Dagur - 24.02.1971, Blaðsíða 1

Dagur - 24.02.1971, Blaðsíða 1
Dagur LIV. árg. — Akureyrí, miðvikudaginn 24. febrúar 1971 — 8. tbl. FILMU HÚSIÐ Hafnarstrætj 104 Akureyri Sími 12771 • P.O. Box 397 SÉRVERZLUN: LJÓSMYNDAVÖRUR FRAMKÖELUN - KOPIERING r Ovelkomiiin gestur g$$$$$$$$ý$3$$$3$5$3$$3$3^;535333335$333355$$333*»^^ HINN 18. febrúar sá Árni Ás- bjarnarson bóndi á Ásbúðum á Skagaströnd, stórt og fallegt bjarndýr, skammt frá húsum, en ís lá þar að landi. Fór bóndi inn til að hafa samband við nágranna sinn, og ráðgera að vinna björninn. En bangsi beið ekki og skokkaði leiðar sinnar. Næst varð dýrsins vart í Vík- um. Var þar skotið á það en það hélt enn leiðar sinnar, þó með skotsár á fæti. ■Ekki skeytti bjarndýr þetta um menn eða sauðfé, sem úti var og ekki langt frá leið bangsa. Má því segja, að þessi meinlausi en þó óvelkomni gest ur hafi fengið fremur kuldaleg- (ar viðtökur. □ Hreinlæfisvitundina vantar hér BANDARÍSKUR sérfræðingur, sem athugaði 20 íslenzk frysti- hús, er selja framleiðslu sína á erlendan markað, segir að hrein lætisvitund íslendinga sé áfátt. „Við meðferð og flutning á fiskúrgangi var í flestum frysti- húsanna sem heimsótt voru gætt sæmilegs hreinlætis og verkhyggni. Steinsteyptar stétt- ir voru undir fiskúrgangsköss- um til að taka við vökva sem r Atelur hækkanir á opinberri þjónustu AÐALFUNDUR IÐJU, félags verksmiðjufólks á Akureyri, haldinn í Alþýðuhúsinu 14. febrúar 1971 átelur harðlega sífelldar hækkanir hins opin- bera á ýmiskonar þjónustu, sköttum og útsvarsálögum á al- menning, þar á meða er það skoðun fundarins, að með öllu sé það óeðlilegt að persónufrá- dráttur skuli ekki haldast í hendur við aukinn framfærslu- kostnað, og telur hann nú um 30% of lágan miðað við árin 1965 og 1966. Skorar fundurinn á ríkisstjórnina, að láta fara fram endurskoðun á skattalög- gjöfinni í heild, svo sanngjörn- um leiðréttingum verði við komið. □ úr þeim lak. Þannig frágangur verður að vera í öllum frysti- húsum. Þessar stéttir verða að hafa niðurfallsop svo að vökv- inn geti runnið í frárennslis- kerfið. Eins og lýst er í kaflan- um um umhverfi frystihúsa er meðhöndlun annars úrgangs í föstu foi-mi, svo sem pappa- kassa, pappírs o. s. frv. á allt annan veg farið. Það virðist vera nær algild regla hjá frysti- húsunum að þessum úrgangi sé dreift um fjörurnar og á sjávar- bakkana. En við það myndast gróðrarstíur fyrir skordýr og nagdýr, eldhætta og sýkingar- hætta, svo að ekki sé talað um hvílík hörmungarsjón þetta er. Forsvarsmenn frystihúsa og ibæjarfélaga virðast bera jafnt ábyrgð á þessu kæruleysi. Auk þeirra raunverulegu vanda- mála, sem af þessum ósið stafa og bent hefur verið á hér að ofan, sýnir þetta háttarlag full- kominn skort á hreinlætisvit- und og tilfinningu fyrir góðum umgengnisháttum. Þetta yrði mikill þyrnir í augum erlendra gesta ekki sízt sérmenntaðra eftirlitsmanna," segir þessi sér- fræðingur