Dagur - 25.10.1972, Qupperneq 8
3
SMATT & STORT
VEGFARENDUR um Glæsi-
oæjarhrepp hafa eflaut veitt
pví athygli í sumar, þegar verið
/ar að leggja aðal vatnsæð alla
leið frá Vaglaeyrum á Þela-
nörk til Akureyrar. Um helg-
: na var þessari aðallögn að
jónas Rafnar látinn
.JÓNAS RAFNAR, fyrrum yfir-
' æknir á Kristneshæli, lézt á
: östudaginn, 85 ára að aldri.
Jónas fæddist að Espihóli í
’íyjafirði. Foreldrar hans voru
Jónas Jónasson prófastur og
: ræðimaður á Hrafnagili og
!?ona hans Þórunn Stefánsdóttir
Ottesen.
Jónas varð stúdent í Reykja-
/ík 1909 og cand. med. 1914.
Hann var settur læknir í Síðu-
néraði sama ár. Framhaldsnám
stundaði hann á sjúkrahúsum
og berklahælum í Danmörku
og starfaði síðan sem læknir á
Oyrarbakka og Akureyri. Yfir-
iæknir á Kristneshæli var
Jónas frá 1927 til 1955. □
Dagub "
Kemur næst út 1. nóvember. —
PHILIP JENKINS píanóleikari,
sem sett hefur svip á tónlistar-
' íf bæjarins síðastliðin ár, dvel-
ur nú í London a. m. k. um eins
árs skeið. Hann er nú á hljóm-
leikaferð um landið og hefur
hvarvetna hlotið einstakar und-
irtektir og góða dóma áheyr-
enda. Upphaflega var ráð fyrir
gert að Philip héldi nú síðustu
'Mozartkynningu sína hér á
Akureyri þriðjudagskvöldið 24.
okt., en þar sem fresta varð um
I , Philip Jenkins.
mestu lokið að vatnsgeymum
við Rangárvelli við Akureyri.
Mun því verki lokið fyrir mán-
aðamótin, að því er Sigurður
Svanbergsson vatnsveitustjóri
tjáði blaðinu á mánudaginn. En
unnið er að því einnig, að koma
fyrir loftventlum á leiðsluna og
byggja dæluhús á eyrunum við
Hörgá, þar sem vatnið er tekið.
En þar verða dælurnar settar
niður er þær koma, væntanlega
fyrir áramótin. Heimæðar til
bæjanna í Kræklingahlíð verða
lagðar á næsta ári, því að tími
vinnst ekki til þess nú fyrir
veturinn. En stofnæð fyrir bæ-
ina hefur þó verið lögð jafn-
hliða aðallögninni frá Samtúni
Dalvík 23. október. Hér er búið
að lóga 9943 kindum og sauð-
fjárslátrun er lokið. Meðal-
þungi dilka varð 15.57 kg, sem
er um 600 gr. meiri vigt en í
fyrra og er þetta vænsta fé, sem
komið hefur hér í sláturhúsið
síðasta áratuginn að minnsta
kosti. Þyngsti dilkur hjá okkur
eina viku tónleikum þeim, er
halda átti á Selfossi síðastliðinn
þriðjudag, þá verða Mozart-
áhugamenn á Akureyri að hafa
biðlund til loka næsta nánaðar,
þegar Philip kemur til bæjarins
á ný vegna 50 ára afmælis
Karlakórsins Geysis.
Þess í stað hefur verið afráð-
ið, að Tónlistarfélag Akureyrar
ásamt öðrum aðdáendum Jen-
kins, gangist fyrir kveðjutón-
leikum, sem haldnir verða í
Borgarbíói næstkomandi föstu-
dagskvöld kl. 21.
Philip flytur á þessum tón-
leikum sónötur eftir Scarlatti,
„Tunglskinssónötu“ Beethov-
ens, Partítu eftir Wishart, Lísle
Joyeuse eftir Debussy, Glettur
og Capriccio Páls ísólfssonar,
Sex rúmenska dansa eftir
Bartók og loks hinn stórbrotna
Mephisto-vals eftir Liszt. Það
er von og trú þeirra, sem að tón
leikunum standa, að þeir fjöl-
mörgu, sem notið hafa listar
Jenkins á undanförnum árum,
sýni listamanninum verðskuld-
að þakklæti með góðri aðsókn
næstkomandi föstudagskvöld.
Forsala aðgöngumiða hefst í
bókabúðinni Huld í dag, mið-
vikudaginn 25. október. □
norður að Garðshorni. En flest-
ir bæirnir fá sitt vatn frá Hesju
vallalindum.
