Dagur - 07.02.1973, Blaðsíða 4
4
íl
5
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar 1-11-66 og 1-11-67
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓHANN K. SIGURÐSSON
Prentverk Odds Bjömssonar h.f.
Fræðslustörf
BÆNDAKLÚBBUR Eyfirðinga á
nú 25 ára sögu og var þess nýlega
minnzt með fjölmennu skemmti-
kvöldi á Hótel KEA. Tilgangur
þessa óformlega félagsskapar var
kynningar- og fræðslustarfsemi, og
reynslan hefur ótvírætt sýnt, að bænd
ur hafa talið sér nokkurn ávinning
að þátttöku, því að aðsóknin hefur
stöðugt aukizt og á allra síðustu tím-
um eru hinir yngri menn mun fjöl-
mennari en áður. Þótt Bændaklúbb-
ur Eyfirðinga sé kallaður klúbbur,
er hann það naumast og ekki Iieldur
félag, því að enginn er skráður félagi,
engin lög eða reglur hafa verið
ákveðnar, engin árgjöld innlieimt,
aldrei gerð samþykkt eða ályktun um
eitt eða neitt, engin fundargerð
skráð. Sá maður, sem fundi situr, er
félagi á rneðan á fundi stendur, hlýt-
ir fundarstjórn og auk þess er hon-
um skylt að drekka kaffi eða te og
greiða það. Svona er þetta óformlegt
og laust í reypunum. En svo fróðleiks
fúsir hafa Eyfirðingar verið, að þeir
sækja fast Bændaklúbbsfundina. Þar
flytur að jafnaði sérfróður maður í
einhverri grein búskapar erindi, en á
eftir eru frjálsar umræður og fyrir-
spurnir. Hverskonar nýjungar eru
kynntar á þessum fundum og sjálfir
segja bændur frá dýrmætri reynslu
sinni. Má e. t. v. með nokkrum rétti
lialda því fram, að Bændaklúbbs-
fundimir séu einskonar búnaðar-
háskóli eyfirzkra bænda.
En um leið og bent er á áhuga
bænda á aukinni, frjálsri fræðslu, er
vert að vekja atliygli á hliðstæðu fé-
lagsstarfi kvenna liér á Akureyri, og
eru það konur í Hraðfrystihúsi Ut-
gerðarfélags Akureyringa, er beita
sér fyrir henni síðustu árin. Hafa
þær aðstöðu í félagsheimili Verka-
lýðsfélagsins Einingar. Maigar hús-
mæður, er viruia við fiskinn, liafa
snemma stofnað heimili, em að ala
upp böm og vinna margan dag fulla
vinnu á tveim stöðum. Innra með
sér eiga þær vakandi menntunarþiá.
Hin frjálsa fræðsla þeirra fer þannig
fram, að þær fá kunnáttumenn, svo
sem í heilbirgðismálum, fræðslumál-
um, lögreglumálum, íslenzkri tungu
o. s. frv. til að ræða við sig kvöld-
stund um þessi eða önnur ákveðin
efni og svara fjölmöigum spuming-
um.
Það gæti verið rannsóknarefni,
hvort lög og reglur og hefðbundin
form séu ekki mörgum félögum
fjötur um fót, gagnstætt því sem
íakið hefur verið að framan. □
„Þjóðin jafni
HINN 23. janúar hófst eldgos í
Heymaey í Vestmannaeyjum og
hefur gosið verið á dagskrá síð-
an. Það varð aðeins stuttan spöl
frá byggðinni á Heimaey, sem
telur nær 5.300 íbúa. Hraun
rennur þaðan í sjóinn, austur af
eyjunni, en aska og þó einkum
gjall eða vikur hefur öðru
hverju borizt yfir byggðina. Á
annað hundrað hús voru ýmist
grafin undir vikurlaginu eða
brunnin í lok janúarmánaðar.
Á meðan eldsumbrotin vara í
Vestmannaeyjum, er mörgum
hugleikið að fræðast um þessa
eyjabyggð og þessa mestu ver-
stöð landsins.
Landfræðileg einangrun, svo
og sameiginleg afstaða í atvinnu
málum, hefur sterk mótunar-
áhrif á eyjabúa og bæjarbrag
allan.
