Dagur - 13.07.1972, Page 8
SMÁTT & STÓRT
Hinni nýju Boeing' 727 þotu Flugfélags íslands gerið nafn við komuna til Reykjavíkur. Margrét Jolin-
son sagði: „GULLFAXI skalt þú heita. Heill og liamingja fylgi þér, áliöfn þinni og farþegum, hvert
sem leiðirnar kunna að liggja.“ Á myndinni eru: Birgir Kjaran formaður Flugfélags íslands (t. v.),
Vlargrét Johnson og Orn O. Johnson.
ÍSLENZKT ÞOTUFLUG 5 ÁRA
!HINN 1. júlí voru fimm ár síðan
"slendingar gengu inn í þotu-
oldina. Þann dag fór hin nýja
3oeing 727 þóta Flugfélags ís-
ar.ds, sem við heimkomuna
rokkrum dögum áður hlaut
rafnið „GULLFAXI", fyrstu
aætlunarferðirnar til Kaup-
:nannahafnar og London.
IVIeð þessum fyrstu ferðum
. GULLFAXA" breyttu íslenzk
'lugmál um svip. Flugfélag fs-
’ adns bauð nú farþegum sínum
pað bezta fáanlegt í farþega-
lugi, og stóð þar jafnfætis
stærri erlendum flugfélögum.
Islendingar höfðu tekið þotu-
æknina í þjónustu sína.
F ugtíminn milli Kaupmanna-
lafnar og Keflavíkur þennan
yrsta þotuflugdag var tæplega
2% klukkustund. Fyrrum tók
ferðin rúmar 11 stundir. Áætl-
jnarflug milli landa hóf Flug-
elag íslands vorið 1946.
Kaup flugfélags Islands á
. yrstu þotunni átti sér nokkurn
iðdraganda og margslungnar
ithuganir og rannsóknir á því
hvaða tegund þota hentaði félag
inu bezt fóru fram. Um margar
gerðir þota var að ræða og sér-
stök rannsóknarnefnd innan fé-
lagsins, sem naut einnig tækni-
legrar aðstoðar erlendra sér-
fræðinga, starfaði um skeið. Sex
gerðir þota komu til álita. Niður
stöður urðu hins vegar þær, að
Boeing 727 þotan hentaði bezt
á flugleiðum félagsins, og í
kaup á slíkri þotu var ráðist.
Áður en þotuflug Flugfélags
íslands hófst 1. júlí 1967 fór
fram víðtækur undirbúningur
innan félagsins, því hér var um
mikla breytingu að ræða.
Tekið var á móti þessum nýja
farkosti með viðhöfn á Reykja-
(Framhald á blaðsíðu 4)
600 KG. Á HEKTARA
f DANMÖRKU er talið, að í
góðu ræktarlandi séu ána
maðkar á aðra milljón og um
600 kg. samanlagt. Þeir taka
þyngd sína af fæðu á dag og
skila nálega jafnmiklu, hálf-
meltu. Þeir eta bæði mold og
jurtaleifar og veita lofti um jarð
,veginn, flýta fyrir rotnun og
eru hin mestu þarfaþing í rækt-
unarlegu tilliti. Víða eru hinir
stóru ánamaðkar ræktaðir, bæði
í vermireitum og vermihúsum,
og á því mun einnig byrjað hér
á landi.
ÓNÆÐISSAMT
Sífellt berast kvartanir yfir
margskonar ónæði um nætur,
jafnvel við þær götur bæjarins,
sem kallaðar eru fáfarnar. Sum-
ir eru svefnstyggir og þola illa
að vakna, því að þá sofna þeir
ekki aftur fyrr en seint og um
síðir. Aðrir eru veikir og þurfa
næði. Til er það, en þó fremur
sjaldgæft, að bílstjórar liggja á
flautunni til að gera vart við sig
að næturlagi. Skellinöðrur þjóta
um, hljóðdunkslausar og stund-
um margar saman. Þá blandast
stundum saman vein kvenna,
öskur karla og breim katta.
Fólki, sem hringir til blaðsins
þeirra erinda að biðja um birt-
ingu skammarpistla, er vísað á
yfirvöldin.
VESTMANNAEYINGAR
FYRSTIR
Hér á landi urðu Vestmanna-
eyingar fyrstir til að fluorblanda
neyzluvatn sitt og ber þeim heið
ur fyrir það framtak sitt. Hér á
.Nvtt aðalskipulag af Akureyri
Einbýlishús er draumurinn.
Einn af mörgum mikilvægum
þáttum, sem ráða vexti og við-
gangi þéttbýliskjarna, er skipu-
lag byggðarinnar. Veltur því á
miklu að það sé vel unnið og
við það haldið af nokkurri
festu, svo að menn geti af öryggi
reist mannvirki með tilliti til
væntanlegrar þróunar, en þurfi
ekki að eiga yfir höfði sér alla
þá óvissu, sem skipulagsleysi
fylgir.
