Dagur - 15.09.1971, Side 1
Fleiri hundruð fjár fórust
Ytri-Nýpum Vopnafirði 13. scpt.
Ljóst er nú þegar, að fjárskað-
ar hafa orðið miklir í sauðiönd-
um Vopnfirðinga í hretinu
mikla fyrir skömmu. Hefur
þetta verið athugað í norður-
heiðunum og margt fé fundizt
dautt. Búið er að finna 130—
140 dauðar kindur, sumar í
fönn en miklu fleiri í ám og
lækjum, og er þó naumast fund
inn nema hluti af því sem farizt
hefur. Ljóst er líka, að fé hefur
slegizt niður og farizt á slétt-
lendi í veðurofsanum. Mun
óhætt að fullyrða, að fleiri
hundruð fjár hefur drepizt þótt
það komi betur í ljóst síðar.
Hefur því mikið tjón orðið og
tilfinnanlegt.
Á morgun verður lagt af stað
í aðal göngurnar og lítur út
fyrir gott gangnaveður. Þ. Þ.
Sæmiieg atvinna á Siglufirði
Siglufirði 13. sept. Logn og hiti
er hér í Siglufirði í dag, svo að
menn geta naumast gengið um
án þess að svitna, og er meira
sumar nú, en venjulegt er um
hásumar.
Atvinna er sæmileg eins og
er, á meðan íshúsin ganga og
niðurlagningarverksmiðjan. En
því miður er atvinnuöryggið of
lítið og framtíðin eins og óskrif-
að blað. Siglfirðingur er farinn
héðan og aflar ekki meira fyrir
staðinn og ekki annað komið í
staðinn en ráðagerðirnar, og ein
hver loforð.
Aflabrögðin eru sæmileg, til
dæmis hjá litlu bátunum þegar
gefur á sjó. Dagur var keyptur
hingað, er byrjaður með línu og
hefur fengið um 6 tonn í róðri,
eða frá 4—8 tonn.
Borað er eftir heitu vatni í
Skútudal. Er þetta þriðja árið,
sem leitað er, og verið að bora
þriðju holuna í sumar. Hver
árangur verður í heild veit eng-
inn ennþá, en þessi lokatilraun
nú í sumar, er talin álitleg, eink
um sú síðasta.
Barnaskólinn er byrjaður og
er þar sami barnafjöldi og á síð
asta skólaári eða 260 börn, en
6 ára börnin eru þar fyrir utan.
Gagnfræðaskólinn tekur til
starfa um 20. september. Tón-
skólinn er þegar byrjaður og er
aðsókn góð sem fyrr og skóla-
stjóri Geirharður Valtýsson
eins og áður. J. Þ.
Rannsóknum álált viS vöruhöfnina
Færra fé verður slátrað í haust
ALLT bendir til þess að færra
fé verði slátrað í haust en und-
anfarið og er haustslátrun nú
að hefjast og hafin. í fyrrahaust
64 ÞÚS. GESTIR
ALÞ J ÓÐ AV ÖRU SÝNIN GUN A
í Laugardag í Reykjavík, er
lauk um helgina, sóttu 64 þús-
und gestir eða um 4 þús. manns
á degi hverjum. Er árangur tal-
inn mikill í auknum viðskiptum
hinna ýmsu vara, auk ])ess sem
almenningur sótti þangað mik-
inn fróðleik. □
FJÓRÐUNGSSAMBAND Norð
lendinga hélt fjórðungsþing sitt
í Ólafsfirði 9. og 10. september
sl., og hófst það í barnaskólan-
um kl. 2 e .h. á fimmtudag, með
ávarpi stjórnarformanns, Jóns
ísbergs sýslumanns á Blöndu-
ósi. Þingforsetar voru kosnir
þeir Jón ísberg og Ásgrímur
Hartmannsson bæjarstjóri í
Ólafsfirði.
Lögð voru fram nefndarálit
frá samgöngumálanefnd, at-
vinnumálanefnd og landbúnað-
arnefnd. Ennfremur tillögur frá
fjórðungsráði.
Fyrri daginn fluttu skýrslur,
framkvæmdastjóri Fjórðungs-
sambandsins, Áskell Einarsson,
Björn Friðfinnsson bæjarstjóri
á Húsavík um verkaskiptingu
sveitarfélaga og ríkis og dreif-
ingu ríkisstofnana.
í hófi, sem bæjarstjórn Ólafs-
fjarðar hélt fyrir þingfulltrúa 9.
september, að enduðum þing-
var 759 þúsund fjár slátrað, þar
af 694 þúsund dilkum.
Samkvæmt upplýsingum hjá
Framleiðsluráði landbúnaðarins
er reiknað með fækkun á slátur
fé, — allt að 40 þúsund færra
en í fyrra.
Nægilegt kjöt kemur til með
að verða á innanlandsmarkaði
og ennþá er sex manna nefndin
að fjalla um verðákvörðun til
neytenda.
Allt bendir til þess að þetta
verði síðasta haustið, sem sex
manna nefnd fjallar um verðið.
störfum þann dag, flutti Bjarni
Bragi Jónsson forstöðumaður
Efnahagsstofnunarinnar ræðu
um samgönguáætlun Norður-
lands.
