Dagur - 07.06.1972, Page 1
Hér eru kaupfélagsmenn á leið til kaupfélagsfundarins, fyrstur formaður félagsstjórnar og þá hver af öðrum.
(Ljósm.: E. D.)
Eitt bezta viðskiptaár hjá KEfl, 1971
AÐALFUNDUR Kaupfélags Ey
firðinga hófst árdegis á mánu-
daginn og lauk þann dag. —
Þetta stærsta viðskipta- og fram
leiðslufélag sex þúsund sam-
vinnumanna skilaði arði og góð-
um afskriftum á liðnu ári — var
eitt hagfelldasta rekstursár um
langt árabil.
Aðalfundurinn, sem haldinn
var í Samkomuhúsinu, var mjög
vel sóttur og voru flestir kjörn-
ir fulltrúar hinna mörgu félags-
deilda á kaupfélagssvæðinu
mættir í fundarbyrjun. En sam-
tals voru þeir 197. Þá var þar
að sjálfsögðu stjórn KEA, fram-
kvæmdastjóri, endurskoðendur,
ýmsir starfsmenn og gestir, svo
að samkomusalurinn var full-
skipaður að heita mátti.
Brynjólfur Sveinsson, stjórn-
arformaður KEA, setti aðalfund
inn, bauð fulltrúa og aðra vel-
komna, gerði síðan grein fyrir
fulltrúum og minntist einnig lát
inna félaga og starfsmanna. Risu
fundarmenn úr sætum í virðing
arskyni við þá.
Jakob Frímannsson, fyrrver-
andi kaupfélagsstjóri, var kjör-
inn fundarstjóri, og kaus hann
sér síðan Stefán Halldórsson að-
stoðarfundarstjóra. Ritarar voru
kjörnir Árni Bjarnarson og Jón-
mundur Zophoníasson.
Stjórnarformaður tók aftur til
máls og rakti í stórum dráttum
skýrslu stjórnar og fram-
kvæmdastjóra, sem að öðru
leyti er birt í Félagstíðindum
KEA, er fulltrúar fengu í hend-
ur í upphafi fundarins.
En meðal þeirra atriða í
skýrslunni má nefna fram-
kvæmdastjóraskiptin hjá Kaup-
félagi Eyfirðinga og einnig hjá
Útibúi KEA á Dalvík. Af starfi
lét Jakob Frímannsson en Val-
ur Arnþórsson tók við kaup-
félagsstjórastarfi frá síðasta aðal
fundi að telja. Af starfi á Dalvík
lét Baldvin Jóhannsson en við
starfi útibússtjóra tók Kristján
Olafsson. Nýtt stórgripaslátur-
hús var tekið í notkun á Akur-
eyri 17. ágúst sl. Stjórn KEA
samþykkti í ágúst að ábyrgjast
að hálfu á móti Dalvíkurhreppi
víxillán fyrir allt að 8% kaup-
verðs nýs skuttogara fyrir Út-
HINN 17. júní verður haldinn
hátíðlegur með svipuðu sniði og
undanfarin ár. Aðalhátíðahöldin
fara fram á íþróttasvæðinu og
við Ráðhústorg.
Lúðrasveitin leikur á Ráðhús-
gerðarfélag Dalvíkur. KEA
keypti ásamt SÍS húseign í
Glerárgötu 28 fyrir starfsemi
Efnaverksmiðjunnar Sjafnar. Þá
Valur Arnþórsson.
17. júní
torgi frá kl. 1.30. Þá er ávarp
Fjallkonunnar og síðan helgi-
stund. Síðan er skrúðganga út á
íþróttasvæðið. Þar eru þessi
atriði helzt: Ræða dagsins,
Barði Friðriksson lögfræðingur
úr Reykjavík, ræða nýstúdents,
fimleikar og íþróttir. En síðast
en ekki sízt verður flugsýning
og fallhlífastökk. Sviffluga lend-
ir, lítil vélfluga sýnir og tveir
fallhlífastökkmenn úr Reykja-
vík sýna í fyrsta skipti á Akur-
eyri.
Klukkan 5 er barnaskemmtun
á Ráðhústorgi. Sýna leikarar úr
L. A. þátt úr „Dýrunum í Hálsa
skógi“. Síðan er dansað við und-
irleik „Hunangs“.
Um kvöldið eru aðalatriðin
þessi: Lúðrasveitin leikur, Karla
kór Akureyrar syngur, söngtríó-
ið landsþekkta „Þrjú á palli“
syngur, hinir frægu leikarar
Gunnar Eyjólfsson og Bessi
Bjarnason flytja gamanþátt. Síð
ast verður dans stiginn við und-
irleik hljómsveitarinnar Hun-
angs.