Byggð er talin hafa verið í
Vestmannaeyjum allt frá fyrsta
landnámi. Eyjarnar voru í
bændaeign fram á miðja tólftu
öld en síðan í eigu Skálholts-
stóls, en á fimmtándu öld urðu
þær konungseign og konungur
rak þar lengi alla útgerð og
verzlun. Þá réru bændur á kon-
ungsskipum og einokunarverzl-
unin var þar fyrr upp tekin en
á öðrum stöðum. Englendingar
kepptu um yfirráð í Eyjum og
leiddi það til átaka.
Árið 1627 gerðist þarna sá
hörmulegi atburður, að tyrk-
neskir sjóræningjar komu þang
að. Er talið, að íbúar hafi verið
um 500 talsins. Þar af voru 242
teknir til fanga, fluttir utan og
seldir í ánauð, en 36 voru líf-
látnir á staðnum. Stuttu síðar
var reist mikið mannvirki við
innsiglinguna, vígi eða skansinn
og stendur þar enn. Þar var um
langa hríð varðstaða. í Eyjum
starfaði um hríð heimavarðlið,
vel vopnum búið, til að geta
varist hugsanlegri innrás, en
einnig til að halda uppi lög-
gæzlu heima fyrir.
Þegar manntalið var tekið hér
á landi árið 1703 reyndust Vest-
mannaeyingar 318 talsins en um
aldamótin 1800 voru þeir 173.
Árið 1874 komust eyjarnar í
eigu Landssjóðs og voru ríkis-
eign til ársins 1960, er bæjar-
félagið keypti allt land eyjanna,
18 að tölu, af ríkissjóði. Um síð-
ustu aldamót voru Vestmanna-
eyingar um 600 talsins en hefur
fjölgað ört síðan.
Heimaey er 16 ferkílómetrar
að stærð, 6 km að lengd frá
norðri til suðurs og um 3 km
frá austri til vesturs.
Árið 1918 var stofnað Björg-
unarfélag Vestmannaeyja, sem
síðan keypti Þór, er síðar varð
fyrsta varðskip Landhelgisgæzl-
unnar, eða árið 1926. Árið 1908
var fyrsta frystihúsið tekið í
notkun í Vestmannaeyjum og
fimm árum síðar fyrsta fiski-
mjölsverksmiðja landsins. Vest-
mannaeyjaflotinn er 5 þús. rúm
lestir að stærð, nálega 80 bátar.
Viðlegupláss í höfninni er nú
orðið um hálfur annar km á
lengd.
Árið 1966 réðist bæjarstjórn
Vestmannaeyja í það stórvirki
að leiða til Vestmannaeyja vatn,
tekið úr lindum undir Eyjafjöll-
um í 210 metra hæð yfir sjó,
22 km frá sjó. Leiðin öll til Eyja
Nokkar helztu fjárveitinpr til
framkvæmda í Norðurl.kjörd. e.
Hafnarmannvirki og lendingarbætur. millj.kr.
Ólafsfjörður ........................................... 3.1
Dalvík ................................................. 5.4
Hrísey ................................................. 0.3
Árskógssandur .......................................... 4.3
Sama (ferjubryggja) .................................... 0.5
Grenivík ............................................... 2.8
Grímsey ................................................ 7.3
Húsavik ................................................12.7
Þórshöfn ............................................... 7.5
Bygging sjúkrahúsa, læknaniiðstöðva o. fl. millj. kr.
Akureyri ............................................... 5.8
Dalvík, læknamiðstöð................................... 3.0
Akureyri, læknamiðstöð, fyrri greiðsla.................. 1.5
Húsavíls ............................................... 7.0
Fyrirhleðslur. þús. kr.
Hörgá hjá Möðruvöllum.................................. 100 1
Hörgá í Hörgárdal....................................... 200
Framlög til skólabygginga. millj. kr.
