Dagur - 25.05.1972, Side 2
í knaftspyrmi fer senn aS hefjasf
Akureyringar lcika fyrsta lelk sirni i 2. deild
3. júní við Vöslunga á Húsavíkurvelli
KNATTSPYRNAN er nú komin mjög á dagskrá, enda keppni haf-
in syðra fyrir löngu. íslenzka landliðið lék tvo leiki við Belgíumenn
í undankeppni HM og tapaði 8:0 og fóru báðir leikirnir fram ytra.
íslandsmótið í knattspyrnu, 1. deild, hefst svo 28. maí, en keppni
:í 2. og 3. deild skömmu síðar. Blaðið náði tali af Kristjáni Kristjáns-
syni teiknara, scm er formaðnr Knattspyrnuráðs Akureyrar og
lagði fyrir hánn nokkrar spurningár.
Hvað viltu scgja um þjálfun
ÍBA-liðsins?
Eins og kunnugt er tók Jó-
hannes Atlason við þjálfun ÍBA-
liðsins í byrjun apríl, og eru
allir mjög ánægðir með hann.
Liðið æfir þrisvar í viku og hef-
ur leikið æfingaleiki um helgar.
Æfingar eru vel sóttar og hafa
mætt um 30 menn á æfingar.
Allir leikmenn IBA-Iiðsins í
fyrra mæta á æfingar nema
Skúli.
Hvenær liefst svo kcppni
ÍBA-liðsins í 2. deild?
Laugardaginn 3. júní leikum
við okkar fyrsta leik og mætum
Völsungum á Húsavíkurvelli.
Fyrsti leikurinn á Akureyrar-
velli verðúr laugardaginn 10.
júní gegn liði Selfoss. Þá tekur
mfl. einnig þátt í Bikarkeppn-
inni, og fer fyrsti leikurinn í
-henni fram' miðvikudaginn 19.
júlí og verður annáðhvort leikið
við Tindastól eða Völsung. Þá
má geta þess, að við sendum lið
í íslandsmót í 2. fl. og einnig í
Bíkarkeppni 2. 'fl. Fyrsti leikur-
inn í Bikarkeppni 2. fl. fer fram
sunnudaginn 25. júní á Akur-
eyrarveili gegn F. H.
Akureyringar stefna auðvitað
að því áð entlurheimta sæti sitt
í 1. dciid. Hvað viltu segja um
það, Kristján?
Við stefnum auðvitað að því
að endurheimta sæti okkar í 1.
deild, en það verður eflaust við
ramman reip að draga. Ég held
að allir útileikir okkar fari fram
á malarvöllum, og hefur verið
reynt að undirbúa liðið sem bezt
undir það, en eins og allir vita
hefur ÍBA-liðið æft og keppt svo
til eingöngu á grasvöllum undan
farin ár, en það er mikill munur
á því að leika á möl og grasi. Ég
er sannfærður um það, að leik-
mennirnir gera sitt bezta til að
endurheimta sætið sitt í 1. deild,
og vonandi fá þeir góða aðstoð
frá knattspyrnuunnendum hér í
bæ. Það er von okkar að fólk
fjölmenni á völlinn og hvétji
liðið, þess er ekki síður þörf nú,
þótt liðið leiki í 2. deild.
Ilvað um fjármálin?
Ég vil aðeins segja það, að
fjárhágur Knattspyrnuráðs er
slæmur. Það varð tap á rekstr-
inum í fyrra, og það kostar jafn
mikið að taka þátt í keppninni í
2. deild eins og 1. deild, en inn-
koman verður sáralítil nema
hér á Akureyri, og innlcoman
hér skiptist jafnt á milli liðanna.
Þá vil ég geta þess, að í sumar
leikur liðið með auglýsingu frá
SJOFN á búningi sínum og
þökkum við þann stuðning, sem
fyrirtækið veitir okkur. Að lok-
um vil ég bvetja bæjarbúa að
veita okkur í Knattspyrnuráði
liðsinni eftir því sem á þarf að
halda, og þess má geta, að okkur
vantar herbergi fyrir þjálfarann
nú þegar.
Blaðið þakkar Kristjáni fyrir
spjallið og óskar knattspyrnu-
(Framhald af blaðsíðu 4)
umboðsvald hafa, til þeirra
hluta. Og þetta er raunar hið
alvarlegasta, í þessum málum.
Hólsteinn Helgason.
Stefán Kr. Vigfússon sendir
eftirfarandi bréf til birtingar:
Eitt alvarlegasta vandamálið,
sem nú herjar íslenzka þjóð er
sívaxandi áféngisneyzla, eink-
um meðal ung'linga, allt niður í
12 ára aldur. Þær staðreyndir,
sem við blasa í þessu efni eru
ógnvekjandi. Áfengissjúklingar,
þ. e. þeir sem orðnir eru ósjálf-
bjarga, analega og líkamlega,
eru nú taldir 2—3 þúsund. Mun
sú tala fara hækkandi á næstu
árum, ef svo heldur sem horíir.
Mestan hluta afbrota og slysa
má rekja til áfengisneyzlunnar,
glataðar vinnustundir, siðleysi
og heimilisböl er meira en tár-
um taki. En þjóðin heldur að sér
höndum og lætur sem hún sjái
hvorki eða skilji.
Sumir tala um áfengisneyzl-
mönnunum alls hins bezta í
sumar. Reynt verður aj segja
frá leikjum liðsins hér í blaðinu
og síðar verður sagt frá keppni
í yngri flokkum í sumar.
Sv. O.
una sem sjúkdóm. Slíkt er fjarri
öllu lagi. Það er ofneyzla áfeng-
is, sem gerir menn að sjúkling-
um. Menn geta ekki alltaf var-
ast bakteríur, sem sjúkdómi
valda, en það er blekking að
bera það saman við áfengis-
neyzluna, því að hún er hverj-
um í sjálfsvald sett, þar til menn
eru orðnir háðir henni. Áfengis-
neyzlan er ávani — löstur — og
hann mikill og hættulegur.
En hvað skal til varnar verða
drykkjutízkunni í landinu?
Hvaða ráð duga helzt til að
leysa þjóðina úr álagafjötrum
ofneyzlu áfengra drykkja?
Reynzlan er oftast bezti kennar
inn. Þjóðin hefur á þessari öld
með frábærum árangri tekið
höndum saman um útrýmingu
sjúkdóma, svo sem sullaveiki og
berkla. Þessir sjúkdómar eru
ekki lengur alvarlegt áhyggju-
efni. Hlýtur ekki þjóðin á næstu
árum að snúa sér að ofdrykkj-
unni, sem árlega leggur fjölda
manns í gröfina og veldur óbæt-
anlegu tjóni á mörgum sviðum?
I
' w. ' V , *
-í—-
■■■ ' ^
3ja og 4ra herbergja íbúöir í fjölbýlishúsi við
Víðihmd no. 8 - 10. Ibúðirnar verða seldar til-
búnar undir tréverk og málningu en uppsett eld-
húsinnrétting fylgir. 4ra herbergja íbúð tilbú-
in í september. Sameign verður frágengin og
beðið verður eftir láni húsnæðismálastjórnar
að uppbæð kr. 600 þús.
mimim
H
&
- FURUVÖLLUM 5, AKUREVRI - SÍMI 2-13-32.