Dagur - 09.01.1974, Blaðsíða 1
Daguk
LVII. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 9. janúar 1974 — 1. tölublað
FISKKASS AVERKSMIÐ J A
BYGGÐA AKUREYRI?
LAGT var fram á Alþingi fyrir
jólin frumvarp til laga um, að
ríkisstjórnin beiti sér fyrir
stofnun hlutafélags er kanni
hagkvæmni og aðstæður til að
koma á fót og reka verksmiðju
til að framleiða fiskkassa, flutn-
ingspalla og aðrar sambærilegar
vörur úr plasti og stuðli að því
að slíkt fyrirtæki verði stofnað.
FRÁ LÖGREGLUNNI
RÓLEGT var og tíðindalítið á
vettvangi lögreglunnar á Akhr-
eyri um jólin og fram á gaml-
árskvöld. Sex brennur voru um
áramótin og mikill mannfjöldi
við þær og umferð alveg óvenju
lega mikil vegna þeirra, einkum
í úthverfunum, en hún gekk
slysalaust og vel. En svo voru
dansleikir síðar um kvöldið á
þrem stöðum og var þar all-
mikil ölvun, og til klukkan hálf
sex um morguninn var lögregl-
an mjög upptekin við að aka
drukknu fólki til síns heima og
fimmtán manns í fangageymsl-
ur. Fangaklefar eru 16 talsins,
þar af tveir allstórir.
Nú síðustu daga hafa nokkrir
árekstrar orðið, síðan hálkan
kom og nokkrir ölvaðir menn
verið teknir úr umferð.
Á síðasta ári voru 129 manns
teknir fyrir meinta ölvun við
akstur, þar af fáeinar konur.
(Samkv. viðtali við yfirlög-
regluþjón).
f greinargerð segir, að fisk-
kassar séu nú fluttir inn í stór-
um stíl fyrir íslenzka fiskiskipa-
flotann, og nú á síðasta ári 150
þúsund kassar og kosti hver
kassi um eitt þúsund krónur.
Frumvarpið virðist gera ráð
fyrir, að verksmiðjan verði reist
á Akureyri, og hefur undir-
búningsnefnd fastlega mælt
með því, að nýtt verði reynsla
Plastiðju Bjargs. Og í því sam-
bandi er bent á Krossanesverk-
smiðju, er leyst gæti úr geymslu
vöntun.
Verksmiðjan verður væntan-
lega reist norðan Glerár, Jiótt
henni hafi ekki enn verið mark-
aður ákveðinn staður. □
Friðbjarnarliús á Akureyri.
(Ljósm.: E. D.)
Góðtemplarareglan 90 ára
UM þessar mundir eru liðin 90
ár síðan Góðtemplarareglan á
íslandi hóf störf sín. Norðmað-
urinn Ole Lied stofnaði fyrstu
stúkuna, ísafold nr. 1, í Frið-
bjarnarhúsi á Akureyri 10. jan.
1884 með 12 félögum. Nú er
þetta hús í eign Reglunnar og
hefur verið gert að minjasafni.
Eftir síðustu aldamót var
Reglan mjög sterkur félagsskap
ur hér í bænum. Þá reistu templ
arar á Akureyri Samkomuhús-
ið, núverandi leikhús bæjarins,
og sýndi það mikinn stórhug.
Nú er miðstöð þessa bindindis
FUGLARNIR TALDIR
FUGLAR eru taldir víða hér á Teistur ... 23
landi síðasta sunnudag ársins Hrafnar ... 157
og svo var að þessu sinni. En Gráþröstur ... 1
með talningu Joessari eiga sveifl Skógarþrestir .... ... 67
ur í fuglastofnum þeim, sem Auðnutittlingar ... ... 18
hér dvelja á vetrum, að koma Snjótittlingar ... 820
starfs í Hótel Varðborg, þar
sem stúkurnar hafa fundi sína.
Reglan rekur nú þrjár stofnanir
í bænum: Bindindishótelið Varð
borg, Borgarbíó og Flugkaffi.
