Dagur - 18.05.1974, Side 2
2
Sljórnmálaályklun Framsóknarllokksins
Jónína Sveinsdóffir
FÆDD 18. FEBRÚAR 1917 - DÁIN 9. MARZ 1974
AÐEINS ÖRFÁ KVEÐJUORÐ
STJÓRNMÁLAÁLYKTUN að-
alfundar miðstjórnar Framsókn-
arflokksins 1947 var svohljóð-
andi:
Miðstjórnarfundur Framsókn-
arflokksins fagnar þeim miklu
framförum, sem orðið hafa á
þeim þrem árum, sem ríkis-
stjórn Ólafs Jóhannessonar hef-
ur starfað.
Fundurinn þakkar ráðherrum
og þingmönnum flokksins for-
ystu þeirra í þessu starfi.
Aðalfundur miðstjórnar fagn-
ar því, að landhelgisdeilan við
Breta hefur verið leyst með
bráðabirgðasamkomulagi. Þakk-
ar fundurinn Einari Ágústssyni,
utanríkisráðherra hin mikil-
vægu störf hans í því máli, og
færir Ólafi Jóhannessyni for-
sætisráðherra þakkir fyrir ó-
metanlegan hlut hans að lausn
deilunnar.
Fundurinn lýsir eindregnum
stuðningi sínum við þann um-
ræðugrundvöll, sem Einar
Ágústsson hefur lagt fram í
varnarmálum.
Fundurinn vekur athygli á
hinni miklu breytingu, sem orð-
ið hefur á sviði efnahagsmála í
landinu á seinustu mánuðum.
Hér hefur mikil verðbólga verið
og á hún að nokkru leyti rót
sína að rekja til mikilla verð-
hækkana erlendis á helztu
nauðsynjum okkar, að nokkru
leyti til þeirra innlendu þenslu,
sem jafnan fylgir bjartsýni og
almennum framkvæmdarvilja.
Nú blasir við, að verðbólgan
muni enn færast í aukana. Ekki
hefur tekist að framkvæma þá
stefnu, sem launþegasamtökin
mótuðu áður en gengið var til
kjarasamninga og byggt var á
í samningi við opinbera starfs-
menn, að hækka fyrst og fremst
lægstu launin. — Þvert á móti
virðist launabilið hafa breikk-
að. Sú kaupmáttaraukning, sem
felst í þeim grunnlaunahækk-
unum, sem ákveðnar hafa verið
undanfarnar vikur, munu leiða
til örra og mikilla víxlhækkana
og reynast með öllu óraunhæf
og getur ekki staðist til fram-
búðar.
Verðbólgan ógnar nú afkomu
atvinnuveganna, sem eiga nú
mjög í vök að verjast vegna
þess, að verðfall hefur orðið á
helztu útflutningsafurðum okk-
ar. Forsendum batnandi lífs-
kjara er stefnt í tvísýnu. Við
þessum vanda verður að bregð-
ast án tafar.
Nauðsyn ber til að stöðva
frekari verðlags- og kaupgjalds-
hækkanir, um að minnsta kosti
sex mánaða skeið, m. a. með
bindingu kaupgjaldsvísitölunn-
ar. Á móti komi hækkaðar fjöl-
skyldubætur og auknar niður-
greiðslur vöruverðs frá því sem
áætlað var í fjárlögum, þannig
að þær haldist á núverandi
stigi, en útgjöld ríkisssjóðs verði
lækkuð til að ná jöfnuði í ríkis-
búskapnum. Jafnframt verði
gerðar ráðstafanir til að araga
úr peningaþenslu og til að auka
sparnað. Fundurinn telur rétt
að gera tilraun til að koma á
skyldusparnaði tekjuhærri ein-
staklinga, og að lánakjör verði
tekin til endurskoðunar, í því
skyni meðal annars að koma á
verðtryggingu fjárskuldbind-
inga í auknum mæli.
