Dagur - 20.12.1972, Blaðsíða 2
2
Eigurn von á nokkrum S T E R E 0
MÖGNURUM OG HÁTÖLURUM
næstu daga á ÓBREYTTU verði.
AÐVÖRUN
Ástæða þykir til að vekja athygli á reglugerð nr.
258, 1964 um sölu og meðferð flugelda og ann-
arra skotelda, en samkvæmt 1. gr. hennar má eng-
inn selja slíka hluti, nema hann hafi til þess leyfi
hlutaðeigandi slökkviliðsstjóra. Þá er bannað að
selja flugelda og annars konar skotelda til al-
mennings nema á tímabilinu 27. desember til
6. janúar, að báðum dögum mðetöldum.
Þá skal tekið fram að framleiðsla og sala púður-
kerlinga og „kínverja“ er bönnuð.
LÖGREGLUSTJÓRINN Á AKUREYRI.
KÍNVERSKU
veggklukkurnar
ERU KOMNAR.
BÓKA- og BLAÐASALAN
BREKKUGÖTU 5.
Angli
ÁNGLI-SKYRTUR
Margar gerðir, munstur og litir.
Umrenningar —
skáldsaga
Hamsuns
Með Umrenningum er loks
komin út á íslenzku skáldsaga
Hamsuns, sem jafnoft hefur
verið nefnd ein skemmtileg-
asta skáldsaga aldarinnar.
íslendinga sögur
og nútíminn
Aldrei fyrr höfum við eignazt
slíkt Ieiðsögurit í lestri ís-
lendinga sagna og þessa bók
Ólafs Briem. Hún á erindi á
hvert heimili og í alla skóla.
í fylgd með Jesú
180 myndir, flestar í litum —•
87 heilsíðumyndir, — veita
lesendum leiðsögn um sögu-
slóðir Nýja testamentisins.
Tilvitnanir í texta Nýja testá-
mentisins og skýringar með
hverri mynd —•
„ . . . fögur bók og handhæg,
sem er vel til þess fallin
aö örva menn við lestur Nýja
testamentisins . . .“ segir
herra Sigurbjörn Einarsson í
aðfararoröum sínum að bók-
ÍSLENZK
i'lÓDi'K.l.DS
Sigurður Norikií
inni.
Þjóðsagna-
bókin II.
í fyrra kom út fyrsta bindi
Þjóðsagnabökarinnar í saman-
tekt Sigurðar Norðdals. Það
bindi hafði að forsp/alIi mikla
ritgerð eftir Sigurð, sem fram
er haldið í þessu bindi og
nefnist þar Margt býr í þok-
unni. Þjóðsagnabókin er víð-
tækast úrval markverðustu
þjóðsagna íslenzkra, sem gert
hefur verið fram á þennan
dag.
Síðustu dagar
Hitlers
Haustið 19-15 var brezka sagn-
fræðingnum, H. R. Trevcr-
Roþer, sem þá starfaði í
brezku leyniþjónustunni, falið
að rannsaka dularfull endalok
Hitlers. Niðurstaða hans var
þessi spennandi bók, sem
komið hefur út um allan heim.
Nú ræðá menn enn einu sinni
um afdrif Martins Bormanns.
í Síðustu dögum Hitlers er
gerð grein fyrir endalokum
nazistaforingjanna.
Spurningunni -um -afdrif Bor-
manns~er Tátið ósvarað.
Séð og lifað —
endurminningar
Indriða
Einarssonar
Bók Indriða Einarssonar, leik-
ritaskálds og hagfræðings,
hefur verið sögð ',,skemmti-
legust allra íslenzkra minn-
ingabóka". Indriði átti til að
bera þann sjaldgæfa hæfi-
leika að geta í einni jejftrandi
mynd, tilsvari eða setningu,
brugðið upp heilíi lífssögu, og
vakið viðburði og aldarfar upp
frá dauðum.
Tómas Guðmundsson skáld,
bjó bókina til prentunar.
Umboðsmaður á Akureyri er:
BÓKAVERZLUN
JÓNASAR
JÓHANNSSONAR
Hafnarstræti 107
Sími 12685
ALMENNA BÓKAFÉLAGIÐ
Blöð og
blaðamenn
1773—1944
Vilhjálmur Þ. Gíslason fyr;v.;
útvarpsstjóri hefur ritað sögu
íslenzkra blaða frá upphafl
1773, þegar Islandske
Maaneds Tidender komu fyrst
út, og fram að lýðveldisstofn-
un 1944. í bókinni er getici ,
um meira en 250 blöð pg
tímarit. Sagt er frá einkenVi-
um og áhrifum blaðanna, mál-
fiutningi, stíl og tækni ogArá*
sambandi þeirra við helztu
þætti þjóðarsögunnar. Þá er
þar einnig greint frá blaða-
mönnum að því er varðár
blaðamennsku þeirra.
Er líf
eftir dauðann?
Um þessa spurningu hafa
menn deilt frá örófi alda og
ekki komizt að algildri niður-
stööu. Sænski læknirinn, Nils
O. Jacobson, höfundur þess-
arar bókar, gerir það ekki
heldOr, en með fjölmörgum
dæmum varpar hann nýju
Ijósi á þessa eiiífu spurningu.
Þýðendur bókarinnar eru Elsa
G. Vilmundardóttir og sr. Jón
Auðuns.