Dagur - 07.02.1973, Side 8
8
Ðaguk
/ Pósthólf 267 ■ Akureyri •
Akureyri, miðvikudaginn 7. febrúar 1973 /_
ÞJOÐLEGT
TÍMARIT
Pósthólf 267 ‘ Akureyri • Sími 96-123-31
M- -J* va
Frá vinstri: Halla Jónasdóttir, Rafn Arnbjörnsson, Ómar Ambjörnsson og Anton Angantýsson. (Páll)
„Þrír skálkaf frumsýndir á Dalvík
Dalvík 5. febrúar. Leikfélag Dal
víkur frumsýndi „Þrjá skálka“
á laugardaginn undir leikstjórn
Jóhanns Ogmundssonar frá
Akureyri. Var leiknum mjög
vel tekið. Onnur sýning var á
sunnudagskvöldið og næstu sýn
ingar verða í kvöld, miðviku-
dag, og svo á föstudag kl. 21.00.
Helztu leikarar eru: Bragi Jóns
son, Halla Einarsdóttir, Jóhann
Friðgeirsson, Omar Arnbjörns-
son, Rafn Arnbjörnsson, Anton
Angantýsson og Halla Jónas-
dóttir.
Bridgefélag Dalvíkur og ná-
grennis keppti við starfsmenn
KEA á Akureyri á sex borðum
nýlega, og unnu með 75:45 stig-
um. Keppnin fór fram í Víkur-
röst á Dalvík.
Um fyrri helgi bauð Lions-
klúbbur Dalvíkur og kvenfélög-
in á Dalvík og í Svarfaðardal
öldruðu fólki til Víkurrastar og
héldu því ágæta skemmtun, sem
metin var að verðleikum. Þarna
varð fjölmenni.
Sjö bátar róa héðan, 5—30
tonn að stærð. Eru 4 með net og
3 með línu. Bátarnir hafa aflað
3—10 tonn í róðri og er það tal-
ið sæmilegt, og betra en oft
áður á þessum tíma árs. Björg-
úlfur aflar hins vegar heldur
lítið og Björgvin liggur hér við
bryggju, er á söluskrá.
Það slys varð á Hnjúki í
Skíðadal, að vatnsleiðsla bilaði
í fjárhúsi og drukknuðu um 20
kindur Kristins Rögnvaldssonar
bónda þar.
Síðustu sunnudagsnótt fór
bíll út af veginum við Hálsá,
sem er slysastaður. Fimm voru
í bílnum og meiddust tveir, en
ekki alvarlega. Bíllinn skemmd-
ist mikið. J. H.
Akureyrartogarar
bjindnir við bryggju
Bændaklúbbur
TOGARAVERKFALLIÐ svo-
nefnda var enn óleyst í gær.
Fjórir Akureyrartogararnir
höfðu þá þegar stöðvazt. Sá
fimmti, Sólbakur, var væntan-
legur til hafnar í gær. □
SÍÐASTA laugardag höfðu
veiðzt rúm 44 þús. tonn af loðnu
á móti 25—2G þúsund tonnum á
sama tíma í fyrra. Síðan hefur
verið aflahrota og í fyrrinótt
veiddust 11 þús. tonna veiði í
viðbót og fengu 40 bátar hana
og er það mesta loðnuveiði á
einni nóttu, sem um getur hér
við land. Á laugardagskvöldið
höfðu 50 bátar fengið afla.
Mörg skip bíða nú löndunar
á Austfjarðahöfnum og þrær
fullar, þrátt fyrir bræðslu dag
BJÖRN Brynjólfsson hjá Vega-
gerðinni á Akureyri sagði blað-
inu eftirfarandi í gær:
Þorrinn minnir á sig núna
með norðan stórhríð víða á
Norðurlandi. Á Siglufirði er
stórhríð en þó gott veður á
morgun og óveðrið nær einnig
inn í Ólafsfjörð.
I gær fóru bílar í góðu færi
Á MIÐVIKUDAGINN í síðustu
viku hélt Bændaklúbburinn af-
mælisfund á Hótel KEA. Minnt-
ist hann þar 25 ára starfs. Þang-
að kojjiu um 130 manns og undu
vel við ýmiskonar skemmti-
og nótt. Er þetta að verða eins
og á síldarárunum frægu.
Fyrsta loðnugangan er rúmar
20 sjómílur út af Eystra-Horni,
sterk ganga.
Önnur loðnugangan er 35—40
sjómílur út af Austfjörðum,
mjög mikið magn. í gær var
ekki gott veiðiveður.
