðið að sóknin fari fram á þennan hátt: í fyrsta lagi: Að Hjálpræðis- hermenn og foringjar, gjöri sér betur grein fyrir þýðingu barna starfs okkar en áður. I öðru lagi: Að kanna barna- starf okkar og leggja áætlanir um starfið á næsta áratug. í þriðja lagi: Að varðveita áhuga barnanna og hrifningu. í fjórða lagi: Að ná tangar- haldi á nýjum börnum. í fimmta lagi: Að beina áhuga barnanna að störfum fyrir Krist og kappkosta að þau varðveiti þann áhuga. Skipting ársins er á þessa leið: 1. ái'sfjórðungur: Stefnumið og sókn sunnudagaskóla okkar. 2. ársfjórðungur: Að styrkja einstakar deildir innan sunnu- dagaskólanna og mynda nýjar deUdii', .3, ársfjórðunguriÆumarstarf- semi. 4. 'ársfjórðurigun "Heimsóknir a heimili sunnúdagaskólabarna. : Sóknarherferð sunnudaga- skóla okkar er hafin nú þegar, og oll börn eru velkomin í sunftudagaskóla Hjálpræðishers ins,. á hvérjúm ’sunnudegi kl. 14.00. Við sk-ulum bíðja þess og trúa 'þvi, 'að okkur heppnist að leiða fleiri börn til.Krists en nokkru sinni fyrr, á „Ári barnsins.“ □ Stærsta verkið. Ótalið er þá stærsta verkið, það er bygging 33 kw. línu frá Laxárvirkjun til Kópaskers, sem þar tengist við línu til Raufarhafnar. Þegar sú lína verður tengd fær orkuveitusvæði Rafmagns- veitnanna í Norður-Þingeyjar- sýslu vestan Axarfjarðar orku frá Laxárvirkjun, sem fékkst áður frá dísilstöð á Raufarhöfn. Fyrirhugað er síðar að leggja ínu frá Kópaskeri til Þórshafn- ar og leysa þar með dísilstöðina þar af hólmi, en hvenær það verður er ekki enn ákveðið. Þau verk sem hér hafa verið talin ha£a verið unnin af vinnu- flokki Rafmagnsveitna rikisins á Akureyri, að undantekinni línunni Laxá—Kópasker, sem boðin var út og verktakafyrir- tækið Framtak h.f. annast. f ársbyrjun voru háspennu- línur á veitusvæðinu 943 km. og þegar aukning ársins er lögð við er lengd háspennulína í eign Rafmagnsveitna ríkisins á Norð urlandi eystra um 1075 km. í kauptúnum á svæðinu voru mestar framkvæmdir á Dalvík, þar voru um 15 nýjar húsveitur tengdar. íbúatala orkuveitusvæðisins er um 9000 manns, og skiptist á milli sveita og þéttbýlis þannig, að í sveitum búa 4800 en í þétt- býli um 4200 manns. □ verði ódýrari í rekstri og veiti betri og ódýrari þjónustu, t. d. að því er varðar meðferð vam- ings og uppskipun en eldri gátu gert. En því aðeins getur rekst- ur strandferðaskipa orðið hag- kvæmur, að skipin hafj næg verkefni, að vörur séu fluttar með þeim eftir því sem unnt er. Þurfa þá strandferðirnar að vera skipulagðar á hagkvæman hátt fyrir þá, sem þeirra eiga að njóta. Ýmsir hafa í seinni tíð tahð það orka tvímælis, að öll út- gerð strandferðaskipa sé í Reykjavík, og höfuðborgin þannig eins og sjálfsagður mið- punktur allra vöruflutninga með ströndum fram. í því sam- bandi hefur komið til orða að sérstakt strandferðaskip yrði gert út frá Akureyi'í og voru viðkomustaðir þess á Austfjörð um og Vestfjörðum, en þangað kæmu skip að sunnan. Staðreynd í þessu máli og óþægileg frá sjónarmiði strand- ferðanna, er sú, að langleiða vöruflutningar með bílum eru orðnir mjög miklir, t. d. frá Reykjavík norður um land til Austfjarða, og þannig flutt mik- ið af vörum, sem ella yrðu flutt- ar með skipum, en akvegir víða