Dagur - 20.05.1972, Page 8
r
... ...........................
■■■ • -•■•■
™ ~ ■ ¥’■' ■■
J
Frá Dróttarbraut Akureyrar. Viðgerð hennar er um það bil lokið og bíða þá mörg verkeíni í
skipaviðgerðum, en önnur liafa eflaust fallið ö Srurn en Akureyringum í skaut, þar sem við-
gerðin var elcki framkvæmd fyrr. (Ljósm.: E. D.)
SAMBANDSFRÉTTIR
Aðalfundur fiskframleiðenda.
Nýlokið er í Reykjavík aðal-
: undi Félags Sambands fisk-
.ramleiðenda, SAFF. í félaginu
eru fiest þau frystihús, sem selja
rarr.ileiðslu sína í gegnum Sjáv-
arafurðadeild Sambandsins.
í skýrslu Árna Benediktsson-
ar kom m. a. eftirfarandi fram:
Afkoma frystiiðnaðarins var
dlgóð á árinu 1971, meðaltals-
ragnaður hefur sennilega num-
:ð 5—6% af tekjum, áður en
skattar eru lagðir á, og er það
svipað og árið áður. Jafnframt
■irðist afkoman hafa verið jafn-
ari en oft áður.
Á fyrri hluta yfirstandandi
árs mun væntanlega verða um
lokkurn hagnað að ræða í frysti
ðnaöinum, en frá vertíðarlok-
um nú í vor verður um almenn-
ar, hallarekstur að ræða, miðað
ið þau markaðsverð, sem nú
gilda, og þann innlenda kostnað,
:;en, vitað er að verður. Frysti-
ðnaðurinn er því kominn inn í
aýtt hallarekstrartímabil.
Allt mánuði fyrr
Siglufirði 18. maí. Hér er ein-
nuna góð veðrátta, og til marlcs
rm það er hinn ágæti sauðgróð-
ur, sem kominn er. Er gróður-
nn oft mánuði seinna en hann
sr nú, og kartöflurnar komust
íka mánuði fyrr í jörðina en
>ftast áður.
Búið er að sleppa geldfénu og
járeigendur bíða þess að ærnar
oeri, svo að hægt sé að sleppa
peim líka.
Á hvítasunnu á að ferma hér
34 börn, 17 stúlkur og 17 drengi.
Aflabrögðin eru treg á öll
veiðarfæri, og grásleppuveiðinni
er lokið. J. Þ.
UNDANFARIN ár hefur staðið
yfir leit að gömlu skipi á Skeið-
arársandi, er þar strandaði 1667
og var með dýrmætan farm inn-
anborðs, jafngiidi 43ja tunna
gulls, að því er fréttir herma.
Skipið hét Het Wapen van
Amsterdam og var að koma frá
Jövu, er það lenti í hafvillum og
hafnaði á Skeiðarársandi. Með
því fórust á annað hundrað
manns. Síðan sökk skipið í sand
inn og hefur legið þar síðan.
Bergur Lárusson frá Klaustri
og Kristinn Guðbrandsson hafa
leitað mikið í vor, og nú með
nýjum leitartækjum og hafa
Vinnuaflskostnaður frystiiðn-
aðarins mun hækka um nálega
70% frá því í nóvember sl. til
ársloka 1973 að öðru óbreyttu,
og er þá ekki reiknað með hækk
un á vísitölu vegna erlendra
verðhækkana, sem verða kunna.
Á næstu tveimur til þremur
árum þarf að gera mjög veiga-
miklar og kostnaðarsamar breyt
ingar á húsnæði og búnaði frysti
húsanna, bæði vegna þess að
fyrir dyrum eru auknar kröfur
frá mikilvægustu mörkuðunum
erlendis og einnig vegna þess að
mjög stór hluti frystihúsanna er
orðinn úreltur. Áætlað er, að
endurbyggingar o gbreytingar á
Sambandsfrystihúsunum einum
muni kosta nálægt 700 milljón-
um kr. o ger þá miðað við verð-
lag haustið 1971. Frystiiðnaður-
inn hefur ekki bolmagn til þess
að leysa þetta verkefni nema
með lánsfé að langmestum
hluta. Stjórnarvöld hafa sýnt
þessu máli fullan skilning, en
ennþá er það óleyst, hvar lánsfé
verður að hafa.
