Dagur - 13.07.1972, Blaðsíða 2
Frá Mennfaskólanum á ísafirði
ÖÐRU starfsári Menntaskólans
á ísafirði lauk fimmtudaginn 1.
júní sl. Alls stunduðu 75 nem-
endur nám í skólanum á sl.
skólaári, í 1. og 2. bekk mennta-
skóla. 73 nemendur gengu undir
próf, og stóðust allir utan 2, en
2 eiga ólokið prófum.
í ræðu skólameistara kom
fram m. a., að næsta haust verð-
ur tekin í notkun ný heimavist,
er hýsir um 50 utanbæjarnam-
endur. Heimavistin er að því
leyti með nýju sniði, að nem-
endur munu búa þar í smáum
einingum, 6, 12 og 18 manna og
er hver eining út af fyrir sig,
með eigin setustofu og eldhúsi.
Gert er ráð fyrir um 50 nýj-
um nemendum næsta haust og
verður nemendafjöldinn þá orð-
inn milli 120 og 130 talsins.
Námstilhögun er á þá leið, að
upp úr 1. bekk greinast nem-
endur í tvö megin kjörsvið: fé-
lagsfræðikjörsvið og raungreina
kjörsvið, en það síðarnefnda
greinist milli eðlisfræði- og
náttúrufræðilínu.
Samkvæmt framkvæmdaáætl-
un skólans áttu í vor að hefjast
byggingarframkvæmdir við II.
áfanga, þ. e. mötuneyti og við-
bótarheimavistarrými.
ísafirði, 1. júní 1972.
Skólameistari.
- VERÐSTÖÐVUN TIL NÆSTU ÁRAMÓTA
(Framhald af blaðsíðu 1)
þess að standa undir ráðstöfun-
um.
6. Til áramóta skal verðlags-
uppbót vera sú hin sama og nú,
17 stig, en reynist reiknuð kaup
greiðsluvísitala 1. september og
1. desember hærri en 19Y2 stig,
skal einnig bætt það, sem um-
fram er.
Um bráðabirgðalögin sagði
Ólafur Jóhannesson forsætisráð
herra á blaðamannafundi:
„Bráðabirgðalög þessi eru sett
til þess að freista þess að stöðva
þá þróun víxlhækkana verðlags
og kaupgjalds, sem nú virðist
blasa við, ef ekkert verður að
gert. Eins og kunnugt er hækk-
aði kaupgreiðsluvísitalan og þar
með verðlagsuppbót á laun um
nær 8 stig (úr 109.3 í 117.0) hinn
1. júní sl. Samkvæmt síðustu
áætlunum Hagstofu íslands má
búast við, að kaupgreiðsluvísi-
talan myndi að öllu óbreyttu
'hækka um 5.5 til 6 stig hinn 1.
september n. k. Þær kostnaðar-
breytingar, sem þessu fylgja,
yrðu útflutningsatvinnuvegun-
um þungar í skauti, enda benda
áætlanir til þess, að afkoma
sjávarútvegsins standi í járnum
þegar við núverandi kostnaðar-
lag (K-vísitala = 117) án þess
að tillit sé tekið til þeirrar afla-
minnkunar frá fyrra ári, sem nú
/irðist líklegust. Auk þess
myndu slíkar breytingar launa
án efa kalla fram frekari verð-
hækkunarkröfur hjá þeim at-
/innugreinum, sem eiga sér
einkum markað innanlands; og
þar með héldi áfram sá varhuga
verði vixlgangur verðbólgunn-
ar, sem fyrr eða síðar hlyti að
grafa undan afkomu atvinnu-
veganna, valda vaxandi halla í
viðskiptum þjóðarinnar út á við
og tefla atvinnuöryggi og þar
með frambúðarhagsmunum al-
mennings í tvísýnu.
Ríkisstjórnin hefur að undan-
förnu rætt leiðir til lausnar
þessa gamalkunna og marg-
slungna vandá og hefur í því
sambandi tekið upp viðræður
við aðila vinnumarkaðarins,
enda er ljóst, að án samráðs og
samvinnu við þá er vart hægt
að búast við árangri.
Ör vöxtur tekna og eftirspurn
ar hefur einkennt þróun efna-
hagsmála undanfarin misseri og
á síðustu mánuoum hefur gætt
mikils þrýstings á allt verðlag
og framleiðslukostnað. Hér flétt
ast margt saman: ört vaxandi
eftirspurn heima fyrir í kjölfar
mikilla grunnkauphækkana í
árslok 1971, gengishækkanir
helztu viðskiptalanda okkar í
Evrópu, skattabreytingar o. fl.
Öll þessi atriði hníga til verð-
hækkunar, sem svo magnast í
núgildandi kerfi vísitölubinding
ar kaupgjalds. Hér er um flókið
samhengi að ræða og mikil þörf
á að kanna allar aðstæður og
horfur svo rækilega sem frekast
er kostur, ef leita á varanlegri
úrræða en til þessa hafa fund-
izt. Af þessum sökum þótti ríkis
stjórninni rétt að grípa íil tíma-
bundinna efnahagsráðstafana
meðan á ítarlegri könnun vand-
ans stæði. Hugmyndir þær um
bráðabirgðaráðstafanir, sem hér
fá ákveðið form í bráðabirgða-
lögum, höfðu áður verið kynnt-
ar samtökum laurþega, bænda
og vinnuveitenda.“ Q
Verð FJARVERANDI til 25. júlí.
KURT SONNENFELD, tannlæknir.
