Dagur - 20.12.1972, Síða 5
4
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar 1-11-06 og 1-11-67
Bitstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓHANN K. SIGURÐSSON
Prentverk Odds Bjömssonar h.f.
Hverjir biðja um skatta?
FJÁRLAGAFRUMVARPIÐ fyrir
næsta ár felur í sér um 20 milljarða
króna tekjur og gjöld. Skattarnir
til ríkisins í ár voru mörgum þung-
bærir, einkum á síðustu mánuðum
ársins, en næsta ár verða þeir einnig
innheimtir, ef að vanda lætur, því
að margir biðja um skattana og
verða þá að greiða þá.
Menn biðja um skatta til að geta
byggt skólahús, ráðið fjölda kenn-
ara, aukið almenna menntun og
sérmenntun og til þess svo að geta
veitt hinu sérmenntaða fólki góða
atvinnu að námi loknu.
Margir biðja um skatta til vega-
mála, flugvalla og strandferða,
hafna og vita, því að samgöngur
eru taldar lífæðar atvinnulífs og
einnig menningarlífs.
Margir biðja um skatta til að
byggja ný og betri sjúkrahús, til
ráðningar sérmenntaðra lækna og
til hinnar almennu heilbrigðisþjón
ustu í landinu. Menn biðja einnig
um skatta til að fjölga löggæzlu-
mönnum um land allt, svo að þeir
geti annast gæzlu fólks og eigna
þess og hins opinbera. Flestir
heimta skatta til þess að annast lög-
gæzlu á fiskimiðum.
Menn biðja um skatta til að
margskonar tryggingar geti náð til
sem flestra borgara í einhverri
mynd, barna og gamalmenna og
allra aklursflokka þar á milli. Þess-
ar óskir taka upp þriðjung ríkis-
teknanna. Margir biðja um skatta
til að byggja og bæta landið, rækta
það og klæða gróðri, snúa órækt í
ræktun, yfirbuga gróðureyðingu og
snúa vörn í sókn.
Margir biðja um skatta til að
halda uppi reisn löggjafarþings og
utanríkisþjónustu að hætti stæm
fullvalda ríkja. Og menn biðja um
skatta fyrir nýju stjórnarráðs- og
Alþingishúsi.
Margir biðja um skatta til að
hjálpa vandræðamönnuin, t. d. of-
drykkjumönnum og afbrotamönn-
um, en einnig til að efla skennnt-
anaiðnaðinn og svo til að efla lík-
amsrækt þjóðarinnar með hinni
mai'gvíslegustu íþrótta- og keppnis-
aðstöðu.
Undirstaða þess, að unnt sé að
greiða skatta, er mikil atvinna og
hátt kaup. Margir biðja um skatta
til kaupa á atvinnutækjum, meðal
annars til að kaupa fiskiskip og
hakla þeim til veiða. Þegar kostn-
aður verður mikill við atvinnutæk-
in, biðja atvinnurekendur líka um
skatta til að létta rekstur þeirra. Þá
vill svo fara, að krónum er skipt í
tvennt til nota innanlands eða geng
inu er opinberlega breytt. □
BÆKUR FRA
ÆGISÚTGÁFUNNI
BLAÐINU hafa verið sendar
eftirtaldar bækur frá Ægisút-
gáfunni í Reykjavík:
Á svalköldum sævi
Á svalköldum sævi. Jónas St.
Lúðvíksson tók saman, þýddi
og endursagði. Þetta eru frá-
sagnir af hetjudáðum sjómanna
á hafinu og sjöunda bók höf-
undar. Þessi nýja bók er yfir
200 blaðsíður.
Monte Cassino
Monte Cassino. Höfundur er
Sven Hazel og er hann kunnur
höfundur, sem skrifað hefur
margar bækur. Þessi nýja bók
er nær 250 blaðsíður og við-
burðarík í meira lagi. Hana
þýddi Oli Hermannsson.
Markgreifafrúin
í heljarklóm rússneska
vetrarins
ins eftir Leonard Cooper fjallar
um þrjár sögulegar innrásir í
Rússland. En þar koma við
sögu: Karl tólfti, Napóleon og
Hitler. En allir lentu þeir í
heljarklóm hins rússneska vetr-
ar.
Um borð í Sigurði
Um borð í Sigurði er eina ís-
lenzka bókin í þessari sendingu
frá Ægisútgáfunni og er hún
eftir Ásgeir Jakobsson. En þessi
höfundur er kunnur af nokkr-
um fyrri bókum og mörgum
blaðagreinum um sjómennsku
og útgerð. Um borð í Sigurði er
frásögn af veru höfundar þar
um borð á miðunum og siglingu
til Grimsby. □
KOTTURINN MEÐ HOTTINN
KEMUR AFTUR.