Auk Jsess á hún Friðbjarnarhús
og Bókasafn I.O.G.T., en þar
eru mörg fágæt bindindisrit,
sem ekki eru til í almennum
bókasöfnum.
Góðtemplarareglan er ein-
hver merkasta félagsmálahreyf-
ing, sem hingað hefur borizt, og
leitast við að vinna bug á alda-
gömlum lesti þjóðarinnar.
Þar sem þetta afmæli er ekki
aðeins afmæli Reglunnar, held-
ur einnig fyrstu stúkunnar, ísa-
foldar nr. 1, verður þess sér-
staklega minnzt hér á Akur-
eyri og er von á nokkrum gest-
um hingað af þessum ástæðum,
Jaar á meðal framkvæmdanefnd-
ar Stórstúku íslands. Föstudag-
inn 11. janúar verður hátíða-
fundur í st. Ísafold-Fjallkonan
nr. 1 í Varðborg, laugardaginn
12. jan. verður samkoma, Jjar
sem Reglunnar verður sérstak-
lega minnzt og stórtemplar
Ólafur Þ. Kristjánsson flytur
aðalræðuna. Þar mun Guðrún
Á. Símonar óperusöngkona
syngja og Jón Gunnlaugsson
leikari skemmta. Sunnudaginn
13. janúar kl. 10.30 verður
skemmtun fyrir börn úr barna-
stúkum bæjarins í Borgarbíói,
J^ar sem sömu lista- og skemmti
kraftar að sunnan munu
skemmta börnunum.
Á Akureyri var vagga Regl-
unnar á íslandi og héðan breidd
ist hún út um landið. Nú eru
hér þrjár stúkur starfandi fyrir
fullorðna og þrjár barnastúkur.
(Fréttatilkynning)
SAMIÐ UM
FISKVERÐIÐ
Á FUNDI verðlagsráðs sjávar-
útvegsins í fyrrinótt var sam-
Jjykkt, að almennt fiskverð
skyldi hækka um 11.5% frá því
lágmarksverði, sem gilti til ára-
móta. Gildir hið nýja lágmarks-
verð frá 1. janúar til 31. maí
1974.
fram.
Þeir, sem fuglatalningu önn-
uðust á Akureyri að Jjessu sinni
voru: Jón Sigurjónsson, Árni
Björn Árnason og Þorsteinn
Þorsteinsson. Svæðið, sem talið
var á, var frá flugvelli að
Skjaldarvík, fjörur, húsagarðar,
lönd og lendur bæjarins. Snjór
var nokkur en Pollurinn íslaus
þann daginn.
Til fróðleiks má geta þcss, að
árið 1972 töldust 54 fuglateg-
undir á landinn öllu, samkvæmt
talningu fyrir rúmu ári.
Tuttugu tegundir fugla sáust
og er Jiað venju fremur mikið.
Fara tegundir og fjöldi einstakl-
inga hér á eftir:
MannlíliS er ælíS frásagnarverl
Stokkendur 232
Húsönd 1
Hávellur ,. .. . 54
Æðarfuglar 503
Gulendur 6
Toppendur 6
Fáíki 1
Smyrill 1
Sendlingar 6
Silfurmávar 53
Svartbakar 172
Hvítmávar 8
Bjartmávar . ..,
Hettumávar ,...,
UNDAN því hefur stundum
verið kvartað, að Dagur flytti
fáar fréttir úr hreppunum þrem
ur framan Akureyrar, og mun
það rétt vera. Hefur blaðinu
jafnan reynzt örðugt að fá frétta
menn í þessum hreppum og
þarf að taka málið til endur-
skoðunar. Mcnn segja, að „þar
gerist aldrei neitt“. Þetta er
hinn mesti misskilningur, því
að mannlífið í hverri sveit og
hvar sem er, er ætíð frásganar-
vert.
Héraðssamband eyfirzkra
kvenna hafði sýnikennslu í mat
reiðslu í Húsmæðraskólanum á
Laugalandi fyrr í vetur. Stjórn-
aði Guðríður Eiríksdóttir skóla-
stjóri henni. Kom Jiangað margt
kvenna víða úr héraðinu og
þótti sýnikennslan takast vel.
