Dagur - 20.05.1972, Side 1
FILMUhúsið akureyri
Hass-sendingin kom fyrst til Ák.
f
Á DAGSKRÁ er hass-smyglið,
sem nú er í rannsókn í Reykja-
vík og á fleiri stöðum syðra.
Nokkrir karlar og ein kona sitja
þar í varðhaldi. Smyglvarning-
urinn er talinn meira en milljón
króna virði, og að þar séu að
verki samtök um innflutning og
sölu eiturlyfja.
NÝIR IÍLERKAR
PRESTKOSNINGAR fóru fram
í Söðulsholtsprestakalli í Snæ-
fellsnes- og Dalaprófastsdæmi 7.
maí sl. og í Mælifellsprestakalli
í Skagafjarðarprófastsdæmi 11.
maí sl.
Atkvæði voru talin í presta-
köllunum í skrifstofu biskups að
venju.
Um Söðulsholt var einn um-
sækjandi, Einar Jónsson, cand.
theol. Á kjörskrá voru 224 kjós-
endur, þar af kusu 140. Umsækj
andinn hlaut 127 atkvæði en 13
seðlar voru auðir. Kosningin var
lögmæt.
Um Mælifell var einn um-
sækjandi, séra Ágúst Sigurðs-
son, prestur í Ólafsvík. Á kjör-
skrá voru 189 kjósendur, en 143
kusu. Umsækjandi hlaut 139 at-
kvæði en 4 seðlar voru auðir.
Kosningin var lögmæt. Q
Hassið kom frá Hollandi til
Akureyrar með skipi, að því er
næst verður komist. Líklegast
er talið, að sendingin hafi farið
í land hér og flutt eftir öðrum
leiðum suður, þótt enn sé það
ekki vitað með vissu. Rannsókn
þessa máls beinist ekki að nein-
um aðila hér fyrir norðan, enda
eingöngu í höndum yfirvalda
syðra.
Hér á Akureyri hefur ekkert
eiturlyfjamál komið til rann-
sóknar ennþá, þótt öðru hverju
heyrist sögur um notkun eitur-
lyfja, vonandi úr lausu lofti
gripnar. En nú má álykta, að
þar sem tugir mála, viðkomandi
eiturlyfjasölu, eru í rannsókn í
Reykjavík og nágrenni, sé það
aðeins tímaspursmál hvenær
þau verða hér á dagskrá.
Búið er að merkja ýmsar göt-
ur á Akureyri, til að auðvelda
umferðina, mála gangbrautir,
merkja akreinar o. s. frv. En
stundum má sjá menn leggja
bílum sínum á merktar akrein-
ar, sem er algerlega bannað og
þarf lögreglan að hafa betra
eftirlit með því, ásamt borgur-
unum, að reglum sé fylgt.
f gærmorgun urðu tveir
bifreiðaárekstrar í bænum og
nóttina áður var maður tekinn
ölvaður við akstur. Q
Þessi reiötiross biöu útílutnings þegar þessi my nu var tekin í vor, og voru á þjálfunarnámskeiði ®
| hér á Akureyri. Hér eru þau viðruð og nota tækifærið til að vclta sér, grípa niður og jafnvel að
fara í eina bröndótta.
(Ljósm.: E. D.)
alfundur Kaupiélags Langnesinga
Góður hásetahiiftiir á Haferninum
Hrísey 18. maí. Veðrið er alveg
ljómandi. Hér drepa menn ekki
fisk, hættir að veiða grásleppu
og bíða þess svo að fiskur gangi
á miðin, en á þeim hefur verið
hin mesta ördeyða um lengri
tíma, jafnvel svo, að við sport-
menn erum að uppgefast. Menn
eru að útbúa báta sína áður en
handfærafiskurinn kemur, því
að menn bíða og vona, að fiskur-
inn komi.
Fyrir rúmri viku kom bátur-
inn Haförn af vertíð frá Rifi.
Var báturinn vestra í tvo mán-
uði, fiskaði 430 tonn og háseta-
hlutur mun vera um 370 þúsund
krónur. Þykir þetta með mikl-
um ágætum. Formaður er Jó-
hann Sigurbjörnsson.
Einn báturinn héðan, Frosti,
er farinn á humarveiðar til
Hornafjarðar.
Rjúpan er nú loksins komin
og þótt hún geri sig ekki ennþá
verulega heimakomna, vitum
við af henni og sjáum hana hér
í næsta nágrenni. Og svo fer
Finnur fuglafræðingur líklega
að koma líka. S. F.
Gunnarsstöðum 18. maí. Aðal-
fundur Kaupfélags Langnesinga
á Þórshöfn var haldinn fyrsta
sumardag. Heildarvelta félags-
ins var á síðasta ári 85 milljónir
króna. Heildar vörusala 51.4
millj. kr. Söluaukningin var
3.6%. Afkoman var svipuð og
árið áður. Afskriftir voru að
vísu meiri en áður en hagnaður
minni. En afskriftir urðu meiri
vegna þess, að keypt var verzl-
un á árinu og farið út í miklu
meiri járn- og raftækjaverzlun
en verið hefur og vörulagerinn
jókst verulega af þeim sökum.
Úr stjórn áttu að ganga Egg-
ert Ólafsson í Laxárdal og Aðal-
björn Arngrímsson á Þórshöfn,
og voru þeir báðir endurkjörnir.
Ennfremur var Grímur Guð-
björnsson, Syðra-Álandi endur-
kjörinn endurskoðandi og Lárus
Jóhannsson á Hallgilsstöðum
varaendurskoðandi. Stjórnarfor
maður ' er Sigurður Jónsson,
Efra-Lóni, en aðrir í stjórn
Magnús Jóhannesson, Bakka-
firði, Óskar Guðbjörnsson, Þórs
höfn. Kaupfélagsstjóri er Bjarni
Aðalgeirsson.
