Dagur - 25.10.1972, Qupperneq 5
4
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar 1-11-66 og 1-11-67
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓHANN K. SIGURÐSSON
Prentverk Odds Bjömssonar h.f.
VETRI HEILSAÐ
UM leið og vetri er heilsað, sam-
kvæmt tímatali, er eitt gjöfulasta
sumar á Norður- og Austurlandi
kvatt, mikið heyskaparsumar og
sumar mikillar atvinnu og fram-
kvæmda. Bændastéttin er nú betur
undir vetur búin en mörg fyrri ár og
fjárliagur hennar hefur eflaust vænk
azt við gjafmildi jarðar og búpen-
ings. Og bændur horfa bjartari aug-
um til komandi tíma en áður. Hið
sama verður ekki sagt um útgerð og
aflabrögð, því að á þessu ári er þorsk
afli landsmanna þriðjungi minni en
hann var fyrir tveim árum. Veldur
þetta erfiðleikum í útgerð og fisk-
vinnslustöðvum. Á Islandsmiðum
liefur verið ofveiði undanfarin ár,
að áliti fiskifræðinga og annarra, er
bezt mega um það vita. Nú er loks
gripið til þeirra ráða, sem fela í sér
nýtingu og vernd fiskistofna á ís-
landsmiðum og er þar átt við út-
færslu fiskveiðilögsögunnar. Það er
nokkrum árum of seint, en á meðan
íhaldið hélt um stjórntauma fór það
dauðum og aðgerðarlausum hönd-
um um landhelgismálin, eins og al-
kunnugt er. Hin skelegga barátta í
landhelgismálinu nú, undir forystu
Ólafs Jóhannessonar forsætisráð-
herra, hefur sameinað þjóðina á
þann veg, að það eru í almennings-
álitinu nánast landráð, að skerast
þar úr leik. En það hefur reynzt
stöku íhaldsmanni um megn, að
hefja sig í þessu mikla ])jóðar-
baráttumáli, upp yfir hin gömlu og
þrengstu flokkssjónarmið, samanber
einn í bæjarstjóm Akureyrar, og
fleiri af sama sauðahúsi í Vest-
mannaeyjum.
Nú í vetrarbyrjun er mikil at-
vinna, með stöku staðbundnum und
antekningum, og vegna hinnar hag-
stæðu veðráttu em framkvæmdir
enn í fullum gangi og vantar víða
fólk til starfa, enda nær þriðjungur
þjóðarinnar á skólabekk um þetta
leyti árs og í þeim hluta þúsundir
manna, sem nú á haustnóttum
hverfa úr atvinnulífinu. Ivaupgeta
almennings er mjög mikil, bæði
vegna stöðugrar vinnu og einnig
vegna orðinna kauphækkana. Vandi
stjómvalda og verkalýðsfélaga er sá,
að láta hið ahnenna kaupgjald í
landinu, sem nú er hærra en áður,
halda kaupmætti sínum og hafa nýj-
ar efnahagsráðstafanir verið boðað-
ar, svo sem löngum hefur verið á
liðnum árum. Hæst ber þó baráttan
fyrir yfirráðum þjóðarinnar til lög-
sögu á landgrunninu og senn hefj-
ast viðræður við Bandaríkjamenn
um endurskoðun vamarsamningsins
og brottför hersins. Q
Nýtt mjólkursamlagshú
Óska eftir 2ja—3ja her-
bergja ÍBÚÐ.
Uppl. í síma 1-23-41.
Herbergi til leigu.
Uppl. í síma 1-26-84
eftir kl. 19.
Vil kaupa 2—3 herb.
ÍBÚÐ. Útborgun ca 700
þúsund.
Tilboð leggist inn á
ALÞJÓÐLEG samtök mjólkur-
iðnaðarins hafa efnt til sérstaks
kynningardags fyrir mjólk og
mjólkurvörur, nefndur Alþjóð-
legi mjólkurdagurinn. Hér á
landi var ákveðið, að halda
hann 24. október, eða í gær.
Gerð hefur verið kvikmynd um
framleiðslu, dreifingu og
vinnslu mjólkur. Efnt er til
verðlaunasamkeppni um upp-
skriftir að skyrréttum og notk-
un skyrs í matargerð, og gefinn
hefur verið út bæklingur um
skyrgerð, efnainnihalds skyrs
og notkun. Þetta og margt
fleira er til kynningar gert á
mjólkurdeginum hér á landi.