Það er bjart yfir íslenzkum
sjávarútvegi í dag hvað allar
ytri aðstæður snertir. Verðlag
afurða hefur aldrei verið eins
hátt og nú. Víða hillir undir
hagstæðari rekstur með tilkomu
nýrra togara á næstu árum.
Allir vona, að sú útfærsla fisk-
veiðilögsögunnar, sem verður
nú í haust, muni smátt og smátt
færa okkur aukið aflamagn með
minni tilkosnaði.
Aðrar aðstæður eru aftur á
móti ekki eins hagstæðar. Vinnu
afl sogast frá sjávarútvegi, svo
að til vandræða horfir. Fjöldi
báta var ekki fullmannaður í
vetur, og verkun aflans bjargaði
það eitt, að vertíð var fremur
léleg. Eins og áður sagði er
þeir notið aðstoðar sérfróðra
varnarliðsmanna í þessu efni.
Leitinni varð að hætta fyrir
skömmu, þar sem kópaveiði er
að hefjast við órnar á söndun-
um, en talið er líklegt, að henni
verði fram haldið að selveiði
lokinni. Margskonar sögusagnir
ganga um það, að skipið sé loks
fundið, eða talið líklegt að svo
sé, vegna ýmsra dularfullra um-
mæla leitarmanna. Er vonandi
að hið gamla, hollenzka skip
komi innan tíðar í leitirnar og
svari þá hinum mikla kostnaði,
sem þegar er orðinn við margra
ára leit. Q
frystiiðnaðurinn nú kominn inn
í hallarekstrartímabil, og á það
sennilega einnig við um aðrar
greinar útflutningsiðnaðar.
Ljóst er, að brátt kreppi enn
meira að, ef þeirri verðbólgu,
sem nú gengur yfir, linnir ekki.
Aðalfundur Iceland
Products, Inc.
Að loknum aðalfundi SAFF,
var haldinn aðalfundur Iceland
Products, Inc., sem er fram-
leiðslu- og sölufyrirtæki fyrir
frystar fiskafurðir í Bandaríkj-
unum í eigu Sambandsins og
frystihúsa, sem selja afurðir sín
ar í gegnum Sjávarafurðadeild
Sambandsins.
Stjórnarformaður Iceland
Products, Inc., Erléndur Einars-
son forstjóri, setti fundinn og
stýrði honum.
Heildarsala á árinu 1971 var
20.685.000 dollarar, eða sem
næst 1820 millj. króna, sem er
um 45% aukning frá fyrra ári.
Framleiðsla ýmissa fiskrétta í
verksmiðju fyrirtækisins var
(Framhald á blaðsíðu 4)
SMATT
EKKERT DÝRA-
VERNDUNARFÉLAG
Öðru hverju er um það spurt,
hver sé formaður Dýraverndun-
arfélags Akureyrar, og hefur
fólk yfir ýmsu að kvarta, er það
félag myndi telja í sínum verka-
hring að sinna. En nefnt félag
er ekkert til á Akureyri, var
það, en er löngu dautt, svo sem
staðfest var af síðasta formanni
þess. Og þá veit maður það.
DÝRAVINIR
Flestir bæjarbúar eru dýravin-
ir og bera húsdýrin yfirleitt
vitni um það, að eigendur þeirra
láta sér annt um þau. Gildir það
jafnt um sauðfé og hross, þótt
undantekningar kunni að finn-
ast. En að því er varðar hrotta-
lega meðferð á skepnum, ef til
er, mun hún standa í sambandi
við drykkjuskap eða óvitahátt,
og er ekki afsökun. Hins verður
þá einnig að geta, að þegar hross
eru tamin, er svipan nauðsyn.
En það er líkt með svipuna og
vöndinn, að beita verður þeim
af skynsemi, og að yfirlögðu
ráði.
HVAÐ BER AÐ GERA?
Hvað ber að gera? Þannig er
spurt í bréfi, er rætt hefur verið
þar um illa meðferð á skepnum.
Svarið væri auðvelt ef hér væri
félagsskapur, sem vinna vildi að
dýravernd. Það félag fyrirfinnst
ekki, og þá er reynandi að snúa
sér beint til þeirra, sem „sekir“
eru, eða þá að gera lögreglunni
aðvart. Látum við svo útrætt
um þessi mál í dag.
KLÖGUMÁL
Tvö bréf liggja hér á skrifborð-
inu, er fjalla um illa meðferð á
hestum. Er í öðru bréfinu hroða
leg lýsing á viðskiptum manns
og hests, en um sama efni liefur
blaðið fengið upphringingar.
