Dagur - 25.05.1972, Page 8
■«■ &
I-
?
C3*
I
I
I
?
$
I
é
t
f
i
^ Húsmæóraskólancmnar voru í heimsókn hjá K ^A 1 sioustu viku.
(Ljósni.: G. P. K.)
Aðalfundur sýslunefndar Suður-Þing.
\ÐALFUNDUR sýslunefndar
S.-Þing. var haldinn í Húsavík
dagana 24.—28. apríl sl. Tekjur
sýslusjóðsins voru áætlaðar
>.052 millj. kr. Tekjur sýsluvega
sjóðsins 3.2 millj. kr.
Helztu fjárveitingar voru
bessar: Til menntamála kr. 1.048
millj. kr., til safnahúsbyggingar
kr. 600 þús., til heilbrigðismála
'<r. 420 þús., til búnaðarmála kr.
430 þús., til nýbyggingar sýslu-
vega kr. 2.150 þús. kr. og til
/egaviðhalds kr. 800 þús.
Samin var ný fjárskilareglu-
aerð fyrir héraðið.
í raforkumálum var sam-
þykkt svohljóðandi ályktun:
Sýslunefnd Suður-Þingeyinga
ekur undir hugmyndir ríkis-
stjórnarinnar um endurskipu-
j agningu á umráðum, byggingar
aðild og samtengingu raforku-
vera, og álítur, að þar sé rétt
stefnt í höfuðatriðum. Ætti það
að geta tryggt hagkvæmari nýt-
:ngu ,aukið öryggi í rekstri og
;iafna verð á raforku til neyt-
anda, hvar sem þeir eru búsett-
ir. Þá telur sýslunefndin vinn-
: ng að því, að héraðsstjórn gef-
..st kostur á þátttöku í ákvörð-
anum um byggingu og rekstur
orkuveitanna. Ennfremur bend-
r hún á, að nauðsynlegt er að
■dreifa framkvæmdum um land-
: ð til öryggis vegna náttúruham-
iara og vegna þeirra fjölbreyttu
atvinnuuppbyggingar, sem
íylgja kostnaðarsömum fram-
-ívæmdum.
Kasthvammi á hvítasunnudag.
Líklega hef ég aldrei lifað þrjár
íyrstu vikurnar af maí svona
góðar, en ekki munar miklu nú
og 1939. Gróður er hálfum mán-
uði til þrem vikum fyn- á ferð
en síðastliðin 12 ár. Sauðburður
stendur sem hæst hér í dalnum
Frá sumarbúðunum
að Vestmannsvatni
INNRITUN í Sumarbúðirnar
hefur staðið yfir að undanförnu.
Fullbókað er í 1., 2. og 3. flokk,
en ennþá er laust í blandaða
flokkinn, sem hefst 17. ágúst.
Enginn aldraður hefur sótt um
dvöl, og hefur því verið ákveðið
að hafa stúlkur eða blandaðan
hóp 8—10 ára frá 22. júlí til 2.
ágúst.
Dvalargjald verður kr. 3.000.
Sími 12351 tekur á móti um-
sóknum og veitir nánari upp-
lýsingar.
Varðandi Aðaldalsflugvöll
gerði sýslunefndin svohljóðandi
ályktun:
Sýslunefnd Suður-Þingeyjar-
sýslu skorar á Framkvæmda-
stofnun ríkisins og ríkisstjórn,
að við gerð samgönguáætlunar
fyrir Norðurland verði Aðaldals
flugvöllur yiðurkenndur, sem
einn af aðal flugvöllum landsins
og veitt verði nægilegt fjármagn
til þess á næstu árum, að lengja
flugbraut og leggja á hana var-
anlegt slitlag, búa flugvöllinn
öryggistækjum og viðeigandi
farþegamóttöku, svo að völlur-
inn geti þjónað jöfnum höndum,
innanlandsflugi, og millilanda-
og leiguflugi og tekið á móti
þotum af millistærð.
