Dagur - 07.06.1972, Blaðsíða 5
I
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar 1-11-66 og 1-11-67
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓHANN K. SIGURÐSSON
Prentverk Odds Bjömssonar hJ.
SAMVINNA
AÐALFUNDUR Kaupfélags Eyfirð-
inga var haldinn hinn 5. juhí,
að viðstöddum fulltnium af öllu fé-
lagssvæðinu, ásamt stjóm og fram-
kvæmdastjóra og margra gesta. Þessi
samtök sex þúsund samvinnumanna
við Eyjafjörð með meginaðsetur á
Akureyri, er stærsta viðskiptafyrír-
tæki á Norðurlandi, fjölþætt í verzl-
un, þjónustu og framleiðslu og skilar
nú hagfelldasta rekstraruppgjöri um
langt árabil. Afköst rekstursins mæld
í fyrningum og ágóða eru meirL en
dæmi eru til, segir í skýrslu stjórnar.
Ástæðan fyrir hinni góðu niðurstöðu
er að sjálfsögðu sú helzt, að veruleg
sölu- og framleiðsluaukning varð í
flestum verzlunardeildum og fyrir-
tækjum, sem nemur meira en fimrnt-
ungi miðað við næsta ár á undan,
enda komst nú heildarveltan upp
fyrir tvo milljarða króna. I>etta f jöl-
þætta og stærsta fyrirtæki fóksins
hér nyrðra, sem byggt er á bjart-
sýni á mátt samvinnu og samhjálpar,
hefur notið farsællar forystu frá upp-
hafi. Hallgrímur Kristinsson, Vil-
hjálmur Þór og Jakob Frímannsson
fyrrverandi kaupfélagsstjórar voru
engir miðlungsmenn í starfi. Eyfirzk-
ir samvinnumenn hafa einnig staðið
fast saman um kaupfélag sitt, og þess
ber þá einnig að geta, að samvínna
samvinnumanna í sveitum og höfuð-
stað Norðurlands hefur jafnan verið
með ágætum og án togstreitu og tor-
tryggni. Síðast en ekki sízt ber svo að
þakka starfsfólki KEA fyrr og síðar
fyrir dyggilega unnin störf. En fast-
ráðið starfsfólk er hátt á sjötta huúdr
að talsins og launagreiðslur til þess
og lausráðins fólks voru á síðasta ári
230 milljónir króna, að meðtöldum
launagreiðslum á Dalvík og í Hrísey.
Að sjálfsögðu krefjast nýir tíöiar
nýrra viðhorfa í vinnubrögðum og
menntun starfsfólks, og fer nú fram
sérstök athugun á þeirn málum inn-
an samtakanna.
í sveit og bæ munu samvinnu-
menn gleðjast yfir hagstæðu ári í
verzlun og viðskiptum félags síns,
þakka þeim manni mikil störf, er í
áratugi stjórnaði Kaupfélagi Eyfirð-
inga af festu og hagsýni, Jakobi Frí-
mannssyni, og á þessum aðalfundi
skipaði sæti fundarstjóra, og fagna
um leið nýjum forystumanni, Val
Arnþórssyni kaupfélagsstjóra. Um
leið er holt að minnast þess, að sam-
vinnustarfið er þrotlaust, vettvangur
þess víðfeðmur, og að enn og ætíð
verður samvinna og samhjálp aðals-
merki hinnar vökulu alþýðu í borg
og sveit, og baráttutæki til bættra
lífskjara. □
'Nökkrir fulltrúar á aðalfundi kaupfélagsins.
(Ljósm.: E. D.)
Eilf bezta viSskipiaár K. E. A. 1971
(Framhald af blaðsíðu 1)
og flökunarvélar o. fl. í írysti-
hú^iti á Dalvík og í Hrísey, nýtt
ketilBús við Kjötiðnaðarstöðina,
nýbyggingin Hafnarstræti 95,
.stórgripaslóturhúsið, húsakaup-
in við Glerórgötu, og bygging
þar til viðbótar, svo að nokkuð
sé nefnt.
