Dagur - 31.01.1973, Blaðsíða 8
8
SMÁTT & STÖRT
ið út reglulega einu sinni í viku
og er komið á 23. árið. Ritstjóri
Bjarni Þórðarson. Biður hann
Dag að geta þess, að Austurland
sé vikublað, og að leiðrétta fyrri
skrif Dags um, að hann sé eina
vikublaðið utan höfuðborgarinn
ar, sem því nafni geti kallast.
Rétt er og skylt að gera þetta.
En afsökunin er sú, að Degi
hafði ekki verið sent Austur-
land um skeið og vissi ekki um
þessa vikulegu útgáfu þess. Nú
hefur orðið breyting á þessu og
blaðaskipti upp tekin. Sendir
svo Dagur Austurlandi og
Bjarna Þórðarsýni beztu kveðj-
ur og árnaðaróskir.
STÆRSTA VERSTÖÐ
LANDSINS
fslendingar voru á það minntir
hinn 23. janúar, að þeir búa á
eldfjallalandi, og nú á þann, að
eldgos varð rétt hjá manna-
byggð, í Heimaey í Vestmanna-
eyjum. En þar áttu heima nær
5300 manns, er hafa fyrir löngu
byggt upp stærstu verstöð lands
ins. Þar eru skráðir nær 80 fiski
rdemo
bærinn sýndur
EKKI þekki ég eftirsóttari
barnabók en Kardimommubæ-
inn eftir Thorbjörn Egner, sama
höfund, sem einnig samdi Dýrin
í Hálsaskógi og Karíus og
Baktus.
Leikfélag Akureyrar frum-
sýndi á sunnudaginn Kardi-
mommubæinn í Samkomuhús-
inu, undir leikstjórn Magnúsar
Jónssonar, og nú munu börnin
• þykjast eiga erindi í leikhúsið.
Þau þekkja söguna og einnig
söngvana, sem oft hafa heyrzt
í útvarpi. Og mætti ég biðja
foreldrana að leyfa börnunum
að sjá Kardimommubæinn.
Hulda Valtýsdóttir þýddi
óbundið mál en Kristján frá
Djúpalæk þýddi ljóðin.
Hinir ungu áhorfendur í Sam
komuhúsinu á sunnudaginn
geisluðu af ánægju, er kunnar
persónur sögunnar, svo sem
Kasper, Jesper og Jónatan,
skuggalegir náungar, sem höfðu
ljón heima hjá sér og stunduðu
rán og gripdeildir, sýndu sig á
sviðinu. Eða Soffía frænka, sem
þeir náungar rændu til að vinna
eldhúsverkin. Bastían bæjar-
fógeti og Tobías veðurspámaður
koma einnig við sögu, svo og
Tommi og Kamilla. En svo eru
það öll dýrin, svo sem kamel-
dýr, asni, margir hundar, jafn-
vel köttur, sem taka þátt í sýn-
ingunni.
Leikararnir í sýningu þessari
eru: Marinó Þorsteinsson, sem
leikur Bastían bæjarfógeta,
Elín Antonsdóttir leikur konu
hans, Kjartan Ólafsson leikur
Tobías, SigUrveig Jónsdóttir
leikur Soffíu frænku, Hjördís
Nanna Jónasdóttir leikur
Kamillu, en Nökkvi Bragason
leikur Tomma. Aðalsteinn Berg
Vantar fólk í atvinnu á Húsavík
Húsavík 29. janúar. Reytingsafli
hefur verið hjá Húsavíkurbát-
um síðari hluta janúarmánaðar,
og gæftir góðar. Fólk vantar til
vinnu í Fiskiðjusamlagi Húsa-
víkur nú þegar, bæði karla og
konur, og eftir því sem á líður
veturinn og vorið nálgast, mun
enn aukast þörfin fyrir fleiri
vinnandi hendur þar.
í gær fór fram á Húsavík og
víða í Þingeyjarsýslu almenn
fjársöfnun vegna atburðanna í
Vestmannaeyjum. Fólk í ýms-
um félögum annaðist söfnunina
og voru undirtektir almennt
mjög góðar. í dag er safnað fé
hjá fyrirtækjum á Húsavík.
Bæjarráð Húsavíkur hefur
skipað nefnd, er leiti að leiðum
til aðstoðar Vestmannaeying-
um. Nefndin er meðal annars að
rannsaka möguleika á húsnæði
og atvinnu fyrir Vestmannaey-
inga á Húsavík. Hún mun koma
saman síðar í dag, og er þá gert
ráð fyrir, að fyrir liggi nokkur
Hús Ferðafélagsins við Jökuldal.
SEX Akureyringar lögðu af
stað á föstudagskvöldið á vöru-
bíl að Mýri í Bárðardal og
höfðu með sér sex vélsleða.
