Dagur - 07.02.1973, Side 1
P1 Daguk
LVI. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 7. febrúar 1973 — 6. tölublað
Er heitf vatn á Árskógssfrönd ?
FYRIR um það bil tveim árum
fundu piltar á Árskógsströnd
heita uppsprettu í klöppum
beint austur af gamla Syðri-
Hagabænum. Fleiri hafa
síðan sannfært sig um þetta.
Þegar blaðið leitaði fregna af
þessu nú um helgina, hafði
bóndinn í Syðri-Haga þó ekki af
þessu frétt, en hann heitir Ár-
mann Rögnvaldsson, pýlega
þangað fluttur. Hins vegar leit-
aði blaðið fregna af þessu hjá
Árna Olasyni, starfsmanni úti-
bús KEA á Hauganesi, og stað-
festi hann, að þetta væri rétt,
og að heita vatnið væri undir
sjó er hitnaði við Syðri-Haga-
klöppina. Engar rannsóknir eða
nánari athuganir hafa verið
gerðar á þessu ennþá, og er tími
til kominn að gera þær.
Skammt frá þessum stað, en
litlu norðar eru miklir berg-
gangar við sjóinn, líkir þeim,
sem finnast fram af Hámundar-
staðahálsi, en þar eru volgrur,
órannsakaðar. Haft er eftir jarð-
fræðingi, sem það svæði athug-
aði lauslega fyrir nokkrum ár-
um, að þar væri forvitnilega til
borunar eftir heitu vatni. Má
vera, að finna mætti heitt vatn
til nytja á báðum stöð.um. Q
Keypf ferja og ráðinn maður
Hrísey G. febrúar. Hér er orðið
fremur vont veður af norðri.
Drangur er á ferðinni í dag og
óttaðist að hann kæmist ekki
inn Olafsfjörð vegna óveðurs.
Á föstudaginn var þorra blót-
að í Hrísey. Þar var fjölmennt
og allir kátir.
Tveir bátar, Sigurveig og Haf
rún, eru byrjaðir með net og
fékk Hafrún 6—7 tonn fyrir
helgina. Spáir það góðu. Nýi
báturinn, Eyfell, er að búa sig
á línu.
Ákveðið er að koma upp hita-
veitu í Hrísey og stefnt að því
að gera það í sumar. Heita vatn
ið er til, í borholu norðan við
Saltnes, nægilega mikið fyrir
kauptúnið og 67 stiga heitt. Svo
á strax í vor að hefja byggingar
vegna holdanautastöðvarinnar,
sem hér á að rísa.
Hreppurinn hefur nú keypt
Hríseyjarferjuna, Sævar, sem
er um 7 tonna bátur og ráðið
Tómas Pálsson fyrir ferjumann.
Ferðir til lands eru tvisvar í
viku, en ætlunin að þær verði
3—4 í sumar. S. F.
Myndin er af fyrstu kvenskátunum á Akureyri fyrir 50 árum.
AFMÆLI KVENSKÁTA A AKUREYRI
í ÁR eru liðin 50 ár frá því að
kvenskátar hófu starfsemi sína
hér á Akureyri.
Það er því orðinn allf jölmenn-
ur hópur kvenna á Akureyri,
sem hefur tekið þátt í starfi
HAAG-DÓMSTÓLLINN
ANNAN dag febrúarmánaðar
tilkynnti Haag-dómstólinn, að
hann hefði lögsögu í máli því,
sem Bretar og V.-Þjóðverjar
höfðuðu gegn íslendingum
vegna útfærslu fiskveiðilögsög-
unnar við ísland, í 50 sjómílur.
Mexikómaðurinn Nervos, einn
af 15 dómurum, greiddi atkvæði
gegn þessum úrskurði. Fyrr
hafði sami dómstóll gert álykt-
un um málið, svo sem kunnugt
er og dæmt gegn okkur.
