Dagur - 31.01.1973, Síða 6
6
I.O.O.F. 2 = 154228V2 = sfk.
MESSAÐ í Akureyrarkirkju kl.
2 e. h. á sunnudaginn, — slysa
varnadagur kvennadeildar
Slysavarnafélagsins á Akur-
eyri. Sálmar nr. 23 — 292 —
38 — 357 — 497. Félagar úr
Kiwanisklúbbnum aðstoða
fólk til kirkjunnar með bíla-
þjónustu sinni. Hringið f. h. á
| sunnudag í síma 2-10-45. Kon-
i urnar sjá um kaffiveitingar
að Hótel KEA eftir messuna
til ágóða fyrir Vestmanna-
i eyjasöfnunina. — P. S.
SUNNUDAGASKÓLÍ
Akureyrarkirkju er á sunnu-
daginn kemur kl. 10.30 f. h. í
kirkju og kapellu fyrir öll
börn eldri sem yngri. Verið
velkomin. — Sóknarprestar.
HJÁLPARSJÓÐUR kirkjunnar
Tekið verður á móti gjöfum í
hjálparsjóð kirkjunnar til
Vestmannaeyjasöfnunar á
sunnudaginn kl. 1—7 e. h. í
Akureyrarkirkju, Minjasafns-
kirkjunni og gamla barna-
skólahúsinu í Glerárhverfi.
Verða æskulýðsfélagar kirkj-
unnar á þessum stöðum til
þess að veita gjöfunum mót-
töku. — Sóknarprestar.
MUNK AÞ VERÁRSÓKN: —
Messa n.k. sunnudag kl. 13.30.
Minnzt Vestmannaeyinga.
GRENIVÍKURSÓKN. Messað í
Grenivíkurkirkju n. k. sunu-
dag kl. 2 e. h. Áður auglýstur
safnaðarfundur verður hald-
inn í kirkjunni eftir guðsþjón
ustu. — Sóknarprestur og
sóknarnefndin.
FRÁ Möðruvallaklausturspresta
kalli: Guðsþjónusta verður að
Möðruvöllum n. k. sunnudag
kl. 2 e. h. Þá vil ég vekja at-
hygli á beiðni Hjálparstofn-
unar kirkjunnar um fjársöfn-
un vegna Vestmannaeying-
anna. Gjöfum mun ég veita
viðtöku eftir guðsþjónustu á
sóknarkirkjunum svo og á
heimili mínu næstu daga. —
Sóknarprestur.
SAMKOMUR votta Jehóva að
Þingvallastræti 14, II. hæð:
Hinn guðveldislegi skóli
fimmtudaginn 1. febrúar kl.
20.00. Fyrirlestur og spurn-
ingaþáttur laugardaginn 3.
febrúar kl. 20.30. Fyrirlestur
með skuggamyndum: Góðar
fréttir kunngerðar um allan
heim. Ræðumaður Per B. Jen
sen frá Keflavík, sunnudag-
inn 4. febrúar kl. 16.00. Allir
velkomnir.
KRISTNIBOÐSHÚSIÐ ZION.
Sunnudaginn 4. febr. Sunnu-
. dagaskóli kl. 11 f. h. Sam-
! koma kl. 8.30 e. h. Ræðu-
maður Reynir Hörgdal. Verið
hjartanlega velkomin.
SJÓNARHÆÐ. Almenn sam-
koma n. k. sunnudag kl. 17.
Unglingafundur n. k. laugar-
dag kl. 17. Verið hjartanlega
velkomin.
GLERÁRIIVERFI. Sunnudaga-
skóli verður n. k. sunnudag
kl. 13.15 í gamla skólahúsinu.
Öll börn velkomin.
SKRIFSTOFA Áfengisvarnar-
nefndar. Opin fimmtudaga kl.
5—7.
MUNIÐ minningarspjöld kven-
félagsins Hlífar. Allur ágóði
j gengur til barnadeildar Fjórð
i ungssjúkrahússins á Akur-
eyri. Spjöldin fást í bókabúð-
j'; inni Huld og hjá Laufeyju
t»j. Sigurðardóttur,
BRÚÐHJÓN: Hinn 24. janúar
voru gefin saman í hjónaband
ungfrú Sólveig Björk Jóns-
dóttir og Ólafur Jakobsson \
sjómaður. Heimili þeirra verð
ur að Ásgarði, Þórshöfn.
BRÚÐKAÚP, Þann 27. des. sl.
voru gefin saman í hjónaband
í Rípurkirkju ungfrú Pálína
S. Jóhannesdóttir, Egg, Skaga
firði og Bjarni E. Guðleifsson,
tjlraunastjóri, Akureyri.
BRÚÐHJÓN: Laugardaginn 20.
janúar sl. voru gefin saman í
hjónaband í Möðruvallaklaust
urskirkju ungfrú Hulda
Kristjánsdóttir, hjúkrunar-
kona og Gestur Jónsson,
bankastarfsmaður. Heimili
þeirra er að Kotárgerði 7,
Akureyri.