Ætluðu þeir að koma sleðunum
yfir Mjóladalsá, en urðu frá að
hverfa. Gistu þeir á Bólstað.
Næsta dag héldu þeir upp Mjóa-
dal að vestan og upp á örævin,
en Tryggvi Höskuldsson fylgdi
þeim. En til skála Ferðafélags-
ins við Jökuldal var ferðinni
niðurstaða af þeim rannsókn-
um. Vitað er, að fólk vantar í
ýmsar stafrsgreinar hér á Húsa-
vík.
f Flatey á Skjálfanda eru auð
hús, síðan fólk allt flutti þaðan
fyrir nokkrum árum. En byggð-
in þar var orðin svo fámenn, að
ekki var hægt að halda þar uppi
samfélagi. Á meðan fólkið var
þar nægilega margt, búnaðist
því vel. Þaðan var stunduð út-
gerð með góðum árangri. En að
líkindum hentar þar ekki svo
mikilvirk veiðarfæri, sem Vest-
mannaeyingar eru vanir. Þ. J.
dal leikur Sörensen rakara og
Páll Kristjánsson bakara. Guð-
mundur Sveinbjörnsson leikur
sporvagnsstjórann og Hörður
Högnason lekiur Silíus. En
sjálfa ræningjana( þá Kasper,
Jesper og Jónatan, leika þeir
Þráinn Karlsson, Viðar Eggerts
son og Gestur Einar Jónasson.
Auk þessara leikara koma marg
ir fram í líki dýranna.
Tónlistina annazt Reynir
Jónsson og félagar. Leikmyndir
gerði Þráinn Karlsson.
Góð barnabók er bók fyrir
unga og eldri, og hið sama má
segja um gott barnaleikrit, og
sannast það hér. Að endingu:
Þökk fyrir skemmtunina og
leyfið börnunum að sjá Kardi-
mommubæinn.
Athygli er vakin á því, að
betra er fyrir skólabörn og aðra
utanbæjar, að draga ekki lengi
að sækja þessa sýningu, ef veð-
ur leyfir, samkvæmt reynslunni
í fyrravetur. E. D.
bátar, þar eru fjögur hraðfrysti-
hús og meðal þeirra þau stærstu
og fullkomnustu á landinu, verk
smiðjur til að taka á móti síld
og loðnu til bræðslu, en einnig
til að vinna loðnuna á annan
hátt.
BYGGÐIN YFIRGEFIN
Þessi byggð var yfirgefin á
einni nóttu, aðfararnótt þriðju-
dagsins 23. janúar. Bátaflotinn,
sem lá í höfn, flugvélar, flutn-
ingaskip komu fólkinu heilu á
húfi til Þorlákshafnar og sumu
til Reykjavíkur. Eru þetta
mestu fólksflutningar hér á
landi. Og gosið heldur áfram,
hraun rennur htöðugt austur í
sjóinn. Hraunmagnið er sagt
meira en tvisvar sinnum vatns-
magn Laxár í S.-Þing., vikur,
gjall og aska berst öðru hverju
yfir byggðina, sjálfan kaupstað-
inn og hefur fært hús í kaf en
brennt önnur til ösku.
(Framhald á blaðsíðu 5)
MYNDARLEG SÖFNUN MYVETNINGA
Mývatnssveit 29. janúar. Svip-
aða sögu er að segja héðan af
veðráttunni og á öðrum stöðum
á Norðausturlandi. En veðrátt-
an hefur verið einstaklega hag-
stæð síðan um miðjan desem-
ber. Yfirleitt er sumarfæri á
vegum og í síðustu viku var
vegurinn til Austurlands opn-
aður.
Sauðfé hefur verið beitt að
undanförnu, enda ágætis jörð.
Kvenfélag. Mývatnssveitar
stóð fyrir myndarlegu þorra-
blóti í Skjólbrekku laugardga-
inn í þorrabyrjun. Þar var
óvenju fjölmennt og komu all-
margir frá Akureyri og Húsa-
vík, og svo úr næstu sveitum,
einnig frá Hólsfjöllum.
Þó að snjór sé lítill við Mý-
vatn, erum við svo heppin að
hafa nægan skíðasnjó í hlíðun-
,um við Reykjahlíð. Nú um helg
ina var skíðalyfta í gangi og
notuðu margir hana og undu
sér á skíðum, en í fyrra var
aldrei skíðasnjór og lyftan því
ekki notuð.
Lítið hefur orðið vart við
mink í vetur hér við Mývatn.