Af fyrirhuguðum fjárfesting-
arframkvæmdum á þessu ári má
nefna: Framhald á framkvæmd-
um í Hafnarstræti 95, ný skó-
deild, sem þegar hefur tekið til
starfa, haldið áfram byggingum
Sjafnar við Glerárgötu, byggt
við frystihús félagsins á Dalvík,
endurbætur gerðar á sláturhúsi
þar og væntanlega hafist handa
um nýja aðstöðu fyrir fóðurvöru
verzlunina.
Valur Arnþórsson, sem nú
flutti skýrslu um rekstur og hag
KEA í fyrsta sinn, sem nýr kaup
félagsstjóri, þakkaði viðskipta-
vinum og starfsfólki ánægjulegt
og árangursríkt samstarf ó liðnu
ári og jafnframt gat hann þess,
að nú yrði „þunnur þrettánd-
inn“ hvað snerti veitingar,
vegna verkfalls matreiðslu-
manna. Síðan rakti hann
stærstu drætti í verzlun og við-
skiptum, sagði, að ýmsar vöru-
söludeildir hefðu aukið sölu
sína um 23% og iðnfyrirtæki og
verksmiðjur svipað, þjónustu-
fyrirtæki um 18% og umboðs-
söluvara hefði aukizt um 28%.
Afurðasölur félagsins hefðu auk
izt um tæp 20% og framleiðsla
hlutafélaga og fyrirtækja um
nálega jafn mikið.
Heildarvelta Kaupfélags Ey-
firðinga og fyrirtækja þess hef-
ur að meðaltali aukizt um 22%
í samanburði við árið 1970 og
varð _þetta reiknisár, eða árið
1971, tímamótaár í sögu félags,
ins, því að heildarvelta félagsins
ög fyrirtækja þess fór í fyrsta
sinn yfir 2 milljarða króna, eða
nám 2.225.673.000.00 krónum.
Og enn sagði kaupfélagsstjór-
inn, að sala landbúnaðarvara
hefði gengið vel, smjörbirgðir
minnkað og bændur fengið kr.
16.25 fyrir mjólkurlítrann, að
meðtöldum sjóðagjöldum. Og
enn benti kaupfélagsstjórinn á
það með rökum, að vöruverð í
Kaupfélagi Eyfirðinga er hag-
stætt fyrir hina mörgu viðskipta
vini, og að vörurýrnun í hinum
ýmsu deildum svonefnds vöru-
reiknings (nokkrar helztu sölu-
deildir) hefði verið nær útrýmt,
væri aðeins 0.32%.
í skýrslu stjórnar og fram-
kvæmdastjóra segir svo um end
anlega niðurstöðu m. a., að
rekstur ársins 1971 hafi afkastað
nær 62 milljónum króna. Aðal-
fundurinn samþykkti að af inn-
stæðu ágóðareiknings í árslok
1971 úthlutist og leggist í stofn-
sjóð félagsmanna 4% af ágóða-
skyldri úttekt þeirra, að við-
bættri fóðurbætisúttekt, en 6%
af úttekt þeirra í lyfjabúð félags
ins.
Formaður félagsins, Brynjólf-
ur Sveinsson, sem átti að ganga
úr stjórn baðst undan endur-
kosningu. í stjórn félagsins til
þriggja ára voru kosnir Hjörtur
E. Þórarinsson bóndi, Tjörn og
Sigurður Óli Brynjólfsson kenn
ari, Akureyri. Tveir varamenn
í stjórn til þriggja ára voru kosn
ir Jón Hjálmarsson bóndi, Vill-
ingadal og Gísli Konráðsson
framkvæmdastjóri, Akureyri.
Endurskoðendur voru kosnir
Ármann Helgason kennari, Ak-
ureyri og Guðmundur Eiðsson
bóndi, Þúfnavöllum. Varaendur
skoðandi var kosinn Ármann
Dalmannsson fyrrv. skógarvörð
ur, Akureyri.
f stjóm Menningarsjóðs var
kosinn Árni Kristjánsson amts-
bókárvörður, og varamenn í
stjórn sjóðsins voru kosin Hólm
fríður Jónsdóttir menntaskóla-
kennari og Hjörtur E. Þórarins-
son bóndi.