Kvenfélagið Iðunn í Hrafna-
gilshreppi gekkst fyrir leikfimi-
námskciði húsmæðra, sem hald-
ið var einu sinni í viku með
góðri þátttöku. Kennari var
Margrét Rögnvaldsdóttir frá
Akureyri en námskeið þetta var
haldið í Laugarborg og var það
allvel sótt.
Bændur og bændasynir iðk-
uðu bridgespil einu sinni í viku
og byrjuðu snemma vetrar,
einnig í Laugarborg. Öll félags-
starfsemi fer fram í félagsheim-
ilinu Laugarborg og er aðstaðan
J^ar hin ákjósanlegasta. Hrafna-
gilsskóli hefur einnig afnot af
félagsheimilinu, sérstaklega
hvað fimleikakennslu snertir,
þar sem enn vantar leikfimihús
við skólann.
Kirkjukórarnir við Grundar-
kirkju og Saurbæjarkirkju
æfðu mikið fyrir jólin og sungu
hátíðasöngva séra Bjarna í
mcssum í kirkjum og í Krist-
neshæli. Stjórnandi er frú Sig-
ríður Schiöth í Hólshúsum.
Halldór Friðriksson frá Hleið-
argarði var jarðsunginn í Saur-
bæ 2. janúar. En hann var lengi
meðhjálpari og starfaði einnig í
kirkjukórnum.
Fyrir nokkrum dögum var
jarðsungin í Miklagarði í Saur-
bæjarhreppi Sigríður Jónsdóttir
frá Hlíðarhaga. Hún hafði óskað
að hvíla í gamla kirkjugarðin-
um í Miklagarði, en Jiar var
kirkja aflögð 1923.
Jólatrésskemmtanir f y r i r
börn voru haldnar í Sólgarði og
í Laugarborg, eins og venja er,
en jólaskemmtun fyrir full-
orðna var haldin í Laugarborg.
Þar var leikinn stuttur sjón-
leikur, spurningakeppni fór
fram, síðan sungið og dansað. □
Ennfremur var ákveðið, að
lágmarksverð á loðnu til fryst-
ingar skuli vera kr. 13,60 hvert
kíló. Miðast verðið við þá loðnu,
sem nýtist til frystingar og gild-
ir frá byrjun loðnuvertíðar til
28. febrúar 1974. Lágmarksverð
á ferskri loðnu til beitu og fryst
ingar var ákveðið 9 kr. hvert
kíló og gildir það verð á loðn-
unni upp til hópa og gildir til
15. maí 1974.
Verðákvarðanir þessar voru
teknar með fimm samhljóða
atkvæðum í verðlagsráði, en í
Jjví áttu sæti: Jón Sigurðsson
hagrannsóknarstjóri, sem var
oddamaður, Árni Benediktsson
og Eyjólfur ísfeld Eyjólfsson
fyrir hönd síldarkaupenda og
Tryggvi Helgason og Kristján
Ragnarsson af hálfu seljenda.
Lágmarksverð til frystingar í
fyrra var 7 krónur og á loðnu
til beitu og frystingar 6 krónur
kílóið.
Líklegt er talið, að vertíð
muni nú geta hafist. □
Fmsóknariðlk Ákureyri
FUNDUR verður haldinn á
Hótel KEA mánudaginn 14.
janúar n. k. og hefst hann
klukkan 8.30.
Ingvar Gíslason alþingismað-
ur flytur þar ræðu um störf
Alþingis og stjórnmálaviðhorf-
ið. Aðrir þingmenn flokksins og
varaþingmenn kjördæmisins
munu einnig mæta og má þvi
búast við ágætum fundi, ekki
sízt þar sem fundarmönnum
gefst hið ákjósanlegasta tæki-
færi til fyrirspurna og skoðana-
skipta.
Búist er við góðri fundarsókn
úr bæ og héraði. Q