Dagur - 08.09.1971, Blaðsíða 8

Dagur - 08.09.1971, Blaðsíða 8
Litli-Árskógur. Skrúðgarðurinn þar er prýddur listaverk- um bræðranna, Kristjáns og Hannes- ar Vigfússona. (Ljósm.: Æ. H.) SMÁTT & STÓRT menn 3ÆNDADAGURINN eyfirzki ?ar að þessu sinni hátíðlegur naldinn í félagsheimilinu Víkur :-öst á Dalvík síðasta sunnudag, i. september. Var hér um kvöld kemmtun að ræða í stað úti- jamkomu, svo sem venjan er. ER ORYGGIS- ÍRJNAÐUR í LAGI? SUMAR létu Landssamtök klúbbanna ÖRUGGUR AKST- JR gera spjald um nokkur iryggisatriði á dráttarvélum. Spjaldið ber yfirskriftina: ,.ER .ÚLLT í LAGI?“, og hefur verið .uxnnsj I LA3SI? ÖRYGGIS' I l/’l tAHOSSAWTÖK HtUBBANNA L.V\Lóruggur akstur Margmenni kom á hátíðina, svo sem húsakynni framast leyfðu. . Aðalræðu dagsins flutti Sig- urður Blöndal skógarvörður á Hallormsstað og talaði um þýð- ingu skóga í fortíð og framtíð. Þótti ræðan sköruleg og eftir- tektarverð. Jóhann Konráðsson og Sig- urður Svanbergsson sungu við mikla ánægju viðstaddra við undirleik Jakobs Tryggvasonar. Búnaðarsambandið og Ung- mennasambandið kepptu í sér- stæðum spurningaleik undir stjórn Hjartar E. Þórarinssonar og vann Búnaðarsambandið, hlaut 20.5 stig móti 17.5 stigum. Þá var fluttur skemmtiþátt- ur, sem Dalvíkingar önnuðust. Fyrstu verðlaun fyrir snyrti- lega og fagra umgengni bænda- býla í héraðinu, farandbikar, hinn fegursta grip, hlutu Krist- ján og Georg Vigfússynir í Litla-Árskógi á Árskógsströnd, er þar búa ásamt Elísabetu Jó- hannsdóttur móður sinni. En viðurkenningu hlutu: Jó- hann Bergvinsson og Sigrún Guðbrandsdóttir, Áshóli, Grýtu bakkahreppi, Karl L. Frímanns- son og Lilja Randversdóttir, Dvergsstöðum, Hrafnagils- hreppi og í þriðja lagi Friðbjörn Zophoníasson og Lilja Rögn- valdsdóttir, Hóli, Svarfaðardal. Verðlaun þessi veitti Búnaðar- samband Evjafjarðar og afhenti Ármann Dalmannsson, formað- ur BSE, þau og stjórnaði hann jafnframt samkomunni. Þá veitti Skógræktarfélag Ey firðinga í fyrsta sinn verðlaun fyrir fyrirmyndar skrúðgarð sveitabæjar og varð Litli-Ár- skógur fyrir valinu. □ GOTT STARF Akureyrarkirkju sækja margir ferðamenn á sumrin. Kirkjan er opin og þar er leiðbeinandi kl. 10—12 og 2—4 dag hvern. Mun þetta óvenjulegt í kirkj- um landsins en mjög til fyrir- myndar, enda hafa þúsundir notið þess á hverju sumri. Leiðbeinendur nú í sumar eru Bryndís Meyer og Gunn Kristinsson, húsmæður, og skiptast þær á í þessu starfi. GÓÐSÖNGKONA Sigríður Magnúsdóttir söng- kona, sem kunn er af söng sín- um í sjónvarpi og útvarpi, sigr- aði nýlega í alþjóðlegri söng- keppni í Belgíu. Er mörgum aðdáendum söngkonunnar það gleðiefni fremur en undrunar- efni. Sigríður mun halda sjálf- stæða tónleika hér á landi í haust, býr sig jafnframt undir söngkeppni, norræna, síðar í liaust. Næsta vor mun liún haida sjálfstæða tónleika á Al- þjóða listaliátíðinni í Vínarborg. BLEIKLAXAR Bleiklax veiddist nýlega í Selá í Vopnafirði og annar í Beru- firði. Á fimmtudaginn veiddist enn einn í Selá í Steingríms- firði. Þessir laxar eru um 3—3.5 pund að þyngd. Áður sagði frá bleiklaxi í Hafralónsá. Heimkynni bleiklaxins er við Kyrrahafsströnd, en þaðan hafa Rússar flutt liann og reynt að koma upp bleiklaxgöngum á Kolaskaga. BJARTSÝNI Kjördæmisþing Framsóknar- manna á Laugum og ekki síður SAM VIN N UTRYG GINGAR 25 ÁRA Hafa endurgreitt 80 milljónir af tekjuafangi dreift á sveitabæi um allt land. Með spjaldinu fylgdi bréf, þar sem sagt var, að ætlazt væri til, að spjaldið yrði hengt upp í velahúsum eða á öðrum þeim stöðum á sveitabæjum, þar sem ökumenn dráttarvéla tækju dag ! ega eftir því. Á spialdið þannig að vera stöðug áminning til öku :nanna dráttarvéla, um að hafa öll öryggistæki vélanna í full- komnu lagi og gæta \rarúðar í akstri og meðferð dráttarvéla. Við dreifingu spjaldsins „ER ALLT í LAGI?