Vatnsveitustjórinn vonar, að
þessi mikla vatnsleiðsla til
bæjarins komi í gagnið fljótt
upp úr næstu áramótum, og er
allt kapp lagt á, að svo geti
orðið, enda er full þörf á því.
Framkvæmd þessi var í kostn
aði áætluð 46 milljónir í vetur.
Stofnæðin getur flutt um 100
lítra á sek. En fyrst um sinn
verður vatnið tekið úr fjórum
borholum, 15 sek.I úr hverri. Er
bor væntanlegur innan skamms
til að ljúka Við fjórðu holuna.
Vatnið á Vaglaeyrum er talið
mjög gott neyzluvatn. □
var 29.3 kg og átti hann Þor-
steinn Þorsteinsson, Dalvík. Að
þessu sinni var lógað um eitt
þúsund dilkum fleira en í fyrra
haust. Fer sú aukning öll í
fyrsta flokk og er útkoman á
þessu því mjög góð.
í fyrra var margt fé sett á
vetur, því að hey voru þá mikil.
Og enn munu bændur láta
margar gimbrar lifa, sem hús
eiga. Sumarið kom með alman-
akinu í vor og var sérstaklega
hagstætt.
Verið er að steypa brúna yfir
Brimnesá og unnið að vega-
gerð við hana. Er þetta verk
allt langt komið, þ. e. lagning
vegar frá Hóli til Dalvíkur.
Nokkuð samfelld vinna hef-
ur verið í hraðfrystihúsinu, þó
að aflabrögðin hafi verið minni
en menn vildu. í síðustu viku
var flutt eitthvað af fiski hing-
að frá Akureyri.
Búið mun vera að selja Björg
vin, annan bát Útgerðarfélags
Akureyringa, til Vestmanna-
eyja. En eftir áramótin fáum
við nýjan 500 tonna skuttogara.
í síðustu viku var verið að
flytja hingað frá Reykjavík
toppkyndistöð fyrir hitaveituna
Vigiin 16,2 kg
Á KÓPASKERI var lógað 25
þúsund fjár, eða tvö þúsund
fleiri kindum en í fyrrahaust.
Meðalvigt dilka varð að þessu
sinni 16.2 kg, sem er hæsta
meðalvigt þar. í fyrrahaust var
meðalvigtin 15.5 kg.
Ragnar Guðmundsson, Ný-
hóli á Fjöllum átti vænstu dilk-
ana, 200 talsins, sem jöfnuðu sig
með 18.2 kg. Þyngsta dilk-
skrokkinn átti Lára Sigurðar-
dóttir, Nýhóli, og var hann 27.8
kíló. □
ALMENNINGUR MÓTMÆLTI
Sá einstæði atburður gerðist
nýlega í þjóðaratkvæðagreiðslu
um inngöngu Norðmanna í
Efnahagsbandalagið, að þrátt
fyrir það að 90% alls blaða-
kosts í landinu væri meðmælt-
ur inngöngunni, svo og nálega
öll svokölluð valda- og áhrifa-
stétt þjóðfélagsins, þar með
þing og stjóm landsins, var inn
göngu liafnað. Þóttu þetta að
vonum mikil tíðindi, sem sýna,
að stundum lætur liinn almenni
kjósandi ekki leiða sig eða
reka.
RÆÐUMAÐUR FLENGDUR
Sú saga liefur verið sögð, að í
hinni miklu baráttu fyrir þjóð-
aratkvæðagreiðsluna, hafi mað-
ur einn, tungulipur mennta-
maður verið sendur til þorps
eins norðarlcga í Noregi, til að
flytja mál já-manna. Hann
flutti mál sitt af mælsku og eld-
móði. Munu lieimamenn liafa
vcrið varbúnir að mæta slíkri
flóðmælsku á sama vettvangi.
Enda gerðu fundarmenn það
ekki, en tóku ræðumann,
og flengdu liann.
FISKURINN f SJÓNUM
Þróttmikil tilraun er nú gerð af
hálfu íslendinga til að vernda
fiskistofna umhverfis landið. ís-
lenzk lögsaga yfir landgrunn-
inu er forsenda þess, að þá
sé hægt að friða og nýta skyn-
samlega. En svartsýnir menn
spá því, að innan tíðar muni
þetta hvergi hrökkva til vegna
mcngunar í hafi, sem íslending-
ar geta lítt við ráðið. Spákona
hér, sem fékkst með mjög góð-
um kjörum. Verður hún sett
upp hér til að hækka hitastig
heita vatnsins okkar í mestu
kuldum og við það getum við
einnig sparað okkur vatn. J. H.