Að fundi loknum kom stjórn-
in saman og skipti með sér verk
um. Formaður var kosinn Hjört
ur E. Þórarinsson bóndi, Tjörn,
en varaformaður Sigurður Óli
Brynjólfsson kennari, Akureyri.
Samþykkt var á fundinum
eftir áskorun frá samvinnufólki
á Siglufirði að opna þar á staðn-
um verzlunarútibú frá félaginu,
með það fyrir augum, að stofnuð
yrði deild úr Kaupfélagi Eyfirð-
inga á Siglufirði'eftir tvö ár.
Um jslenzka vesðlinga
rr
„SJÁLFSBLEKKINGIN tröll-
ríður öllu, er snertir áfengi og
meðferð þess. Munurinn á
drykkju og ofdrykkju, munur-
inn á neyzlu áfengis og drykkju
skap felst í árvekni og aðgæzlu.
En sú aðgæzla þarf að vera svo
margþætt, í svo mörgum mynd-
um, á svo mörgum tónum, að
hér rúmast skilgreining hennar
ekki, — enda kann ég hana ekki
til hlítar. Ég fer ekki út í þá
sálma að sinni, — bækur dygðu
ekki, — bækur og leiðsögn
kannski.“
Þannig kemst Steinar Guð-
mundsson að orði á bl. 13 í bækl
ingi sínum („íslenzkir vesaling-
ar“) um áfengisvandamál þjóð-
arinnar. Ég mæli eindregið með
lestri bæklingsins, hann er stutt
ur (48 bls.), kjarnyrtur og fljót-
lesinn, ef maður lætur ekki
prentvillur og málvillur fara í
taugarnar á sér. Sjóndaprir, illa
læsir og menn í tímahraki geta
sleppt seinni hlutanum án þess
að missa af miklu; mér finnst
honum bezt lýst sem skemmti-
lega orðuðu röfli í skammardúr
með sannleikskornum hér og
þar, svo ég gerist það djarfur að
líkja eftir stílbrögðum bæklings
höfundar.
>ú ert maður óragur, Steinar,
og ræðst vígreifur að geðlækn-
um okkar. Ekki er laust við, að
hreysti þín sé aðdáunarverð,
a. m. k. er reitt myndarlega til
höggs, og vonum nú, að þetta
verði aðeins byrjunin á opinni
umræðu um áfengisvandamálin,
er leitt gæti til nýrra hug-
mynda, nýrra aðferða, nýrrar
sóknar á landinu öllu.
Svo finnst mér þú megir láta
um stund af vorkunnsemi þinni
og snúa þér að því að lýsa nánar
erlendu vinnubrögðunum góðu.
Við, lesendur þínir, bíðum
spenntir eftir gagnlegum ráðum
og upplýsingum. Þú nefnir
„slysavarnastöðvar ofdrykkju-
manna“ og „The Andrew Dun-
can Unit“ í Edinborg. Vildirðu
vera svo vænn að gera grein
fyrir þessum fyrirbrigðum á
opinberum vettvangi, svo að al-
menningur geti kynnt sér og
dæmt um ágæti þeirra?
Að lokum nokkur orð um önn
ur fíkniefni: Auðvitað þarf að
gera mun á áhrifum hassins og
annarra fíkniefna. Hass er í dag
talið hættuminna en t. d. LSD
og morfínbasi. Og þótt fullvax-
inn, sjálfráður einstaklingur
vilji prófa á sjálfum sér eitur-
áhrif hasss (ef.) „til að skerpa
sjálfsskilninginn“, er ekki
ástæða til að ganga af göflunum
þess vegna. Óskum þeim frekar
til hamingju með merkan
áfanga, er svo langt hafa náð í
hagnýtri sjálfsblekkingu. Aðrir
prófa þessi áhrif eins og nýjan
rekkjunaut eða nýja tegund á
matvælamarkaðinum og enn
aðrir til að komast hjá óvinsæld
um félaga sinna, er prófað hafa
og vilja láta eitt yfir alla ganga,
enda sé það þá talið öruggt
merki um góðan félagsanda og
-þroska. Ástæður og afsakanir
eru fjölmargar, en forvitni og
hugsunarleysi eða einfeldni e t.
v. alltaf með í för sem orsaka-
þættir.