En frá ómunatíð hefur mjólk
verið einn mestur heilsudrykk-
ur þjóðanna og vörur úr mjólk
þótt meðal ágætustu matvæla
hjá flestum menningarþjóðum
— og svo er enn.
Hér á landi starfa 19 mjólkur
samlög og þau tóku á móti 105
milljónum kg mjólkur frá rösk-
lega 3600 framleiðendum. Svar-
ar það til þess, að mjólkursalan
frá meðal-framleiðaonda hafi
verið um 30 þús. kg. En sú
meðaltala er þriðjungi hærri en
var í Noregi 1969, aðeins lægri
en í Svíþjóð og fjórðungi lægri
en í Danmörku. Hér á landi
starfa 460 manns í mjólkursam-
lögunum og allt að því 100
manns við akstur með mjólk á
vinnslustað. Tankvæðing nær
nú til 40% af mjólkurframleiðsl
unni.
tankvæðing
VALUR ARNÞÓRSSON KAUPFÉLAGSSTJÓRI
SVARAR SPURNINGUM BLAÐSINS
En þegar rætt er um mjólk og
mjólkurvörur almennt, er ekki
úr vegi að rifja upp nokkrar
staðreyndir þeirra mála, sem
hér hafa orðið við Eyjafjörð.
Mjólkursamlag KEA er elzta
mjólkursamlag landsins, og hóf
starf 1928. Þar átti Vilhjálmur
Þór frumkvæði, en fyrsti sam-
lagsstjórinn var Jónas Krist-
jánsson, og hafði hann það starf
á hendi til ársloka 1965. Fyrsta
heila árið, sem samlagið starf-
aði, tók það á móti 975 þús.
lítrum, en síðasta ár 20.4
milljónir.
Um 400 framleiðendur skipta
við Mjólkursamlag KEA og er
því meðalfreimleiðslan rúmir
50 þús. lítrar. Einn hreppur var
þó síðasta árið með 82 þús. lítra
Blaðið hitti að máli Val Arn-
þórsson kaupfélagsstjóra og
spurðist fyrir um málefni mjólk
uriðnaðarins hér við Eyjafjörð.
Verður ráðist í byggingafram
kvæmdir á næsta ári?
Hjá því verður ekki komist
lengur. Núverandi byggingar
eru orðnar þrjátíu og fimm ára
gamlar. Þá var tekið á móti
3—4 millj. lítra á ári en síðasta
ár var tekið á móti 20.4 millj.
lítra. Núverandi mjólkurstöð
getur ekki sinnt þeim kröfum,
sem til hennar þarf að gera,
vegna takmarkaðs húsnæðis.
Ný vinnslustöð fyrir mjólk verð
ur að hafa algeran forgang hjá
okkur, hvað framkvæmdir
snertir. En við þá framkvæmd
Valur Arnþórsson.
móttöku mjólkur á nýja staðn-
um verði jafn auðvelt að taka
á móti brúsamjólk og tank-
mjólk. í sambandi við tankvæð
inguna verður sú breyting á,
að bændur kaupa heimilistanka
til að geyma mjólkina í. Hins
vegar er gert ráð fyrir, að mjólk
ursamlagið eigi tankbíla til að
flytja mjólkina, í stað bess að
afgreiðslu blaðsins fyrir
helgi, merkt „ÍBÚÐ.“
Mjólkursamlag KEA.
(Ljósm.: E. D.)
Herbergi óskast, helzt
sem næst MA.
Tilboð merkt Herbergi,
leggist inn á skrifstofu
Dags.
Herbergi til leigu ásamt
aðgangi að eldhúsi.
Uppl. í síma 2-17-07
eftii' kl. 5.
Lítil íbúð til leigu.
Uppl. í síma 2-11-82.
Lítil íbúð óskast til leigu
fyrirframgreiðsla ef ósk-
að er.
Uppl. í síma 2-16-75
á kvöldin.
2 herbergi og eldhús
til leigu fyrir barngóða
konu, sem getur veitt
töluverða heimilisað-
stoð.