VANN 48 MINKA
Ytri-Nýpum 11. júlí. Hér hefur
eiið rigningartíð, en sam-
ívæmt fréttum hefur úrkoma
jó verið meiri á ýmsum öðrum
stöðum. Hér er sláttur víðast
aafinn og er spretta góð og
purrkflæsur öðru hverju.
F rétt frá landlnmaðar-
r
áðunejtiíiu
^ANDBÚNAÐARRÁÐHERRA
lefur skipað Magnús B. Jóns-
' son, licenciat, skólastjóra við
Bændaskólann á Hvanneyri, frá
I. september 1972 að telja.
Umsóknarfrestur um stöðuna
: ann út 1. júní sl. og voru um-
sækjendur sjö talsins. Auk
Magnúsar sóttu þessir um stöð-
una: Agnar Guðjónsson, ráðu-
jiautur, Gunnar Bjarnason,
kennari, Jóhann Eiríksson, ráðu
nautur, Jón Viðar Jónmunds-
son, sérfræðingur, dr. Ólafur R.
Dýrmundsson, sérfræðingur og
dr. Stefán Aðalsteinsson, deild-
arstjóri.
Landbúnaðarráðuneytið,
< 4. júlí 1972.
Þetta lítur vel út, og nú
sprettur gras á fyrri kalblettum,
sem áður voru aðeins vaxnar
arfa.
Anton Guðmundsson á Búa-
stöðum í Vopnafirði hefur í vor
unnið 40 minka hér í sveit og
um eina helgina náði hann til
viðbótar 8 minkum á Hólsfjöll-
um. í fyrra vann hann 60 minka.
Af þessu er auðséð, að mikið er
til af þessum dýrum. Anton hef-
ur tvo góða veiðihunda.
Minkur sást í hólma einum í
Selá á dögunum. Er það varp-
hólmi. Anton kom fljótt á vett-
vang með veiðihunda sína, sem
drápu minkinn og annan litlu
neðar við ána.
Þokkalegur fiskafli hefur ver-
ið hjá Vopnafjarðarbátum nú að
undanförnu, jafnvel rétt utan
.. við kauptúnið á Kolbeinstanga
og þar hafa trillubátarnir verið
að fá hann.
Fremur treg veiði er ennþá í
Selá, svo sem oftast er þangað
til verulega tekur að líða á júlí-
mánuð. í fyrra fengust 237 lax-
ar úr ánni neðan við laxastig-
ann, en að minnsta kösti 80 ofan
við stigarm. Þ. Þ.
Hér á Akureyri hafa nokkrir
höfuðþættir skipulagsstarfsins
verið vanræktir um alllangt
skeið. Má segja að ekkert aðal-
skipulag hafi verið gert síðan
fyrir 1930. Á því hafa þó verið
gerðar ýmsar breytingar og við
það prjónað til að leysa brýnan
vanda og nýjar þarfir. Oft hefir
þó skort heildaryfirsýn við þess
ar ákvarðanir og þess vegna
hafa ýmiss mistök verið gerð og
á vissan hátt dregið úr vaxtar-
hraða bæjarins. Nú um nokkurt
skeið hafa smærri og jafnvel
stærri iðnrekendur átt í erfið-
leikum með að fá lóðir undir
geymslur og verkstæði og drátt-
ur á ýmsum öðrum skipulags-
ákvörðunum hefir dregið úr
framkvæmdum.
Vonir standa þó til að þessi
mál komist í betra horf áður en
langt um líður, vegna þess að
nú um nær tveggja ára skeið
hefir verið unnið að nýju aðal-
skipulagi Akureyrar og á það
að duga fyrir næstu 20 ár eða
svo. Síðar eða eftir því sem þörf
krefur, verður svo unnið að
útfærslu þess í smáatriðum
(deiliskipulagt).
Mjög mikilsvert er að.þekk-
ing á „innri gerð“ bæjarins og
þróunarmöguleikum hans liggi
fyrir við gerð slíks aðalskipu-
lags og þess gætt að tekið sé
nægilegt tillit til veðurfars og
annarra staðhátta, sem hér
liljóta að vera talsvert öðruvísi
en í flestum löndum öðrum og
jafnvel allmikið frábrugðnir því
sem er á Suðurlandi.
Er því mikilsvert að ungir
skipulagsfræðingar leggi sig
fram um að hafa heimamenn
„með í ráðum“ ef það mætti
verða til þess að þeim yrði ljós
vandamál og aðstæður, sem þeir
þekkja ekki annars staðar frá.
Auk þess verða þeir að hafa í
huga að þeir eru að starfa fyrir
aðra, en ekki nema að litlu leyti
fyrir sjálfan sig.
Þeirra hlutverk er að nokkru
leyti í því fólgið að nota mennt-
un sína til að fella óskir íbúanna
og bæjaryfirvalda í sem hag-
kvæmastan og skemmtilegastan
ramma.
