Dagur - 01.05.1971, Blaðsíða 7
7
Frá Bókmenniaklúhbi Akureyrar
AÐALFUNDUR Bókmennta-
klúbbs Akureyrar var haldinn
í Amtsbókasafninu á Akureyri
þann 28. marz sl.
Eiríkur Sigurðsson, formaður
klúbbsins, skýrði frá störfun-
um á árinu. Gengist var fyrir
bókasýningu í Amtsbókasafn-
inu frá 15.—30. marz á bókum
núlifandi rithöfunda á Akur-
eyri og í Eyjafirði. Fjórar bók-
menntakynningar höfðu farið
fram. Árni Kristjánsson mennta
skólakennari og Þóroddur Guð
mundsson skáld frá Sandi
höfðu flutt fyrirlestra um bók-
menntir. Þá hafði farið fram
kynning á ljóðum, sem félags-
menn önnuðust sjálfir. Og nú
nýlega fór fram kynning á ljóð-
um Tómasar Guðmundssonar,
þar sem skáldið las úr ljóðum
sínum og Kristján Karlsson
flutti erindi um ljóð Tómasar,
en nemendur M. A. lásu úr
Þeir Eiríkur Sigurðsson, for-
maður klúbbsins, og Kristján
frá Djúpalæk, ritari hans, báð-
ust undan endurkosningu.
í stjórn voru kosnir: Þórar-
inn Guðmundsson formaður,
Árni Kristjánsson, Magnea
Magnúsdóttir, Lárus Zophonías
son og Tómas Ingi Olrik. Vara-
menn: Sverrir Pálsson og Gísli
Jónsson.
Á fundinum kom það fram,
að menn væntu þess, að Höf-
undarmiðstöðin gengist fyrir
stofnun fleiri bókmenntaklúbba
en þeirra tveggja hér og á
(Framhald af blaðsíðu 4)
Það er hrein fjarstæða, eins
og ég hef vikið að áður. Að
minnsta kosti er ég víst bæði
fædd og alin með þeim „ósköp-
um“, að hafa áhuga á opinberu
stjórnmálalífi í landinu. Hins
vegar er það öllum ljóst, að
konur utan af landi hafa fæstar
tök á því, þótt þær hefðu áhuga
á, að sitja á Alþingi svo mánuð-
um skiptir, jafnvel hálft árið,
fjarri heimilum sínum. Það er
eiginlega alveg fráleitur hlutur.
En það eru fleiri stjórnmála-
störf til en þingmennskan. Og
þar geta konur lagt sitthvað af
mörkum, því að heima í héraði
eiga þær ekki að standa körlum
að baki í pólitísku lífi. Allir
vita, að þar sem konur leggja
sig fram, munar um þær og má
færa sterk rök að happasælli
baráttu þeirra í ýmsum málum,
einkum þar sem þær starfa í
sérfélögum vegna einstakra
málaflokka. En þetta þarf að
breytast á þá leið, að konur taki
virkan þátt í almennum félags-
málastörfum hvar sem er með
karlmönnunum, og á síðari ár-
Sauðárkróki, sem hér eru starf-
andi, svo að hægt verði á næsta
ári að framkvæma samþykkt
um verðlaunaveitingu með
Davíðspenna fyrir beztu ís-
lenzka bók ársins að dómi
klúbbfélaga.
um hefur raunar verið stefnt í
þá átt, svo sem í stjórn sveita
og bæja. Konur mega alls ekki
loka sig alveg inni á heimilun-
um, eins og of algengt er og
engum til gagns.
Og í samræmi við þessar
skoðanir tókst þú sæti á lista
okkar Framsóknarmanna?
í samræmi við þetta hef ég
unnið ofurlítið að félagsmálum,
og í samræmi við þetta hafnaði
ég ekki því boði, að taka sæti
á framboðslista þess stjórnmála
flokks, sem er sprottinn upp úr
jarðvegi ungmennafélaganna og
samvinnuhreyfingarinnar, set-
ur manngildið ofar peningum,
vill vinna að framförum lands-
ins alls, að jafnvægi milli
byggða og bættri afkomu fjöld-
ans, en ekki aðeins fárra út-
valdra, og hefur auk þess
óvenju trausta forystu. Vegna
þess, að flokkurinn hefur verið
þessari stefnu trúr, vil ég vinna
með honum á stjórnmálasvið-
inu, og það munu margir vilja
í þessum kosningum, segir frú
Valgerður að lokum og þakkar
blaðið svör hennar. E. D.
- Konur eiga að ganga fram til félagsstarfa
Akureyri síllti 21400
Samband isl.samvínnufélága
Véladeild
Ármúla 3, Hvíh. sími 38000
Eybír abeins Slítrum
á 100 km tíl fafnaðar
en véíin þó stœrrí og
hraftmeiri
en n&khru sínni fyrr!
Vaúxhall Viva kemur nú á 13 tommu felgum. Övenju
falleg og vönduð innrétting. Tvöfalt hemlakerfi. Frá-
bærir aksturseiginleikar. Viva er framleidd af Generai
Motors, stærzta bilaframleiðanda heims.
Leitið nánari upplýsinaa.
VELADEIU)
ORÐ DAGSINS SÍMI 2-18-40.