Bókin er prýdd litprentuðum
teikningum og textinn er þrent-
aður með stórum og læsilegum
stöfum. Kötturinn með höttinn
gengur auðvitað, eins og nafnið
bendir til, með gríðarstóran
hött á höfðinu. Hann er hinn
mesti grallaraspói, eða réttar
sagt grallaraköttur. Hér er sem
sé um nýja aðferð til þess að
kenna börnum stafrófið.
Paddington
Feneyj
um
er þriðja bókin og er eftir
Denise Robins. Hún segir frá
ungri og vel menntaðri konu,
sem gerist kennari og lagsmær
dekurbarns í Feneyjum, og
lendir í ævintýraflækjum. Þetta
er ein af svokölluðum afþrey-
ingarbókum.
Afburðamenn og
örlagavaldar
flytur þætti um tuttugu þekkta
afburðamenn, erlenda, í þýð-
ingu Ragnars Jóhannessonar og
Sigurlínu Davíðsdóttur og er
bókin um 200 síður. ■<
BÆKUR FRA
BÓKAÚTGÁFUNNI
ÖRN OG ÖRLYGUR
Kötturinn með höttinn
kemur aftur
Á sl. ári sendi bókaútgáfan
Örn og Örlygur h.f. frá sér
fyrstu bókina eftir hinn vin-
sæla höfund smábarnaböka, Dr.
Seuss! Bókin nefndist KÖTTUR
INN MEÐ HÖTTINN. Nú hefur
bókaútgáfan sent frá sér aðra
bók um kottinn, og nefnist hún
Þýðandi Örn Snorrason.
Á síðasta ári hélt hinn grunn-
reifi hrakfallabálkur, PADD-
INGTON Perúbjörn, innreið
sína á íslenzkan bókamarkað.
Paddi, eins og hann er venju-
lega kallaður, gengur um með
rauðan, háan hatt, og hefur sín-
ar eigin skoðanir á lífinu, sem
fara því miður ekki alltaf í
sama farveg og annarra.
Voru guðirnir
geimfarar?
Hvaðan kom þjóðum aftur í
grárri forneskju furðuleg þekk-
ing þeirra á gangi himintungla,
og vitneskja um rétta lögun
jarðar?
Hverjir voru þeir synir guðs,
er girntust dætur manna og
gátu börn með þeim, að því er
segir í Mósebókum?
Spurningar, sem svissneski
fræðimaðurinn, Erik Von Dani-
ker, glímir við í þessari bók,
eru margar og líkar, én eiga það
þó sammerkt, að viðkomandi
sérfræðingar og vísindamenn
hafa ekki enn fundið nein við-
hlítandi svör við þeim.
Loftur Guðmundsson hélt tvö
útvarpserindi um Von Daniker
og rannsóknir hans fyrr á þessu
STÖRKOSILEGAR
HLJÚMPLÖTUSENDINGAR!
Vorum að taka upp L.P. HLJÓMPLÖTUR — 45 S.N. PLÖTUR — 8 rása spólur og tón-
kassettur — trylli music — milli music — klassisk music — Það borgar sig að líta inn.
L.P. HLJÓMPLÖTUR Á AÐEINS
KR. 350.00.
Eigytm enn óráðstafað nokkrum SANSUI STEREO MÖGNURUM
- ÚTVÖRPUM OG HÁTÖLURUM.
Mikið úrval af Ferðaviðtækjum — Segulböndum — Stereo heyrnartækj-
um og Plötuspilurum!
GRUNDIG ÚTVARPSFÓNARNIR VINSÆLU á leið til landsins.
ATH.: Á GAMLA VERÐINU - VERIÐ VELKOMIN.
Sansui-
2 ARA
ÁBYRGÐ
mirm
VIÐGERÐARSTOFA
STEFÁNS HALLGRÍMSSONAR . Glerárgötu 32 . Sími 11626 . Akureyri
ári og munu þau hafa vakið
mikla.athygli.
Bókin er sett í Prentstofu G.
Benediktssonar, en prentuð* í
Viðey h:f. Bókbindarinn h.f. sá
um bókbandið en Litróf h.f. um
prentmót. Káputeikningu gerði
Hilmar Helgason.