Ekkert verður birt úr þessum
bréfum, af því að þau eru nafn-
laus, en sé í þeim sagður sann-
leikurinn, eiga viðkomendur, er
vitni geta borið, að snúa sér til
lögreglunnar, að athuguðu máli.
&STORT
GIFTIN G AR ALDUR I
Frumvarp til nýrra sifjalaga er
í meðförum Alþingis og sam-
kvæmt því er gert ráð fyrir að
giftingaraldur karla færist nið-
ur í 18 ár, eða lækkaður um tvö
ár. Þá vérða niður felldar festar
og lýsingar, hjónaskilnaður
rýmkaður.
SENDIRÁÐ KÍNA
Fréttir herma, að Kínverjár
muni innan tíðar setja á lagg-
irnar sendiráð í Reykjavík. Ilins
vegar er óvíst, hvenær íslenzkt
sendiráð verður opnað í Peking.
Hitt er þó staðreynd, að nú taka
þessi lönd upp stjórnmálasam-
band. Sendifulltrúi Kínverja
verður maður að nafni Lin Hua
og með: honum verða nokkrir
aðstoðarmenn.
HREINDÝR DREPAST
Sagt er, að hreindýr falli eystra
eða séu sjúk, einkum ung dýr.
Ekki er það þó vegna bjargar-
skorts, svo sem tíðast áður í
liörðum árum, heldur er hér um
að ræða einhvern sjúkdóm. Lík-
legt er einnig talið, að þegar
hreindýr ganga á láglendi, svo
sem þau hafa gert liin síðari ár,
geti vöntun vissra efria skort í
fæðuna.
, KRUMMI
Austur í Kelduliverfi, á bæ
þeim, sem Arnarnes hejtir og er
í eyði, stendur enn turn gamall-
ar vindrafstöðvar. Þar bjó
krunnni sér hreiður í vor og
verpti. Þótti þetta einkcnnilegt,
því að krummar forðast. manna-
bústaði og velja sér ekki varp-
staði nálægt þeim, nenia þá í
ógengum klettum. En þar sem
Arnarnesið er yfirgefinn staður,
hefur krummalijónum fundizt
óhætt að nota hin gömlu mann-
anna verk til að gera sér hreið-
ur. En hætt er við, að sá staður
hafi ekki verið vel. valinn, því
að eigendur varps í nágrenninu
vilja ekkert með krununa hafa.
AFLINN GLÆÐIST
Dalvík 18. maí. Lionsklúbbur
Dalvíkur færði nýlega læknis-
héraðinu augnþrýstimæli, en
hafði áður gefið sjónprófunar-
tæki.
í síðustu viku lönduðu báðir
togbátarnir, Björgvhi og Björg-
úlfur, annar rúmum 60 tonnum
og hinn 70 og er það mesti afli
þeirra á vertíðinni. Svo landaði
Björgvin hér 30 tonnum í gær.
Er því nóg, að gera eins og er í
frystihúsinu. Loftur Baldvins-
son er að búa sig á síldveiðar í
Norðursjó og hættur togveiðum.
Hjá litlu bátunum hefur verið
fremur lélegt til þessa. En Bliki,
einn af miimi bátunum okkar
hér á Dalvík, fór á vertíð til
Suðurlands. Var þar í tvo mán-
uði og varð liásetahluturinn um
180 þús. krónur.
Grásleppuvéiðinni er að ljúka
og munu hrognin fara í þessari
eða næstu viku.
Ur sveitinni fær maður þær
fréttir, að þar gangi allt að; ósk-
um. Sauðburður gengur vel og
bændur eru í óða önn að béra á
túnin. Víðast mun lokið að setja
niður kartöflur, Vegirnir eru að
verða sæmilegir, en slæm hvörf
voru lengi erfið og leiðinleg.
Akureyrartogaramir
KALDBAKUR landaði 10. mai
133 tonnum, er á veiðum.
Svalbakur landaði 5. maí 60
tonnum. Hann'landar eftr hátíð-
Harðbakur landaði 12. maí
178 tonnum og er á veiðum.
Sléttbakur landaði 8. maí 150
tonnum, landar í næstu viku.
Sólbakur landaði 18. maí 173
tonnum. □
Þegar holræsin stíflast þurfa ötulir menn að vera til taks, og
lentu þessir því sem næst óvart fyrir myndavélinni. (E. D.)
Guiarmur 43 tunnur?