Gestur Ólafsson arkitekt, sem
hefir aðalumsjón með þessu
skipulagsstarfi í samráði við
skipulag'snefnd bæjarins og
Skipulag ríkisins, hefir lagt tals-
vert ríka áherzlu á „að hafa sam
ráð við“ heimamenn og jafn-
(Framhald á blaðsíðu 4)
ÞANN 3. júlí lauk umsóknar-
fresti um stöðu Þjóðleikhús-
stjóra. Umsækjendur eru sex:
Halldór Karlsson háskólastúd-
ent, Halldór Þorsteinsson bóka-
vörður, Jón Þórarinsson dag-
skrárstjóri, Sigmundur Örn Arn
grímsson leikari, Sigurður A.
Mag'nússon ritstjóri og Sveinn
Einarsson leikhússtjóri. □
Akureyri stendur svo á, að tæki
færið til að feta í fótspor eyjar-
skeggja syðra, hefur borizt upp
í hendur Akureyringa, sem nú
eru byrjaðir á að leggja nýja
vatnsveitu frá Hörgáreyrum til
Akureyrar.
SKEMMDAR TENNUR
Dagur birti nýlega tölur urn
tannskemmdir Akureyringa,
samkvæmt rannsóknum á skóla
fólki. Tugir þúsunda skemmdra
tanna fólks á öllum aldri, tann-
pínan illræmda og hin ómældu
peningaútlát á tannlækninga-
stofum eru staðreyndir, sém eng
inn dregur í efa. Ef unnt er að
minnka tannskemmdir um 50%
með fluorblöndun vatns, er til
nokkurs að vinna til framtíðar-
lieilla fyrir hina yngstu og þá
óbornu.
FLUORBLANDAÐ VATN
Þar sem náttúran liefúr verið
svo örlát að gefa fólki drykkjar-
vatn, sem inniheldur ofurlítið af
fluor, eru tannskenundir langt-
um minni. Þetta er löngu vitað
og því hefur verið Jíkt eftir
þessu. ágæta. vatni með íblönd-
un. Yfir 50 milljónir manna í
Bandaríkjunum, eða um fjórði
hver íbúi, nýtur nú fluorbland-
aðs vatns og fer ört/f jöjgandi.
BUÐUTVEIM
KVENFÉLÖGUM
HINN 19. þ. m. varð frú Laufey
Þorleifsdóttir húsfreyja-í Hrafn
staðakoti 70 ára. í tilefni af þeim
tímamótum efndu þau Hrafn-
staðakotshjón, Magnús Jónsson
og Laufey, til fjölmenns mann-
fagnaðar í Víkurröst á Dalvík,
buðu þau þangað öllum félags-
konum tveggja kvenfélaga, þ. e.
úr Svarfaðardal og Dalvík,
ásamt eiginmönnum sínum, auk
margra fleiri gesta, stóð gleði
(Framhald á blaðsíðu 2)
Norræna húsið
STJÓRN Norræna hússins hef-
ur á fundum sínum 4.—5. júlí
1972 fjallað um ráðningu nýs
forstjóra Norræna hússins. Um-
sækjendúr voru 23 frá öllum
Norðurlöndunum. Stjórnin réði
forstjóra til fjögurra ára mag-
ister Maj-Britt Imnand.er, Stokk
hólmi. Maj-Britt Imnander er
37 ára gömul og er deildarstjóri
við bókaforlagið LT í Stokk-
hólmi. Hún lauk magisterprófi
frá Uppsalaháskóla árið, 1960 í
landafræði, norrænum málum
og bókmenntasögu. Hún stund-
aði nám í íslenzku við Háskóla
íslands 1963-—1964 og tók þátt í
námskeiði í íslenzku fyrir
norræna stúdenta sumarið 1959.
Forstjórinn tekur við starfi sínu
hinn 9. október n. k., en fram
til þess tíma gegnir frú Else
Mia Sigurðsson bókavörður
áfram starfi íorstjóra. Q
í GÆR kom um hundrað manna
hópur Vestur-íslendinga til
Reykjavíkur. Eru þeir frá ýms-
um borgum og bæjum á Kyrra-
hafsströndinni, en flestir frá
Vancouver í Kanada.
Hér í landi mun hópurinn
dveljast fram í ágústmánuð og
ferðast mikið um. Koma 50
þeirra til Norðui’lands 20. júlí og
ferðast um Þingeyjarsýslur og
Eyjafjörð. Hér á Akureyri verða
þeir laugardaginn 22. júlí og
skoða bæinn, söfnin og koma í
kirkjuna, þar sem sóknarprest-
naar á feri
urinn, séra Pétur Sigurgeirsson
vígslubiskup, ávarpar hina Vest
ur-íslenzku gesti og segir sögu
kirkjunnar. Akureyrarbær býð-
ur til hádegisverðar í Skíða-
hótelinu og fleira verður gert
hér til að auka ánægju ferða-
fólksins.
Nánar verður sagt frá heim-
sóknum í næsta blaði.
Þeir, sem óska eftir frekari
upplýsingum um heimsóknina,
geta snúið sér til einhvers úr
stjórn Þjóðræknisfélagsins hér
í bæ. Q