Barizt í bröttum
hlíðum
Örn og Örlygur hafa sent frá
sér aðra bók brezka höfundar-
ins Colin rKorbes, í þýðingu
Björns :Jóiissonar, skólastjóra,
en fyrsta bók hans, STÖÐUGT
í SKOTMÁLI, kom út hjá for-
laginu í fyrta, einnig í þýðingu
I3jöms.
Söguþráðtir bókarinnar BAR-
IZT í BRÖTTUM HLÍÐUM er
í stuttu máli sá að grískt far-
þegaskip leggur úr höfn í Istan-
bul á dimmum aprílmorgni
1941. Fjórir Þjóðverjar og tveir
Bretar eru farþegar á skipinu.
Ferðinni er heitið til Zervos-
flóa í Grikklandi. Óvæntir
atburðir gerast í hafi: Óveður
skellur á — átök eiga sér stað
— mönnum er kastað útbyrðis
— skipi er sökkt.
Leynivopnið og
djöfladeildin
Christopher Cool og félagi
hans, Indíáninn Geronimo John
son, ásamt Spice Carter, sem
öll eru starfandi hjá Ungmenna-
og gagnnjósnadeildinni amer-
ísku hafa eignazt stóran lesenda
hóp hér á landi. Nú er komin
út þriðja bókin um þessi djörfu
ungmenni og nefnist hún
LEYNIV OPNIÐ og djöfla-
deildin.
Chris á í raun og veru við tvo
andstæðinga að etja. Annars
vegar eru TOAD, glæpamanna-
saintökin alræmdu, en hins veg-
ar er Dracov njósnastofnun. En
með því að etja þeim saman,
tekst Chris að eyðileggja áform
þeirra.
Það er alltaf eitthvað óvænt
að koma fyrir í þessari spenn-
andi njósnasögu. □
Endurmat véla
og fasteigna
ÁKVÆÐI í reglugerð kveður
svo á, að bændur verði að til-
kynna viðkomandi skattstjóra
fyrir 31. desember 1972, ef þeir
ætla að notfæra sér heimild til
endurmats á vélum og fasteign-
um á næsta landbúnaðarfram-
tali.
Þar sem mörgum bændum er
ekki kunnugt um þetta atriði og
þá sérstaklega heimild til endur
mats á vélum, hefur stjórn Bún
aðarfélags íslands sótt um end-
urmatsheimild fyrir hönd allra
• bænda, sem eru meðlimir í
hreppabúnaðarfélögum. Bænd-
ur, sem ætla að notfæra sér
þessa fullgildu heimild, þurfa
því ekki að skrifa skattstjóra
fyrir áramót, heldur er nægi-
legt að láta endurmatið fylgja
næsta landbúnaðarframtali.
Leiðbeiningar um hvernig vélar
skuli endurmetnar verða birtar
í febrúarblaði FREYS.
í stuttu máli gilda þær reglur
um endurmat á vélum, að kaup-
verð véla, sem keyptar voru
árin 1960—68, megi hækka um
20%. Þessa hækkun má afskrifa
á 5 árum.
(Fréttatilkynning frá Búnað-
arfélagi íslands)
i
5
át
Beztu barnabækurnar
FLUGFERÐIN TIL ENGLANDS
eftir Ármann Kr. Einarsson. Hér kemur þriðja bókin
í bókaflokknum um Árna og Rúnu i Hraunkoti. Ný og
falleg útgáfa. — Bókhlöðuverð kr. 390.00.
SUMAR í SVEIT
eftir Jennu og Hreiðar Stefánsson. Þetta er tilvalin
bók handa krökkum, sem eru að byrja að lesa sínar
fyrstu bækur. Teikningar eftir Baltasar. — Bókhiöðu-
verð kr. 333.00.
HANNA MARÍA OG PABBI
eftir Magneu frá Kleifum. Bækurnar um hana Hönnu
Maríu hafa að vonum náð miklum vinsældum hjá
yngri kynslóðinni. Þetta er þriðja bókin um hana
Hönnu Maríu. — Bókhlöðuverð kr. 390.0Ú_
STRÁKUR Á KÚSKINNSSKÓM
eftir Gest Hannson. Teikningar eftir Odd Björnsson.
Kom fyrst út 1958 og seldist þá upp á skömmum
tíma. Óvenjulega fyndin og skemmtileg bók fyrir börn
á öllum aldri. — Bókhlöðuverð kr. 390.00.
ÖRT RENNUR ÆSKUBLÓÐ
eftir Guðjón Sveinsson. Hér segir frá lífi íslenzkra sjó-
manna, ævintýrum þeirra í söluferð erlendis, skip-
broti og svaðilförum. Sérlega spennandi frásögn. —
Bókhlöðuverð kr. 390.00.
