Dagur - 30.01.1974, Qupperneq 1
TILLÖGUR þingflokks Fram-
sóknarflokksins í varnarmálum
eru fram komnar. Á fundi fram-
kvæmdastjórnar flokksins 25.
janúar, er lýst fyllsta stuðningi
víð þær, en varað við undir-
skriftum um varnarmálin.
Utanríkisráðherra hefur lagt
fram í ríkisstjórninni tillögu að
viðræðugrundvelli um varnar-
málin. Tillagan felur í sér það
tvennt: Að herinn fari í áföng-
um úr landinu innan tiltekins
tíma. Jafnframt verði samið um
þá þjónustu, sem NATO fær á
Keflavíkurflugvelli, eftir að her
inn er farinn.
Með þessu tvennu er að því
stefnt, að ísland verði ekki her-
setið land um ófyrirsjáanlega
framtíð, og að landinu verði
tryggð fullnægjandi vörn með
þátttöku í NATO og eðlilegri
þjónustu þar að lútandi, án her-
setu. Varnir landsins ættu ekki
að verða minni en áður, en bil
ólíkra sjónarmiða hér á landi
brúað.
Fjöldafundir og undirskrifta-
listar hafa gert varnarrnálin að
æsingarmáli, á sama tíma og
samningar um þau við Banda-
ríkjamenn standa yfir. Þjóðar-
eining í þessu viðkvæma máli
er nauðsyn, en flokkadrættir
veikja málstað landsins. □
FRA KNATTSPYRNU-
R/ÍÐI AKUREYRAR
ÆFINGAR meistara-, I. og II.
flokks eru á mánudögum kl. 8
e. h. í íþróttavallarhúsinu og á
föstudögum kl. 8 e. h. í íþrótta-
skemmunni. □
Myndir á árshátíðinni tók Friðrik Vestmann.
Mjög myndarleg árshátíd
F ramsóknarmanna
ÁRSHÁTÍÐ Framsóknarfélag-
anna var haldin á Hótel KEA á
laugardaginn. Var þar fjöl-
menni, bæði úr bænum en ekki
síður úr hinum ýmsu nágranna-
sveitum, og var hátíð þessi hin
myndarlegasta.
Heiðursgestir voru Halldór E.
Sigurðsson fjármála- og land-
búnaðarráðherra og kona hans,
frú Margrét Gísladóttir. Þá
komu á hátíðina þingmenn
flokksins í kjördæminu og vara-
þingmenn, ásamt konum sínum.
Samkoman hófst klukkan sjö
síðdegis með borðhaldi og var
ríflega og myndarlega á borð
borið, svo sem þar er venja á
árshátíðum Framsóknarmanna.
Hal'ldór E. Sigurðsson ráð-
Hringborðsfundur haldinn á Húsavík
Húsavík, 23. janúar. Framsókn-
arfélag Húsavíkur efndi til
fundar í félagsheimilinu á Húsa
vík 14. janúar. Fundurinn var
í formi hringborðsumræðna og
til umræðu voru bæjarmálin.
Haukur Harðarson bæjarstjóri
og fulltrúar Framsóknarmanna
í bæjarstjórn, þeir Finnur
Kristjánsson og Guðmundur
Bjarnason, greindu frá helztu
framkvæmdum á vegum bæjar-
ins á yfirstandandi kjörtímabili.
Fundarmenn tóku síðan mjög
almennt þátt í umræðunum, en
framkvæmdir á vegum Húsa-
víkurkaupstaðar hafa verið
mjög miklar á kjörtímabilinu.
Ákveðið er að halda annan
fund innan skamms og verður
þá rætt um framtíð bæjarins.
Sigurður Pálsson í Skógar-
hlíð í Reykjahreppi heimti af
fjalli 8. janúar sl. gimbrarlamb.
Lambið fann Tryggvi Óskarsson
frá Þverá í Reykjahreppi,
skammt norðan við bæinn, og
var það mjög styggt. í þessum
hreppi er það talið algert eins-
dæmi að fé heimtist svo seint
af fjalli, og enn furðulegra talið
vegna stórviðranna í nóvember
og desember. Lambið var í mjög
góðum holdum og hefur því
verið í ágætum haga. Gizkað er
á, að það hafi verið í sand-
græðslugirðingu, sunnan og
vestan Þeistareykja, í Reykja-
heiði, því að melgras fannst í
vöngum þess. Ærin, móðir
lambsins, hefur ekki komið
fram. Talið er að hún hafi mis-
farizt, en þó áður verið búin að
koma lambi sínu til byggða. Þ.J.
herra flutti ræðu, sló bæði á
streng'i gamans og alvöru og
var henni ágætlega tekið. Þá
fóru þau frú Sigríður Schiöth í
Hólshúsum og Þórir Valgeirs-
son bóndi í Auðbrekku með
gamanmál í bundnu og óbundnu
máli. Undirleikari var Árni
Ingimundarson, en Áskell Jóns-
son stjórnaði bæði flokkasöng
og almennum söng. Varð af því
hin bezta skemmtun þegar þing
menn og varaþingmenn voru
kallaðir upp á hljómsveitarpall-
inn til að syngja og síðan efstu
menn á lista Framsóknarflokks-
ins við bæjarstjórnarkosning-
arnar. Voru hinir síðarnefndu
taldir betri söngmenn, eða
a. m. k. betur æfðir, enda hafa
þeir, en hinir ekki, „fengið bréf
upp á það,“ að þeir hafi verið
valdir til framboðsins.