Iðnskólinn á Akureyri................................. 4.0
Húsmæðraskólinn á Akureyri............................ 1.0
Húsmæðraskólinn á Laugalandi ........................... 0.5
Húsmæðraskólinn á Laugum............................... 0.3
Skóli í Svarfaðardal (skv. eldri lögum) ............... 0.3
Skóli á Svalbarðsströnd (skv. eldri lögum)............. 0.5
Kennaraíbúð á Svalbarðsströnd (skv. eldri lögum)........ 0.2
Skóli í Reykjadal (skv. eldri lögum)................... 0.3
Ólafsfjörður, gagnfræðaskóli............................ 2.0
Ólafsfjörður, heimavist................................. 1.0
Dalvík, sundlaug....................................... 0.08
Dalvík, heimavist ...................................... 2.0
Hrísey,- íbúð........................................... 0.6
Hrísey, skóli......................................... 1.0
Árskógshreppur, íbúð.................................... 1.2
Laugaland á Þelamörk....................................15.4
Akureyri, Glerárskóli................................... 9.9
Hrafnagil, gagnfræðaskóli ............................ 9.8
Stórutjamir ........................................... 12.5
Laugar, íþróttahús..................................... 9.8
Hafralækur ............................................ 10.7
Húsavík, íbúð........................................ 1.3
Húsavík, gagnfræðaskóli ............................... 2.0
Skútustaðahreppur....................................... 1.0
Lundur í Axarfirði, íbúð .............................. 0.2
Til skóla í Norður-Þingeyjarsýslu . .................... 6.0
Akureyri (nýr skóli í Lundshverfi) ..................... 3.5
tjóninu á sig
5?»
er 36 km. Heildarkostnaður við
þessa framkvæmd, að meðtöldu
dreifingarkerfi í Eyjum, var 250
millj. kr. ,
íbúar Vestmannaeyja um síð-
ustu áramót voru nær 5.300
manns. Þar eru 5 frystihús, síld
arbræðslur og beinaverksmiðj-
ur, sem nýta afla bátaflotans.
Að undanförnu hafa nágranna
þjóðir okkar á Norðurlöndum
og margar aðrar Evrópuþjóðir
boðið eða sent stjórnvöldum
landsins, Rauða krossinum og
Hjálparstofnun kirkjunnar að-
stoð vegna eldgossins í Vest-
mannaeyjum, einnig Kína og
Bandaríkjamenn. Hafa allar
þessar gjafir verið þegnar og
þakkaðar, en einnig standa yfir
viðræður um það við ýmsa gef-
endur, í hvaða formi gjafirnar
verða, svo að þær notist sem
bezt. Þá hefur söfnunum í sama
skyni verið hleypt af stokkun-
um í nokkrum löndum.
Hér innanlands hafa atburð-
irnir í Vestmannaeyjum þjapp-
að þjóðinni saman í eina heild
— til hjálpar. Berast daglega
fréttir af gjöfum og annarri
fyrirgreiðslu, • sem of langt mál
er upp að telja. Sýna þessi við-
brögð fólksins það betur en allt
annað, að það fylkir sér óhikað
undir það merki, sem núverandi
ríkisstjórn reisti þegar í upphafi
eldgossins, með virkum aðgerð-
um og með þeirri yfirlýsingu
forsætisráðherrans, að þjóðin
yrði öll að jafna þessu tjóni á
sig. □
SMÁTT & STÓRT
(Framhald af blaðsíðu 8)
hópur notið fyrirgreiðslu lands-
hátíðarnefndar og ætti sú mót-
taka að vera auðveld, niiðað við
það, að fóllti af öllu landinu sé
steínt til Þingvalla í einu. Hér-
aðahópar myndu betur njóta
Þingvalla og allrar ferðar, svo
og fróðleiks og fylgdar kunn-
áttumanna í hóflegu fjöhnenni,
en í martröð gífurlegs fjölmexm-
is. Og kostnaður og áhætta
væri hverfandi, miðað við nú-
verandi áætlun.
REISN YFIR ÞEIM ALDNA
Eldgosið í Vestmannaeyjum hef
ur snert viðkvæman streng í
brjósti hvers íslendings og sam-
einað alla landsmenn. Hingað á
skrifstofu Dags kom gamall og
lúinn sveitamaður nýlega, mjög
fátækur. Hann lagði frá sér staf
sinn, tók upp veski sitt og bað
fyrir fimm þús. kr. í Vestmanna
eyjasöfnunina. Vera má, að
þessi gamli maður sé fátækastur
allra í sinni sveit, af fimm þús-
und króna seðlum og öðrum
veraldarauði. En ef allir eiga
jafn mikla eða meiri reisn og
hann, og hafa auk þess lijartað
á réttum stað, mun ekki þurfa
að hafa miklar áhyggjur af and-
legri heilsu fólks í lians heima-
byggð eða minnkandi mann-
kostum.
