Dagur - 20.12.1972, Síða 1
BLAÐ 1
LV. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 20. des. 1972 — 60. tölublað
jaNelat
m
FILMUhúsið AKUREYRI
ótvíræður
U>
£
TILLAGA íslendinga, Perú-
manna og margra annarra
þjóða um rétt strandríkja til
landgrunnsins og auðlinda í því
og sjónum yfir því, var endan-
lega samþykkt í gær sem álykt-
un allsherjarþings Sameinuðu
þjóðanna. 102 ríki greiddu þess-
ari tillögu atkvæði sitt, en 22
sátu hjá.
Meðal þeirra ríkja, sem sátu
hjá, voru Bandaríkin og öll
Evrópuríki, nema Irland, Júgó-
Þjófnaðir upplýstir
og skjalafals
LÖGREGLAN í gær: Tvö mál,
varöandi ávísanafals, sem lög-
reglan hefur haft til meðferðar
síðustu tvær vikur, eru nú upp-
lýst. Voru þar ungir menn að
verki. Hafði annar krækt í upp-
hæð, sem nam á milli 50 og 60
þúsundum króna.
Þá hafa sjö innbrot og þjófn-
aðir verið upplýstir og voru þar
einnig tveir ungir menn að
verki, þó ekki í félagi. □
TANNLÆKNAVAKT
FÓLKI er bent á auglýsingu á
öðrum stað í blaðinu, um tann-
læknavakt, sem áður hefur ekki
verið um hátíðar. Er nú hægt
að ganga að tannlækni vísum,
samkvæmt því, sem auglýst
hefur verið, og ætti það að vera
báðum aðilum hagfellt. □
slavía og Rúmenía, en meðal
þeirra, sem guldu henni jáyrði
sitt, voru Kanadamenn, Ný-Sjá-
lendingar og Ástralíumenn.
Miklar og harðar umræður
urðu um tillöguna og beittu
bæði Bretar og" Bandaríkja-
menn sér gegn henni af hörku.
Breytingartillaga um að
fresta afgreiðslu málsins, þar til
liafréttarráðstefnan kæmi sam-
an, var felld með 50 atkvæðum
gegn 40 og 28 sátu hjá, og tillaga
Hollendinga um að breyta orða-
lagi á þann veg, að niður félli
það, er mestur styrinn stóð um,
var felld með 74 atkvæðum
gegn 26, en 25 sátu hjá.
Samþykkt þessarar ályktun-
ar er stórsigur fyrir íslendinga
og má fastlega vænta þess, að
hún greiði mjög götu þeirra í
landhelgismálinu. □
I
I
‘i
e>
í
I
"t
V.'
1
I
I
v.c
±
&
1
Hér cr á ferðinni íslenzkur hcstur í Danmörku og uregur hann léttan sleða.
Gengi krónunnar breytt
Stefán Valgeirsson alþingismaður svarar nokkrum spurningum
GEN GISBREYTIN G íslenzku
krónunnar hefur farið fram og
var gengið lækkað um 10.7%,
og er það mál nú efst á baugi í
umræðum blaða og útvarps.
Blaðið ræddi þessi mál og önn-
ur við Stefán Valgeirsson al-
þingismann í gær
Hann sagði þá meðal annars
á þessa leið:
Samkvæmt viðtali vestur í
áðalstöðvar Sameinuðu þjóð-
anna í gær, ríkir mikil ánægja
meðal íslendinga þar vegna sam
þykktar þingsins við ályktunar-
tillögu íslendinga, Perúmanna
og fleiri þjóða um réttindi ríkja
til auðlinda á hafsbotni og í
sjónum yfir þeim. En umræður
voru harðar og stórveldin, að
Kína undanskildu, lögðust á
móti tillögunni. Breytingartil-
lögur voru felldar og ályktunin
samþykkt með 102 samhljóða
atkvæðum. Styrkir þetta mjög
aðstöðu okkar. í landhelgisdeil-
unni og aukast líkur á hagfelld-
ari úrskurði Haagdómstólsins
en ella myndi verða, okkur í
hag, svo að þessi samþykkt er
stórsigur, og er þetta eflaust
mesti stórviðburðurinn í gær,
þrátt fyrir aðra stóra viðburði
dagsins.
En gengisbreytingin?
Já, hin svonefnda valkosta-
nefnd skipuð sjö mönnum úr
öllum stjórnmálaflokkum benti
á þrjár aðalleiðir og voru sam-
mála um þær. Ríkisstjórnin
valdi uppfærsluleiðina, öðru
nafni gengisfellingu, sem kunn-
ugt er og stendur öll að henni.
Auðvitað verða margir fyrir
vonbrigðum með gengisfellingu,
og hefðu orðið með hverja aðra
leið. Við lofuðum því að auka
kaupmátt launa og höfum stað-
ið við það. Við lofuðum einnig
að bæta hlut þeirra öldruðu og
þeirra tekjulægstu í fcamleiðslu
greinunum og höfum einnig við
það staðið. En auðvitað var í
kaupgreiðslum teflt á tæpt vað,
þannig að um leið og á móti
blés, svo sem sökum minnkandi
afla, gátu atvinnuvegirnir vart
staðið undir auknum tilkostn-
aði af háu kaupi samfara hækk-
un erlendra rekstursvara.
eftir
En kaupmáttur launa
gengisbreytinguna?
