Dagur - 09.12.1972, Page 1
Samvinnumenn gerasf hSuthafar
Á SÍÐASTA aðalfundi Sam-
vinnubankans var ákveðið að
auka hlutafé bankans úr tæpum
16 millj. kr. í allt að 100 millj.
Jafnframt var samþykkt að gefa
öllum íélagsmönnurn., samvinnu
félaganna kost á að eignast hlut
í bankanum.
Hlutafjárútboðið er hafið á
10 ára afmæli bankans, sem
stofnaður var 17. nóv. 1962 og
verða hlutabréfin til sölu í bank
anum og útibúum hans svo og
í kaupfélögunum um land allt.
Starfsemi Samvinnubankans
hefur vaxið mjög á liðnum ára-
tug. Við yfirtöku Samvinnu-
sparisjóðsins, sem starfað hafði
frá 1954, nam innlánsfé 152
millj. kr., en nemur nú um 1400
milljónum. Það sem af er árinu
1972 nemur innlánsaukningin
350 millj. kr. eða 34%. Starf-
semi bankans er dreifð um land
allt og hefur hann á liðnum
starfstíma yfirtekið 12 innláns-
deildir kaupfélaga og 2 spari-
sjóði með innlánsfé samtals 94
millj. Bankinn starfrækir nú 10
(Framhald á blaðsíðu 6)
Miksð atvinnuleysi er nú í
Vopnafirði, 8. des. Hér er ekki
mikill snjór en breytusnjór og
allt jarðlaust í sveitinni. Bílfært
er áð kalla innan sveitar en
Sandvíkurheiði ófær, svo og
aðrar leiðir út úr Vopnafirði á
landi.
Prestkosning fór fram í Hofs-
prestakalli á sunnudaginn, og
var umsækjandi aðeins einn,
séra Haukur Ágústsson, sem
hingað vígðist í haust. Hann var
kosinn lögmætri kosningu,
hlaut 229 atkvæði. Hann býr á
hinu forna höfuðbóli Hofi.
Lækni höfum við einnig og heit
ir hann Þengill Oddsson.
Þótt seint sé, er e. t. v. ástæða
til að minnast á það, að í haust
var um þúsund kindum fleira
slátrað en í fyrrá, og var meðal-
þungi dilkanna 15.83 kg, eða
heldur meiri en haustið áður.
Var þó meira um tvílembinga
en í fyrra. Þyngstu meðalvigt
höfðu dilkar Hermanns Einars-
sonar á Hámundarstöðum, 200
talsins eða fleiri og jöfnuðu þeir
sig með 18.6 kg. Mun féð hafa
gengið mest í Sandvíkurheiði.
En þyngsta dilkinn átti Erling-
ur Pálsson, Ljótsstöðum, og vóg
hann 31.6 kg.
Atvinna í þorpinu er nú lítil
eða engin, þegar frá eru taldar
hinar sístarfandi þjónustustofn-
anir. Sjósókn er engin og fram-
kvæmdir engar heldur á þess-
um árstíma. Búið er að selja
Bretting og nýr skuttogari
kemur ekki fyrr en í vor. Þ. Þ.
FRÁ LÖGREGLUNNI
Á AIÍUREYRI
FRÁ lögreglunni í gær: Tveir
voru teknir úr umferð vegna
meintrar ölvunar við akstur.
Þykir það nú naumast tíðindum
sæta að menn séu teknir ölvaðir
undir stýri, svo algengt sem það
nú er orðið. Það sem af er þessu
ári hafa 109 manns verið teknir
af þessum sökum, og þar ef eru
nokkrar konur.
Nú fer í hönd mikill verzl-
unar- og umferðartími, ef að
vanda lætur. Lögreglan hefur
beðið bæjarverkstjóra að leggja
áherzlu á að halda opnum al-
mennum bílastæðum við helztu
verzlunargötur og hefur hann
tekið því vel. Er fólk nú beðið
að nota þessi bílastæði sem
allra mest til að greiða fyrir
umferðinni. □
Tillaga um biskupsstól
fyrir Norðurland
KIRKJUÞING vill vekja at-
hygli ríkisstjórnar og Alþingis
á fyrri samþykktum sínum um
biskupsdæmi þjóðkirkjunnar.
Jafnframt lætur þingið í ljós þá
eindregnu ósk sína, að biskups-
stóll fyrir Norðurland verði
stofnsettur þjóðhátíðarárið 1974.
Þessi ályktun kirkjuþings,
sem biskup íslands flutti, var
samþylckt. □
i frá sér
Hrísey, 7. des. Það var haft á
orði hérna um árið þegar mest-
ur snjórinn var, að þá hefðu
menn þurft að ryðja frá með
hökunni, er þeir voru á leið
milli húsa í vinnu sína. Ekki er
þetta nú svona slæmt núna, en
þó er kominn mikill snjór og
myndarlegir skaflar.
Þetta er eiginlega alveg dauð
ur tími hjá okkur og lítið að
Yalgarður Stefánsson.
|> Flestum þykir nú orðið nóg urn snjóinn, enda er hann mikill. En hreinleiki er yfir snjóbreið- ❖
unni og margskonar fegurð. (Ljósm.: F. Vestmann)
lalsverf vefrarríki á Fljóts
Egilsstöðum, 8. des. Við stönd-
um vel upp úr snjónum ennþá,
þótt ekki séu háir í lofti. Hitt er
rétt og satt, að kominn er nokk-
uð mikill snjór og líklega alls
staðar orðið jarðlaust á Héraði.