Upplýsingar í Þingvalla-
stræti 12 eftir kl. 5.
meðalframleiðslu. Þróunin hef-
ur verið sú á undanförnum ár-
run, að framleiðendum hefur
fækkað en búin hafa hins vegar
stækkað.
Aðdráttarsvæði samlagsins er
Eyjafjarðarsýsla og vestasti
hluti S.-Þingeyjarsýslu, allt
austur í Ljósavatnsskarð. í
Olafsfirði er mjólkursamlag fyr
ir það svæði.
En sölusvæði mjólkur frá
Mjólkursamlagi KEA nær allt
til Siglufjarðar miðað við reglu
bundna sölu. Á Akureyri einni
eru 15 útsölustaðir mjólkur. Á
hinu norðlenzka sölusvæði
dregst Ólafsfjörður að sjálf-
sögðu frá. En sala margvíslegra
mjólkurvara er þó auðvitað
ekki bundin við Norðurland né
heldur innanlandssölu ein-
göngu.
Um 50 manna starfslið starf-
ar nú hjá Mjólkursamlagi KEA
undir stjórn Vernharðar Sveins
sonar samlagsstjóra. En aðal
verkstjóri er Árni Jóhannesson.
Núverandi húsakostur samlags
ins var byggður á árunum 1937
—1939. Þar er ekki unnt að
taka á móti vaxandi framleiðslu
eða svara kalli tímans í fram-
leiðslu- og markaðsmálum
vegna þrengsla, þótt vélakostur
sé mikill og góður.
verða lánasjóðir og fram-
kvæmdasjóðir að sýna skilning
í verki og veita rnálinu það
brautargengi, sem dugar. Án
þeirrar aðstoðar verður nýrri
mjólkursamlagsbyggingu ekki
fram komið, svo fjárhagslega
stór er þessi framkvæmd í snið-
um. Ætlunin er, að hefja fram-
kvæmdir með næsta vori.
Ilvað tekur byggingin langan
tíma?
Nú eru sænskir • tæknimenn
að hanna bygginguna. Þær
teikningar, sem fyrir lágu, um
það leyti sem byrjað var á þess
ari miklu byggingu, eru nú all-
ar í endurskoðun. Þessu á að
ljúka nú um áramótin, svo og
kostnaðaráætlun. Stefnt verður
að þyí að samlagið verði tilbúið
veturinn 1975—1976 og að
snemma á árinu 1976 verði
byrjað að taka á móti mjólk-
inni til vinnslu í nýrri vinnslu-
stöð vestan við Lund, þar sem
bygging hófst 1965 og áður er
að vikið. En í það sinn var hluti
af kjallara steyptur á stórri lóð.
En tankvæðingin?
Hún er einnig á dagskrá, en
þessi tvö mál þurfa þó ekki
nauðsynlega að fylgjast að.
Gert er ráð fyrir því, að við
flutningafélög bænda annast
mjólkurflutningana nú.
Eru framleiðslunýjungar á
döfinni?
Ný ostategund, Óðalsostur-
inn, er nú í mun hærra verði
erlendis en aðrar tegundir
mjólkurosta. Þá má nefna
yoghurt, rjómaís og ýmislegt
annað verður einnig athugað og
nýjungum ætlað rúm í nýju
stöðinni. Mjólkursamlag Kaup-
félags Eyfirðinga liefur ætíð
verið í fararbroddi og hlotið
viðurkenningu fyrir góðar vör-
ur. Eyfirzkir bændur hafa einn-
ig verið í fararbroddi í sinni
framleiðslu, þannig, að nú berst
samlaginu fitumeiri mjólk en
nokkru öðru samlagi landsins.
Hér fer því saman góð fram-
leiðsla og góður iðnaður, og
verður þetta tvennt að haldast
í hendur eftirleiðis. Annað
mega menn ekki sætta sig við.