veikbyggðir og torfærir og eiga langferðabílstjórar oft ekki sjö dagana sæla. En viðhaldskostn- aður vega og farartækja gífur- legur, skattgjöld af slíkum bif- reiðum mjög hækkandi. Loft- flutningar vara innanlands eru líka talsverðir. Athuga þarf án fordóma, hvað hagkvæmast er í vöruflutningamálinu og hvern ig verkaskipting sé eðlilegust milli flutninga á sjó og landi og í lofti. Nátengd vöruflutningum er sú staðreynd, að í því efni sitja ekki allir landsmenn við sama borð, að því er viðskiptakjör varðar. Nokkrar algengar vörur eru þó á sama verði um land allt, af því hið opinbera hefur hlutazt til um, að svo skuli vera. Þetta á við um olíu og benzín, einkasöluvörur ríkisins, tilbúinn áburð og landbúnaðar- afurðir. En um flestar aðrar vör ur er allt aðra sögu að segja. Mikið af þessum vörum hefur verið flutt frá útlöndum til Reykjavíkur eða framleitt þar, og á öðrum verzlunarstöðum á landinu hafa menn svo orðið að borg3 flutningskostnaðinn frá Fyrr á tímum var það algengt, að skip, sem fluttu vör- ur frá útlöndum, kæmu víða við, eða útgerð millilandaskipa greiddi sjálf framhaldsflutning með sti-andferðaskipum. En nú er þessi tillitssemi við lands- byggðina úr sögunni að miklu leyti. Ekki stefnir það að jafn- vægi milli landshlutanna. Auð- sætt er að atvinnufyrirtæki, sem þurfa á framleiðsluvörum að halda, eða þurfa að koma frá sér vörum, eru að þessu leyti verr sett utan Reykjavíkur en samskonar fyrirtæki í Reykja- vík eða nágrenni hennar. Nú er með lögum búið að banna tollafgreiðslu á mörgum smærri höfnum, nema til komi' stjórnarleyfi hverju sinni. Sum- ir segja, að ef sú skylda væri lögð á innflytjendur og fram- leiðslufyrirtæki, að selja verzl- unum og atvinnufyrirtækjum vörur á sama verði á hvaða verzlunarstað sem væri, þangað komnar, myndi það út af fyrir sig breyta flutningum og stað- setningu framleiðslunnar á hag kvæman hátt fyrir landsbyggð- ina. □ Sigurður 0. Björnsson sjötugur SIGURÐUR O. BJÖRNSSON er sjötugru' í dag, 27. janúar, og dvelst erlendis. Hann er kunn- ur prentsmiðjustjóri og bóka- útgefandi á Akureyri um 40 árr, skeið. Og í aldarfjórðung hefur hann stundað skógrækt á Sel- landi i Fnjóskadal. Sigurður e:.’ óvenju vinsæll maður og ve. gerður. Dagur sendir honum árnaðar ■ óskir í tilefni afmælisins. □ „Lengi er von á einuní t/ Grýtubakka 21. jan. Það bar til í síðustu viku, að tólf lömb bónd ans í Kolgerði komu ekki heim eitt kvöldið með ánum, sem þau voru með úti. Að sjálfsögðu hóf eigandinn leit ásamt hjálpar- mönnum, árangurslaust til að byrja með. Á laugardaginn 16. eða þriðja dag leitarinnar fékk hann með sér m’anri á vélsleða, og skyldi leitað lengrá, eða allt norður á Leirdal, en ekki fund- ust lömbin, en aftur á móti fundu þeir á og lambgimbur Framsóknarvist á HótelKEA Á LAUGARDAGINN efndu ungir Framsóknarmenn á Akur eyri til Framsóknarvistar og dans á Hótel KEA. Spilað var á 27 borðum. Vistinni stjórnaði Sigurður Jóhannesson bæjarfullti'úi, en áður flutti Ingvar Gíslason al- þingismaður stutt ávarp, en að síðustu var dansað af miklu fjöri. □ SMÁTT & STÓRT (Framhald af blaðsíðu 1) gæta hagsmuna gamla fólksins! Þessi öfugþróun er hörmuleg og fyrirfram vonlaus fjöður í kosningahatt núverandi stjórn- arflokka. I „GLÆPAMENN“ í ritstjórnargrein Alþýðublaðs- ins fyrir helgina segir: „Þeir, sem reyna að gera landhelgis- málið að pólitísku deilumáli og skapa um það sundrung, eni glæpamenn gegn hagsmunum íslenzku þjóðarinnar. Alþýðu- blaðið krefst þess, að þeir Iáti heill föðurlandsins ganga fyrir eigin hagsmunum. Alþýðublað- ið krefst þjóðareiningar í land- helgismálinu.