Dagur - 08.09.1971, Síða 1
LIV. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 8. sept. 1971 — 47. tölublað
Eyfirðingar rækfð
TUTTUGU eyfirzkir bændur í
fjórum hreppum og á Akureyri
annast stofnrækt á kartöflum,
þ. e. rækta kartöflur til útsæðis
fyrir Grænmetisverzlun land-
búnaðarins undir eftirliti jurta-
sjúkdómafræðings og mats-
manns. Þessar tegundir eru
ræktaðar: Helga, Gullauga,
Rauðar ísl. og Bintje. Framleið-
endur fá 35% hærra verð fyrir
uppskeruna en aðrir, en kaup-
endur hafa hins vegar trygg-
ingu fyrir ósýktri vöru og
óblönauðu útsæði, svo og ákveð
inni stærð kartaflna.
Af þessum kartöflum voru
settar niður á þriðja hundrað
tunnur í vor og verður uppsker
an af þeim eflaust tíföld eða
meira, en óvíst hvað mikið verð
ur af hinni „réttu“ útsæðis-
stærð. □
Stóðréttin 2, október
Ási í Vatnsdal. Margir bændur
eru að flytja heim síðasta heyið,
en vegna ótíðar hefur þurrkun
heys dregizt mjög þar til í gær
og dag að brá til þurrks. Tölu-
vert er um hlöðubyggingar, og
hafa bændur þá beðið þess að
geta látið heyin í þær hlöður.
Undanreiðarmenn fara í göng
ur á sunnudaginn, þurfa suður
Á AKUREYRI verður gengið
og rekið til réttar 18. september
og sama dag í næstu hreppum,
Hrafnagilshreppi, Glæsibæjar-
hreppi og Öngulsstaðahreppi.
Hinn 13. sept. leggja Bárð-
dælingar upp í göngur vestan
Skjálfandafljóts og rétta á Mýri
16. september.
ÍBA OG ÍBV
N. K. LAUGARDAG, kl. 5 e. h.,
leika á íþróttavellinum á Akur-
eyri lið ÍBA og Vestmannaey-
inga, og er hér um að ræða hina
árlegu bæjakeppni í knatt-
spyrnu milli þessara aðila. □
yfir Stórasand, allt að Lang-
jökli og eru það sex daga göng-
ur. Réttað verður 17. og 18.
september.
Stóðréttin verður 2. október
í Undirfellsrétt. □
Laugar í Reykjadal.
(Ljósm.: E. D.)
Kiördæmisiiingið að Laugum
KJÖRDÆISÞING Framsóknar-
manna í Norðurlandskjördæmi
eystra, hið 14. í röðinni, var
haldið í Laugaskóla dagana 4.
og 5. september sl. Þingstörfin
fóru fram í gamla salnum, þar
sem safn andlits- og brjót-
mynda af ágætustu forystu-
mönnum Þingeyjarþings prýða
veggi og minna á söguna.
Kjördæmisþingið sóttu 63
fulltrúar og nokkrir aðrir gest-
ir. Laugaskóli hefur löngum
verið þingstaður þessara sam-
taka og þykir hinn ákjósanleg-
asti til þinghalds af þessu tagi.
Sjóst.veiðimót á Dalvík
AKUREYRARMÓT í sjóstanga
veiði, hið 7. í röðinni, var haldið
sl. laugardag. Þátttakendur
voru 43 víðsvegar af landinu,
róið var á 9 bátum og var heild-
araflinn tæp 4 tonn. Aflahæsta
sveitin var sveit Jóhannesar
Kristjánssonar, Akureyri, og
veiddi 472 kg., auk hans eru í
sveitinni Eiríkur Stefánsson,
Rafn Magnússon og Kristján Jó
hannesson. Önnur var sveit
Karls Jörundssonar, Akureyri,
með 427 kg., og þriðja varð
sveit Reynis Eyjólfssonar,
Reykjvík, með 379 kg.
Aflahæsti maður mótsins
varð Karl Jörundsson frá Akur
TAMIN HRÖSS
Á 40 ÞÚS. KRÓNUR
í FRÉTTABRÉFI frá SÍS kem-
ur það m. a. fram, að Búvöru-
deild Sambandsins hefur flutt
út 470 hross á fæti það sem af
er árinu, og er það langtum
meira en sl. ár.
í ár hafa hrossin verið flutt í
flugvélum til Noregs, Danmerk-
ur, Þýzkalands og Belgíu og er
meðalverð taminna hrossa kom-
in um borð um 40 þús. krónur.
Unnið er að því, að aðeins full-
tamin hross séu seld úr landi.
Menntasetur Þingeyinga á Laug
um setur mikinn svip á mennta-
og menningarlíf sýslunnar og
er auk þess byggðakjarni í
Reykjadal, en þar er bæði um
að ræða héraðsskólann og hús-
mæðraskólann, sem er yngri
stofnun, ásamt nýjum barna-
skóla í sama byggðahverfinu.