Jafnframt vekur sýslunefnd-
in athygli á nauðsyn þess, að
komið verði upp alþjóðlegum
varaflugvelli þar sem geti lent
flugvélar af stærstu gerð, sem
ryðja sér æ meira til rúms í
NÝLEGA hefur áætlun Vatns-
veitu Akureyrar, við fram-
kvæmdir og vatnslögn frá Vagla
eyrum, verið endurskoðuð. Kem
ur þar fram, að heildarkostnað-
ur er 43.7 millj. kr. Nú þegar
hefur 13 millj. króna verið varið
til þessara framkvæmda.
Áætlað er að verja 23.7 millj.
og hefur gengið með afbrigðum
vel, einnig með flesta móti tví-
lembt. Það hefur sannarlega
verið gaman að vera við sauð-
burð undanfarna daga.
Mér sýnist, að endur séu með
fleira móti á Laxá nú í vor,
nema minna af straumöndinni.
Það verður að banna alla eggja-
töku í nokkur ár. Straumandar-
eggin eru mjög eftirsótt til út-
ungunar erlendis og eru þau
keypt háu verði. Straumöndin
er eitt af djásnum Laxár og má
ekki fækka.,
Búið er að leigja Laxá frá
Gljúfrum og að merkjum Skútu
staðahrepps og er leigan 800
þús. krónur fyrir veiðitímabilið.
Ef lax hefði verið á þessu svæði
hefði áin verið leigð á jafn marg
ar milljónir og 100 þúsundin nú.
Einn maður skrapp í ána í dag
í tvo tíma og veiddi 9 úrvals
silunga, hér suður í dalnum.
Enga rjúpu hefi ég séð hér
niðri í dalnum. G. Tr. G.
Atlantshafsfluginu. Það er öll-
um ljóst, að ef stefnt er að auk-
inni flugumferð um Keflavíkur-
flugvöll og aukinni þátttöku ís-
lenzkra aðila í alþjóðafluginu,
er nauðsynlegt, að næsta stór-
átakið, eftir lengingu þverbraut-
ar á Keflavíkurflugvelli, verði
gerð varaflugvallar. í þessu sam
bandi bendir sýslunefndin á, að
staðsetning alþjóðlegs varaflug-
vallar verði að ákveðast af sér-
fróðum mönnum, sem taka fyrst
og fremst tillit til flugskilyrða
og kostnaðar við gerð flugvallar-
ins, og ekki hafa blandað sér í
deilur milli landshluta um stað-
setningu flugvalla. Sýslunefndin
leggur á það mikla áherzlu, að
þeir innlendir aðilar, sem hafa
hagsmuna að gæta í alþjóðaflug
inu, hafa eindregið mælt með
Aðaldalsflugvelli, bæði vegna
góðra flugskilyrða og hve flug-
vallargerð er ódýr í Aðaldals-
hrauni, og telur, að ekki sé hægt
að sniðganga þessi sjónarmið. □
króna til framkvæmdanna á
þessu ári, ef fjármagn fæst til
þeirra.
En samkvæmt fjárhagsáætlun
Vatnsveitunnar, sem nú hefur
verið lögð fram til fyrstu um-
ræðu, þarf að afla 26 millj. kr.
að láni, til framkvæmda við að-
veituna og til framkvæmda inn-
an bæjarins. Bæjarstjórn hefur
farið fram á það við ríkisstjórn,
að hún heimili 50% álag á vatns
skatt vegna þessara kostnaðar-
sömu framkvæmda. Nú eru tekj
ur Vatnsveitunnar áætlaðar að-
eins rúmar 15 millj. kr.
Þegar hafa verið keypt vatns-
rör frá Reykjalundi og búið að
flytja þau á notkunarstað og
Vatnsveitan hefur þegar keypt
gröfu til að koma þeim í jörð. □
Synpr á Siglufii
UM síðastliðin mánaðamót efndi
Karlakór Akureyrar til tveggja
samsöngva hér í bæ, við frá-
bærar undirtektir áheyrenda.