En maður kemur hins vegar
þar, sem fíkniefnaneytendur
hafa náð hámarki eða lokastigi
misnotkunarinnar, —t. d. ung-
menni á tvítugsaldri, sem
sprauta sig í æð með morfínbasa
3svar til 4 sinnum á dag, — og
sér fram á örvæntingu og von-
leysi þeirra, sem reynt hafa allt,
bókstaflega talað allt, sem í
mannlegu valdi stendur, til
hjálpar, verður maður óneitan-
lega fyrir vissum áhrifum.
Þannig var t. d. ástatt í Kaup-
NÆSTKOMANDI fimmtudags-
kvöld leikur hinn heimsþekkti
gítarleikari John Williams í
Sjálfstæðishúsinu á vegum Tón-
listarfélags Akureyrar. Tónleik-
arnir fara fram kl. 21, og eru
fyrstu tónleikar John Williams
á íslandi, en hann leikur tveim-
ur dögum síðar á vegum Lista-
hátíðar í Reykjavík, og þykja
tónleikar ha'ns þar meðal þess
bezta sem þar gefur að heyra.
Mikillar fjölbreytni gætir í efnis
skránni en þar ber sérstaklega
að nefna verkið sem tónskáldið
Stephen Dodgson tileinkaði
Williams. Aðgöngumiðasala er í
bókabúðinni Huld.
John Williams fæddist í
Ástralíu árið 1941. Hann byrjaði
að leika á gítar sjö ára gamall
undir handleiðslu föður síns.
Þegar fjölskyldan fluttist til
Lundúna árið 1952, kynntist
hann spænska gítarsnillingnum
Segovia, sótti tíma til hans og
samkvæmt meðmælum hans
hlaut Williams fimm ára styrk
við Accademia Musicale Chigi-
ana di Siena á ítalíu.
Fyrstu opinberu tónleika sína
hélt John Willióms í Wigmore
Hall árið 1958. Þá skrifaði
Segovia: „Gítarinn hefur eign-
azt prins í tónlistarheiminum.“
Þar með hófst frægðarferillinn
með tónleikum í París og
Madrid 1960. í Bandaríkjunum
hefur hann leikið inn á hljóm-
plötur nær öll helztu gítarverk-
in, þ. á. m. alla gítarkonserta.
Auglýsing frá
Rammagerðinni Gránu-
félagsgötu 4 Akureyri.
Rammagefðin er flutt.
Afgreiðsla fyrst um sinn
í Gránuíélagsgötu 4,
(Verzlunarmannafélags-
húsinu) kl. 15—18 alla
virka daga nema laugar-
daga.
O .
Verð fjarverandi næstu
2 mánuði. Staðgengill,
Árni Þórsson, læknir
yerður á stofu minni,
Skipagötu 18.
Viðtalstími er sömu
daga og áður kl. 15,00 til
’ 16;ÖÖ. Símaviðtalstími
kl. 14,30 til 15,00.
Sírni á stofu 1-13-89.
Sími heima 1-11-47.
Eiríkur Sveinsson,
læknir.
g fleira
mannahöfn í vetur, að eina nýja
úrræðið, sem til framkvæmda
kom, var, að „staðir götuungl-
inga“ fengu útbúnað með dauð-
hreinsuðum sprautum og nálum
á snyrtiherbergin, svo að ungl-
ingarnir smituðu síðan hver
annan af sjúkdómum, er berast
á milli við notkun óhreinna nála
og sprauta. Allir vissu þó, að
neyzla fíkniefna er stranglega
bönnuð á „stöðum götuungl-
inga,“ sem eru kostaðir af al-
mannafé, og má af þessu ráða í
hvert óefni er komið í „höfuð-
borg Norðurlanda.“.