m. a. og má margt af því læra. Og þann lærdóm verða þeir bæði að nema og til- einka sér, er keppa vilja í öðr- um löndum og heimsálfum um sölu á fiski og fiskafurðum. □ Undanfarna daga hafa margir staðið við dorg á ísnum á Akureyrarpolli og aflað vel. Átðk í vegamálum á Auslurlandi LOÐNA hefur borizt til Seyðis- fjarðar, Neskaupstaðar, Eski- fjarðar, Fáskrúðsfjarðar og Stöðvarfjarðar og er það veru- legt innlegg í atvinnulífið. En á Austfjörðum hefur yfirleitt ekki verið atvinnuleysi, nema á Vopnafirði. Togbátar afla ofur- lítið en fremur dræmt þegar á heildina er litið, einkum vegna ógæfta. Snjór er nokkur, jafnfallinn, heiðar lokaðar nema Fagridal- ur. Hreindýr hafa ekki sézt hér út um Egilsstaði ennþá, og lík- legt, að sæmilegt sé til beitar á Leiðirnar opnar í allan vetur Ófeigsstöðum 23. febrúar. Hláka er komin og kærkomin, og blíð- viðri í dag, enda komin góa. Bændur eru ekki heysterkir en allt mun bjargast vel ef veðrátt- an verður ekki hörð. í vetur hafa naumazt fallið LAXÁRMÁL Á ALÞINGI í SAMBANDI við hið endur- flutta frumvaiTD menntamála- nefndar um takmarkaða nátt- úruvernd á vatnasvæði Mý- vatns og Laxár, hafa á Alþingi undanfarið orðið allmiklar um- ræður um Gljúfurversvirkjun. í þessum umræðum sagði Stef- •án Valgeirsson m. a.: Ég hef haldið því fram síðan í byrjun þessarar deilu að óhugsandi væri að fara út í svona mannvirkjagerð nema fyrir lægi áður fullt samkomu- lag um hana milli aðila. Þörfin fy rir raforku er mjög mikil á þessu svæði og verður ekki hægt að komast hjá því, að bæta úr því hið bráðasta. Og ef þetta mál er athugað nánar, hlýtur sú spurning að vakna, hvernig forysta stjórnarvalda sé í þessum málum. Var því ekki lýst yfir af stjórnarvöldum þegar ákvörðun var tekin um Búrfellsvirkjun, að næsta virkjun yrði Dettifoss virkjun? Muni ég þetta rétt, hvað hefur verið gert til að standa við það fyrirheit? Fyrir tveim árum, meðan enn var tími til skynsamlegra aðgerða, spurði ég fjármálaráðherra, hér á Alþingi að því, hvort þess væri ekki að vænta, að rann- sóknum á Dettifossvirkjun yrði vatnaflutninga úr því fljóti í Laxá. Fjármálaráðherra gaf þá þær upplýsingar að á næsta sumri, þ. e. 1969, yrðu lagðar 5 millj. kr. í rannsóknar við Dettifoss og myndi sú rannsókn, er hægt væri að gera í einu sumri fyrir þessa fjárupphæð gefa til kynna um hagkvæmni þessara virkj- ana umfram það, er þá lá fyrir. Ég veit ekkí til, að þessi rann- sókn, sem sagt var að ætti að (Framhald á blaðsíðu 5) niður ferðir mj ólkurbíla, og börn hafa nær undantekningar- laust komizt í heimangöngu- skóla sinn, enda hefur víða ver- ið meiri snjór í vetur en í Kinn. Leikfélagið- hér er að æfa Upp. til selja og Apaköttinn. Leikstjóri er Kristján Jónsson, og mun hann víðar leiðbeina áhugafólki í leiklist í sýslunni. Því miður þori ég ekki að hafa uppi nein gamanmál að þessu sinni, á meðan hárin rísa á aðilum mikilla deilumála. En þótt menn