Upp úr mánaðamótunum verð
ur tekin í notkun vélaverkstæð-
isbygging sú, sem í smíðum var
í vetur og þá getið í fréttum.
Vélaverkstæðinu veitir forstöðu
Höskuldur Guðmundsson. Ó. H.
Gífurleg! tjón á Gunnarssföðum
Á VORÞINGI Umdæmisstúku
Norðurlands, sem haldið var í
Varðborg, félagsheimili templ-
ara, þann 13. maí síðastliðinn,
var eftirfarandi tillaga sam-
þykkt:
Vorþing Umdæmisstúku Norð
urlands lýsir ánægju sinni yfir
aukinni fræðslustarfsemi um
skaðsemi sígarettureykinga og
viðvörunum gegn hættulegum
fíknilyfjum. Hins vegar lítur
þingið svo á, að meira þurfi að
gera en gert er til að vinna gegn
þeirri gífurlegu áfengisnautn,
sem er eitthvert stærsta vanda-
mál þjóðarinnar. Skora rþað á
VII) JÖKULRÖND
ÁRIÐ 1942 fórst hér á landi lítil
flugvél úr brezka flughernum
og liggur flakið enn á slysstað,
sunnan undir Hofsjökli. Bretar
hafa hug á að hirða flakið, þar
sem þetta er ein fárra flugvéla,
sinnar tegundar, og á að endur-
byggja hana í upphaflegri mynd
og varðveita hana á safni flug-
hersins. Þetta vélarflak er af
Fairey-Battle-gerð, og þótt það
hafi legið við Höfsjökul í 30 ár,
er enn ýmislegt eftir. En því
miður hefur mörgu verið stolið
úr vélinni á þessum árum, jafnt
dýrum tækjum sem ómerkileg-
ustu hlutum. Q
Samband bindindisfélaga í skól-
um að stofna deildir í sem flest-
um framhaldsskólum, þar sem
æskilegt er, að framtak í þessu
efni komi frá ungu fólki.
Þingið lýsir fullu trausti á
þeirri stefnu Góðtemplararegl-
unnar að leitast við að fyrir-
byggja áfengisnautn t. d. með
starfi í æskulýðsdeildum sínum,
barnastúkum og ungtemplara-
félögum. En þingið telur ekki
nægilegt að fara fyrst að sinna
þessu vandamáli fólks, þegar
það er orðið alkóhólistar, þó auð
vitað sé nauðsynlegt, að það geti
þá fengið viðeigandi læknismeð-
ferð. Fyrirbyggjandi starfsemi
bindindissamtakanna er enn
sem fyrr í fullu gildi. Q
DAGUR
kemr næst út fimmtudaginn 25.
Gunnarsstöðum 18. maí. Veðr-
áttan er framúrskarandi, svo að
ég man hana ekki betri, enda
ekki hægt að bera hana saman
við neitt á síðari árum. Helzt
jafna ég þessu við 1939. Góður
sauðgróður er kominn og allir
vegir eins og þeir eru beztir á
sumrin. Vegavinna er hafin hér
og er það alveg óvenjulegt á
þessum tíma. Og heyrt -hef ég,
að eftir hvítasunnuna verði
byrjað að byggja upp Hálsa-
veginn.
Hér á Gunnarsstöðum hafa
um 200 ær og veturgamlar
gimbrar látið lömbum, á félags-
búi okkar Gunnars bróður míns.
Bændur telja, að slíkan skaða
eigi Bjargráðasjóður að bæta,
en tvennum sögum fer af þátt-
töku hans og liggur ekkert fyrir
um það. Tjón af lambalátinu má
lauslega reikna á 6—700 þúsund
krónur á félagsbúinu. Svo er þá
hitt ótalið, að maður nýtur ekki
vorsins, sem hefði verið óvið-
jafnanlegt nú um sauðburðinn,
ef allt hefði gengið vel hjá
okkur. » Ó. H.
Þrpur cg LúBrasveiíin í úivarpi
Húsavík 18. maí. Ákveðið er, að
Ríkisútvarpið taki á segulband
söng- og hljóðfæraleik Karla-
Sameinmgarmál
VIÐRÆÐUR hafa, sem kúnnugt
er, staðið yfir um sameiningu
vinstri flokkanna í landinu. Hér
á Akureyri hefur nýlega verið
komið á fót viðræðunefnd til
kynningar á þessu máli, og eiga
sæti fulltrúar frá flokksfélögum
Framsóknarmanna, Frjálslyndra
vinstri manna, Alþýðubanda-
lagsmanna og Alþýðuflokks-
marina.
Nýlega var fyrsti fundur við-
ræðunefndarinnar haldinn og
var sameiningarmálið reifað
þar. Q
kórsins Þryms og Lúðrasveitar
Húsavíkur. Upptakan mun fara
fram á Húsavik um hvítasunn-
una.
Fyrstudeildarlið frá Knatt-
spyrnufélagi Reykjavíkur kem-
ur í heimsókn til íþróttafélags-
ins Völsungs á Húsavík um
hvítasunnuna. Munu sunnan-
menn leika við heimamenn einn
eða tvo gestaleiki í knattspyrnu.
Um 140 nemendur voru í
Gagnfræðaskóla Húsavíkur í
vetur og gang'a nú tii þrófs. Til
landsprófs ganga 16 nemendur,
til gagnfræðaprófs 14 nemendur
og undir unglingapróf ganga 58
nemendur.
Afli Húsavíkurbáta var ágæt-
ur í vor og allt fram í'síðustu
viku, en þá datt hann niður og
er hann nú mjög lélegur. Þ. J,