Dagur - 15.05.1971, Síða 7

Dagur - 15.05.1971, Síða 7
7 Ferðaáætlun Ferðafélags Akureyrar 71 1. ferð: 20. maí. Jarðfræði- og fuglaskoðunar- ferð um nágrenni Akureyrar. 2. ferð: 30. eða 31. maí. Öxnadalur — Hörgárdalur; gönguferð. Gengið frá Bakka- seli um Gilsskarð og Víkingsdal eða Grjótárdal í Hörgárdal. I . ! 3. ferð: 4.-6. júní. Herðubreiðarlindir — Askja; vinnu- og skemmtiferð. Kjarabætu Á ÞINGINU í vetur fluttu al- þingismennirnir Ingvar Gísla- son og Jón Skaftason athyglis- vert frumvarp til laga um kjara bætur aldraðra. í frumvarpinu var gert ráð fyrir, að bætt yrðu sérstaklega kjör þess fólks, sem minnstar hefur tekjur í ellinni, þ. e. a. s. verður að láta sér nægja ellilífeyrinn frá almanna tryggingum, sem er 4900 kr. á mán. fyrir einstakling. . Tillögur Ingvars og Jóns sam- kvæmt þessu frumvarpi voru aðallega þrjár: 1. Sérstakur skattfrádráttur fyrir 70 ára og eldri, enda sé hlutaðeigandi ekki í lífeyris- sjóði. — Þetta ákvæði var hugs- að sem stuðningur við sjálfs- bjargarviðleitni aldraðs fólks, sem vinnur fyrir sér á almenn- um vinnumarkaði langt fram á ellidaga. í stað þess að skatt- leggja þessi gamalmenni að fullu er þeim gefinn kostur á því að spara, leggja fyrir til síðustu æviáranna, þegar starfs ævi hlýtur óhjákvæmilega að ljúka. 2. Fullur hjónalífeyrir verði greiddur hjónum, sem svo stendur á um, að miseldri er með þeim, einkum á þann veg, að fyrirvinnan, eiginmaðurinn, er eldri og e. t. v. þrotinn að heilsu. Samkvæmt gildandi lög- um þurfa bæði hjónin að hafa náð 67 ára aldri til þess að þau fái hjónalífeyri. 3. Felld verði niður bein skipt ing á uppbót á lífeyri milli 4. ferð: 19.—20. júlí. Grímsey; miðnætursólarferð með skipi. 5. ferð: 26—27 júlí. Ólafsfjörður — Héðingsfjörð- ur — Siglufjörður; gönguferð. Gengið upp frá Kleifum við Ólafsfjörð og gist í tjöldum eða sæluhúsi í Héðinsfirði. Gengið um Hestskarð til Siglufjarðar. Heim með bíl um Lágheiði. r aldraðra sveitarfélags og ríkissjóðs. — Hér er um réttlætis- og hag- kvæmnismál að ræða. Eins og nú er, veldur ákvæðið um beina skiptingu uppbótarinnar milli sveitarfélags og ríkissjóðs óþarfri skriffinnsku og ómann- úðlegu ráðslagi um einkahagi fólks. Hér er um að ræða leifar frá þeim tíma, þegar umkomu- lausir fátæklingar urðu að leita á náðir lireppsyfirvalda um sveitastyrk. Því miður náði þetta frum- varp þeirra Ingvars og Jóns ekki fram að ganga, og ekki tókst að fá viðurkenningu á þessum sjónarmiðum við endur skoðun almannatryggingalag- anna. — Þess er þó vert að geta, að eftir nokkur orðaskipti milli flutningsmanna og málsvara ríkisstjórnarinnar, féllst fjár- málaráðherra á, að tekinn skyldi upp tiltekinn ellifrádrátt ur frá sköttum til ríkisins. En eftir sem áður er hægt að of- skatta vinnufús gamalmenni með útsvarsálagningu og brjóta niður sjálfsbjargarviðleitni þeirra og vilja þeirra til þess að standa sem lengst á eigin fót- um. Við afgreiðslu almanna- tryggingarlaganna stóð stjórnar liðið eins og veggur gegn hug- myndum Ingvars Gíslasonar og Jóns Skaftasonar. í því efni er Alþýðuflokkurinn ekki barn- anna beztur. Mannúðleg sjónar mið virðast ekki eiga greiðan aðgang að hjörtum þeirra, sem þar ráða um þessar mundir. □ 6. ferð: 2.