Spár fiskifræðinga um miklar
loðnugöngur í ár, virðast hafa
rætzt, hversu sem fer um fram-
hald veiðanna. Q
milli Akureyrar og Austur-
lands, en í nótt varð ófært.
Hjálpartæki eru á Öxnadals-
heiði í dag og verður veginum
haldið þar opnum til kvölds.
Þar er vel fært en versta veður.
Sæmilegt er enn til Húsavík-
ur, um Dalsmynni, og einnig til
Dalvíkur. En Múlavegur er
ófær, lokaðist í nótt. □
atriði og við það að rifja upp
þá sérstæðu starfsemi, sem við
Bændaklúbbinn er kennd.
Ármann Dalmannsson stjórn-
aði þessu skemmti- og minning-
arkvöldi. Eðvarð Sigurgeirsson
sýndi gamla, eyfirzka kvik-
mynd, en að henni lokinni var
myndagetraun, sem ráðunautar
búnaðarsambandsins önnuðust.
Þá fór frú Sigríður Schiöt með
gamanvísur og öldungarnir Jón-
as Kristjánsson og Ólafur Jóns-
son fluttu ávörp. Þá var borið
fram kaffi, en að því loknu flutti
Hjörtur E. Þórarinsson ávarp
og einnig Ármann Dalmanns-
son. En þessir menn allir áttu
sinn þátt í störfum Bænda-
klúbbsins frá upphafi. Þarna
var einnig mættur Þorsteinn
Davíðsson, einn af elztu klúbb-
félögunum. Arnsteinn Stefáns-
son bóndi í Stóra-Dunhaga
flutti kvæði, sem að efni til var
fundargerð síðasta Bænda-
klúbbsfundar. Þá tók til máls
Aðalsteinn Guðmundsson frá
Flögu og að síðustu Jón Bjarna-
son frá Garðsvík og flutti mál
sitt að mestu bundið.
Upphafsmaður að stofnun
Pilturinn nú fundinn
YFIRLÖGREGLUÞ J ÓNNINN,
Gísli Ólafsson, skýrði blaðinu
frá því síðdegis á mánudaginn,
að piltur sá, er áreitti konur hér
í bæ og fyrr er frá sagt, sé nú
fundinn. Er hann 14 ára. □
lesla lccnuveioi
s
Færi að þy ngjast
SMÁTT & STÓRT
UM HEITA VATNIÐ
Nýlega ritaði Akureyringur
bréf, birt í Degi, og fór fram á
greinargerð um heitt vatn í ná-
grenni bæjarins, leit þess og
árangur. Bæjarverkfræðingur
hefur nú lofað blaðinu að gefa
yfirlit um þessi mál, er birt
verða. En margir, og einkum
bæjarbúar, munu vilja vita
meira um mál þessi en nefndur
fyrirspyrjandi, og er nú beðið
efitr greinargerð bæjarverk-
fræðings.
MISJAFNT HUGARFAR
Stjórnvöld landsins brugðust
fljótt og á myndarlegan hátt við
margþættum vanda er fylgdi
Vestmannaeyjagosinu. Forsætis
ráðherra sagði þá, að vandi
Vestmannaeyinga væri vandi
þjóðarinnar allrar, og að hann
yrði að leysa með sameiginlegri
aðstoð landsmanna allra. Sam-
kvæmt þessu hefur verið unnið.
Stjórnarandstæðingar fylgdu
stjórninni í þessu máli, en með
misjöfnu hugarfari þó, að því er
virðist. Þannig birti Morgun-
blaðið eitraðar árásargreinar á
stjórnvöld landsins og Vísir
sýndi óvenjulega rætni í sínum
skrifum. Sumir stjórnarandstæð
ingar geta ekki, jafnvel í neyð-
artilvikum, fylgt góðuin málum
lieilshugar. Þau vinnubrögð for-
dæma allir vitibornir menn.
ÖNNUR KÝRIN FUNDlN
Margar eru þær sögurnar, sem
sagðar voru um hvarf tveggja
kúa við Akureyri í haust. Margs
var til getið, enda þótti kúa-
hvarfið ekki einleikið. Og enn
25 ára
Bændaklúbbsins, eða að þeim
félagsskap er þetta nafn hlaut
síðar, var Arnór Sigurjónsson
og Helga Kristjánsdóttir kona
hans. Búnaðarsamband Eyja-
fjarðar annast nú fundina.