En úrskurður sá, sem nú er
felldur um lögsöguna, er byggð-
ur á samningi frá 1961, hinum
illræmda nauðungarsamningi,
sem þá var gerður og íhald og
kratar stóðu að á þeirri tíð. Tel-
ur dómstóllinn þennan samning
enn í gildi, þótt núverandi
stjórnvöld hafi sagt honum upp
og telji hann úr gildi fallinn.
íslenzk stjórnvöld hafa harðlega
mótmælt því, að Haag-dómstóll-
inn hafi lögsögu í máli þessu,
enda eru þess ekki fordæmi og
hafa þó fjölmargar þjóðir fært
út landhelgi sína einhliðá, svo
sem íslendingar gerðu 1958 og
svo aftur 1. september í haust.
Virða því íslendingar ekki þenn
an úrskurð.
Framhald þessa máls, ef því
verður fram haldið, verðiir á þá
leið, að dómstóllinn tekur fyrir
efnisleg atriði deilunr.ar og fell-
ir sinn úrskurð um þau. Q
kvenskátanna um lengri eða
skemmri tíma.
Nú hafa skátarnir hér í bæ
í huga að bjóða upp á eitt og
annað til skemmtunar, fróðleiks
og þjálfunar í tilefni afmælisins.
Má þar nefna, meðal annars,
skemmtun fyrir almenning í
vor, skátamót í sumar o. fl.
Einnig munu skátafélögin í
bænum sjá um hátíðahöldin 17.
júní í ár. Er þar fyrirhugað að
breyta nokkuð til frá þeim hefð
bundnu hátíðahöldum, sem hér
hafa tíðkazt, meðal annars með
hliðsjón af þeim umfangsmiklu
hátíðahöldum, sem fyrirhuguð
eru árið 1974.
Skátafélögin hafa fyrir
nokkru skipað undirbúnings-
nefnd, til að skipuleggja og hafa
yfirumsjón með þessum verk-
efnum. í nefndinni eiga sæti:
Hallgrímur Indriðason, formað-
ur, Gígja Möllcr, Guðný Stefáns
mannaeymgar eru kommr
AKUREYRI var fyrsta brejar-
félagið á landinu, sem hófst
handa, eftir að eldgos hófst í
Eyjum, um að láta fram fara
skipulega könnun á húsnæði og
atvinnu til handa Vestmanna-
eyingum. í nefnd er að vann
voru skipaðir: Hermann Sig-
ÍSLENDINCAR RÚM
210 ÞÚSUND
SAMKVÆMT bráðabirgðatöl-
um Hagstofunnar um mann-
fjölda í landinu 1. desember
1972, teljast íslendingar nú
210.352, — 106.274 karlar og
104.078 konur. Þar af eru Reyk-
víkingar 83.831.
Kópavogur gengur næst
Reykjavík með 11.434 íbúa, og
er þó mjótt á mununum, því að
íbúar Akureyrar eru 11.158.
Næst kemur Hafnarfjörður með
10.694 íbúa, Keflavík með 5.846
og Vestmannaeyjar með 5.273.
tryggsson, Hermann Árnason
og Arnar Einarsson. Símar
þeirra í Hafnarstræti 107 eru
21202 og 21601, Ennfremur sendi
bæjarstjórn dreifibréf í hvert
hús í bænum, með beiðni um
falt húsnæði og aðra þá fyrir-
greiðslu, er bæjarbúar vildu
láta í té. f þriðja lagi gaf svo
bæjarsjóður eina milljón króna
í Vestmannaeyjasöfnunina og
afhenti Rauða krossinum.
í upplýsingum frá nefndri
Vestmannaeyjanefnd kemur m.
a. þetta fram:
Nefndin hóf störf 25. janúar.
Um eitt hundrað manna úr Eyj-
um hefur leitað til þessarar
nefndar. Skráningu húsnæðis
mun að mestu lokið. Boðnar
voru 14 íbúðir og á annar tugur
íbúða hefur verið boðinn fram
í hreppum Eyjafjarðarsýslu. Þá
hafa 50 herbergi verið boðin.
Hátt á annað hundrað vinnu-
tilboð hafa borizt frá fyrirtækj-
um og einstaklingum.
