Dagur - 21.11.1973, Blaðsíða 1
FILMUhúsið akureyri
Fjárbeit eins goð og verið getur
Grímsstöðum, 19. nóvember. —
Snjólaust hefur verið hér og
austur á Möðrudalsöræfi fram
að síðustu helgi, en meira snjó-
aði þar fyrir austan. En um
helgina tók að snjóa ofurlítið
og þá fór frostið upp í 24 stig,
í fyrradag, en er 15 stig í dag.
Búazt má við að bílfæri hafi
eitthvað spillzt til Mývatns-
sveitar, en á það hefur ekki
reynt ennþá því að við höfum
ekki enn farið leiðina.
ELDEYJAN SÝND í
BORGARBÍÓÍ
BORGARBÍÓ á Akureyri er að
hefja sýningar á kvikmyndinni
Eldeyjan, myndinni, sem hlaut
fyrstu verðlaun á Atlanta kvik-
myndahátíðinni í september
1973, þar sem voru sýndar yfir
tvö þúsund myndir. En þar
hlaut Eldeyjan gullið. Kvik-
mynd þessi er nú í Hollywood
á kvikmyndahátíð, en á þeirri
hátíð eru aðeins sýndar verð-
launamyndir.
Samtímis sýningu Eldeyjunn-
ar í Borgarbíói verða sýndar
myndirnar Lundatími, mynd
um veiðar og fuglalíf, sem sýnd
hefur verið víða um heim, og
Kanaríeyjar, mynd sem Flug-
félag fslands lét gera í febrúar
á þessu ári.
Myndirnar eru gerðar af Ás-
geiri Long, Páli Steingrímssyni
og Ernst Kettler. □
Flestir hafa lömb sín við hús
og byrjað er að hýsa fullorðna
féð. Beitarjörð er eins góð og
hún getur verið, föl í högum og
hr'ein jörð undir.
Við eigum eftir að byrgja
okkur upp með olíu til vetrar-
ins og gerum það senn. Olíu-
tankar við hús eru stórir og við
það miðaðir að vegir teppist á
vetrum. Auk þess er svo sölu-
olía, sem hægt er að grípa til ef
þörf krefur.
Tíðindalaust er hér um slóðir
og rólegt eins og gefur að skilja.
Búferlabreytingar eru engar
hjá okkur. Hins vegar eru nú
aðeins ein hjón í Möðrudal í
vetur og þarf víst að fara langt
aftur í tímann til samjöfnunar,
ef til er. Tveir piltar, er þarna
stunduðu búskap, eru farnir
með allt sitt. Efnahagur fólks
er sæmilegur, enda þarf svo að
vera því að margt vantar af
þeim gæðum, sem eftirsótt eru.
K. S.
Heita vatnið strevmir í
HRÍSEYINGAR verða þeir
næstu, hér á Norðurlandi, sem
hita hús sín með laugarvatni.
En það eru hin mestu hlunnindi
að virkja laugar og hveri til
upphitunar húsa á okkar kalda
landi. Húsvíkingar og Dalvík-
ingar hafa nýlega fengið hita-
Fyrsli togarinn tekinn af skrá
Á MÁNUDAG, 19. nóvember,
kl. 15.30, kom varðskipið Týr að
hópi brezkra togara að veiðum
við friðaða svæðið norður af
Kögri. Fór varðskipið að innsta
togaranum Northern Sky og gaf
honum stöðvunarmerki, gerði
staðarákvarðanir og setti út
dufl. Hin veiðiskipin, sem utar
voru, sigldu jafnframt burt.
Skipherra varðskipsins til-
kynnti togaraskipstjóranum, að
hann, samkvæmt mælingu varð
skipsins, væri 3 mílur inn á
friðaða svæðinu og væri togar-
inn því brotlegur samkvæmt
bráðabirgðasamkomulagi ís-
lendinga og Breta.
Týr náði síðan sambandi við
eftirlitsskipið Miranda, sem var
NORSKU SKIPÍ
VEITT AÐSTOÐ
í GÆR var varðskipið Þór á
leiðinni til Akureyrar með
norskt fiskiskip, sem statt var
úti fyrir Norðausturlandi í hinu
versta veðri, laskáðist og bað
um aðstoð.
Nánari fregnir af þessu tókst
blaðinu ekki að afla sér í gær,
en von var á skipunum með
kvöldinu. □
Daguk
Aukablað á laugardaginn.
á ísafirði í sjúkraflutningum og
hélt eftirlitsskipið á staðinn.
Togaraskipstjórinn neitaði því
ekki, að hann væri inni á frið-
aða svæðinu, en taldi þó, að
liann væri minna inná því en
staðarákvörðun Týs sagði til
um. Eftirlitsskipið staðfesti
staðarákvörðun varðskipsins og
er togarinn á leið til Bretlands.
Dómsmálaráðuneytið hefur
úrskurðað, að hinn brezki tog-
ari hafi gerzt brotlegur og tók
hann af skrá þeirra skipa, sem
heimild höfðu til veiða, sam-
kvæmt nýgerðu samkomulagi
við Breta. □
veitur, sem virðast ætla að
reynast hið bezta. Ólafsfirðing-
ar voru hinir fyrstu að nota
heita vatnið, síðar bættust Sauð
árkróksbúar við. Ný hitaveita
er á Hvammstanga og ráðgerð
hitaveita á Blönduósi og Siglu-
firði. Þá nýtur þéttbýliskjarni
í Mývatnssveit jarðhitans í rík-
um mæli.