. Haustlitirnir kunnu og marg-
lofuðu á þingeysku heiðunum,
eru að skýrast, en munu koma
fram í allri sinni dýrð eftir
næstu verulega frostnótt. Hvar-
vetna er heyskap lokið á sveita
bæjum Reykjadals, nema á
grænfóðurökrum, og víða má
sjá, að hlöður hafa ekki rúmað
öll heyin í hinni þéttbýlu og
grösugu sveit, en þetta allt
veitti fulltrúum ánægju á leið
til þings.
evri og \eiddi 16_ kg hann Þingstörfin hófust með því,
veiddi einnig flesta fiska 159 að Ingi Tryggvason> stjórnarfor
stk talsins. Annar x röðinni maður samtakanna) bauð gesti
yarö Kristjan Johannesson með velkomna og setti samkomuna)
135.550 kg. og þnðii Johannes -.v , , ,, , ...
Knstjansson með 135.500 kg., bréfa
báðir frá Akureyri, Aflahæsta
konan varð Guðbjörg Árna-
dóttir, Akureyri, með 127 kg. j|l
Aflahæsti bátur varð Klakk- (
ur frá Grenivík, skipstjóri
Gunnar Sigurðsson og veiddi
485 kg. Annar varð Þingey frá
Grenivík, skipstjóri Sveinn
Steingrímsson með 482 kg., og
þriðji varð Búi frá Dalvík, skip- |
stjóri Stefán Stefánsson með
477 kg.
Þyngstan þorsk veiddi Sævar
Sæmundsson, Akureyri, 6.040 ;
kg. Þyngstu ýsu veiddi Jóhann- |
es Kristjánsson, Akureyri, 1.500 1
kg. Þyngstan steinbít veiddi 1
Margrét Helgadóttir, Keflavík, |
8.7 kg. Þyngstu lúðu veiddi
Matthías Einarsson, Akureyri,
2.2 kg. Þyngstu keilu veiddi
Andri P. Sveinsson, Akureyri,
5.9 kg. Þyngsta ufsa veiddi
Gunnar Sólnes, Akureyri, 1.5
kg. Þyngsta kola veiddi Krist-
ján Jóhannesson, Akureyri, 0.6
kg. Þyngsta karfa veiddi Bene-
dikt Jónsson, Keflavík, 1.0 kg.
Veður var mjög gott þennan
dag og skemmtu keppendur sér
hið bezta. (Fréttatilkynning) Fulltrúar Norður-Þingeyinga
Þingforsetar voru kjörnir
Baldvin Baldursson, Rangá og
Stefán B. Ólafsson, Ólafsfirði,
en ritarar Aðalbjörn Gunnlaugs
son, Lundi og Ari Friðfinnsson,
Akureyri, en auk þeirra skipt-
ust ungir Húsvíkingar á í sæti
þriðja fundarritara.
Ingi Tryggvason flutti skýrslu
stjórnar kjördæmissambandsins
og kom þar m. a. fram:
(Framhald á blaðsíðu 4)
Stórfennð í Hvífafelli
Kasthvammi 4. sept. Hér var
óveður frá fimmtudagsmorgni
26. og fram yfir hádegi á föstu-
dag, úrkoman var óhemjumikil,
mest snjór, og er mikið stór-
fenni enn í Hvítafelli og Þor-
gerðarfjalli og svo hér austur
um heiðar, og það svo að 4—5
metra djúpir skaflar eru þar
enn.
Það er búið að leita mikið
hér í Kasthvammsheiðinni, sein
ast í dag leituðu 5 manns. 12
kindur eru búnar að finnast
dauðar en 9 lifandi í fönn og
hindrunum og það er alveg víst
(Ljósm.: E. D.)
að ekki er allt fundið, sem far-
izt hefur, bæði. hér í heiðunum
og víðar. Tjónið af þessu áfelli
er stórfellt, og koma þar seint
öll kurl til grafar.
Þeir sem muna áfellið mikla
í byrjun ágúst 1912, telja að þá
hafi jafnvel komið meiri snjór,
en stórfenni minna. G. Tr. G.
Ándlátsfregnir
AÐALSTEINN SIGURÐSSON.
Aðalsteinn Sigurðsson fyrr-
um oddviti á Öxnhóli í Hörár-
dal varð bráðkvaddur föstudag-
inn 3. september, 78 ára að'
aldri. Hann var bóndi á Öxn-
lióli frá 1918, varð oddviti sveit-
ar sinnar 1934 og lét nýlega af
því starfi. Mörgum öðrum trúu-
aðarstörfum gegndi hann fyrir
sveit sína. Sveitungar hans
héldu lionum veglegt sainsæti
stuttu fyrir andlátið og var
hann þá við sæmilegustu heilsu.
Ekkja Aðalsteins er Elísabet
Pálína Haraldsdóttir frá Dag-
verðareyri.
MARINÓ STEINN
ÞORSTEINSSON.
Marinó S. Þorsteinsson bóndi
og oddviti i Engihlíð á Árskógs-
strönd lézt í sjúkrahúsi á Akur-
eyri laugardaginn 4. september,
68 óra að aldri. Hann stofnaði
nýbýlið Engililíð 1934 og bjó
þar síðan. Oddviti var hann í
Árskógshreppi síðan 1946 til
dauðadags. En bæði fyrr og síð-
ar tók liann mikinn þátt í félags
málum sveitar sinnar. — Hann
kvæntist Guðmundu Ingibjörgu
Einarsdóttur ljósmóður árið
1927 og lifir hún mann sinn. □