KARDIMOMMUBÆR
Hið ágæta barnaleikrit, Kardi-
mommubærinn, er sýndur á
Akureyri þessar vikurnar. Hér
var verkefni svo vel valið, að
það eitt á að vekja athygli, og
meðferð efnisins er á þann veg
að allri gerð, sem bezt má vera,
við hæfi barna. Ekki er unnt
með góðri samvizku að hvetja
fólk ákaflega til að sjá hin ýmsu
og misjöfnu leikhúsverk hjá
Leikfélagi Akureyrar, þótt oft
hafi vel tekizt. En Kardi-
mommubæ eiga sem allra flest
börn að sjá. Sagan um Kardi-
mommubæinn er mjög góð, leik
ritið ekki síður, með sínum
skemmtilegu söngvum, dýrum
og svo skemmtilcgu fólki. Ég
minntist víst á það áður, að for-
eldrar ættu að lofa börnum sín-
um að sjá Kasper, Jesper og
Jónaton, Soffíu frænku og alla
aðra ágæta íbúa Kardimoniniu-
bæjar, og minni nú á það á ný.
Kiwaiiisbingóið gaf 140 þúsund kr. hagnað
KIWANISKLÚBBURINN Kald
bakur á Akureyri stóð fyrir
bingói þann 4. febrúar sl. Þátt-
taka var mjög góð og komust
færri að en vildu.
Vinningar voru: 4 utanlands-
ferðir með Ferðaskrifstofunni
Sunnu og 4 farseðlar Ak—Rvík
—Ak. með Flugfélaginu.
Vill klúbburinn þakka öllum
þeim, sem aðstoðuðu liann á
einn eða annan hátt við fjár-
Yeruleg hækkun raforkuverðins
á Ákureyri nu á þessu ári
SEGIR SIGURÐUR JÓHANNESSON
STJÓRNARFORMAÐUR RAFVEITUNNAR
HINN 6. febrúar var til af-
greiðslu hjá bæjarstjórn Akur-
eyrar fjárhagsáætlun Rafveitu
Akureyrar fyrir árið 1973. í
áætluninni er gert ráð fyrir
20% hækkun á gjaldskrá Raf-
veitunnar frá 1. marz n. k.
Blaðið fór þess á leit við Sig-
urð Jóhannesson bæjarfulltrúa,
Sigurður Jóhannesson.
sem sæti á í stjórn Rafveitunn-
ar, að hann segði í stærstu drátt
um frá málefnum fyrirtækisins,
og varð hann fúslega við því.
Hann sagði:
Gjaldaáætlun Rafveitu Akur-
eyrar fyrir 1973 er rúmar 95
millj. kr. og auk þess færast á
eignabreytingar taepar 24 millj.
kr. Er þetta 16 millj. kr. hækk-
un á gjöldum frá fyrra ári og
10 millj. kr. hækkun á eigna-
breytingaliðnum.
Veigamesta ástæða gjalda-
hækkunarinnar er væntanleg
hækkun á raforkukaupum, en
Laxárvirkjun hefur rætt um
20—22% hækkun á heildsölu-
töxtum sínum frá 1. jan. sl. að
telja. Veldur þetta a. m. k. 12
millj. kr. hækkun í raforku-
kaupum Rafveitu Akureyrar
1973.
Þá eru fyrirhugaðar að venju
miklar viðbætur við bæjarkerf-
ið og götulýsinguna. Er mikillar
fjárfestingar þörf í nýjum hverf
um bæjarins og fara stærstu
upphæðirnar í spennistöðvar,
lágspennukerfin og götulýsingu
í Gerðahverfum og Lundstún-
inu. Þá þarf einnig að breyta
Krossaneslínunni, sem er allt of
veik fyrir þá miklu orkunotk-
un, sem er í Glerárhverfinu.