Litlar skráðar heimildir eru
til um þessa aldarfjórðungs
gömlu starfsemi, því að í
klúbbnum er engin gjörðabók,
enginn skráður félagi og engar
ályktanir gerðar. Starfsemi
klúbbsins hefur frá fyrstu tíð
verið fræðslustarfsemi, þar sem
sérfróður maður eða menn hafa
haft framsögu, einkum á sviði
landbúnaðar, en á eftir hafa svo
farið fram fyrirspurnir og um-
ræður. En Dagur hefur fylgzt
með þessum fundum og sagt frá
þeim flestum og er þar að finna
einskonar fundagerðir frá eldri
og yngri tíma um þessa fræðslu-
starfsemi eyfirzkra manna. □
eru sögur sagðar. En nú hefur
önnur horfna kýrin fundizt, í
lækjargili vestan við Ferða-
nesti, og var hún frá Galtalæk.
Hin kýrin, frá Hlíðarenda, hef-
ur hins vegar ekki enn fundizt.
ENGA ÞJÓÐHÁTÍÐ
Opinberlega hefur komið fram
tillaga um, að fella niður þá
miklu þjóðhátíð árið 1974, sem
verið hefur á dagskrá, og halda
á í tilefni af ellefu alda hyggð
í Iandinu. Tillögumenn, sem eru
úr kennarastétt og ekki vilja
hátíð halda, telja að þjóðin eigi
nú við þau vandamál að stríða,
er yfirskyggi nauðsynlegan
hátíðaráhuga. Mun hér átt við
Heymaeyjargos og væntanlega
endurbyggingu þar.
HÆTTUNNI BQÐIÐ HEIM
Frá sjónarmiði þess, er hér skrif
ar, er Þingvallahátíð með 60
þús. manns, svo sem rætt hefur
verið um og ráðgerð var, alveg
fráleit hugmynd eða ráðagerð
og raunar háskalegt fyrirtæki
af mörgum ástæðum. Hætturn-
ar eru: Örtröð Þingvalla, um-
ferðaröngþveiti, óheyrilegur
kostnaður við undirbúning og
alla framkvæmd og svo sú yfir-
gnæfandi og óskilgreinda hætta,
sem hér á landi er samfara
fjöldasamkomum. Og að síðustu
eru veður svo válynd hér á
landi, að af þeim ástæðum er
það mikil vogun, að stefna allt
að þriðjungi þjóðarinnar saman
á einn stað undir beru lofti.
TILLÖGUR
Vel mætti hugsa sér mikla og
veglega liátíð í hverju héraði,
og fer vel á því. En í stað þess
að flykkjast til Þingvalla, á forn
helgan og sögufrægan stað, ætti,
að liéraðshátíðum loknum, að
stefna þangað hópum, einum
hóp í einu. Akureyringar og
Eyfirðingar gætu skipulagt lióp-
ferð til Þingvalla, síðan Skag-
firðingar, þá Þingeyingar o. s.
frv., hver hópur undir traustri
fararstjórn. Syðra gæti hver
(Framhald á blaðsíðu 5)
GEFA TIL
VESTMANNAEYJA
HREPPSNEFND Svalbarðs-
strandarhrepps gekkst fyrir
söfnun þar í sveit og lagði fram
úr hreppssjóði 120 þús. kr. Fé-
lög og einstaklingar gáfu auk
þess rúm 435 þús. kr. Þar af
gáfu systkinin Sigrún og Guð-
mundur BenediktsSOn frá
Breiðabóli 100 þús. kr. fbúar
hreppsins eru 232 talsins.
Hreppsnefndaroddviti er
Hreinn Ketilsson. □
STJÓRN Elliheimilis Akureyr-
ar gerir um þessar mundir könn
un á því, hve margir ellilífeyris-
þegar og örorkulífeyrisþegar
óska að fá hjónaíbúðir í væntan
legum 16—18 íbúðum, sem í
athugun er að láta byggja við
Elliheimilið. En mjög margt
fólk er jafnan á biðlista heimilis
ins og þörf mikil á auknu hús-
næði. Fyrirhugað er, ef nægar
óskir berast, að stefna að því að
við Elðiheimiiið
hafa íbúðir þessar tilbúnar vor-
ið 1974 og yrðu þær fast að 50
fermetrar og sér inngangur í
hverja. Fólk getur tryggt sér
þessar íbúðir með ákveðnu fjár
framlagi, eftir þeim reglum, sem
stjórn Elliheimilisins setur og
Björn Guðmundsson veitir upp-
lýsingar um. Hér er um svipað
fyrirkomulag að ræða og hjá
Dvalarheimili aldraðra sjó-
manna í Reykjavík. □