Laugardaginn 27. þessa mán-
aðar hyggst kórinn syngja í
Nýjabíói á Siglufirði kl. 4 síðd.
og í Tjarnarborg, Ólafsfirði
sama dag kl. 9 síðd. Söngskrá er
s úsama o gá tónleikunum á
Akureyri, en á henni eru 12 lög,
auk 11 laga syrpu af sænskum
lögum af léttara taginu.
Æði mörg lög á söngskránni
Utlendir kaupa straumandaregg
Miklar vatnsveituframkvæmdir
SMÁTT & STÓRT
FAGUR FISKUR í SJÓ
Þeir, sem nú eru aldraðir orðn-
ir, niuna þá tið þegar karfanum
var mokað í sjóinn á togurun-
um, því að ekkert var með þann
fisk að gera. Á síldarárunum
varð oft vart við kolmunnatorf-
ur og þótti liið versta óhapp að
fá kolmunna í nótina. Líklegt er,
að liér fari eins og með karfann,
að kolmunni verði eftirsóttur
nytjafiskur, eins og hann hefur
raunar verið hjá öðrum þjóðum,
svo sem Rússum, og verði hann
þá, eins og aðri rnytjafiskar, tal-
inn fagur fiskur í sjó.
LEITAÐ AÐ KOLMUNNA
Nú eru gerðir út leiðangrar til
að finna og rannsaka kolmunna.
Rannsóknarskipið Árni Friðriks
son er að hefja þær rannsóknir
og Eldborg frá Hafnarfirði
liyggst veiða kolmunna í síldar-
nót. Þessi Iitli fiskur, kolmunn-
inn, er 30—40 cm. langur, verð-
ur feitur á liaustin og er nú
einkum athugað að veiða hann
til bræðslu. Hins vegar mun hér
vera um góðan matarfisk að
ræða, að vísu vandmeðfarinn,
en eflaust verðmikinn, þar sem
markaðir finnast. Markaðsleit
og verkunaraðferðir þurfa að
lialdast í hendur, við veiðarnar,
ef svo fer, sem margir spá, að
kolmunnaveiðar verði framtíðar
þáttur veiðiskapar í sjó.
EITURLYF
Því miður er Akureyri ekki
lengur laus við eiturlyfjavanda-
málið og er fyrsta þess háttar
mál nú í rannsókn liér í bænum.
En tugir mála vegna eiturlyfja-
sölu og neyzlu hafa komið til
kasta lögreglu og dómsvalds í
liöfuðborginni og nágrenni henn
ar, svo sem blöð og útvarp hafa
hermt. Nú er hver og einn grun
aður um meðferð eiturlyfja tek-
inn og yfirheyrður, sem rétt er
og skylt. Hins vegar má barátt-
an við áfengið ekki falla þar í
skuggann og einblína eingöngu
á eiturlyfin. Það er lítið sam-
ræmi í því, að horfa fram hjá
áfengisnotkun 100 ungmenna á
einum dansleik og látast ekki
sjá, en beina allri athygli að
hassi.
NÝIR BÍLAR
Á þessum vordögum kaupa;
margir nýja og dýra híla, fyrir
sparifé og lánsfé. Þeir eiga að
veita eigendum sínum yndi í
sumar og miklu lengur, auk
þeirra bíla, seni gegna þýðingar-
meiri hlutverkum. Og svo er
lagt út á vegina í vorblíðunni.
Ryk liinna þurru moldar- og
malarvega þyrlast upp, bíllinn
heggur á grjóti og í holum, og
jafnvel í fyrstu ökuferðinni
heyrir ökumaðurinn ný og
óæskileg hljóð í farartækinu,
sem byggt er fyrir sæmilega
vegi en ekki íslenzka vegi. Mörg
orð eru látin falla um vegagerð-
armenn og vegaviðhald, en það
er lítið gagn að því. En mættú
bíleigendur samt sem áður gera
þá kröfu til vegagerðarinnar, að
hún sjái betur um vegaviðhald-
ið en undanfarin ár.