Fjölbreytt úrval til fróðleiks og skemmtunar
ÍSLANDSFERÐ 1862
eftir C. W. Shepherd. Óvenju forvitnileg og skemmtileg ferðasaga. Steindór Steindórsson
frá Hlöðum þýddi. — Bókhlöðuverð kr. 444.00.
VESTUR-ÍSLENZKAR ÆVISKRÁR IV
eftir séra Benjamín Kristjánsson. Með 600 mannamyndum. Þetta verður að líkindum loka-
bindi ritverksins, sem talið hefur verð langstærsta framlag í þjóðræknismálum af hálfu l’s-
lendinga. — Bókhlöðuverð kr. 988.00.
SÍÐASTA AUGNABLIKIÐ
eftir Frank G. Slaughter, höfund hinna vinsælu skáldsagna „Eiginkonur læknanna“ og
„Hættuleg aðgerð". Þessi nýja saga gerist á Kennedy-höfða í borg geimfaranna — en
gefimfaralæknirinn, dr. Barnes, verður fljótt var við villt geim upp um alla veggi . . . og
síðasta augnablikið nálgast . . . Bókhlöðuverð kr. 695.00.
Á MIÐUM OG MÝRI
eftir Rögnvaid S. Möller. Hér er ástríðuþrungin og berorð ástarsaga eftir nýjan, íslenzkan
rithöfund. — Bókhlöðuverð kr. 488.00.
SCOTLAND YARD
eftir J. W. Brown. Þetta er gamaldags, spennandi leynilögreglusaga, tilvalinn lestur til af-
þreyingar frá dagsins önn. — Bókhlöðuverð kr. 390.00.
ÞRÍLÆKIR
eftir Kristján frá Djúpalæk. Hér er fögur bók fyrir alla þá, sem unna íslenzkri Ijóðlist.
Kristján er skemmtilegt skáld.“ — Bókhlöðuverð kr. 444.00.
DAGAR MAGNÚSAR Á GRUND
eftir Gunnar M. Magnúss. Um síðustu aldamót var Magnús Sigurðsson á Grund í Eyjafirði
einn af mestu athafnamönnum landsins. Um hann spunnust þjóðsögur, eins og gjarnt er
um þá menn, sem skara langt fram úr öðrum. — Gunnar M. Magnúss hefur hér skráð góða
bók um hlýjan og óvenjulegan persónuleika. Bókin er prýdd fjölda mynda og í bókarlok
er mannanafnaskrá. — Bókhlöðuverð kr. 795.00.
tí-
Pvw?
Já, B
BÓKAFORLAG
ODDS
BJÖRNSSONAR
HAFNARSTRÆTI 88
AKUREYRI
Í554$545554555*«$$$$$54455544!Í5$55555554!55454!5S5$54$4!Í554$55454S555$$55S55545555S455$5SS554S5!S55555555$554555555S55554S$S555$55$555$55$5555$5S555$5555SS54$555S5S5555555^^
Bækurnar eru komnar
Félagsmenn á x4kureyri eru vinsamlegast beðnir að vitja bóka sinna á afgreiðsluna, Hafnarstræti 88B.
FELAGSBÆKURNAR 1972 ERU:
ALMANAK 1973
ANDVARI
AF SKÁLDUM, eftir Halldór Laxness
SEINT Á FERÐ, eftir Ólaf Jóhann Sigurðsson
LANDIÐ TÝNDA, eftir Jóliannes V. Jensen
FÁST, eftir Göethe
ÍSLENZK LJÓÐ 1954-1963
AÐRAR NÝJAR OG ELDRI BÆKUR:
TRYGGVI GUNNARSSON III, eftir Bergstein Jónsson
UM FÓSTBRÆÐRASÖGU, eftir Jónas Kristjánsson
ORÐABÓK MENNINGARSJÓÐS
BRÉF TIL STEPHANS G. STEPHANSSONAR
STEINGRÍMUR THORSTEINSON, eftir Hannes Pétursson
ALFRÆÐI MENNINGARSJÓÐS:
BÓKMENNTIR
STJÖRNUFRÆÐI, RÚMFRÆÐI
___ k
Bókaútgáfa Meimingarsjóðs og Þjóðvinafélagsins
LMBOÐ Á AKUREYRI: PRENTVERK ODDS BJÖRNSSONAR H.F.
5545S455544SS55SS555S55455555454S55545S545554S5S555S55555544S5S55S4554S554545S4S5555555S5545SS555SSS554555545SS45S5SS5SSSS5S44555S5S5445445555S5555455S555555S5555455554S445555545551