Eru þetta helztu atriði dag-
skrárinnar, en að þessu sinni
sér Knattspyrnufélag Akureyr-
ar um hátíðahölain.
MÁLVERKASÝNING Á AKUREYRI
Á laugardaginn opnar ungur niálari frá Akranesi sýningu í Lands-
banknsalnum á Akureyri. Hann lieitir Hjálmar Þorsteinsson og er
hér niynd af honum við eitt málverka sinna. Á sýningunni verða
25 vatnslitamyndir og 20 olíumálverk.
samþykkti stjórn KEA að fá vél
ar til Mjólkursamlagsins til
fernupökkunar á mjólk, en
stefnt verði að því að leggja
flöskurnar niður.
Hinn umfangsmikli rekstur
Kaupfélags Eyfirðinga kallafr á
gífurlega fjárfestingu, ekki sízt
vegna þess, að margar starfs-
deildir hafa náð mikilli veltu-
aukningu á umliðnum árum og
þurfa því aukið húsrými og
tæki, auk þess sem húsakostur
þarf sífelldrar endurnýjunar
með. Heildarfjárfesting KEA
árið 1971 varð 59.8 milljónir
króna. Meðal þeirra eru frysti-
(Framhald á blaðsíðu 4)
Bezfu ræðarar kvenna
frá Kjöfiðnaðarsföðinni
S J ÓM ANNAD AGURINN er
víða mikill hátíðisdagur en
reisn hans er ekki slík, sem vera
ætti, og áður var.
Hér á Akureyri lék Lúðra-
sveit Akureyrar undir stjórn
Roars Kvam tónlistarkennara,
skemmtileg lög við Torfunefs-
bryggju. En síðan fór fram'kápp
róður og hafði þá safnazt mann-
fjöldi þangað til að heyra lúðra-
^blástur og sjá róður karla og
kvenna.
Sex sveitir kvenna keppju og
varð sveit KjötiðnaðarstÖðvar-
innar hlutskörpust en næst
konur frá Fataverksmiðjunni
Heklu.
Átta voru sveitir karla og
varð þeirra hlutskörpust sveit
Vatnsveitunnar. Veðmál voru
hin líflegustu.
Ágóði, ef einliver hefur orðið,
rann til Elliheimilis Akureyrar.
Leó Sigurðsson og kona hans
gáfu sjómannadeginum 50 þús.
krónur til minningar um þá, er
fórust með Súlunni 1963.
Dansleikir voru á tveim stöð-
um á vegum sjómannadagsráðs-
ins hér í bæ, en formaður ráðs-
ins er Björn Baldvinsson hafnar
vörður.
Heiðraðir voru Þorsteinn Sig-
urbjörnsson matsveinn frá
Fagrabæ og Bergur Sveinsson
vélstjóri í Hraðfrystihúsi Ú. A.
Veður var gott, norðan and-
vari, þurrt en fremur kalt. Poll-
urinn var kolmórauður vegna
úrhellisrigningar og vatnavaxta
daginn áður.
(Samkvæmt upplýsingum
Björns Baldvinssonar). Q
Háflðahöld og sprengiefni
AKUREYRINGAR, sem söfnuð-
ust saman á og við Torfunefs-
bryggju á sunnudaginn, til að
fylgjast með kappróðri og heyra
lúðrablástur, vissu ekki, að þeir
voru á hættusvæði.
Á Torfunefsbryggju voru
hundrað tunnur af mjög hættu-
legu og eldfimu efni, sem notað
er til iðnaðar. Af tilviljun las
slökkviliðsmaður áletrun á einni
tunnunni og sá þá, að hér var
um stórhættulegt „sprengiefni“
að ræða. Slökkviliðsstjóri og
hafnarvörður létu þá loka
bryggjunni og var þar vörður
þar til efnið var fjarlægt á mánu
daginn.
Þess má geta að nokkur skip
lágu við bryggjuna og þar voru
áður járniðnaðarmenn búnir að
vinna með sín logsuðutæki, en
var auðvitað stranglega bannað,
eftir að uppvíst varð um hætt-
una.
Atvik sem þetta getur fengið
hárin til að rísa á höfði manns,
og menn spyrja: Hver ber
ábyrgð á athæfi sem þessu? Q
Norðurlandaferð
F.F.N.E. hefst á morgun,
fimmtudag, og brottfarar-
tími er kl. 2.15. Farþegar
mæti kl. 1.30. □