deili vilja allir lifa í friði og sátit og þurfa þess með. B. B. heiður uppi á hreindýraslóðum. Miklar framkvæmdir eru fyr- irhugaðar í vegamálum og verða lagðar fram 60 millj. kr. til þeirra umfram fjárlög. Verð- ur þá byggður upp vegurinn á Jökuldal og sennilega byggð brú á Gilsá, mikið mannvirki, ennfremur Fagradalsbraut frá Græfum að Egilsstöðum. Svo á að lagfæra veginn mikið á Beru fjarðarströnd. Um byggingar hefur áður verið fjallað og verða þær allmiklar. Lagarfossvirkjun verður boð- in út mjög bráðlega. Svo átti, samkvæmt vegalögum, að leggja hér fyrstu hraðbraut um og við Egilsstaðaþorp. Það er um tveggja km. vegur. Skipasmíðar færast mjög í aukana á Seyðisfirði og Nes- kaupstað og ennfremur eru tölu verðar bátasmíðar í Fáskrúðs- firði og í Borgarfirði. Austfirðingar eru að ná sér eftir það öngþveiti, er skapað- ist er síldin hvarf og hún var ekki lengur grundvöllur at- vinnulífsins. V. S. Búnaðarþing hafið í Bændahöll BUNAÐARÞING hófst á mánu daginn, var sett með viðhöfn í Bændahöllinai kl. 10 árdegis. Viðstaddii' voru forseti íslands Dómur fallinn í máli Daníels Stefán Valgeirsson. haldið áfram og hvort ekki væru fyrirhugaðar rannsóknir á Skjálfandafljóti við íshólsvatn. Þá átaldi ég það, að ekki skyldu vera rannsakaðir þeir möguleik ar, sem kynnu að vera fyrir hendi í Skjáldandafljóti, áður en gerðar væru áætlanir um FYRIR tæpu ári höfðaði Daníel Daníelsson fyrrum læknir á Húsavik mál á hendur sjúkra- hússtjórn og er dómur fallinn. Kröfur læknisins voru: í fyrsta lagi, að uppsögn hans væri dæmd ólögmæt. í öðru lagi, að sjúkrahúsið greiði Daníeli 6 mánaða laun eftir 30. sept. 1969 ásamt yfirvinnu, bíla kostnaði o. fl., samtals kr. 386.394.00. 1 þriðja lagi krafðist læknir þess, að fyrir röskun á stöðu og högun greiddi sjúkra- húsið eina willj. kr. Og í fjórða lagi, að sjúkrahúsið greiði Daníel ferða- og flutoingskostn að frá Svíþjóð til Húsavíkur í ágúst 1968, kr. 200.000.00. Þetta er samtals í krónum 1.586.394.00 Þessum kröfum öllum hafn- aði undirréttardómur. Varakrafa Daníels var sam- tals kr. 1.398.197.00. Upp í þessa kröfu fékk Daníel Daníelsson fyrrum læknir á Húsavík 160 þús. kr. og 50 þús. kr. upp í málskostnað, samtals 210 þús. dr. Kristján Eldjárn og Ingólftir Jónsson landbúnaðarráðhema. Þorsteinn Sigui-ðsson, bóndi á Vatnsleysu, foi-rraaðuj' B. í. setti’ þingiS með ræðu. Formaður ræddi hlýviðris- kaflann 1930—1960 til saman- burðar við nýliðinn áratug og áhrif verðráttunnar á búskap- inn. Þá sagði hann, að Bjarg- ráðasjóður hefði á síðustu 15 árum veitt bændum lán og styrki að upphæð um 200 millj. Síðan ræddi formaður um fiski ræktina í ám og vötnum og fisk eldi. Ennfremur á eignarréttar- mál bænda og ásókn kaupstað- arbúa í sumarbústaðalönd, og um búnaðarskóla á Suðurlandi, ylræktina og mengunarmálin í hafinu umhverfis landið. (Framhald á blaðsíSu 4)

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.