Bændur þurfa að standa vel
saman um hina nauðsynlegu
framkvæmd og gera það ef-
laust, þó að hún muni um skeið
íþyngja mjólkurverðinu að ein-
liverju leyti. Málinu er ekki
unnt að skjóta lengur á frest,
segir framkvæmdastjórinn að
lokum og þakkar blaðið svör
hans. Q
Frá Bridgefélagi
Akureyrar
TVÍMENNINGSKEPPNI B. A.
er hálfnuð. Þar spila tveir tólf
para riðlar. Röð efstu spilara er
þessi: stig
1. Ármann H. — Jóh. H. 208
2. Alfreð P. — Baldur Á. 191
3. Jóh. Gauti — Sigurbj. 188
4. Baldur Þ. — Baldvin Ó. 180
5. Júlíus Th. — Sveinn S. 177
6. Haki J. — Stefán R. 176
7. Hörður S. — Jón S. 169
8. Valdimar — Jóhann G. 166
9. Gissur — Gunnar Berg 162
10. Magnús A. Gunnl. G. 160
Meðalárangur er 160 stig. —
Þriðja og næstsíðasta umferð
verður spiluð n. k. þriðjudags-
kvöld.
Norðurlandsmótið í bridge
hefst á Húsavík föstudaginn 7.
október. Alls taka 10 sveitir
þátt í keppninni, 2 frá Siglu-
firði, 2 frá Dalvík og nágrenni,
2 frá Akureyri, 2 úr Mývatns-
sveit og 2 frá Húsavík. Núver-
andi Norðurlandsmeistari er
sveit Guðmundar Guðlaugsson-
ar frá Akureyri. Q
Frá Skákfélagi
Akureyrar
HRAÐMÓTI Skákfélags Akur-
eyrar lauk að Hótel KEA síðast
liðið fimmtudagskvöld. Úrslit
urðu þau að sigurvegari varð
Haki Jóhannesson með 5 vinn-
inga, í öðru sæti varð Hrafn
Árnason með 4% vinning, og í
3.—4. sæti urðu Jón Björgvins-
son og Bjarki Bragason með
3(4 vinning hvor.
í unglingaflokki urðu jafnir
og efstir þéir Albert Ragnars-
son og Baldvin Þorláksson með
5 vinninga og í þriðja sæti varð
Úlfar Ólafsson með 4 vinninga.
Jón Björgvinsson tefldi fjöl-
tefli á 17 borðum síðastliðinn
mánudag. Hann vann 13 skákir
og tapaði 4. Þeir sem unnu
hann voru þeir Árni Jósteins-
son, Níels Ragnarsson, Bjarki
Bragason og Gylfi Þórhallsson.
Hraðskákmót verður haldið
að Hótel KEA næstkomandi
fimmtudag kl. 8. Keppt verður
um nýjan bikar, sem Húsgagna-
verzlunin Einir hefur gefið.
Stjórnin.
Tilboð óskast í sam-
byggða trésmíðavél.
Uppl. í síma 1-24-05.
Óskilaluoss.
Á Svertingsstöðum í
Öngulsstaðahveppi er í
óskilum brún hryssa 1 til
2 vetra, mark, blaðstíft
frajtnan haegra, aTheilt
vinstra.
Réttur eigandi gefi sig
frám við Harald
Tryggvason sem fyrst.
í haust var mér dregið
larnb, með mínu marki,
alheilt h., sneitt f. v„
álmerkt.
Lambið á ég ekki.
Sá sem getur sannað
eignarétt sinn fær and-
virði þess greitt að frá-
dregnum kostnáði.
Ásvaldur Jónatansson,
Múla, Aðaldal.
Rækjuvinnsla
HAFIN er á Skagaströnd rækju
vinnsla og vinna þar um 20 kon
ur og mun vaktavinna ráðgerð.
Tveir þilfarsbátar eru byrjaðir
rækjuveiðar og hafa aflað sæmi
lega í vestanverðum Húnaflóa.
Rækjuvinnslan er í gamla Hóla
nes-frystihúsinu. Q
Til sölu notað:
ísskápur, barnaivagn og
tveir dívanar.
Uppl. í síma 1-23-15.
Til sölu Benz diselvél
180. 30 ha, nýuppgerð,
ágæt vél í jeppa, gæti
fylgt skrúfa og gírkassi ef
nota ætti í bát.
Tækifærisverð.
Hákon Pálsson,
Sauðárkróki,
sími 52-80.
A. E. G. uppþvottavél
til sölu.
Greiðsluskilmálar.
Uppl. í sírna 1-20-10.
SALA!
Hálfbelti á Ferguson og
Everud vélsleði árg.
1968.
Uppl. gefur Guðmund-
ur Theodórsson, sími
um Hafrafellstungu.