SLÖKKVISTÖÐIN — Sjúkra-
bíllinn — Brunaútkall, sími
1-22-00.
SJÖTUGUR. Veturliði Sigurðs-
son húsasmiður, Oddeyrar-
götu 30, er sjötugur í dag, 1.
maí. Hann er að heiman. —
Dagur sendir honum árnaðar-
óskir.
AUGLÝSIÐ í DÉGI
GJAFIR. Fjórðungssjúkrahús-
inu á Akureyri hafa borizt
þessar gjafir til minningar
um Guðmund Karl Pétursson
kr. 3.000 frá Önnu Björns-
dóttur, Guðrúnu Jónsdóttur
og Birni Jónssyni. Minningar
gjöf um Kristjönu Jónsdóttur
Syðra-Holti kr. 5.000 frá vin-
konu. Áheit frá Margréti
Magnúsdóttur kr. 2.000. Frá
N. N. kr. 5.500. — Stjórn
sjúkrahússins sendir gefend-
um beztu þakir. — Torfi Guð
laugsson.
r
- Avarp verkalýðsfélaganna á Akureyri 1. maí
(Framhald af blaðsíðu 1)
verður að hætta, launajöfnuð-
ur að verða miklu meiri, og
þeim launajöfnuði verður að ná
með stórbættum kjörum lág-
launastéttanna.
Það er grundvallarkrafa, að
allir hafi það góð laun, að þeim
nægi dagvinnutekjur til eðli-
legs eyðslueyris. Yfirvinna á að
verða ill nauðsyn en ekki eftir-
sóknarvert fyrirbæri.
Þar sem meginhluti allrar
fjármunamyndunar í þessu
landi grundvallast á sjósókn,
ber að búa það vel að sjómönn-
unum, að sjómennskan verði
eftirsóknarverð atvinnugrein,
en ekki starj, sem því aðeins sé
sinnt, að enga vinnu sé að hafa
í landi.
Á þessu ári verður að gera
stórátak í Iaunamálum. Stefna
ber að því, að vinnuþrældómur
verði úr sögunni, en stytting
vinnuvikunnar raunhæf. Jafn-
framt verði unglingum, öldruðu
fólki og öryrkjum gefinn kost-
ur á vinnu hluta úr degi.
Ríka áherzlu ber að leggja á
það að varðveita náttúrleg auð-
æfi landsins og nýta þau, þar
með talin miðin umhverfis land
ið, fyrir fslendinga eina.
Kappsamlega ber að vinna að
eflingu iðnaðar og þannig, að
höfuðáherzla sé lögð á upp-
byggingu þess stóriðnaðar, sem
byggist á fullnýtingu landbún-
aðar- og sjávarafurða.
Kröfur dagsins í stuttu máli:
Vinnu fyrir alla, sem unnið
geta, en burt með vinnuþrælk-
un.
Stórhækkað kaup fyrir lág-
launastéttirnar.
40 stunda vinnuvika gefi líf-
vænleg laun.
Tryggt sé, að allir eigi þess
kost að njóta orlofs.
Betri tryggingar fyrir sjúka
og aldraða.
Alhliða eflingu innlendra at-
vinnugreina.
Stækkun fiskveiðilögsögu í
a. m. k. 50 mílur fyrir 1. sept.
1972.
Göngum heil til hátíðar, og
strengjum þess heit að standa
vel saman um þessar kröfur og
aðrar þær, sem verkalýðshreyf-
ingin verður að bera fram til
sigurs.
1. maí-nefnd
verkalýðsfélaganna
á Akureyri 1971.
- ÚR VÍTAHRINGNUM
(Framhald af blaðsíðu 4)
yrðu teknir upp í t. d. launa
málum samvinnufélaganna
og starfsmanna þeirra. Gæti
orðið um jákvæða þróun að
ræða, sem tæki vissulega
sinn tíma, en ef að yrði, yrði
hún áreiðanlega til mikilla
bóta fyrir alla aðila. Það er
fyrir löngu tími til þess kom
inn að leiða kjaramál á ís-
landi út úr þeim vítahring,
sem þau eru í. Aukinn skiln-
ingur — annars vegar á getu
atvinnurekstrarins til að
greiða laun og hins vegar á
nauðsyn þess að láta laun-
þegana njóta bættrar af-
komu hans á hverjum tíma
er líklegra en flest annað til
raunverulegra úrbóta í þess-
um efnum. Það er félagsleg
skylda samvinnuhreyfingar-
innar að taka þessi mál hið
fyrsta föstum tökum. Það
væri í samræmi við sögu
hennar og markmið. □
HELGI STEFÁNSSON, bóndi, Þórustöðum,
verður jarðsunginn frá Kaupangskirkju þriðju-
daginn 4. maí kl. 14.
o
Vandamenn.
Hjartans þakkir til allra þéirra, sem auðsýndu
okíkur samúð og vináttu við andlát og jarðarför
JÓNS KRISTJÁNSSONAR, Skógarnesi.
Sérstakar þakkir færum' við læknum og starfsliði
Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri fyrir góða
hjúkrun og umönnun.
Þórey Einarsdóttir,
Sóley Jónsdóttir,
Svanhvit Jónsdóttir,
Rósa Guðrún Jónsdóttir.