“ nutu samtökin aðstoðar margra félaga í klúbb- unum ÖRUGGUR AKSTUR og iyrirtækja, sem hafa með að gera flutninga í sveitum lands- ins. Kann stiórn LKL ÖRUGG- JR AKSTUR öllum þessum aðilum beztu þakkir fyrir að- stoðina við dreifinguna. Öryggi á dráttarvélum hefur ávallt verið á stefnuskrá klúbb anna ÖRUGGUR AKSTUR, og nafa fjölmargar samþykktir ver ið gerðar þar að lútandi á full- crúafundum klúbbanna. ' Með því að láta gera þetta spjald og dreifa því á sveitabæi, vilja klúbbarnir leggja sitt af mörk- um til aukins öryggis á dráttar- vélum. Um leið hvetja klúbb- arnir alla ökumenn dráttarvéla til að kynna sér vel öryggistæki vélanna og öðlast þekkingu á akstri og meðferð dráttarvéla, áður en þeir setjast í ekilssætið. (Fréttatilkynning) S AM VINNUTRYGGIN GAFÉ- LÖG höfðu starfað með góðum árangri í mörgum löndum, áður en fyrst kom til tals að hrinda hugmyndinni í framkvæmd hér á landi. Munu fyrstu slík félög hafa verið stofnsett í Englandi á síðari hluta nítjándu aldar. Nú á dögum eru þau öflug í fjölda landa, m. a. Svíþjóð, Belgíu, Bandaríkjunum, Eng- landi og víðar, og hafa reynzt ómetanleg lyftistöng fyrir margsk'onar uppbyggingu í þess um löndum og rutt nýjar braut ir í tryggingamálum. Skömmu eftir að Vilhjálmur Þór tók við forstjórastarfi Sam- bands íslenzkra samvinnufélaga árið 1946, var liugmyndin um stofnun samvinnutrygginga- félags á íslandi fyrst rædd alvarlega, en hann hafði þegar árið 1936 vakið máls á þessu í stjórn SÍS. Síðar á árinu 1946 var svo undirbúningur hafinn. Félagið hlaut nafnið Sam- Unglingameistaramót ísiands í sundi lialdið á Akureyri UNGLINGAMEISTARAMÓT íslands í sunai verður haldið á Akureyri n. k. laugardag og sunnudag. Sunddeild KA sér um framkvæmd mótsins. Þarna mætir flest af bezta sundfólki landsins, en mest verður þátt- takan frá Reykjavíkursvæðinu og svo héðan af Norðurlandi. Keppendur verða yfir 150 tals- ins. □ vinnutryggingar iog var fyrsta stjórn þess kosin á stjórnar- fund iSÍS 24. 1946 og skipuðu hana þessir menn: Vilhjálmur Þór, formaður, Jakob Frímanns son, Isleifur Högnason, Kjartan Óláfsson frá Hafnarfirði og Kar vel Ögmundsson. Stjórnin kom saman á sinn fyrsta fund 27. ágúst, og var þar ákveðið, að starfsemin hæfist 1. september og Erlendur Einarsson ráðinn framkvæmdastjóri félagsins, en hann hafði um nokkurra mán- aða skeið kynnt sér vétrygginga starfsemi í Bretlandi. Við undirbúning starfseminn- ar veittu sænsku Samvinnu- tryggingafélögin mikilvæga að- stoð. Fyrstu tvær deildir félagsins voru brunadeild og sjódeild, og um áramótin 1946—1947 tók þriðja deild félagsins, bifreiða- deildin, til starfa og var þá ráð- inn fjórði starfsmaðurinn. Fjórða deildin, endurtrygg- ingaaeild, bættist síðan við árið 1949. Strax í upphafi var lögð rík áherzla á að veita sem bezta þjónustu um allt land, og voru auk nokkurra einstaklinga, öll kaupfélög landsins umboðs- menn félagsins. Auk þess ferð- uðust þeir Jónas Jóhannesson, tryggingamaður og Baldvin Þ. Kristjánsson, þáverandi erind- reki SÍS, um landið til atS kynna starfseml félagsins og afla trvgg inga. Síða-ri árin hefur þróunin orðið sú, að settar hafa verið upp sérstakar umboðsskrifstof- ur á ísafirði og Egilsstöðum, en á eftirtöldum stöðum annast Samvinnubankinn umboðsstörf- in: Akranesi, Grundarfirði, Patreksfirði, Sauðárkróki, Húsa vík, Keflavík og Hafnarfirði. Á öðrum stöðum eru kaupfélögin aðal umboðsmenn