Dagur - 18.05.1974, Blaðsíða 1
ODÝRA ISLENZKA
TANNKREMIÐ
LVII. árg. — Akureyri, laugardaginn 18. maí 1974 — 18. tölublað
danm
m
FILMUhúsið akureyri
Á FUNDI bæjarstjórnar Akur-
eyrar 7. maí voru tillögur að að-
alskipulagi bæjarins, fyrir
næstu 20 ár, samþykktar sam-
hljóða. Þetta felur í sér, að til-
lögurnar eru sendar skipulags-
stjórn ríkisins til umsagnar.
Skipulagsstjórn mun leggja til-
lögurnar fram til sýnis þegkr
og ef hún er samþykk tillögun-
um fyrir sitt leyti. Að þeim tíma
loknum koma þær svo á ný
til bæjarst'jórnar, sem þá mun
staðfesta þær endanlega.
Gestur Olafsson, skipulags-
fræðingur, og teiknistofa hans
unnu að aðalútfærslu á þessu
aðalskipulagi Akureyrarkaup-
staðar, eftir að hafa kynnt sér
viðhorf bæjarfulltrúa og fjölda
annarra bæjarbúa til þeirra
mála.
Oft urðu í bæjarstjórn snarp-
ar umræður um skipulagsmál-
in, þar sem ágreiningur varð
milli bæjarfulltrúa innbyrðis og
bæjarstjórnarmanna og skipu-
lagsfræðinganna, en þó má
segja, að þessi störf hafi í heild
vel tekist og allir séu nú sæmi-
lega ánægðir með niðurstöðuna;
eins og atkvæðagreiðslan í bæj-
arstjórn um þetta mál ber með
sér.
Segja má, að aðdragandinn
að þessum skipulagsmálum hafi
verið sá, að með vaxandi um-
svifum og þenslu bæjarins á
síðustu framkvæmdaárum, hafi
skýrt komið í ljós, að þau vinnu
brögð hafi verið ótæk, að prjóna
við skipulagið smábúta, eins og
áður var gert.
í síðustu stefnuskrá Fram-
sóknarmanna á Akureyri var
sagt: Framsóknarfélögin telja
skipulagsmál bæjarins meðal
hinna mikilvægustu og leggja
áherslu á, að vel sé að þeim
unnið. Einnig má geta þess, að
Bjami Einarsson, bæjarstjóri,
hefur verið einstakur áhugamað
ur um þessi skipulagsmál. Q
Það vorar
Bátar við sjóinn. Sjúkrahúsið og fleira uppi á brekkunni.
(Ljósm.: E D..).
í Grýtubakkahreppnum
AÐALSKIPULAG
AKUREYRAR
I Það er óviðkunnanlegf I
I að menn sem safna af- ]
I kvæðum fyrir sjáifan I
I sig, séu með aðra |
S höndina á peninga- |
I kassanum. 1
Grenivík, 15. maí. — í vor hef-
ur verið mjög góður afli á línu
og á land eru komin 710 tonn
fiskjar frá áramótum, sem mun
vera meira en í fyrra. Sjöfn,
Frosti, Sævar og Víðir hafa ró-
ið með línu og svo eru nokkrir
færabátar sem hafa komið með
reytingsafla af og til. Vinna hef-
ur verið mjög mikil.
í febrúar var frystingu hætt
um tíma vegna þess, að skipt
var um gólfefni bæði í vinnu-
sal og móttöku. Þar er sett nýtt
efni frá Þýzkalandi, mjög álit-
legt. Og svo var sett upp flök-
unarsamstæða, sem var tekin í
notkun fyrir viku og lofar góðu.
í febrúar var nýtt saltfiskverk-
unarhús tekið í notkun og nú er
búið að salta yfir þrjú þúsund
pakka, sem verið er að meta.
Sauðburður gengur vel og
frjósemi ánna er mikil, svo að
flest lömb eru tvílembingar en
einnig þrí- og fjórlembingar.
JÓNAS í HVALNUM
LEIKFÉLAG AKUREYRAR
hafði sex sýningar á sjónleikn-
um Jónas í hvalnum, eftir Vé-
stein Lúðvíksson, og mun á ný
hefja sýningar að hausti. Leik-
stjóri var Þórhildur Þorleifsdótt
ir, en leikendur átta talsins.
Þessi leikur lilaut hinar bestu
viðtökur.
Vegna þess hve ásett var í
leikhúsi bæjarins um tíma, fór
leikfélagið með leikinn austur
Allf í bl 6ma
Sauðárkróki, 17. maí. — Hér er
ailt í blóma, vorið betra en
nokkru sinni fyrr og kominn
ágætur hagi fyrir allar skepnur.