Reynum að fyrirbyggja slíkt
hér á landi. Eflum tollgæzlu og
löggæzlu. Herðum eftirlit með
atvinnusmyglurum. Það kostar
fé, — ekki síður en rekstur
varnarstríðs gegn Bakkusi, —
en „prevention is better than
cure“; Það er betra að fyrir-
byggja sjúkdóma en lækna þá.
Reykhúsum, 28. maí 1972.
Brynjólfur Ingvarsson.
- Aðalfundur ÚA
(Framhald af blaðsíðu 8)
krónu tap, Svalbakur með 1148
þús. kr. hagnað, Harðbakur með
1674 þús. kr. hagnað, Sléttbakur
með 900 þús. kr. tap, hraðfrysti-
húsið kom út með 5.397.000.00
kr. hagnað, skreiðarverkunin
kom út með 371 þús. kr. hagnað
og saltfiskverkunin með 332
þús. kr. hagnað.
Vinnulaunin sl. ár voru: Til
landfólks 54.8 millj. krónur og
til sjómanna 52.9 millj. kr., sam-
tals rúmar 107 milljónir króna.
Á sjónum starfa 140 manns og í
landi um 200.
Stjórn félagsins skipa nú:
Jakob Frímannsson, Steindór
Jónsson, Tryggvi Helgason,
Kristján P. Guðmundsson og
Sigurður Óli Brynjólfsson. □
Óskat fltii .sumardvöl á
góðu sveitaheimili fyrir
10 ára dreng. Meðgjöf í
boði.
Uppl. í síma 2-16-23 og á
vinnumiðlunarski ifstof-
unni s-ími 1-11-16.
Tjl sölu Volksvagen ’65.
Einnig hnakkur lítið
notaður og Rafha elda-
•vél í góðu lagi.
Uppl. í síma 1-29-63.
Volksvagen 1300 árgerð
’68 til sölu.
Uppl. í síma 2-11-05 frá
kl. 7—8 á kvöldin.
Til sölu Moskvitch
fólksbifreið árg. 1959.
Aguar Þórisson,
Hjalteyri.
A—'4227.
Ford Zepliyr 4, til sölu
í gúðu lagi.
Upplýsingar hjá Bílasölu
Norðuílands.
Til sölu Taunvis 12m
árg. ’63. Nýskoðaður.
Uppl. í síma 2-17-88
eftir kl. 7 á kvöldin.
Til sölu Opel Record ’55
(sélzt til niðurriís) og
Opel Record árg. ’64 til
sölu á sama stað.
Uppl. í síma 1-24-05.
TIL SÖLU
Einbýlishús á Ytri-Brekk-
unni.
Einbýlishús við Odd-
eyrargötu.
Einbýlisihús í innbæn-
urn.
Tvíbýlishús við Gránu-
félagsgötu.
O O
5 herbergja sérhæð við
Ásveg.
5 herbergja sérhæð við
Ránargötu.
3ja herbergja íbúð í
fitnmbýlishúsi í Glerár-
hverfi.
3ja herbergja íbúð í
fjölbýlishúsi í Glerár-
hverli.
2ja og 4ra herbergja
íbúðir í innbænum.
FASTEIGNASALAN
FURUVÖLLUM 3
SÍMI (96) 1-12-58.
INGVAR GÍSLASON,
HD LÖGMAÐUR.
TRYGGVI PÁLSSON
SÖLUSTJÓRI.
OPIÐ 9 F. H. — 7 S. D.
Til sölu tvenn karlmanns
jakkaföt og frakki. Nýleg
no. 50. Selzt ódýrt.
Uppl. í síma 1-15-38
eftir kl. 17.
Barnavagn til sölu.
Uppl. í síma 2-14-31.
Bamakerra til sölu.
Uppl. í síma 2-17-57 á
kvöldin.
DÖMUBUXUR
stærðir 48-50-52.
Köflóttir UNG-
LINGAJAKKAR
að koma.