VÖRUHÖFNIN nýja á Akur-
eyri er mikið umræðuefni
manna. Þar hafa framkvæmdir
stöðvazt og ekkert miðað í sum-
ar. Hafnarstæðið var valið og
talið öðrum stöðum mun hag-
kvæmara, samkvæmt rannsókn
um Vitamálaskrifstofunnar, en
síðan var verkið hafið og byggt
á þessum rannsóknum og sam-
kvæmt hönnun hennar.
í ljós hefur komið sig á hafn-
arstæðinu. Voru framkvæmdir
því stöðvaðar þar til úr því
fengist skorið, af hverju sigið
stafaði og á hvern hátt skildi
við því bregðast.
Ný rannsókn á vegum Vita-
málaskrifstofunnar stendur yfir
með aðstoð erlends sérfræðings
Fundur hófst kl. 2 10. septem
ber. Þar ávarpaði félagsmála-
ráðherra, Hannibal Valdimars-
son, þingið. Síðan hófust um-
ræður og afgreiðsla nefndar-
álita.
í stjórn Fjórðungsráðsins
voru í fundarlok kjörnir: Ás-
grímur Hartmannsson, bæjar-
stjóri, Ólafsfirði, formaður,
Brynjólfur Sveinbergsson, odd-
viti, Hvammstanga, Jón ísberg,
sýslumaður, Blönduósi, Mar-
teinn Friðriksson, bæjarfulltrúi,
Sauðárkróki, Jóhann Salberg
Guðmundsson, sýslumaður,
Sauðárkróki, Stefán Friðbjarn-
arson, bæjarstjóri, Siglufirði,
Ófeigur Eiríksson, sýslumaður,
Akureyri, Bjarni Einarsson,
bæjarstjóri, Akureyri, Björn
Friðfinnsson, bæjarstjóri, Húsa-
vík, Jóhann Skaptason, sýslu-
maður, Húsavík og Sigtrvggur
Þorláksson, bóndi á Svalbarði.
frá Dansk Geoteknik. Niður-
stöður liggja ekki fyrir, en
kannað er nú á meira dýpi en
áður eða á 35 m. og þar tekin
óhreyfð jarðsýnishorn, en áður
voru skolprufur teknar og gefa
þær ekki eins glöggar upplýs-
ingar. Sýnt er, að fyrri rann-
sóknir hafa ekki verið fullnægj-
andi, og gáfu ekki skýr svör
við þeim vanda, sem þarna er
við að fást, og var þó af hálfu
hafnarinnar og Akureyrarbæj-
ÖLVUN við akstur er of algeng
ur löstur. ( „Ölvaður ökumaður
leikur sér að lífi og heilsu sjálfs
sín og annarra vegfarenda",
segir réttilega á einhverjum
stað, og þessi orð hafa fengið
staðfestingu sárrar reynslu í
umferðarmálum að undanfömu.
Þessi þáttur áfengisbölsins er
svo ljós og margsannaður, að
um hann er ekki deilt. Góður
og dýr bíll verður stundum að
drápstæki í höndum þeirra, er
drekka frá sér ábyrgðartilfinn-
inguna og aðra hæfni til að sitja
við stýri á vegum úti. Líf
manna glatast árlega, aðrir
hljóta varanleg örkuml fyrir gá-
leysi í þessum efnum, og eigna-
tjón er gífurlegt af sömu sök-
um.
Með þessar staðreyndir í
huga þurfa allir, bæði ungir og
gamlir, að taka höndum saman
um að skapa skarpa og afdrátt-
arlausa afstöðu gegn áfeng'is-
notkun við stýri. Menn verða
að hugsa um fleiri en sjálfa sig
í þessu máli, og taka ákveðnari
afstöðu gegn þessum voða, en
gert hefur verið.
Mörg félagssamtök hafa
hruiadiii af stað herferð gegn
ar lögð rík áherzla á, að hvorki
mætti spara fjármagn eða fyrir-
höfn við undirbúningsrannsókn
irnar. Er hér mikið alvörumál
á ferð.
Nú verður beðið eftir niður-
stöðum hinna nýju rannsókna
og síðan verða framkvæmdir
endurskoðaðar í ljósi þeirra. 1
Næstu verkefni við vöruhöfn
ina er mikil steinsteypa. Óvíst
er um frekari framkvæmdir á
þessu hausti. □
áfengisnotkun manna við akst-
ur og er það vel. Þau minna
fólk á hættuna, sem þátt slysa-
varna. Og lögreglan á hverjum
stað, vinnur að því að uppræta
ölvun við akstur.
Hér á Akureyri hafa 60
manns verið teknir fyrir meinta
ölvun við akstur á þessu ári og
miklu fleiri sleppa og valda
stöðugri hættu. Bæði víndýrk-
endur og bindindissinnað fólk,
á hér sömu hagsmuna að gæta
og á skilyrðislaust að skapa það
almenningsálit, að akstur ag
víndrykkja verði aðskildir hluU
ir að fuliu. □
Málverkasýning
LEÓ ÁRNASON frá Víkum,
maður sérkennilegur og list-
fengur, heldur þessa dagana
málverkasýningu 4 Sjálfsæðis-
húsinu á Akureyri. Sýnir liann
þar um 70 myndir, sem vekja
bæði athygli og umtal hjá þeim,
er séð hafa. Sýningin verður
opin til finuntudagskvölds en er
opin daglega frá kl. 5—11 síð-
degis.
Boðskort Leós Árnasonar eru
undirrituð, Ljón norðursius. □
Fj órðungsþiiig Norðlendinga
• •
Olvun við akstur