PÓSTHÓLF 246 . SÍMI (96)21300 . AKUREYRI
Ný sending
KÁPUR - DRAGTIR og SLÆÐUR.
Höfum fallega SUMARKJÓLA - verðið mjög
hagstætt.
VERZLUN BERNHARÐS LAXDAL
Hafnarstræti 94.
Tannverndarsýning
TANNLÆKNAFÉLÁGS ÍSLANDS verður í
Gagnfræðaskólanum næstu daga.
Sýningin hefst miðvikud. 12. júlí kl. 14.
Opin daglega frá kl. 14—22.
Sýningunni lýkur sunnudaginn 16. júlí.
Fræðslukvikmyndir sýndar daglega kl. 17 og 21.
TANNLÆKNAFÉLAG ÍSLANDS.
Lágvöxnu og fyllu
DAHLÍURNAR tilbún-
ar til afgreiðslu. Pantan-
ir sóttar sem fyrst.
Gísli Guðmarin,
Hamragerði 11.
BARNAVAGN með
stólkerru til söltt á kr.
5.000.00.
Uppl. í síma 1-23-20.
RENNIBEKKUR!
L í t i 11 j á rn renn ibek k u r
til SÖlll.
Járnsmiðjan Mjölnir s.f.,
sími 1-27-10.
Sem nýr RÚSKINNS-
JAKKI til sölu, stærð
42-44.
Uppl. í síma 1-25-14.
KARTÖFLUR,
út 1 itsga 11 aðar, gu 11 a uga
og helga, fást fyrir lítið
verð á Amarlióli.
BARNAKOJUR til sölu
í Eiðsvallagötu 32, að
vestan.
Sími 1-24-67.
Mjög góður VINNU-
SKÚR til sölu
í Beykilundi 5.
MALLORCAFERÐ!
Ef einhver hefur hug á
að lara til Maliorca, þá
getur hann fengið ferð
að verðmæti kr. 20.000.
00 fyrir kr. 16.000.00.
Uppl. í síma 1-16-61,
eftirkl. 19.
Nýlegur BARNAVAGN
til sölu.
Uppl. í síma 1-17-49.
Þriggja manna TJALD
með útskoti til sölu.
Sími 1-23-70.
Til sölu IIEYBYSSA
með 10 ha rafmútor,
þriggja fasa.
Uppl. gefur Steinþór
Stefánsson, sími um
Grenivík.
BARNAKERRA
til sölu.
Uppl. í síma 1-24-63.
Til sölu FARMALL
GUB með sláttuvél.
Uppl. gefur Þorsteinn
eða Jóhann, Stóra-Dal,
sími um Saurbæ.
Til sölu HJÓNARÚM
með dínu, rúmfatakassi,
þvottapottur, taurúlla,
bússur o. fl.
Uppl. í síma 1-15-85.
- Buðu kvenfélíwum
vj
(Framhald af blaðsíðu R)
þessi með mikilli rausn og al-
mennri ánægju lengi kvölds.
Við þetta tækifæri afhenti frú
Laufey kvenfélögunum eitt
hundrað þúsund krónur er þau
skyldu leggja í Elliheimilissjóð
Dalvíkur, kvað Laufey þetta
gert til minningar um foreldra
sína, þau Þorleif Rögnvaldsson
og Jónínu Jónasdóttur.
Nýlátinn er hér Valdimar Sig
tryggsson afgreiðslumaður, áður
hafnarvörður á ísafirði, mætur
félagshyggjumaður, og um
skeið meðlimur í stjórn Alþýðu-
sambands íslands, vinmargur og
vammlaus.
Heyskaparhorfur eru góðar ef
þurrka gerir því grasspretta er
þegar næg, og bíða menn þerris
með óþreyju.
Til sjávarins eru aflabrögð
með lélegasta móti svo ekki sé
meira sagt. J. H.
HERBERGI til leigu.
Uppl. í síma 1-11-13.
Vi'l leigja fullorðnum
hjónum 3ja herbergja
ÍBÚÐ.
Uppl. í síma 1-13-18.
Stúlka óskar eftir
HERBERGI sem fyrst,
nálægt miðbænum.
Uppl. ísíma 1-11-56,
milli kl. 7 og 8 e. li.
ÍBÚÐ óskast til leigu,
3—4 herbergi.
Sími 2-19-88.
Óska eftir HERBERGI
á leigu sem fyrst.
Reglusemi heitið.
Uppl. í síma 2-13-32,
milli kl. 13 og 17.
ÍBÚÐ óskast til leigu
sem fyrst. Má vera í
gömlu húsi. Tilboðsend-
ist á skrifstofu Dags,
merkt „Reglusöm kona“.
Stúlka óskar eftir HER-
BERGI til leigu frá og
með 16. ágúst. Helzt ná-
ilægt Heklu. Fyrirfram-
greiðsla, ef óskað er.
Uppl. í síma 2-13-68,
eftir kl. 5 á föstudag.
Óska eftir HERBERGI
sem næst miðbænum.
Uppl. í síma 2-19-51,
Möðruvöllum, Hörgár-
dal.
ÁKUREYRÁR
Eftirfarandi greinargerðir um aðalskipulagið liggja nú frammi
á tæknideild bæjarins, Geislagötu 9: ÞJÓÐFFLAGSKÖNNUN,
GRÓDUR OG LANDSLAG, VARÐVFIZLA BYGGINGA o<>
FERÐAMÁL. -Þessar greinargerðir verða seldar á kostnaðarverði
og cru þeir sem vilja hafa álirif á gerð aðalskipulagsins lwattír til
að kynna sér efni þeirra.
BÆJARSTJÓRI.