Amaro
DÖMUDEILD
SÍMI 1-28-32.
13 til 15 ára stúlka óskast
í vist frá >M. 8—2 alla
virka daga.
Uppl. í síma 2-16-44.
Stúlka með stúdentspróf
óskar eftir sumaratvinnu
Margt kemur til greina.
Tilboð leggist inn á af-
greiðslu Dags fyrir 15.
júní mérkt
sumaratvinna.
Vön skrifstofustúlka ósk-
ast til Vegagerðar ríkis-
ins í sumarafleysingar.
Umsóknir sendist í póst-
hólf 38, Akureyri.
Tvær stúlkiur á 16. ári
óska eftir vinnu, barn-
gæsla kæmi til greina.
Uppl. í síma 1-19-37.
ATVINNA:
Mann vanan sveitastörf-
um vantar á heimili í
Eyjafirði yfir júní mán-
uð.
Uppl. í síma 1-18-94 fyrir
hádegi á daginn og eftir
kl. 9 á kvöldin.
Ráðskona óskast.
Ráðskona óskast í sveit,
má hafa börn. Einnig
kæmi til greina að ráða
hjón.
Uppl. í síma 2-10-26
eftir kl. 18.
Hý sending
DRAGTIR með pilsum, BUXNADRAGTIR.
TERYLENEKÁPUR verð, frá kr. 2.3S0., stærðir
38-48. STAKAR BUXUR stærðir 34-40.
BLÚSSUR, húfur, hattar, slæður, hanzkar og
regnhlífar.
Höfum einnig KJÓLA STUTTA OG SÍÐA í
öllum venjuleguin stærðum.
VERZLUN BERNHARÐS LAXDAL
Bifreiðarstöð Öddeyrar h. f.
vantar starfsfótk til
Upplýsingar um starfið verða veittar á B. S. O.
n.k. fimmtudagskvöld og föstudagskvöld kl. 20.30
til 22.
Knatfspyrnuæfingar K. Á.
veraða haldnar í sumar á þriðjudögum og íöstu-
dögum sem hér segir.
5. fl. kl. 5—6 (KA völlur).
6. fl. kl. 6—7 (KA völlur)
4. fl. kl. 6,30—7,30 (Sanavöllur).
3. fl. kl. 7,30—8,30. (Sanavöllur).
Ibúð - Tilboð
Tilboð óskast í mjög glæsilega íbúð í 5 íbúða
húsi við Þórunnrstræti, teppalögð með góðum
skápum,
Tilboð sendist Fasteignasölunni h. f., sem gefur
allar nánari upplýsingar. Tilboð þurfa að berast
fyrir 13. júnírn, k......
Áskilinn er réttuf til að taka livaða itilboði sem
er eðá hafna öllum.
Fasteignasalan h. f., Glerárgötu 20.
SÍMI 2-18-78. - OPIÐ KL. 17-19.
13 til 14 ára telpa óskast
til að gæta 3ja bama frá
kl. 5 til 10 á 'kvöldin alla
virka daga.
Uppl. í síma 1-29-45.
í hestamennsku hefst um miðjan júní fyrir böm
og unglinga.
Þátttökugjald kr. 1000.00.
Námskeið
í siglingum hefst 19. júní við Höpfnersbryggju.
Kennari Stefán Tryggvason.
Innritun í námskeiðin em á skrifstofu æskulýðs-
ráðs Hafnarstræti 100 sími 1-27-22.
ÆSKULÝÐSRÁÐ AKUREYRAR.
TIL SÖLU.
Til sölu er stór Westing-
haus ísskápur.
Uppl. í síma 1-16-11 í
eftir kl. 7 á kvöldin. I
BRYNJOLFUR SVEINSSON HF.
í SUMARLEYFIÐ |
Tjöld, svefnpokar,
vindsængur, bak-
‘pokar, Gastæki,
[pottasett, tjaldhús-
!gögn, gúmmíbátar.
i SÓLBEDDARNIR EETIRSPURÐU.
VEIÐITÆKI f ÚRVALI.
PÓSTSENDUM.