VÍKURSKARÐ
Um helgina var farið yfir Víkur
skarð á jeppa og þurfti ekki að
setja framdrifið á, svo þurrt var
þar og gott yfirferðar, miðað við
vegleysu þó, því að þarna hefur
aldrei verið lagður vegur. Víkur
skarð er 200 metrum lægra yfir
sjó en núverandi vegur yfir
Vaðlaheiði .
Vaðlaheiðarvegur hefur verið
bannaður nema jeppum. En tug-
ir, ef ekki hundruð bíla, aðrir
en jeppar fara þar daglega ura,
Annað livort ætti að sjá um, að
bannið hefði gildi eða að upp-
hefja það.
STRÓKUR UPP AF
HVERRI EYJU
Á hvítasunnudag stóðu strókar
miklir upp af eyjum í Mývatni.
Sumir héldu að þar væri kvikn-
að í, svo tnikill var mökkurinn.
En ekki var þarna eldur, heldur
mýflugur. Hefur ekki annað
eins sézt um fjölda ára. Menn
leiða getum að því, að-hin mikla
mergð flugna standi í sambandi
við það, að vatnsborð Mývatns
var lækkað. Silungurinn í vatn-
inu er feitur og góður, sem jafn-
an þegar mikið er uin fluguna.
Stangaveiði í Laxá, bæði í Mý-
vatnssveit og norðar, þ. e. í Lax-
árdal norður að virkjun, á að
hefjast í júníbyrjun og er talið
Iíklegt, að þar verði góð veiði.
Frá lögreglunni
UM helgina var bifreið skilin
eftir við Fnjóskárbrú. Litlu síð-
ar var af henni stolið toppgrind
og úr henni segulbandstæki.
Segulbandið er nú komið í leit-
irnar, að því er lögreglan tjáði
blaðinu á þriðjudaginn og búin
er liún einnig að hafa upp á
toppgrindinni, en hún hafði ver-
ið falin á víðavangi. Ungur mað-
ur frá Akureyri mun valdur að
þessum verknaði.
Á föstudaginn varð það slys á
§i cg Ólafsfirði
hafa sjaldan eða aldrei verið
flutt áður af hérlendum karla-
kórum og má þar meðal annars
nefna lög eftir Sigursvein D.
Kristinsson, Kódaly, Caspar
Ottmayr, Siegfried Merath og
fleiri.
Söngstjóri Karlakórs Akur-
eyrar er Jón Hlöðver Áskelsson
og undirleikari Áskell Jónsson.
Einsöngvarar eru þau Helga
Alfreðsdóttir og Hermann Stef-
ánsson.
Aðgöngumiðar verða seldir
við innganginn. Q
Akureyri, að Ásmundur Þor-
steinsson, Strandgötu 29,
klemmdist fnilli bílpalls og girð-
ingarstólpa og meiddist mikið.
Hann liggur í sjúkrahúsi.
Á hvítasunnudag var aðkomu
bíl síolið af tjaldstæði í bænum.
Þar var maður úr öðrum lands-
hluta, bráðvanur, að verki og
handtók lögreglan manninn,
ölvaðan við akstur í bílnum í
bænum og færði bak við lás og
slá.
Barn varð fyrir bíl við Glerár
brú á þriðjudaginn. Ekki var
slysið talið mjög alvarlegt.
Á laugardaginn óskaði Þórólf-
ur hreppstjóri Guðnason í
Lundi eftir aðstoð lögreglu-
manna á Akureyri, vegna ung-
menna í Vaglaskógi. Voru þá
hundruð manna komin í skóg-
inn og ölvun talsvert mikil.
Fóru lögreglumenn á staðinn.
Fátt gerðist þar tíðinda og ekk-
ert stórra, nema að á nokkrum
draup blóð úr nösum. Lögreglan
hirti bílfarm (um 16 manns) og
ók með hópinn til Akureyrar,
ýmist útúr drukkin ungmenni
eða á annan hátt hjálparvana.
Ekki var nein opinber sam-
koma í Vaglaskógi þennan dag.