Kaupmáttur launa, sem tal-
inn var hafa aukizt um 20%, er
SITUR' EKKI A ÞINGI
VEGNA VEIKINDA
GÍSLI GUÐMUNDSSON al-
þingismaður hefur ekki setið á
þingi síðan í desemberbyrjun,
af heilsufarsástæðum. Sæti
hans tók Jónas Jónsson, aðstoð-
armaður • landbúnaðarráðherra.
Gísli hefur verið heilsuveill
síðastliðið sumar, en gegndi
þingstörfum nær tvo fyrstu
mánuði þingsins. Og hér birtum
við nýja mynd af þingmannin-
um, sem hefur látið sér vaxa
alskegg. □
BRENNUR um áramótin munu
verða álíka margar og í fyrra,
en börn hafa undanfarið verið
dugleg að safna saman brennan
legu efni til þessa og flestum
verður vel ágengt í því starfi og
áhuga þeirra vantar ekki. Jafn-
framt því, að þetta viðfangsefni
er við hæfi, vinna börnin veru-
legt gagn með beinu hreinsunar
starfi sínu. En leyfi þarf til að
búa til brennur og börnin þurfa
einnig að hafa fullorðinn mann
með í ráðum, sem lögreglan
samþykkir og ber hann veru-
lega ábyrgð á brennunum, þeg-
ar þar að kemur. Vöntun er
engin á brennustöðum, en hins
vegar færast þeir ofurlítið til,
ár frá ári, vegna vaxandi
byggðar.
Á laugardaginn var Hafnar-
stræti lokað, enda rnjög mikil
umferð vegna verzlunar. Svo
verður aftur gert þegar þurfa
þykir. Bílastæði eru mikil, ef
þau eru rétt notuð, og má þar
nefna bílastæði bæði norðan og
sunnan við POB, einnig sunnan
við BSO, sem sjaldan er að
fullu nýtt, og bendir lögreglan
sérstaklega á þessa staði. □
Stefán Valgeirsson.
auðvitað mikilvægur. Við fyrri
gengisfellingar tók viðreisnar-
stjórnin kaupvísitöluna úr sam-
bandi, svo að launþegar báru
skerðinguna bótalaust. Nú er
þetta ekki gert og er á því meg-
in munur. Nú verða laun greidd
samkvæmt vísitölu og vinnst
því það tvennt, að atvinnuveg-
irnir eiga að hafa traustari
grundvöll og launþegarnir að
fá vísitölubætur á kaup. Margs-
konar hliðarráðstafanir þarf svo
APPÖLLO 17
LENDIR f IÍVÖLD
APOLLO 17. átti að lenda á
Kyrrahafi kl. 19.24 í gærkveldi,
með geimfarana þrjá, tæki
þeirra margvísleg og á annað
hundrað klíó af grjóti, möl og
sandi frá tunglinu.
Vonandi hefur ferðin gengið
að óskum. □
að sjálfsögðu að gera, samhliða
gengisbreytingunni. Einhverjar
ráðstafanir þurfti að gera til að
tryggja fullan rekstur atvinnu-
veganna og næga atvinnu, án
skertra lífskjara. Þetta er merg-
urinn málsins.
Og fleiri tíðindi frá Alþingi?
Já, fleiri tíðindi gerðust á Al-
þingi í gær. Bjarni Guðnason
sagði sig úr þingflokki Frjáls-
lyndra og vinstri manna, en
styður áfram ríkisstjórnina.
Hann sagði sig þó ekki úr sam-
tökunum og tók það skýrt fram.
Ursögn hans mun hafa byggzt
á því, að Félag frjálslyndra í
Reykjavík mótmælti harðlega
gengisfellingarleiðinni, sem
þingmenn flokksins voru með-
mæltir.
Verða fjárlög afgreidd fyrir
jólin?
Að því er stefnt að fjárlögin
verði til -þriðju umræðu á
fimmtudaginn og efalaust verða
þau afgreidd fyrir jólin, og enn-
fremur frumvarpið um benzín-
skatt og fleira í því sambandi,
svo sem þungaskatt og gúmmí-
gjald.
Kemur þú lieim fyrir jólin,
Stefán?
Nei, því miður hef ég ekki
tíma til þess nú. Ég og mín fjöl-
skylda búurn hér í vetur. Þótt
hlé verði á þingstörfum, þarf ég
mörgum erindum að sinna. En
strax eftir áramótin kem ég
norður. Við hjónin biðjum fyrir
beztu jóla- og nýárskveðjur til
lesenda Dags og annarra norð-
an fjalla, sagði alþingismaður-
inn að lokum og þakkar blaðið
svörin. □
Daguk
kemur út á föstudaginn, 22.
desember.