Formaður Framsóknarfélags
Akureyrar, Svavar Ottesen,
setti hátíðina og bauð gesti vel-
Áfengisneyzlan fer sívaxandi
Eru Brefsr að skipfa um skoðun?
BRETAR virðast nú vera að
skipta um skoðun í landhelgis-
málum, þegar líða fer að haf-
réttarráðstefnunni, en hún hefst
í Caracas 20. júní. Mörg af
stærri fiskveiðisamtökum í Bret
landi hafa látið í það skína und-
anfarið, að þau muni styðja
kröfuna um 200 mílna svokall-
aða fiskveiðiauðlindalögsögu.
Talsmaður sjávarútvegsmála-
ráðuneytisins í Noregi segir, að
þetta sé einfnitt sú krafa, sem
tveir þriðju hlutar þátttakenda
í hafréttarráðstefnunni muni
halda fram.
Fiskveiðisamböndin í Bret-
landi hafa áður staðið saman
um það sjónarmið, að höfin eigi
að vera öllum frjáls og hafa
ekki viljað viðurkenna annað
en hina venjulegu 12 mílna
landhelgi. Talið er að þessi
breytta afstaða eigi rætur sínar
að rekja til þorskastríðsins við
íslendinga, þar sem Bretar urðu
að slá mikið af.
Jafnframt hafa mörg samtök
gert sér grein fyrir, að Bretar
berðust fyrir vonlausum mál-
stað í fleiri þorskastríðum, þeg-
(Framhald á blaðsíðu 2)
í NÝÚTKOMNU fréttabréfi frá
Áfengisvarnarráði segir, að
heildar útsala hjá Áfengis- og
tóbaksverzlun ríkisins árið 1973
hafi verið samtals krónur
2.056.791.720,00.
Söluaukning talin í krónum
er 37.7% miðað við árið 1972,
en magnaukning var hins vegar
miklu minni, vegna hækkunar.
Áfengisneyzla á mann á síð-
asta ári var 2.50 lítrar, miðað
við 100% áfengi, en var 2.81
líter árið 1972. Árið 1965 var
áfengisneyzlan 2.50 1 pr. mann.
Útsölustaðir Áfengis- og
tóbaksverzlunar ríkisins voru
sjö talsins.
Hér á Akureyri nam áfengis-
salan rúmlega 203 milljónum
króna árið 1973 á móti 146
milljónum 1972.
Samanborið við önnur lönd
er áfengisnotkun ekki mikil hér
á landi, og notkun ekki eins
almenn, en hins vegar illa
drukkið, svo af skapast veruleg
vandamál. Áfengissjúklingar
hér skipta þúsundum og fer
fjölgandi með hverju ári.
Til fróðleiks má geta þess, að
Frakkar drekka þjóða mest
áfengi, eða 16.7 lítra á mann á
ári. En þar af ekki nema 2 lítra
af sterkum drykkjum eða
minna en íslendingar. ítalir eru
næstir í röðinni með 13.4 lítra,
Vestur-Þjóðverjar eru í þriðja
sæti með 12.3 lítra, allt miðað
við 100% áfengi. Næstir eru svo
Portúgalar, Spánverjar, Austur-
ríkismenn, Luxemborgarar og
Svisslendingar, allir með meira
en 10 lítra á mann. □
komna, en Haraldur M. Sigurðs
son var veizlustjóri. En þegar
dansinn hófst tók Baldur Hall-
dórsson við stjórninni og mátti
segja að öllum færu hlutverk
sín vel úr hendi og skörulega.
Hljómsveit liússins lék fyrir
dansinum,
Framsóknarmenn hafa árlega
sína árshátíð á Hótel KEA, og
fer það orð af þeim, að þær séu
hátíða skemmtilegastar og jafn-
an eru þær svo vel sóttar sem
húsrúm framast leyfir. Þá fer
það orð af þeim, að þar sé eng-
inn eða alveg hverfandi drykkju
skapur, sem má einnig til tíð-
inda teljast á okkar óhófsöld í
þeim efnum. Q
Ekki fær fitt-
lingur í nef sitt
Kasthvanuni í Laxárdal, 21.
janúar. Desember var kaldur
og veðravondur hér sem annars
staðar. Snjór var orðinn mikill
seinni hluta mánaðarins, ófært
með bíla í nokkra daga um og
eftir áramótin, en hefur verið
sæmilegt síðan í fyrstu viku
ársins. Þótt snjór hafi sigið fær
tittlingur ekki í nef sitt hvað þá
stærri skepnur.
Síðan um áramót hefur verið
sæmileg tíð, en þó óstillt og
hefur tíðarfarið allt yfirbragð
harðindavetrar, hríðar og spilli-
blotar á milli. Það er búið að
gefa inni í 10 vikur, og ég kalla
gott ef það verða ekki nema 10
vikur til viðbótar.
Vel sótt barnasamkoma var
eftir áramótin, síðan spilakvöld
o. fl. til skemmtunar, og „í daln
um er allt í góðu gengi.“ Við
erum að flestu leyti ánægðir
með síðasta ár, og suma þætti
þess alveg sérstaklega.
Ég sagði í nóvember, að ég
hefði vonazt eftir góðum nóv-
ember, til uppbótar á júní.
Þannig hefði það verið 1952 og
1924, en ekki 1934, eins og stóð
í Degi. G. Tr. G.