BRÚÐHJÓN: Hinn 21. janúar
voru gefin saman í hjónaband
í Munkaþverárkirkju, ungfrú
Fanney Hildur Bjartmars-
dóttir, Syðra-Laugalandi og
Steinólfur Arnar Geirdal Guð
mundsson, iðnverkamaður,
Akureyri. Heimili þeirra er
að Lögbergsgötu 5, Akureyri.
I.O.G.T. st. Ísafold-Fjallkonan
nr. 1. Fundur fimmtudaginn
1. febrúar kl. 8.30 e. h. í félags
hiemili templara, Varðborg.
Fundarefni: Vígsla nýliða og
önnur mál. Eftir fund: Kaffi?
I.O.G.T. st. Brynja nr. 99.
Fundur mánudaginn 5-. febr.
kl. 9 e. h. í félagsheimili templ
ara, Varðborg. Venjuleg
fundarstörf. Kosning embætt-
ismanna. Hagnefndaratriði.
Kaffi eftir fund. — Æ.t.
VESTM ANNAE Y J ASÖFNUN-
IN: Guðfinna Jónsdóttir kr.
1.000, S. og G. kr. 1.000, M. F.
kr. 5.000, Stefán Hólm og Sig-
urlaug Pétursdóttir kr. 5.000,
Sigrún Valdimarsdóttir kr.
1.000, kona kr. 1.000, Guðný
Þórarinsdóttir kr. 1.000, Sig-
rún Elíasdóttir kr. 500, Hall-
grímur Stefánsson kr. 5.000,
Guðmundur Stefánsson kr.
5.000, Pálína Jónasdóttir kr.
5.000, lítill drengur kr. 100,
IJ. P. Á. kr. 500, frá föður og
syni kr. 100. — Gefendum eru
færðar beztu þakkir. — Birg-
ir Snæbjörnsson.
LIONSKLÚBBURINN
» HUGINN. — Fundur
fimmtudaginn 1. febrúar
kl. 12 á Hótel KEA. —
— Stjórnin.
GJAFIR og áheit til Stærra-
Árskógskirkju árið 1972: —
Minriingargjöf, kross og tveir
kertastjakar á altari, gefið til
minningar um Marinó Þor-
steinsson af systkinum hans.
Gefið í minningu Marinós
Þorsteinssonar af ekkju hans,
Ingibjörgu Einarsdóttur, kr.
25.0Ó0. Minningargjöf um Jó-
hönnu Margréti Sveinbjarnar
dóttur og Rósu Elísabetu
Stefánsdóttur gefin af eigin-
manni þeirra, Jóni Einars-
syni, og börnum kr. 25.000.
! Frá Sveinbirni Jóhannssyni
og Kristínu Jóhannsdóttur
minningargjöf um foreldra
þeirra kr. 10.000. í gjafakassa
kirkjunnar kr. 2450. Gjöf frá
ungri stúlku kr. 550. Gjöf frá
ónefndum kr. 400. Antonía
Antonsdóttir kr. 500. Bára
Sigfúsdóttir kr. 1.000. Sigfríð
Valdimarsdóttir kr. 1.500.
Björgvin Kjartansson kr.
1.000. Kristín H. Jónsdóttir
kr. 1.000. — Gefendum færum
við kærar þakkir fyrir hönd
safnaðar. — Sóknarnefndin.
ORÐ LÍFSINS. „Það eru syndir
yðar, sem skilnað hafa gert
milli yðar og Guðs yðar.“
(Jes. 59). „Ef vér játum synd-
ir vorar, þá er hann trúr og
réttlátur, svo að hann fyrir-
gefur oss syndirnar og hreins-
ar oss af öllu ranglæti.“ (Jóh.
1. 9.). Hefir þú þegið þetta
náðarboð Guðs? Frestaðu því
ekki. Eldgosið í Vestmanna-
eyjum ltom alveg óvænt.
Þannig getur dauðinn komið.
— S. G. J.
STARFSFÓLK Sjálfstæðishúss-
ins ákvað að láta andvirði
vinnu sinnar sl. laugardag
renna til Vestmannaeyinga.
Ilúsið gaf aðgangseyrir og
álitleg upphæð kom frá gest-
um þetta kvöld. Frá starfs-
fólki kr. 43.900,00. Samskot
gesta og aðgangseyrir kr.
111.819.30. Samtals krónur
154.719.30. Þetta hefur verið
afhent Rauða krossi íslands.
ATHYGLI skal vakin á auglýs-
ingu frá kvennadeild Slysa-
vamafélagsins á öðrum stað
í blaðinu.
ÁHEIT á Munkaþverárkirkju
frá Umf, Ársól kr. 500. —
Beztu þakkir. — Sóknar-
nefndin.