Til sölu er trillubátur,
2,8 tonn.
Uppl. í síina 51 Vopna-
firði milli kl. 7 og 8 á
kvöldin.
Heybindivél til sölu, ef
viðunandi tilboð fæst.
Ein kýr til sölu vegna
þrengsla í fjósi.
Ingólfur Lárusson Gröf.
Þáttaskil í landhelgis-
deilunni
(Framhald af blaðsíðu 1)
skilum í utanríkisviðskiptum
okkar.
Ekki er líklegt, að samninga-
viðræður íslendinga og Breta
um landhelgisdeiluna, ef af
þeim verður, leiði til lausnar
þessa máls. Bretar sýna íslend-
ingum fáheyrða fyrirlitningu
með því að stunda opinberan
veiðiþjófnað hér við land, hóta
ofbeldi, gera jafnvel tilraunir
til ofbeldis á miðunum og ógna
nú réttargæzlu íslendinga á
miðunum með tveim herskip-
um, gráum fyrir járnum, sem
halda sig nálægt 50 mílna mörk
unum. Q
SKÝRING Á
UMMÆLUM
ATHYGLI blaðsins hefur verið
vakin á því, að í viðtali við
hinn geðþekka aflraunamann,
Reyni Leósson, í 48. tbl. hafi
verið sagt um barnaskólaár
hans, að þá hafi Snorri Sigfús-
son verið skólastjóri.
Reynir er fæddur 1939, og
mun því koma í skólann 1946,
en á því kólaári lætur Snorri af
skólastjórn, vorið 1947. □
Tilboð óskast í bifreið-
ina A—1019, Chevrolet
Impala, árgerð 1966.
Uppl. veita Björn Mika-
elsson, sími 1-29-09, og
Mikael Jóhannesson,v
sími 1-11-40.
VOLVO 144 de luxe
árg. 1971 til sölu.
Uppl. gefur Magnús,
Þórshamri.
Volksvagen Varíant árg.
1964 til sölu.
Uppl. í síma 1-22-93.
FINNSK JAKKAFOT
FINNSKIR ULLARFRAKKAR
NY SNIÐ - NYIR LITIR.
SÍMI 21400
^HERRADEILD
GOÐAR
VÖRUR
GOTT
VERÐ
KOMIÐ - FLEIRIME9! 1
NÚ ER aðeins ein vika eftir, til
loka Norrænu sundkeppninnar
1972, og því skjótt hver síðast-
ur, að komast með í sigurfylk-
inguna. Og sigurganga verður
það fyrir Akureyringa, ef vel er
á haldið þessa síðustu viku.
Skólar, verksmiðjur, bankar,
skrifstofur og ýmis önnur fyrir
tæki ættu að keppast um, að
koma hraustu starfsliði sínu á
flot, og synda 200 metrana
þessa daga. Vel getur skeð, að
ein sundferð verði til þess að
framhald yrði, aftur leitað til
laugar eftir unaði og heilbrigði,
leitað í hlýjum öldum, heitum
potti og svalandi steypiböðum.
Það væri vel af stað farið.
Kennarar, iðjuhöldar, banka-
stjórar, skrifstofuformenn, verk
stjórar aðrir o. fl.: hvetjið lið
ykkar og sendið fram til aflögu,
— ekki í stríð, heldur í hóp
glaðra friðarsinna, hvað, sem
Bretinn segir.
Nú er álagið mikið í lauginni
skólarnir að starfi og aðsókr.
ágæt, en á stundum fum og fjör
meira en rólegt, ákveðið sund
En morgunstundin er ágæt, k ,
7—8, og suma daga til kl. 9. Á.
matartímum, bæði kl. 12—1, og
aftur kl. 19—20, er venjulega
góð aðstaða til að synda, m. l ,
200 metrana!
Nú hefur þessi umtalaði
sprettur verið syntur 98 þús ■
und sinnum í Sundlaug Akur ■
eyrar. Hver verður sá 100 þús ■
undasti? Hann fær góð verð'
laun. Fimm sundkort, þ. e. 50
sinnum frítt í sundlaugina!
Akureyringar! Komið með og
sýnið, að hjá okkur er „breidd'
in“ mikil. Þótt afrekin á sund'
mótum séu sjaldgæf, þa eru
sundiðkendur rnargir í okka::‘
ágæta bæ.