“ Þetta er vel og fallega mælt og vonandi að eftir fari, því að einingin er fyrir, öllu, eins og við vitum. En holt væri Alþýðublaðinu að minnast þess, að sama blað taldi ekki þjóðarnauðsyn á samstöðu, er núverandi stjómarflokkar gerðu nauðungarsamninginn við Breta fyrir nálega áratug. Þá greiddu 28 þingmenn at- kvæði á móti þeim samningi. En þá virtist ekki þurfa þjóðar- einingu-, aðeins nauman meiri- hluta. í Iandhelgismálinu er þessi samningur mestur þrösk- uldur á útfærslu landhelginnarj enda hefur sú 'stjórn, er gerði hann, ekkert treyzt sér til aði aðhafast málinu til framdráttar, en hrópar nú mn glæpa- mennsku, ef algera samstöðu skyldi skorta! MIKIÐ STRÍÐ Reykvíkingar hafa opinberlega sagt tveim tegundum húsdýra stríð á liendur. Fyrst bönnuðu þeir sauðfjárhald og spunnust af því hinar hörðustu deilur, og þurfti lögreglan til að koma, svo að framkvæmd bamisins væri fullnægt. Nú hefur borgan stjóm samþykkt að hundar skuli víkja út fyrir borgartak- mörkin. Þeim 2000 hundum, sem álitið er að séu þar, skal nú lóga ef úti sjást, en í síðastaj lagi fjrir 1. september. En þá ganga útrýminganneim í liús sömu erinda. norðan við svokallað Ytra-Þver- gil. Þar sem fæi’i var gott rák- ust þessar kindur hiklaust hein. í hús. Eigandi kindanna reynd ' ist vera Baldur Jónsson, Grýtu- bakka I. Nú varð eitthvað undan ao láta með að finna lömbin. Svo daginn eftir söfnuðust samari margir menn í Kolgerði með 2 vélsleða. Dreifðu sumir sér tii leitar upp í hnjúka, en aðrir fóru á vélsleðunum norður Leir dalsheiði og út á áðurnefndan Leirdal. En það má segja, „að lengi sé von á einum“, því þar norðurfrá fimdu þeir lambhrút sunnan við Þvergilið. Var hann siðan fluttur til bæja og var eigandi sá sami og að fyrri kindunum. Það er af lömbunum að segja, sem leitað var að, að þau fund- ust þennan dag upp á svoköll- uðum Benediktshnjúk, sem e: hér beint upp af bæjunum Kol- gerði og Grýtubakka. Þein. vai'ð ekkert meint af þessu oða- goti sínu. Þar sem heimtukindumar fundust var jarðlaust að mestu og eru þær því mjög' magrar, einkum ærin og hrúturinn. Þeim heilsast öllum vel og eru örugglega komnar yfir alla hættu í sambandi víð fóður- breytinguna. Það er nokkurn veginn vísá að þessar kindur hefðu drepizi) í vetur á þessum slóðum, hefðu Kolgerðislömbin ekki tekið upp á þessu léttlyndi, svo hér sanri- ast máltækið, „að fátt er svo með öllu illt að ekki boði nokk- uð gott.“ Baldur Jónsson. BLAÐASKÁKIN TÍMINN — DAGUK Hvítt: Gunnar Gunnarsson ohJ Trausti Bjömsson, ReyKjaviK;, Svart: Jóhann Snorrason og Margeir Steingrímsson, Ak. 1. d2—d4 Rg8—fl> 2. c2—c4 e7—ef j 3. Rbl—c3 d7—d5 j, 4. c4xd5 e6xd5 5. Bcl—g5 Rb8—d7 6. e2—e3 c7—ctí 7. Bfl—d3 Bf8—ei j 8. Ddl—c2 Rf6—h5 i 9. 10. Bg5xe7 O—O—O DdSxej ! I'

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.