—4 júli. Jökuldalur — Laugafell; vinnu- og skemmtiferð. Tæki- færi mun gefast til að ganga á Laugafellshnjúk eða Tungna- fellsjökul. 7. ferð: 3.—9. eða 10. júlí. Snæfellsnes — Breiðafjarðar- eyjar — Barðaströnd. Ekið um Borgarfjörð fyrir Snæfellsnes til Stykkishólms. Á leiðinni verða ýmsir hinir fegurstu stað- ir skoðaðir svo sem Búðahraun, Hellnar, Lóndrangur, Dritvík, Búlandshöfði, Grundarfjörður og Helgafell. Frá Stykkishólmi verður farið (væntanlega á mánudag) um Breiðafjarðar- eyjar á báti, síðan ekið um Barðaströnd, á Rauðasand og út á Bjargtanga að Látrabjargi. Síðan verður farið um Þorska- fjarðarheiði út í Kaldalón. Heim um Tröllatunguheiði eða Laxárdalsheiði. 8. ferð: 11. júlí. Skipapollur — Ullarfoss — Þingey; með gúmbát FFA. 9. ferð: 17—18. júlí. Þeistareykir — Víti á Þeista- reykjarbungu. Heim um Hóla- sand og Mývatnssveit. 10. ferð: 24.-25. júlí. Náttfaravíkur. 11. ferð: 30. júlí — 2. ágúst. Gæsavatnsleið. Ekið um Vest urdal í Laugafell, þaðan í Tungnafell og að Gæsavötnum. Síðan Gæsavatnaleið um Dyngjuháls, Urðarháls, Dyngju fjalladal og Suðurárbotna í Svartárkot. 12. ferð: 12.—15. ágúst. Hvannalindir — Kverkfjöll. Ekið í Möðrudal um Hvannár- dal, yfir Arnardalsá og nýja brú á Kreppu og upp í Hvanna lindir. Farið upp að Kverkfjöll- um og íshellar skoðaðir. 13. ferð: 27.-29. ágúst. Miklafell í Hofsjökli. Ekið um Vesturdal í Laugafell. Ekið þaðan að jökulröndinni og geng ið á Miklafell (eða Klakk, ef vill). Alúðar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinanhug við andlát og útfðr ARA ÞORGILSSONAR, Sökku. Fyrir mína hönd og annarra vandamanna, Halldór Arason. Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarför KRISTÍNAR BENEDIKTSDÓTTUR frá Hróarsstöðum. Sigurður Davíðsson og aðrir vandamenn. Hjartkær fo'wturmóðir og fóstursystir okkar, SIGRÍÐUR JÓHANNSDÓTTIR, Stóru Brekku, lezt í Fjórðungssj úkrah úsinu á Akureyri 10. maí síðástliðinn. jarðarförin fer fram að Moðruvöllum í Hörgár- dal þriðjudaginn 18. maí ki. 2. Jóhanna Jóhannsdóttir, Sigríður Guðmundsdóttir. 14. ferð: 5. september. Flateyj ardalur (herjaferð ). 15. ferð: 17.—19. setpember. Jökuldalur — Laugafell. Skemmti- og vinnuferð, eins og ferð nr. 6. 16. ferð: 1.—3. október. Herðubreiðarlindir — Askja. Skemmti- og vinnuferð. 17. ferð: 7. nóvember. Vaðlaheiði, gönguferð. 18. ferð: 21. nóvember. Hólavatn — Leyningshólar. Göngu-, skíða- eða skautaferð. Ferðanefnd áskilur sér rétt til breytínga á áætlun, ef þörf krefur. Geymið áætlunina og fylgist með auglýsingum í dag- bók blaðsins. □ HIÍKOmÍð) SUNDBOLIR - BIKINI — á 6—12 ára. — Ó d ý r t . MARKAÐURINN SÍMI 1-12-61. SJÓNARHÆÐ. Almenn sam- koma n. k. sunnudag kl. 17.00. Jógvan Purkhús talar um „GUÐSRÍKIГ. Umræður á eftir. Allir velkomnir. sAUa HJALPRÆÐISHERINN Sunnudag kl. 20.30 al- menn samkoma. Allir velkomnir. SLÖKKVISTÖÐIN — Sjúkra- bíllinn — Brunaútkall sími 1-22-00. KURT SONNENFELD tann- læknir verður fjarverandi til 1. júní. SAMHJÁLP, félag til varnar sykursýki, heldur aðalfund fimmtudaginn 20. maí (upp- stigningadag) kl. 3 e. h. að Hótel Varðborg (uppi) — Ásgeir Jónsson, læknir, flyt- ur erindi. — Nýir félagar vel- komnir. — Stjórnin. ORÐ DAGSINS SÍMI 2-18-40. Samstarfsmenn sumars og gróðurs TIL skógræktarfrömuðanna Jóns Rögnvaldssonar og Ár- manns Dalmannssonar frá forn- vini. Þjóðin