félagsins. Samkvæmt skipulagi Sam- vinnutrygginga eru það hinir tryggðu, tryggingatakarnir, sem eiga félagið, og fá þar af leið- andi allan tekjuafgang þess. Ut frá starfsemi Samvinnu- trygginga hefur myndazt þörf fyrir sérhæfð félög í líftrygg- ingum o gendurtryggingum. Líf tryggingafélagið Andvaka var stofnað vorið 1949 og var þá yfirtekinn stofn norska félags- ins Andvake og sérstakur fram- kvæmdastjóri ráðinn. Erlendur Einarsson lét af (Framhald á blaðsíðu 2) viðræður þingfulltrúanna,. mót- uðust af meiri bjartsýni en áður. Kemur margt til, ög eiga stjórnarskiptin eflaust sinn þátt í því, og sú stefna í þjóðmálum,) sem mörkuð var af þrem stjórn málaflokkum við myndun nýju ríkisstjómarinnar. En. einnig eykur góð sumarveðráttan og mikil uppskera af ræktaríönd- um hænda, vonir urn betri af- komu. Ber þó skuggará, LAXÁRMÁL ■ Talið er, að nýja raforkumála- ráðherranum hafi þótt -Laxár- málið „vondur arfui— frá frá-. farandi stjórn og má það eflaust til sanns vegar færa. En fremur hljótt er um það mál síðustu vikurnar og ráðherra hefur ekki viljað láta annað eftir sér hafa, en að unnið sé að lausn deilunnar um Laxárvirkjun. Hins vegar segir það maður manni, að öll virkjunaráform séu úr sögunni nema 6—7 MW. En hvergi hefur það verið stað fest, og enn er unnið við vatns göngin miklu fyrir Gljúfurvers virkjun, og menn bíða nánari fregna. ÞYKKVIBÆR Bændur í Þykkvabæ í Djúpár- hreppi í Rangárvallasýslu rækta manna mest af kartöflur og reykja vindla. Garðlönd þeirra eru á sendnu flatlendi, 235 ha. samtals. Rúisí er yið, að upp- skeran þar merði 40 þús. tunn- ur. KARTÖFLURÆKT VIÐ EYJAFJÖRÐ Við Eýjafjörð er kartöflurækt jafnan allmikil, bæði á Akur- eyri og cinkum þó á Svalbarðs- strönd, ennfremur í Grýtu- bakkahreppi og Öngulsstaða- hreppi. Kartöflugras er víðast eitthvað skemnit en óvíða fallið og lialda því kartöflurnar áfram að spretta á íneðan tíð er góð og frost skemma grösin ekki meira en orðið er. Hópar kvenna, einkum frá Akureyri, vinna víða við kártöfluupptöku hjá bændum. Talið er, að upp- skera verði mikil í ár. HELGA Kartöfluafbrigðið Helga er nefnt eftir konu einni á Suður- landi, sem lengi ræktaði rauðar ísl. og gullauga í garði sínum en fann þar svo þetta kartöflu- afbrigði. Það er e. t. v. víxl- frjófgun af áðurnefndum teg- undum, en að öðru levti er ókunnugt um uppruna þess. En Helga er að komast í tízku og er stórvaxin í sumar. í GÆR og dag stendur yfir nám skeið í Sláturhúsi KEA á Odd- eyri. Sambandið, Sláturfélag HATT A FJORTANDA HUNDRAÐ BÖRN í BARNASKÓLUM AK. í BARNASKÓLUNUM á Akur eyri verða í vetur hátt á fjórt- ánda hundrað börn. í Barna- skóla Akureyrar 770 börn, í Oddeyrarskólanum 490 börn og í Glerárskóla um 120 börn. Barnaskólarnir voru settir í gærmorgun. í Gagnfræðaskólanum verða 850 unglingar í vetur, og verð- ur skólinn settur 20. sept., eða þar um bil. □ Suðurlands og Stéttarsamband bænda standa að námskeiði þessu. Kunnáttumenn og meðal þeirra sænskur maður, leið- beina heimámönnum um alla meðferð slátúrafurða á slátrun- arstað, en alveg sérstaklega er lögð áherzla á verkun gæranna. 40 dilkum var lógað í gær af þessu tilefni'og stórgripum mun hafa átt að lóga í dag. Leiðbeinendur í meðferð gæra og' skinna er Oddur Krist- jánsson frá Sambandinu og Ólafur Ingimundarson frá Slát- urfélaginu auk fulltrúa frá Iðunn og hins sænska manns. Jónmundur Ólafsson er full- trúi F ramleiðsluráðs, Guðrúrt Hallgrímsdóttir fulltrúi Sam- bandsins og Halldór Guðmunds son er frá Sláturfélaginu, allt kunnáttufólk sem skiptir með sér verkum. □

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.