Grenivík 24. október. Sauðfjár-
slátrun lauk 11. október. Lógað
var 6000 fjár. Féð var vænna nú
en í fyrrahaust. Þyngsta dilk-
inn, 27 kg, átti Sverrir Guð-
mundsson, Lómatjörn.
Hér á Grenivík er sveitar-
félagið að láta gera 200 metra
langt holræsi við nýjan veg í
þorpinu. Tvö íbúðarhús eru hér
í smíðum og stækkun frysti-
hússins. Frystihúsið er nú búið
að taka á móti 1200 tonnum af
NEMENDUR fjórða bekkjar
Barna- og miðskóla Dalvíkur
áttu þess kost nú, eins og síðast-
Friðrika Jónmundsdóttir.
ein liélt því fram fyrir nokkrum
árum, að fiskurinn í sjónum
myndi deyja vegna mengunar.
Þessi spá var talin nokkuð fjar-
læg á, en er það síður nú.
HVAÐ GETUR GERZT?
Þróunin getur þó orðið sú, að
mengun vaxi svo, þrátt fyrir
víðtæka baráttu gegn henni, að
þeir, sem fyrr og nú sjá ekki
annað en fisk, verði að endur-
skoða viðhorf sín. Við höfum
treyst á fiskveiðar og á síðari
árum einnig á fiskverkun, vilj-
um enn efla þær og fiskiðnað-
inn, færmn út landlielgina o. s.
frv. En allt kemur fyrir ekki ef
hafstraumar þeir, sem að sunn-
an koma og ylja bæði sjó og
strönd, flytja með sér hin deyð-
andi efni. En við vonum, að
vísindunum takist vel í baráttu
sinni við mengunina, og að all-
ar þjóðir beri gæfu til sameigin
legra átaka í varnarbaráttunni.
En hvað . þá, ef ekki tekst að
stöðva mengun og fiskurinn
deyr?
LAND OG SJÓR
Auðvitað eigum við að lialda
áfram baráttu okkar fyrir yfir-
ráðurn á landgrunninu öllu.
Það er sjálfstæðisbarátta okkar
tíma. En vert er að hafa í liuga,
að við lifum einnig á landsins
gæðum, eins og ætíð áður. Vera
má, að hóllt sé að huga nánar
að þeim málum. Við eigum lítt
numið land, stórt, miðað við
fólksfjölda, kjarnmeiri gróður
en þekkist á suðlægari slóðum
og óþrjótandi möguleika til að
margfalda hann. Afl eigum við
í fallvötnum og jarðhita, gildan
sjóð, sem af má taka nieð gát
og eiga um leið varasjóð til
framtíðarinnar. Þótt hrakspár
megi ekki á neinn hátt draga úr
framkvæmdadug og lífsvilja
einstaklinga eða þjóðar, er lík-
legt, að landið sjálft, með gæð-
um sínum og takmörkunum,
verði innan tíðar meiri vett-
vangur vísinda og vinnandi
lianda en verið liefur.
fiski, sem er jafn mikið og allt
árið í fyrra.
Bátar reyta ofurlítið af fiski
í snurvoð. Nýi báturinn Sjöfn
kom með 5 tonn í gær.
Vegamálin eru ekki viðun-
andi í norðanverðum Grýtu-
bakkahrepþi. Vegurinn illfar-
andi, því aðt slitlag vantar.
Áhugi á "sauðfjárbúskap er
vaxandi. Verið er að byggja 250
kinda fjárhús á tveim eða þrem
bæjum. P. A.
liðið ár, að verja einni viku af
námstíma sínum til að kynnast
störfum fyrirtækja að eigin
vali. Að þessu sinni eru tíu nem
endur í bekknum og kusu níu
þeirra að dvelja á Akureyri, hjá
hinum ýmsu fyrirtækjum. Nem
endur þessir eru á aldrinum
16—17 ára.
Einn þessara nemenda, Frið-
rika Jónmundsdóttir frá
Hrappsstöðum, kaus að kynna
sér blaðamennsku og blaðaút-
gáfu og er þeirra erinda þessa
dagana hjá blaðinu Degi við
nám og starf, eftir því sem tími
vinnst til. .
Þessi starfskynning er til
þess fallin að kynna ungu fólki
ný viðfangséfni og stækka sjón-
deildarhring þess á hinum fjöl-
þætta vettvangi þjóðlífsins. □
Kveð j utónleikar
PHILIP JENKINS LEIKUR í BORGARBÍÓI
Toppstöð fyrir hitaveituna á Dalvík
Vaxandi áhugi á sauðfjárbúskap
Sfarfskynning nemenda