undir þeirra tekur þýðan söng, er unað vekur, vottar ykkur virðing sína, verkin móti sólu skína: — Góðu vinir — gróðrarvinir, „gamla landsins" traustu hlynir! Þakkir ykkar þúsund munnum þrestir syngja í skógarrunnum. LEIIvFÉLAG AKUREVRAR TÚ SKILDIN GS- ÓPERAN, leikrit með söngvum, eftir Bertliold Brecht. Tónlist: Kurt Weill. Leikstjóri: Magnús Jónsson. Frumsýning laugardag kl. 8. Önnur sýning miðvikudag kl. 8. Aðgöngumiðasalan í Leikhúsinu opin kl. 3—5 daginn fyrir sýningu, og 3—5 og 7—8 sýningardag- inn. — Sími 1-10-73. Gróðurprúðir, grænir lundir glitra tignum fjöllum undir, foldarsárin gömlu græða, glæstum skrúða landið klæða. Ekkert fegra um ævidaga, engin stærri lífsins saga, en með sumri í sál, á grundu, samleið eiga að hinztu stundu. Richard Beck. BIFREIÐASKOÐUN hefur nú staðið yfir í hálfan mánuð og eiga margir að vera búnir að láta skoða. Nokkur misbrestur hefur þó orðið á því, að sögn Gísla Olafssonar, að menn komi á réttum tíma með bifreiðar sín ar til skoðunar. Lögreglan er nú farin að líta í kring um sig eftir óskoðuðum bifreiðum, sem eiga að vera skoðaðar og verða þær innan skamms teknar úr umferð, hvar sem til þeirra næst. - □ Reykjaskóli í Hrútafirði 40 ára REYKJASKÓLI var vígður og settur í fyrsta sinn 7. jan. 1931 að viðstöddum mörgum gestum úr nágrenninu, og er því 40 ára. Nemendur þennan fyrsta vet ur voru 15, flestir úr Stranda- sýslu og V.-Húnavatnssýslu. Ekki var pláss fyrir fleiri. Starf aði skólinn í einni deild. Á næstu árum er svo smám saman bætt við húsakost skól- ans. 1933—34 er byggt leikfimi- hús úr timbri og 1935 er bætt við aðalbyggingu skólans. Síðan verður nokkurt hlé á um bygg- ingar og skólinn er hernuminn fyrst af Bretum og síðan Banda ríkjamönnum frá hausti 1940 til vors 1943. Féll skólahald þá nið ur og voru hús skólans og land mjög illa farið £ftir hernámið. En þá var hafizt handa um úr- bætur, byggð stór og góð úti- sundlaug, lokið við aðalbygg- ingu skólans eins og hún upp- haflega var teiknuð. Einnig byggt rúmgott smíðahús og geymslur. Þessu var lokið 1947. Rafmagn frá héraðsveitu fékk skólinn í des. 1958. Árið 1963 tók ríkissjóður við rekstri skólans þar sem sýslu- félögin höfðu ekki fjárhagslegt bolmagn að standa undir bygg- ingakostnaði og rekstri skólans. Á árunum 1960—1970 hefur verið byggt leikfimihús, heima- vist fyrir 60—70 nemendur og fjórar íbúðir fyrir kennara og starfsfólk. Núverandi skólanefnd skipa: Þorvaldur Böðvarsson, hrepp- stjóri, Þóroddsstöðum, Sæmund ur Guðjónsson, hreppstjóri, Borðeyri, Benedikt Grímsson, hreppstjóri, Kirkjubóli, Þor- steinn Jónasson, bóndi, Odds- stöðum og sr. Gísli H. Kolbeins, sóknarprestur, Melstað. Skólastjórar hafa verið: Sr. Jón Guðnason 1931—32, sr. Þor geir Jónsson 1932—34, Jón Sig- urðsson 1934—37, Guðmundur Gíslason 1937—54, sr. Þorgrím- ur Sigurðsson 1955—56 og Ólaf- ur H. Kristjánsson frá 1956. Skólinn var ekki starfræktur veturinn 1954—55 auk hernáms áranna 1940—43. Kennarar við skólann eru nú auk skólastjóra: Bjarni Aðal- steinsson, Gunnlaugur Sigurðs- son, Jón Júlíusson, Páll Ólafs- son (í fríi í vetur, en í hans stað kennir Ebenezer Jensson), Ragnar Þorsteinsson og Sólveig Kristj ánsdóttir. (Úr fréttatilkynningu)

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.