Sannast enn, að það er hægt að
halda honum í skefjum ef vel er
að minkaveiðum Staðið. Guð-
mundur Jónsson bóndi á Hofs-
stöðum og Freysteinn Jónsson
bóndi í Vagnbrekku sjá um
minkaveiðarnar, og hafa gert
svo síðustu árin. En hér í sveit
er kjörlendi fyrir minka. Bæði
er hér mikið af fugli og silungi,
ennfremur víðáttumikil hraun,
GIR ERU GJÚFULI!
heitið og var þangað komið
klukkan 10 um kvöldið.
Um hádegi næsta dag var
haldið heim á leið, en um nótt-
ina var vont veður, hríð og
renningur. Sást því hvergi til
slóða. Á heimleiðinni lentum
við austan Mjóadalsár, sem enn
var ófær og ekki bússutæk. En
bændur komu okkur til hjálpar
með dráttarvél og lyftara og
(Framhald á blaðsíðu 2)
VÍÐA er nú safnað fé til hjálpar
Vestmannaeyingum. Mývetn-
ingar söfnuðu 1.2 millj. kr. í
sinni sveit. En meðal þeirra
fyrstu voru Grímseyingar. Þeir
sendu 121.500 krónur, sem sam-
svarar um 1.500 krónum á hvert
mannsbarn í Grímsey. Ef allir
aðrir landsmenn gæfu jafnt og
Grímseyingar, mundu safnast
með frjálsum samskotum um
300 milljónir króna frá almenn-
ingi.
Auk Grímseyinga hafa all-
margir aðilar sent fé. Stæstur
einstaklinga er Lúðvík Storr
með 300 þús. kr. Stærsta upp-
hæðin hins frá V.-Þýzkalandi,
3 milljónir röskar. Framlög til
Vestmannaeyinga má leggja inn
á gílóreikning Rauða krossins,
nr. 90.000.
En stöðugt eru að berast
fregnir af gjöfum. Q
DAGUR
kemur næst út á miðvikudag-
inn, 7. febrúar.
jarðsprungur miklar og jarð-
hiti. Um þessar mundir er til-
hugalífið að byrja hjá þessum
dýrum og rása þeir þá um stór
svæði. Ekki er vafi talinn á því,
að hingað koma minkar langt
að, frá stöðum þar sem lakar
virðist unnið að útrýmingu
hans.
Skautasvell hefur oft verið á
Mývatni, en fáir fara á skauta.
Heldur hefur silungsveiði ver
ið dauf. Það er gamalla manna
mál, að í snjóléttum vetrum sé
lítil dorgveiði, en hún getur
hafist eftir mánaðamótin.
Fuglatalning fór fram í hluta
Mývatnssveiatr milli hátíða. Þá
sáust þessir fuglar: 14 álftir, 97
stokkendur, 228 húsendur, 106
gulendur, 2 fálkar, 20 rjúpur,
4 hrafnar, 1 músarindill, 43 snjó-
tittlingar, 1 svartbakur, 1 grá-
gæs og 1 svartþröstur. Sigfús
Illugason annaðist fuglatalning-
una og var talið á svæðinu milli
Reykjahlíðar og Kálfastrandar.
Með mesta móti virðist vera af
öndum, enda lítið um mink. Til
dæmis hefur verið óvenjumikið
af húsöndum við Kálfaströnd
nú í vetur.
Vestmannaeyjasöfnun hér í
hreppnum er lokið. Alls söfnuð-
ust 1200 þúsund krónur. Hrepp-
urinn lagði fram 500 þús. kr.,
Umf. Mývetningur 100 þús. kr.,
Kvenfélag Mývatnssveitar 100
þús. kr., Sparisjóður Mývetn-
inga 50 þús. kr. og einstaklingar
gáfu 450 þús. kr. J. I.
Kjartan Olaxsson, Nökkvi Bragason, Elín Antons uóttir og Marinó Þorsteinsson í hlutverkum sínum.
MIKIÐ AF HASSI
Fréttir licrma, að á síðasta ári
hafi verðmæti smyglaðra eitur-
lyfja verið meira en áfengis,
samkvæmt upplýsingum yfir-
valda um þessa vöruflokka er
fundizt hafa hér á landi. Má af
þessu marka, að eiturlyf jasmygl
er orðið verulegt, og ætla má
einnig, að eiturlyfjasmyglið fari
ört vaxandi, ef marka má
reynslu annarra þjóða, sem leng
ur hafa þurft að berjast við
þetta vandamál. Eiturlyfin eru
mjög auðflutt, svo fyrirferðar-
lítil sem þau eru. Mælt er, að
yfirvöld landsins hafi fundið
samtals 7 kg af hassi á árinu.
AUSTURLAND
Dagur liefur fengið dálítið
skemmtilegt bréf frá ritstjóra
Austurlands, en það blað er gef