Krepjusnjór og storka er yfir
allt, og umhleypingar hafa ver^
ið miklar að undanförnu. Sam-
göngur hafa því verið erfiðar
mjög og nú eru allir heiðavegir
með hökunni
gera nema að undirbúa jólin,
en það gera nú konurnar okkar
að mestu leyti. Enginn fer á sjó,
enda ekkert sjóveður.
Helzt má til tíðinda telja, að
Björg Björnsdóttir frá Lóni er
að kenna okkur söng og æfir
hún kirkjukór sóknarinnar. Við
erum um 20, karlar og konur,
sem syngjum, og efa ég ekki að
söngurinn sé góður. S. F.
Á LAUGARDAGINN, kluklcan
4, opnar ungur Akureyringur,
Valgarður Stefánsson, málverka
sýningu í Landsbankasalnum
og sýnir þar 30 myndir, sem
allar eru til sölu.
Sýning þessi er frumsýning
hins unga málara, en myndir
eftir hann voru sýndar á sam-
sýningu hér á Akureyri fyrir
nokkru. Sýningin stendur til 17.
desember, og mun mörgum
leika hugur á að kynnast henni
og höfundinum, sem mun lítt
skólagenginn í þessari grein og
sækir viðfangsefni sín oft í
gamlar sögur og ævintýri. En
líklegt er, að eitthvað muni
honum kippa í kynið, því að
faðir hans er Veturliði Gunnars
son listmálari í Reykjavík, og
ef svo er, kynni það að vera
ómaksins vert að sjá sýninguna.
lokaðir nema reynt að halda
opinni leið um Fagradal. Þar
var rutt í gær en lokaðist strax
aftur. Þá hafa flugferðir fallið
niður öðru hverju vegna dimm-
viðris en einnig vegna hálku og
snjóa á flugbrautinni. Oft er
hvasst og hefur þá fyllt í þær
slóðir, sem reynt hefur verið að
gera vegna allra nauðsynleg-
ustu flutninga.
Hætt er við, að mikill snjór
og jafnvel storka sé til fjalla.
Hreindýrin eru þó ekki komin
hingað út en í Skriðdal eru þau
komin, enda leita þau fyrst
þangað að jafnaði.
Loksins get ég gefið þér töl-
urnar um slátrun hjá Kaup-
félagi Héraðsbúa. Á félagssvæði
þess var lógað 50.844 kindum í
haust og er það 4 þús. fleira en
í fyrra. Meðalfallþungi dilka
var 14.69 kg, sem er aðeins
meira en í fyrra, enda vorið og
sumarið með afbrigðum gott.
Féð gekk ákaflega vel fram í
vor. Bændur kvíða engu nú,
þótt taki fyrir jörð, svo vel eru
þeir heyjaðir.
Egilsstaðabændur hafa
nokkra tugi holdanauta. Naut
þessi eru svört eins og syndin
og gefa ágætt kjöt. Þessi holda-
naut eru hraust og harðgerð og
ganga hart að beit, fram eftir á
haustin og fram á vetur, gæf-
Dalvík, 8. des. Nýlega gáfu hjón
in Anna Gunnlaugsdóttir og
Sigurður Jóhannesson, Hafnar-
braut 30, Dalvík, húseign sína
Elliheimilissjóði Dalvíkur,
ásamt bókasafni, allmiklu að
vöxtum. Fasteignamat hússins
er um 400 þúsund krónur, að
lóð meðtalinni. Einstökum fé-
lögum hér á Dalvík hafa borizt
stórgjafir í sama augnamiði, og
hefur þeirra verið getið áður.
Leikfélag Dalvíkur er að
hefja ioíiagar á sjónleiknum
lynd eru þau og meinlaus við
menn, en þó er fráleitt að ætla
þeim að ganga af á vetrum, svo
sem sumir álitu að takast
myndi. En fóðurvönd eru þau
ekki í húsi.
Þótt útivinna hafi fallið nið-
ur, hafa allir nóg að gera og er
ekkert atvinnuleysi hjá okkur.
Um 40 manns vinnur hjá prjóna
stofunni Dyngju og eru þar
næg verkefni framundan. Þá er
skóverksmiðjan Agila, sem hef-
ur 20 manna starfslið og hefur
ekki undan að framleiða skó-
fatnaðinn. Sú verksmiðja hefur
bætt sinn vélakost og hefur auk
ið sína framleiðslu verulega.
Svo eru hér vélaverkstæði og
trésmiðjur og hjá bygginga-
félaginu Brúnás vinna 40—50
manns. V. S.
jarðlaust í Fljótum
TALIÐ er nú jarðlaust með öllu
í austanverðum Skagafirði, allt
frá Hjaltadal, þar sem allt er á
kafi, og til Fljóta, þar sem einn-
ig er kominn mikill snjór. Hest-
um á þessu svæði öllu þarf að
gefa, því að hvergi næst til
beitar.
En snjóalög eru misjöfn í
Skagafirði og víða fremur lítill
snjór og beit góð fyrir hross. Q
Þrír skálkar. Leikstjóri er Jó-
hann Ogmundsson.
í ótíðinni að undanförnu hafa
áætlunarferðir verið stopular
milli Akureyrar og Dalvíkur,
enda treyst á einn bíl til þeirra
hluta, með öllu óhæfan til vetr-
arferða. Áður var notuð bifreið
með drifi á öllum hjólum og
gafst það vel. En í vor var skipt
um sérleyfishafa á þessari leið
og virðist hann hafa litla til-
burði í þá átt að bæta úr þessu
ástandi. J. H.
ir ferðir í velur