Þetta allt gerir það að verkum,
að útilokað var að komast hjá
að óska heimildar til hækkunar
á orkutöxtunum um ca. 20%,
sem tæki gildi 1. marz n. k. og
gerir hún um 16% hækkun á
ársgrundvelli. Þrátt fyrir þessa
hækkun tel ég að Akureyringar
búi við gott verð á raforku, mið
að við aðra staði landsins.
Það, sem miklum áhyggjum
veldur er, ef raforka, sem við
fáum frá Laxárvirkjun, yrði
ekki nægjanleg, þannig að til
skömmtunar þyrfti að koma
lengri eða skemmri tíma. Hér er
raforka mjög mikið notuð við
upphitun íbúða, og mestur hluti
atvinnulífs bæjarins er byggður
upp á raforkunotkun. Munu fá
byggðarlög landsins vera eins
háð notkun raforkunnar til at-
vinnureksturs og Akureyri.
Það er því von mín, segir Sig-
urður að lokum, að sem fyrst
verði hægt að hefja starfrækslu
á fyrsta verkstigi Laxár 3, svo
komizt verði hjá þeirri truflun
á atvinnulífi, sem skortur á raf-
orku myndi hafa í för með sér.
Satyricon” sýnd í Borgarbíói
öflun þessa. Sérstaklega viljum
við nefna Sjálfstæðishúsið,
Sunnu og Flugfélagið.
Hagnaður varð kr. 140.009 og
hefur hann verið afhentur
Rauða krossi íslands vegna Vest
mannaeyj asöf nunar.
Að síðustu viljum við þakka
þátttakendum komuna og stuðn
ing þeirra við Vestmannaey-
inga.
(Fr éttatilky nning )
ir
BORGARBÍÓ hefur tekið til
sýninga eina frægustu mynd
ítalska snillingsins Fellinis,
Satyricon.
í „Satyricon11 greinir frá at-
burðum, sem gerast í Rómaborg
á stjórnarárum Neros keisara,
en einn samtíðarmanna hans
var rithöfundurinn Petronius
(dáinn 65 e. Kr. burð), enda
einn helzti vinur keisarans.
Hann var eins konar dómari í
smekkmálum um þær mundir
SÓÐALEGT LEIKRIT
Ymsir hafa látið í ljós andúð
sína frá því á fimmtudaginn 25.
janúar, ýmist hringt til blaðsins
eða sent línu. Sem sýnishorn af
þessu fer hér á eftir bréf frá
„konu“ í bænum:
„Fimmtudaginn 25. janúar
var flutt leikrit í útvarpinu eins
og venja er á fimmtudögum. Að
þessu sinni var það Neðanjarðar
lestin. Oftast hefur efni þessara
leikrita verið frá hinum svört-
ustu hliðum mannlífsins. Þó
mun þetta síðasta leikrit vera
eitt hið svívirðilegasta. Efni
þess verður ekki rakið hér.
Margir munu hafa hyert það,
undantekningar og það eru ekki
allir, sem leggjast svo lágt að
selja þessar vörur. Æska lands-
ins hefur ekki farið varhluta af
því yfirleitt er mikið'hlustað á
leikritin.
Útvarpsstjóri og aðrir ráða-
menn, gætið ykkar hvað þið
eruð að gera. Áhrifin frá áður-
nefndu leikriti eru mjög sið-
spillandi. Er ekki hægt að velja
til flutnings mannbætandi leik-
rit, þar sem hið fagra og góða
kemur fram, m. a. fagrar ástir
og trygg og hamingjusöm hjóna-
bönd?
Hér á landi er af miklu kappi
stunduð útgáfa klámrita og
klámrita og oftast eru þar ósið-
legar myndir. Margir sækjast
eftir þessu efni, enda er auðvelt
að fá það. Sjoppur og bóksalar
sjá um það. Þó eru heiðarlegar
þessari óheillastarfsemi fjárgráð
ugra manna, sem sumir fela sig
á bak við fögur nöfn í blöðun-
um.
Þið, sem stundið þessa spill-
ingarstarfsemi, eigið mikinn
þátt í unglingavandamálum
þjóðarinnar, ásamt leynivínsöl-
unum. Grísir gjalda, gömul svín
valda, segir málshátturinn.
Mál er fyrir ykkur, að iðrast
ykkar vondu verka og að leggja
Með hverju getur ungur maður
haldið vegi sínum hreinum?
