Dagur - 11.03.1972, Side 2
2
Séð til Akureyrar frá Váðlaskó gi. (Ljósm.: J. R.).
JÓN RÖGNVALDSSON, garðyrkjuraaður:
VERNDUM VAÐLASÍiÓG
ÉG HEF lesið hina athyglis-
verðu grein Helga Hallgríms-
sonar náttúrufræðings í Degi
um meðferð okkar Akureyringa
á umhverfi höfuðstaðar Norður
lands, og gefur grein hans mér
tilefni lil að minnast á málefni,
sem er skylt umræðuefni H. H.,
en það er skógarreiturinn aust-
an við Akureyrarpoll, sem sum-
ir kalla Vaðlaskóg, og er eini
staðurinn, sem ennþá er varð-
veittur óspilltur af mannavöld-
lim á strandlengjunni meðfram
Akureyrarpolli.
Reitur þessi var friðaður og
girtur og byrjað að gróðursetja
í landið, einkum birki- og lerki-
trjám, 1936. Fjaran þarna niður
undan friðaða landinu, er tæpir
þrír km. á lengd, og er einn
helzti griðastaður sund- og vað-
fugla í nágrenni bæjarins, eink-
um ungamæðra, sem halda sig
þarna með ungahópana meðan
þeir eru litlir, og flestir munu
komnir úr varplandi hólmanna.
Gróðurbeltið þama hefur verið
laust við alla bílaumferð til
þessa dags 1972, og því er nú
þarna óspillt náttúra.
Þessi gróðurvin er nú í yfir-
vofandi hættu ef lagður verður
vegur yfir Leirurnar, því að þá
má búast við, að vegargerðar
menn ríkisins að sunnan, ryðjist
þar inn með bílaveg eftir honum
endilöngum. Nú verður að
vænta þess, að bæjaryfirvöld
okkar líti á mál þetta af skiln-
ingi og hjálpi til þess að sínu
leyti, að skógræktarstarfið aust-
an fjarðarins beri þann árangur,
sem hann getur beztur orðið.
Annað hvort verður að taka
lítinn Jkrók (1 km.) suður fyrir
skógarreitinn eða að færa veg-
inn inn fyrir Stóra-Eyrarlands-
hólmann, eins og H. H. stingur
upp á, í grein sinni, nema hvað
mér sýnist að ekki þyrfti nema
eina brú og nýi vegurinn kæmi
inn á gamla veginn stutt fyrir
vestan austustu brúna og er
þetta ekki eins langur krókur
og H. H. gerir ráð fyrir, ekki
(Framhald á blaðsíðu 6).
MARZMÓTIÐ í SUNDI 1972
MARZMÓTIÐ í sundi 1972 var
haldið laugardaginn 4. marz í
Sundlaug Akureyrar og hófst
mótið kl. 15.00. Þótttaka var góð
og’ tóku 4 félög þátt í mótinu,
KA, Þór, Óðinn og HSÞ. Tvö ný
.Akureyrarmet voru sett í 100
og 200 m. bringusundi karla og
’bæði sett af Pétri Má Péturs-
syni, KA. En metin verða ekki
staðfest í innilauginni, sem er
aðeins 12,5 m.
Sunddeild KA sá um alla um-
sjón og framkvæmd móts þessa.
Úrslit urðu þessi :
100 m. skriðsund karla. Tími
Gunnar Eiríksson, Óðni 1:06.2
Kári ísaksson Guðm., KA 1:06.2
Marinó Steinarsson, Óðni 1:07.4
25 m. skriðsund
drengja 12—14 ára. Tími
Kristján Sigfússon, Óðni 15.8
Jón ísaksson Guðmann, KA 17.0
Stefán Traustason, KA 17.2
25 m. bringusund
stúlkna 12—14 ára. Tími
Herdís Herbertsdóttir, Óðni 19.4
Þórunn Lárusdóttir, Óðni 20.0
Svanlaug Finnbogad., Óðni 20.6
.100 m. skriðsund kvenna. Tími
Elva Aðalsteinsd., Óðni 1:21.5
Sigurbjörg Ólad., Óðni 1:24.3
200 m. bringusund karla. Tími
Pétur Már Pétursson, KA 2:45.1
(Akureyrarmet í þessari grein
var 3:00.0).