Hríseyingar létu bora eftir
heitu vatni norðan við Saltnes,
svo sem einn kílómetra frá
miðju kauptúnsins, fyrir nokkr-
um árum og varð árangur góð-
ur. Nú standa málin þannig, að
búið er að leggja stofnæð frá
borholunni inn í kauptúnið og
að húsunum. En eftir er að
tengja og verður vinna við það
hafin einhvern næsta dag og
áætlað, að um helmingur hinna
80 íbúðarhúsa og vinnustaða
verði aðnjótandi jarðhitans fyr-
ir jól.
Sigurður Finnbogason, frétta-
ritari blaðsins í Hrísey, sagði
eftirfarandi á mánudaginn, um-
fram það, sem að framan grein-
ir:
Sex ár munu liðin síðan fyrst
var borað eftir heita vatninu.
í fyrravetur var svo endanlega
gengið frá því að fóðra borhol-
una. Við höfðum gamla og litla
dælu og hún skilar 4—5 lítrum
á sek. Hins vegar fáum við
stærri dælu, sem á að gefa
okkur það vatnsmagn, sem við ■
þurfum, eða 10 lítra á sekúndu.
Vatn það, sem hér um ræðir,
er 67 gráðu heitt og vatnsmagn-
ið um 16—18 sekúndulítrar.
Getum við því mætt verulegri
aukningu í þessu efni. Má því
segja, að vel hafi til tekizt, og
er þetta nú mál málanna hér í
Hrísey. Aðalæðin frá upp-
sprettu er plaströr frá Reykja-
lundi, en heim að húsunum eru
notuð stálrör.
Hríseyingar eru röskir 300
talsins, sem lifa af sjávarútvegi.
Þilfarsbátar eru 10 talsins, frá
8—50 tonn, en auk þess eru
gerðir út 5 opnir bátar, og svo
eru margir opnir vélbátar, sem
notaðir eru meira og minna, en
við getum kallað sunnudaga-
báta og eru þeir einir 15. Á
Mývatnssvcit, 20. nóvember. —
Hér er sólskin í dag og frost-
laust veður, og eru það allmikil
viðbrigði frá því sem var fyrir
og um helgina, en þá komst
frostið í allt að 26 stig. Snjór er
lítill og samgönguleiðir góðar.
Kísilgúrdælingunni úr Mý-
vatni er nýlokið, en ýmsu
merkilegu hefur verið dælt upp
úr vatninu síðan dæling hófst
fyrir sex árum. í haust tóku
dælingarmennirnir eitt sinn eft-
ir einkennilegum steinkúlum í
úrganginum, sem skilinn er frá
gúrnum. Þetta eru bláleitar,
harðar kúlur, á stærð við stór
bláber, kristallaðar að innan og
liggja eins og geislar út frá
miðju kúlunnar. Nú hefur stein-
tegundin verið ákvörðuð með
röntgen og efnagreiningu og er
þetta talið vera vivianitjárn-
fosfat, sem ekki er kunnugt að
hafi fundizt fyrr hér á landi.
Opinn hreppsnefndarfundur
um sundlaugarmál var haldinn
í Skjólbrekku 5. nóv. sl. All-
margir áheyrendur voru á hon-
um, enda nýjung hér, að al-
menningur eigi þess kost að
hlýða á hreppsnefndarfundi og
mikill áhugi meðal hreppsbúa á
þessu máli. Olli það mörgum
vonbrigðum, að þeir sem skipa
meirihluta hreppsnefndar, svör-
uðu því ekki hver stefna þeirra
væri varðandi byggingu sund-
laugar á vegum hreppsins, en
samþykktu að vísa málinu til
almenns sveitarfundar. Stefna
minnihluta hreppsnefndar er
hins vegar sú, að hreppurinn
byggi 25 metra langa sundlaug
úr steinsteypu og hús fyrir
búningsklefa og böð, er þjóni
bæði sundlaug og íþróttavelli,
sem er í byggingu við Reykja-
hlíð. Enda er þar á staðnum
mikið af heitu vatni og hreppn-
um heimilt til upphitunar án
þess að gjald komi fyrir. J. I.
(Stytt vegna þess hve fréttin
barst seint).
laugardaginn kom nýr 37 lesta
bátur frá Akureyri. Hann heitir
Haförn. Eigandi Jóhann Sigur-
björnsson. Hann fer á snurvoð,
en síðan á net.
Tekjur fólks eru viðunandi.
Sex íbúðarhús eru og hafa
verið í byggingu tvö síðustu
árin. □
Nýr sjúkrabíll
NYR og mjög vandaður sjúkra-
bíll Rauða krossins á Akureyri,
er væntanlegur til bæjarins ein
hvern næsta dag. Hann er
keyptur í Bandaríkjunum, en
búinn undir sjúkraflutninga í
Reykjavík og ekkert til hans
sparað. Bíll þessi verður til
nota fyrir bæ og nærsveitir,
sem áður, en kaupandi hans og
eigandi er Rauða krossdeildin
á Akureyri.
Sjúkrabíllinn er mjög mikið
notaður, og til marks um það
voru yfir 600 útköll á síðasta
ári og fer notkun hans vax-
andi ár frá ári.
Stjórn Rauða krossins hér
skipa: Jakob Frímannsson,
Gauti Arnþórsson, séra Pétur
Sigurgeirsson, Helga Svanlaugs
dóttir, Kristín Torberg, Gísli
Ólafsson-, Finnbogi Jónasson og
Guðmundur Blöndal, sem jafn-
framt er framkvæmdastjóri
Þórdís Tryggvadóttir
sýnir á Hótel KEA
ÞÓRDÍS Tryggvadóttir lista-
kona úr Reykjavík sýnir þessa
dagana 25 verk á Hótel KEA.
Sýningin er opin hvern dag kl.
5—10 e. h. Akureyringum er
sérstaklega bent á sýninguna,
því hún er mjög falleg og mörg
góð listaverk til sýnis og sölu. i
Myndlistafélag Akureyrar.