Skráðir eru hjá nefndinni 72
Vestmannaeyingar, sem komnir
eru í bæinn. Þess er óskað að
allir Eyjabúar hingað fluttir og
í Eyjafjarðarsýslu, láti skrá sig
sem fyrst, en skrifstofan verður
opin milli 5 og 7 í Utvegsbanka-
húsinu, Hafnarstræti 107, þriðju
hæð, næstu daga. Einnig er
hægt að láta skrá sig á mann-
talsskrifstofunni eða á skrifstof-
um bæjarins.
Enn er mikið spurt um hús-
næði fyrir fjölskyldur, og nokk-
uð er um laust húsnæði í ná-
grenni bæjarins. Þá eru til íbúð
ir, sem þarfnast viðgerða.
Gamlir Vestmannaeyingar á
Akureyri eru, ásamt nefndinni,
að undirbúa samkomu fyrir
Eyjamenn, þar sem þeir geta
fengið fregnir af hingað komn-
um vinum og kunningjum. Q
dóttir, Níels Halldórsson, Nils
Gíslason, Norma Mooney og
Sigurður Davíðsson.
Þá mun á næstunni haft sam-
band við ýmsa þá, sem áður
hafa starfað með skátafélögun-
um og leitað eftir að styrkja
tengsl þeirra við félögin.
Hraunið nálgasf
höfnina
FRÁ syðri hafnargarðinum í
Heimaey eru nú aðeins 250
metra að hraunbrúninni, sam-
kvæmt fréttum síðdegis í gær.
En hraunrennslið, sem áður
rann austur af eynni, tók í
fyrrinótt nýja stefnu og rann þá
til norðurs og ógnar nú hraunið
hafnarmannvirkjum á eynni.
En nefnd vegalend er miðuð
við vitann á syðri hafnargarð-
inum. Gosið hefur minnkað síð-
ustu dagana en hraunrennsli er
þó enn mikið og nokkurt ösku-
íall.
Talið er, að björgunarstarfi sé
nú lokið í Eyjum, þ. e. að búið
er að flytja húsmuni úr öllum
þeim húsum, sem óskað hefur
verið eftir að fluttir væru úr
þeim, annaðhvort til lands eða
á aðra betri geymslustaði í kaup
staðnum. f fyrradag unnu 500
manns við björgunarstörfin en
verulegur hluti þess mannafla
ætlaði að halda til Reykjavíkur
í gær. Q
Sfarfsfólkið gefur rausnarlega ]m f0garar
UM 600 manns vinna í fjórum
verksmiðjum Sambands ísl. sam
vinnufélaga á Gleráreyrum á
Akureyri, Gefjun, Heklu,
Skinnaverksmiðju og Skógerð.
Á laugardaginn vann þetta fólk
í verksmiðjunni og gaf dags-
verk sitt til Rauða krossins,
vegna Vestmannaeyinga. Verk-
smiðjurnar greiddu venjulegt
dagvinnukaup, en bættu síðan
annarri jafnhárri upphæð við í
þessa söfnun, að því er Axel
Gíslason tjáði blaðinu.
Þá sagði Ingólfur Sverrisson,
að samþykkt hefði verið í Slipp
stöðinni, a, þar yrði unnið á
sama hátt og vegna sama mál-
efnis. Sjálf greiðir Slippstöðin
mismun á vinnulaunum og út-
seldri vinnu, og drýgir það söfn-
unina. Skráðir starfsmenn Slipp
stöðvarinnar eru um 200 talsins.
SÁTTAFUNDUR í togaradeil-
unni hófst klukkan 2 í gær og
stóð enn þegar blaðið hafði síð-
ast fregnir af. Var þá haft á
orði, að eitthvað miðaði í sam-
komulagsátt, en ekki var unnt
að fá nánari upplýsingar
Tíu togarar eru þegar stöðv-
aðir af völdum þessarar deilu, á
milli undirmanna á togaraflot-
anum og útvegsmanna. Q