þau nið.úr. í Biblíunni stendur:
Með því að gefa gaum að orði
Drottins. Ungu vinir, piltar og
stúlkur, athugið þetta svo að
þið verðið gæfusöm.“
(elegantiae arbiter), þegar efnt
var til samkvæma við hirðina.
Petronius lifði miklu nautnalífi,
en var jafnframt nákvæmur
embættismaður. Sagnfræðingur
inn Tacitus ritaði um hann:
„Hann eyddi nóttunum í við-
skipti og skemmtanir og hlaut
frægð fyrir aðgerðarleysi sitt,
eins og aðrir verða frægir fyrir
dugnað, en þó var hann ekki
talinn landeyða og slæpingi eins
og flestir þeirra, sem sólunda
eignum sínum, heldur snilling-
ur á sviði munaðarlífs.“
Petronius féll síðar í ónáð og
réð sér þá bana með því að opna
sér æð.
Fellini fékk þegar árið 1939
þá hugmynd, að rétt væri að
segja þessa sögu í kvikmyndar-
formi og beita því til að for-
dæma og hæða fasistastjórn
Mussolinis, en hann fékk því
ekki framgengt þá. □
Pilturinn fundinn
íslendingar rúm 210 þúsund
ELLEFU TIL EYJA
MEÐAL hinna mörgu, sem
rétta vildu hjálparhönd í Vest-
mannaeyjum, voru ellefu menn
úr hjálparsveit skáta á Akur-
eyri, sem héðan fóru á þriðju-
dagsmorgun í síðustu viku og
komu heim á sunnudaginn. Var
mikið unnið og lítið sofið, því
að þá voru enn mörg verkefni
við björgunarstörf, er vinna
þurfti. □
KONURNAR í FLSKINUM
TVO undanfarna vetur hefur
farið fram fræðslustarfsemi
kvenna í félagsheimili Verka-
lýðsfélagsins Einingar í Þing-
vallastræti 14 á Akureyri.
Áhugasamar konur, vinnandi í
Hraðfrystihúsi Ú. A., áttu þessa
hugmynd og hrundu henni í
framkvæmd. Þar sem hér er um
ýmiskonar almenna fræðslu að
ræða en ekki innanfélags- eða
flokksmál, þótti blaðinu ástæða
til að kynnast þessu nánar, leit-
aði frétta af starfsemi þessari og
fékk þá til fundar þær Soffíu
Gísladóttur og Freyju Eiríks-
dóttur, er leystu greiðlega úr
spurningum og gáfu m. a. eftir-
farandi upplýsingar:
Þessi fræðslu- og umræðu-
kvöld, sem jafnframt eru
skemmtikvöld, haldin í Þing-
vallastræti 14, hafa verið öðru
hverju tvo undanfarna vetur,
að frumkvæði nokkurra áhuga-
samra kvenna. Þau fara þannig
fram, að fenginn er einhver sér-
fróður maður til þess að ræða
við okkur um fyrirfram ákveðin
málefni hverju sinni. Og svo
fær maður sér kaffisopa til að
mýkja kverkarnar. Meðal
þeirra, sem frætt hafa okkur
eru: Magnús Ásmundsson, Þór-
oddur Jónasson og Jón Aðal-
steinsson læknar, Sverrir Páls-
son skólastjóri, Herdís Ólafs-
dóttir frá Akranesi, Guðrún
Guðvarðardóttir, Reykjavík,
Kristján Sigurgeirsson, vinnu-
hagfræðingur, Jóhann Hannes-
son fyrrum skólameistari og
Hreiðar Eiríksson garðyrkju-
maður. En allt þetta fólk hefur
veitt okkur fræðsluna án endur
gjalds. í vetur hafa þessir menn
lofað að heimsækja okkur:
Sverrir Pálsson, Þóroddur Jón-
asson, Tryggvi Gíslason skóla-
meistari, Bergur Sigurbjörns-
son framkvæmdastjóri, Ólafur
Ragnar Grímsson lektor, Gísli
Konráðsson forstjóri, Sigfríð
Einarsdóttir kaupmaður, Brynj-
ólfur Ingvarsson læknir og
Gunnar Randversson lögreglu-
þjónn.