F. h. sundnefndar 24. okt. 1972,
Jónas Jónsson.
Frá lögr
FRÁ lögregluvarðstofunni á
mánudaginn:
Á fimmtudaginn lenti starfs-
maður í Skinnaverksmiðjunni
með hendi í sköfunarvél og
slasaðist.
Aðfararnótt laugardags lenti
bíll á kyrrstæðan bíl á Gils-
bakkavegi og sá kastaðist á
þriðja bílinn. Skemmdust allir
bílarnir nokkuð. Sömu nótt
varð harður árekstur á mótum
- ÚTIYISTARSVÆÐI
iglunni
Þórunnarstrætis og Þingvallt ■
trætis. Urðu báðar bifreiðarnar
óökufærar, en fólk slapp lít:;
eða ekki meitt. Síðar sömu nótt
lenti bíll á ljósastaur norðan
við Glerá, í Glerárhverfi, kast-
aðist út af veginum og laskaðis,;
mjög. Ljósastaurinn brotnað.i
en ökumaðurinn slapp ómeidd'
ur.
Kvartað er um ágang sauf •
fjár, einkum í Glerárhverfi. Q
KJARNALANDI
(Framhald af blaðsíðu 1).
stjórnarmönnum Skógræktar-
félagsins og nokkrum gestum,
við hin formlegu skipti eigenda,
og nutu við það tækifæri rausn
arlegra veitinga.
Tryggvi Þorsteinsson, for-
maður Skógræktarfélagsins,
flutti ávarp, svo og skógarvörð-
urinn, Hallgrímur Indriðason
og Bjarni Einarsson bæjar-
stjóri. En að því loknu var geng
ið um hinn ört vaxandi skóg í
Kjarnalandi, þar sem 600 þús-
und tré eru að vaxa upp, sum
orðin 5 metra há eða jafnvel
meira.
Næsta skrefið í þessu máli
verður eflaust það, að skipu-
leggja allt þetta land, yfir 100
hektara, sem útivistarsvæði.
Brunnárgil liggur um svæðið
að endilöngu, allt frá þjóðvegi
og langt uppeftir. Þar er þegar
orðið skjólgott og trén fögur.
Brunná, sem þar rennur gefur
óteljandi möguleika. Það hefur
jafnvel komið til orða að fylla
hana af fiski, búa til silunga-
tjarnir og veiðiaðstöðu. En í
framtíðinni og væntanlega í
mjög náinni framtíð verða
göngustígar gerðir, rjóð-
ur, leikvellir og eflaust sam-
komusvæði, enda þegar á orði,
að hátíðahöldin næsta suma.’
17. júní fari að einhverju leyt.
fram í Kjarnaskógi.
Nú þegar er fuglalíf orðið ali •
mikið í hinu friðaða og skógi
vaxna landi. Má þar nefna ug! ■
ur og grágæsir, fjölda vaðfugla,
auk þrasta, auðnutittlinga oy
rjúpna.
Fólk, sem í framtíðinni ký:;
að dvelja í Kjarnaskógi, á fyrs':
og fremst að njóta friðar, hvíld ■
ar og skjóls. Þar á allt aö ver: .
opið og frjálst, nema e. t. v. sjálí:
plöntuuppeldisstöðin. Og land •
ið allt, bæði útivistarsvæðið og
gróðrarstöðin, verður í umsja
Skógræktarfélag Akureyrar og
undir stjórn Hallgríms Indriða-
sonar.
Nýr fólkvangur eða útivistar-
svæði á að vera bæjarfcúum.
kærkominn. □
Margir bílar
Á ÞESSU ÁRI hafa 5333 bíla.-
verið fluttir til landsins, þ. <,
frá 1. janúar til 1. september,
nýjar og notaðar. Volkswager.
hefur vinninginn, hvað töluna
snertir, en af þeirri gerð voru
fluttir inn 592 umrætt tímabiL
Næstir komu Ford og Fiat. Q
ik
TÓKUM UPP í GÆR
glæsilegt úrval af kjólaefnum.
Einnig damask gluggatjaldaefni.
Bómullarefni með myndum í barnafatnað.
Straufrítt sængurveraefni, sængur og koddar.