GJAFIR í Vestmannaeyjasöfn-
unina: Frá Tryggva Gunnars-
syni kr. 2.000, frá Unni Frið-
riksdóttur kr. 3.000, frá bif-
vélaverkstæði Rafns Gísla-
sonar og Sigurðar Stefánsson-
ar kr. 10.000, frá Rannveigu
og Freyju kr. 5.000, frá fjöl-
skyldum Jónasar Kristjáns-
sonar og Kristjáns Jónassonar
kr. 5.000, frá Sigrúnu kr. 500,
frá gamalli konu kr. 2.000,
safnað af Sigríði Dóru Antons
dóttur í 7. bekk Glerárskól-
ans kr. 28.600. — Til Hafsteins
Jósefssonar ffá Kristbjörgu
og Jóhannesi Steingrímssyni,
Ingu Garðarsdóttur og Erlu
Hrönn Aðalgeirsdóttur kr.
2.352 (ágóði af hlutaveltu). —■
Innilegustu þakkir. — F. h.
hjálparsjóðs kirkjunnar, Pét-
ur Sigurgeirsson.
PENNAVINIR: Atle Björkas, 8
ára sænskur drengur, óskar
eftir bréfaskiptum við ein-
hvern á íslandi, sem vill
skipta á frímerkjum. Hann
skrifar á sænsku. Heimilis-
fangið er:
Atle Björkas
Rönnbergagt. 12
723 46 Vösterás
Sverge
Fimmtán ára Pólverji ósk-
ar eftir pennavini á íslandi.
Áhugamál hans eru að safna,
merkjum, póstkortum, frí-
merkjum o. fl. Hann skrifar
á ensku. Heimilisfangið er:
Zbígníez Jednich
53—341 Wrodaw
ul. Wiclka 22/m27
Poland
Átján ára pólskur drengur
óskar eftir pennavini á ís-
landi. Áhugamál hans er að
safna póstkortum. Hann skrif
ar á ensku. Heimilisfang hans
er:
Ryszard Kocan
Swiolnica Sl.
ul. Rynek 3/4
woj: Wroctaw
Poland
Frönsk kona óskar eftir að
komast í bréfasamband við
einhvern á íslandi, sem áhuga
hefur á frímerkjasöfnun. Hún
getur skrifað hvort sem er
ensku eða frönsku. Heimilis-
fangið er:
Madame Jouanicot
„La Cerisaic“
\ye Bel. Air.
42 — Saml Eticnnc
France
Sendum öllum þakkir er auðsýndu oklkur sainúð
við fráfall og jarðarför föður okkar, tengdaföð-
ur, afa og bróður,
GUNNARS KARLSSONAR,
Helgamagrastræti 46, Akureyri.
Sérstaklega þökkurn við Geysisfélögum, skóla
meistara og nemendum M. A.
Gunnhildur Gunnarsdóttir, Bergur Erlingsson,
Ágúst Karl Gunnarsson, Geirdís Geirsdóttir, . . .
Sigríður Helga Ágústsdóttir
og systkyni liins látna.
Jarðarför móður okkar
JÓHÖNNU SIGURÐARDÓTTUR,
sem andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur-
eyri 24. jan s. 1. fer fram frá Akureyrarkirkju
föstudaginn 2. febrúar kl. 13,30.
Sigríður Jónsdóttir, Gísli Jónsson,
María Jónsdóttir, Halldór Jónsson,
Aðalheiður Jónsdóttir, Hermann Jónsson.
Innilegar þakkir til allra þeirra er auðsýndu sam-
úð við andlát og jarðarför
SÓLEYJAR STEFÁNSDÓTTUR,
frá Ólafsfirði.
Alúðar þakkir til allra þeirra er hjúkruðu henni
síðasta árið.
Ólafur Guðmundsson,
Jón Ólafsson, Kristín Ólafsdóttir,
Stefán B. Ólafsson, Stefanía Halldórsdóttir,
Guðmundur Ólafsson, Anna Gottlíebsdóttir,
Sæmundur Ólafsson, Guðrún Hallgrímsdóttir.
Konan mín, móðir okkar, tengdamóðir og ainina
HLÍN JÓNSDÓTTIR,
Reynivöllum 6, Akureyri,
andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri
laugardaginn 27. janúar s. 1.
Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju þriðju-
daginn 6. febrúar kl. 1,30 e. h.
Gústaf Jónasson,
Ingibjörg Gústafsdóttir,
Bolli Gústafsson,
Matthildur Jónsdóttir og barnabörn.
Útför
KRISTJÁNS JAKOBSSONAR
vélstjóra, Eyrarveg 29, Akureyri,
fer fram frá Akureyrarkirkju laugardaginn 3.
febrúar kl. 1,30 e. h.
•Þeir sem vildu minnast hins látna eru vinsamleg-
ast beðnir að láta líknarstofnanir njóta þess.
Vandamenn. ! .
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hjálp við
andlát og jarðarför föður okkar og afa,
GESTS HALLDÓRSSONAR. I
Börn og barnabörn.
Eiginköna mín, móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
LÁRA THORARENSEN,
Ásgarði 1, Akureyri,
sem lézt 24. janúar verður jarðsungin frá Akur-
eyrarkirkju fimmtudaginn 1. febr. kl. 1,30 e. h.
Valdimar Thorarensen,
börn, tengdabörn og barnabörn.