Því er svo háttað hjá okkur,
sem vinnum í hraðfrystihúsinu,
að vinnutími er óreglulegur og
getum við sjaldnast ákveðið
stað og stund til fundarhalda
með miklum fyrirvara, og hús-
rúm takmarkar fundarsóknina.
Því þurfa þeir, sem koma vilja,
bæði konur og karlar, að láta
vita um þátttöku á skrifstofu
Verkalýðsfélagsins þegar fund-
ur hefur verið ákveðinn. En all-
ir eru velkomnir á meðan hús-
rúm leyfir.
Þessir fundir hafa tekizt svo
vel, að okkur hefur stundum
fundizt, að einn fundur væri á
við hálfs mánaðar námskeið.
Fundarsókn er misjöfn, frá 4
og upp í 40, segja konurnar.
Þess verður oft vart meðal
kvenna, sem í senn helga sig
heimilisstörfum og vinnu í verk
smiðjum eða á p.ðrum fjölmenn-
um vinnustöðum, að þær finná
hjá sér minnimáttarkend í þreyt
andi starfi heima og heiman.
Margar þeirra hafa stofnað
heimili án þess að hafa búið sig
undir önnur störf sérstaklega,
og verða því að hlýta vinhti
utan heimilis, þar sem sérmennt
unar eða góðrar almennrar
menntunar er vart krafist. En
ef á það er jafnframt litið, að
t. d. fiskiðnaðurinn er orðinn
undirstöðuatvinnuvegur fyrir
þjóðarbúið í heild, er minni-
máttarkennd ástæðulaus og sú
tilhneiging að bera ekki virð-
ingu fyrir starfinu og fyrir sjálf
um sér um leið er alveg fráleit,
enda vandséð hversu færi, ef
konur vildu ekki taka þátt í að
auka útflutningsverðmæti fiskj-
ar með starfi sínu í frystihúsum
landsins. Hvort þeirra störf þar
eru metin og borguð að verð-
leikum, skal ósagt látið. En vel
sé þeim, bæði körlum og kon-
um, sem auka vilja menntun
sína með fræðslukvöldum á
borð við þau, sem konur hafa
staðið fyrir og að framan er frá
sagt. Mætti það verða öðrum til
fyrirmyndar. Þekkingin, á
hverju sviði sem er, eykur sjálfs
traust fólks og dómgreind, eyðir
tortryggni og óvild. □
Einbýlishús í smíðum til sölu
Uppl. á Trésmíðaverkstæðinu PAN,
SÍMI 1-22-48.
Yélvirki -
Járniðnaðarmaður
Viljum ráða strax vélvirkja eða járniðnaðar-
rnann til að veita forstöðu umbúðaframleiðslu
fyrirtækisins.
Hér er um vel borgað ábyrgðarstarf að ræða, og
yrði viðkomandi sendur erlendis sér að kostnað-
arlausu til að kynnast starfsemi hliðstæðra fyrir-
tækja.
NIÐURSUÐUVERKSMIÐJA K. JÓNSSON
OG CO. h. f. - SÍMI 2-14-66.
íbúð til sölu
Til sölu er tveggja herbergja íbúð í fjölbýlishús-
inu Skarðshlíð 8—10—12. Húsið er byggt í sam-
ræmi við lög um útrýmingu heilsuspiliandi hús-
næðis og gilda reglur þeirra laga um sölu íbúð-
arinnar.
Nánari upplýsingar veitir bæjarritari.
Umsóknir um kaup á íbúðinni sendist undirrit-
uðuin fyrir 20. febrúar næstkomandi.
Akureyri, 6. febrúar 1973.
BÆJARSTJÓRI.
VIÐ FYLGJUMST MEÐ TÍMANUM:
Vorum að taka upp stórkostlega SANSUI
sendingu.
StutsuL
Ódýru LP hljómplöturnar komnar aftur,
Aðeins kr. 350.
17 GERÐIR FERÐAVIÐTÆKJA.
tfotiuba
TOSHIBA
STERO SEGULBÖND í BÍLA.
Áteknar spólur í hundraðatali.
VERIÐ VELKOMIN
VIÐG ERÐ ARSTOFA
STÉFÁNS HALLGRÍMSSONAR . Glerárgötu 32 . Sími 11626 . Akureyri