ÍSLANDSMÓT í
HANDBOLTA
UM helgina fara fram úrslita-
leikir í Norðurlandsriðli yngri
flokkanna í handknattleik. Leik
ið verður í íþróttaskemmunni
og hefjast leikimir kl. 1 e .h. á
sunnudag. □
200 m. bringus. kvenna. Tími
Herdís Herberts., Óðni 3:20.1
Svanlaug Finnbogad., Ó. 3:29.3
25 m. bringusund
drengja 12—14 ára. Tími
Stefán Matthíasson, KA 19.7
Lórus R. Einarsson, KA 21.5
Jón ísaksson Guðmann, KA 21.8
25 m. skriðsund
stúlkna 12—14 ára. Tími
Elva Aðalsteinsd., Óðni 16.6
Ásthildur Magnúsd., Óðni 17.4
Sigríður Jónsdóttir, KA 20.3
50 m. skriðsund karla. Tími
Kári ísaksson Guðmann, KA
Gunnar Eiríksson, Óðni
Marinó Steinarsson, Óðni
Pétur Már Pétursson, KA
100 m. fjórsund karla. Tími
Pétur Már Pétursson, KA 1:16.5
Marinó Steinarsson, Óðni 1:17.5
Kári ísaksson Guðm., KA 1:19.6
50 m. bringus. drengja. Tími
Sveinn Æ. Stefánsson, KA 40.6
Þórar Magnússon, KA 40.8
Örn V. Birgisson, KA 40.9
50 m. skriðsund stúlkna. Tími
Sigurbjörg Óladóttir, Óðni
Sigríður Frímannsd., KA
Sólveig Jónsdóttir, HSÞ
25 m. skriðsund sveina
11 ára og yngri. Tími
Hallur H. Hallsson, KA 19.0
Valdimar Pétursson, KA 20.6
Gunnar Pétursson, KA 20.9
100 m. bringusund karla. Tími
Pétur Mór Pétursson, KA 1:19.6
(Akureyrarmetið í þessari grein
var 1:21.0).
100 m. bringus. kvenna. Tími
Herdís Herbertsd., Óðni 1:34.5
Þórunn Lárusdóttir, Óðni 1:39.1
Svanlaug Finnbogad., Ó. 1:41.2
50 m. baksund karla. Tími
Marinó Steinarsson, Óðni 39.5
Pétur Már Pétursson, KA 40.5
Örn V. Birgisson, KA 45.1
50 m. bringusund kvenna. Tími
Herdís Herbertsd., Óðni 43.2
Svanlaug Finnbogad., Óðni 45.9
Þórunn Lárusdóttir, Óðni 46.8
50 m. bringusund karla. Tími
Pétur Már Pétursson, KA 38.0
Stefán Matthíasson, KA 43.8
50 m. brignusund stúlkna. Tími
Herdís Herbertsd., Óðni 43.8
Þórunn Lárusdóttir, Óðni 46.3
Svanlaug Finnbogad., Óðni 49.0
50 m. skviðsund drengja. Tími
Kristján Þorkelsson, KA 32.7
Sveinn Æ. Stefánsson, KA 33.1
Örn V. Birgisson, KA 33.5
50 m. flugsund karla. Tími
Gunnar Eiríksson, Óðni 34.6
Pétur Már Pétursson, KA 36.0
50 m. skriðsund kvenna. Tími
Unnur Bjarnadóttir, KA 37.6
25 m. bringusund drengja
11 ára og yngri. Tími
Hallur H. Hallsson, ICA 23.3
Gunnar Pétursson, KA 23.4
Valdimar Pétursson, KA 23.5
50 m. flugsund kvenna. Tími
Unnur Bjarnadóttir, KA 41.9
í stigakeppninni fengu félögin
stig sem hér segir:
Sigurvegari var Sunddeild
KA með 124V2 stig, síðan Óðinn
með 98V2 stig.
HSÞ keppti sem gestur á
mótinu. □
Aðalfundur
FEROAMÁLAFÉLAGS AKUREYRAR
1972
verður haldinn að Hótel KEA laugardaginn 18.
marz kl. 14.00.
DAGSKRÁ:
VENJULEG AÐALFUNDARSTÖRF.
ERINDI: Gestnr Ólafsson, skipulags-
fræðingur:
O
Skipulag Akureyrar í sam-
bandi við þróun ferðamála.
ÖNNUR MÁL.
Akureyri 10. marz 1972,
STJÓRNIN.
CEFJUN AKUREYRI
Rúmteppi úr
Dralon
Ytra og innra borð úr nylon. Stoppuð með Dralon-kembu.
Teppin fást í fjölbreyttu úrvali lita og mynstra —
með kögri eða án.
Stærð 2,10 x 2,40 Og verðið er hagstætt.
Blómamynstur
og llflr-