Sauðburður stendur yfir, er rétt
byrjaður hjá sumum, en lengra
á veg kominn hjá öðrum og
gengur vel. Stóðhryssurnar eru
byrjaðar að kasta og hefur stóð-
ið sjaldan verið eins vel fram-
gengið og nú.
Vegir í héraðinu eru betri en
menn áður muna og sést hvergi
slakki í vegi.
. Atvinna er svo mikil hér á
Sauðárkróki, að það vantar
fólk, því vel aflast og óteljandi
önnur verkefni að vinna. í sveit
um er hið venjulega vorannríki
og munu ekki allir bændur sofa
mikið yfir sauðburðinn. G. Ó.
í Vopnafjörð og frumsýndi hann
þar, hafði svo aðra sýningu á
Þórshöfn, þá þriðju á Raufar-
höfn og síðan þrjár sýningar á
Akureyri.
Meðfylgjandi mynd var tek-
in á æfingu og er af Gesti E.
Jónsasyni og Arnari Jónssyni
í hlutverkum sínum. (Ljós-
myndastofa Páls). Q
Ásmundur Kristinsson bóndi í
Höfða fékk t. d. eina fjórlembda
og lifa öll lömbin og ganga und-
ir móður sinni. Auk þess fékk
hann þrjár þrílembdar. Sauð-
burðurinn stendur sem hæst hjá
fjármörgum bændum, en lengra
kominn hjá hinum.
Ernst Ingólfsson frá Dal á
geitur og fékk eina þeirra . þrí-
kiða. Lifa allir kiðlingarnir og
eru hinir sprækustu. Mun þetta
eitthvað sjaldgæft. Geitin átti
eina huðnu og tvo hafra.
Útlitið á minkabúinu hér í
Grenivík er með besta móti og
hefur gotið gengið vel. Því er
lokið og komnir 3700 hvolpar.
Ákveðið er hjá hreppsnefnd-
inni að leggja skólplögn eftir að-
algötunni í Grenivík og verður
skipt um jarðveg um leið, með
tilliti til malbikunar síðar. Þá
hefur hreppurinn ákveðið að
byggja verkfærageymslu, 200
fermetra, og byggja á tvær leigu
íbúðir af fimm, áætluðum, sam-
k.væmt nýjum lögum og heim-
ild'um sveitarfélaga til þess.
Verið er að vinna garðlönd og
þeir fyrstu eru farnir að setja
niður kartöflur. Þeirra á meðal
er undirritaður, er setti niður
í gær og bakið minnir mjög á
í dag. P. A.
I íbúafjöldi bæjarins
| vex nú örf. Fólkið trúir |
j Akureyri fyrir sér og [
| börnum sínum.
Kappreidar cg góðhesfakeppni
Á ANNAN í hvítasunnu, 3.
júní, verða kappreiðar og góð-
hestakeppni Léttis haldin á
skeiðvelli félagsins á bökkum
Eyjafjarðarár. Búist er við mik-
illi þátttöku, og er þegar búið
að skrá hross úr nágrannabyggð
um til hlaupa.
Gæðingar verða dæmdir eftir
hinu nýja spjaldakerfi L. H. og
munu stigahæstu hestarnir hér
verða sendir sem keppendur
Léttis á Lándsmótinu, sem einn
ig verður haldið í sumar á Vind
heimamelum í Skagafirði.
Veðbanki mun starfa í sam-
bandi við kappreiðarnar við
Eyjafjarðará, en þar verða sam-
ankomnir flestir bestu og fljót-
ustu gæðingar bæjarins og ná-
grannabyggða og engum ætti að
leiðast við skeiðvöllinn, svo
spennandi sem kappreiðar geta
orðið. □
„Gullna nliSio á Dalvík
í TILEFNI af 30 ára afmæli
Leikfélags Dalvíkur, efndi það
til sýninga á Gullna hliðinu eft
ir Davíð Stefánsson frá Fagra-
skógi og sýndi leikritið tíu sinn
um á Dalvík og hefur sýningu
í Laugarborg í kvöld, laugar-
dag, kl. 9 og á morgun kl. 4.
Leikstjóri er Jóhann Ogmunds-
son frá Akureyri. Anton Angan
týsson lék Jón, en Halla Jóns-
dóttir lék kerlingu hans. Ovin-
inn lék Ómar Arnbjörnsson,
Maríu mey lék Guðríður Ólafs-
dóttir og postulana léku Bragi
Jónsson og Rafn Arnbjörnsson.
Sýningar hófust um 20. apríl.
Stjórn Leikfélags Dalvíkur
skipa: Halla Jónsdóttir form.,
Rafn Arnbjörnsson varaform.,
Sæmundur Andersen gjaldkeri
og Guðbjörg Antonsdóttir er rit
ari. Meðstjórnandi er Dagný
Kjartansdóttir. Q