Með samsíilltum aðgerðum af
þessu tagi á sviði kaupgjalds-
mála, verðlagsmála, ríkisfjár-
mála og peningamála, mun gef-
ast svigrúm til þess í sumar og
haust að vinna að undirbún-
ingi og framkvæmd víðtækari
jafnvægisráðstafana í efnáhags-
málum, sem einkum hljóta að
beinast að því að ná víðtæku
samkomulagi um launa- og
verðlagsmálastefnu, sem geti til
frambúðar samrýmst því jafn-
vægi í efnahagsmálum, sem
einkum hljóta að beinast að því
að ná víðtæku samkomulagi um
launa- og verðlagsmálastefnu,
sem geti til frambúðar sam-
rýmst því jafnvægi í efnahags-
málum, en reynsla síðastliðins
vetrar sannar ótvírætt nauðsyn
slíkrar stefnumörkunar. Undir-
búningur hennar tekur óhjá-
kvæmilega nokkurn tíma og það
átand, sem skapast hefur í efna-
hagsmálum kallar á tafarlausar
aðgerðir, sem ekki þola neina
bið.
Með tilvísun þess, sem að
framan greinir, lýsir fundurinn
eindregnum stúðningi við þær
hugmyndir um viðnámsaðgerð-
ir gegn verðbólgu, sem Ólafur
Jóhannesson hefur lagt fram í
ríksstjórninni og gert grein
fyrir á miðstjórnarfundinum. —
Væntir miðstjórnin þess, að
samkomulag náist um þær í rík-
isstjórninni. Telur miðstjórn-
arfundurinn eðlilegt, að stjórnir
launþegasamtakanna og stéttar-
sambands bænda fái að fylgjast
með gangi þessa máls og væntir
fullkomins skilnings þessara að-
ila á ástandinu.
Náist ekki samstaða innan
ríkisstjórnarinnar um þessi mál,
telur fundurinn rétt, að forsæt-
isráðherra leggi fram á Alþingi
frumvarp til viðnámsaðgerða
gegn verðbólgu.
ÁI.VKTUN UM
BYGGÐAMÁLIN
MIÐSTJ.FUNDUR Framsóknar
flokksins samþykkti eftirfar-
andi um byggðamálin:
Aðalfundur miðstjórnar Fram
sóknarflokksins 1974 fagnar
mikilli atvinnuuppbyggingu
víðsvegar um landið, sem fært
hefur fólki í fjölmörgum byggð-
arlögum velmegun og bjart-
sýni í stað stopullar atvinnu og
vonleysis, sem þar ríkti fyrir
nokkrum árum. Hefur nú í
fyrsta sinn : um. áratugi orðið
hlutfallslega rneirii fólksfjölgun
á landsbyggðinni en á höfuð-
borgarsvæðinu.
Fundurinn fagnar því, að tak-
ast mun að ljúka hringveginum
um landið á þessu ári og lýsir
jafnframt ánægju sinni yfir stór
auknum framkvæmdum á sviði
vegamála, hafnarmála, heil-
brigðismála, raforku- og rafvæð-
ingarmála og annarra mikils-
verðra framkvæmda á lands-
byggðinni. Fagnar fundurinn
ötulli forystu Framsóknar-
manna í þessum málum, en tel-
ur þó, að enn beri að herða róð-
urinn og stefna að auknum jöfn-
urði, einkum á ýmsum sviðum
félagsmála, menntamála, heil-
ÚRSLIT kosninga á miðstjórn-
arfundi Framsóknarflokksins,
sem haldinn var í Reykjavík
26.—28. apríl, urðu sem hér seg-
ir:
Formaður var kjörinn Ólafur
Jóhannesson, ritari Steingrím-
ur Hermannsson og gjaldkeri
Tómas Árnason, allir endur-
kjörnir. Varamenn í sömu röð
eru: Einar Ágústsson, Jóhannes
Elíasson og Halldór E. Sigurðs-
son.
í blaðstjórn Tímans voru
kosnir þessir menn:
Ólafur Jóhannesson, Eysteinn
Jónsson, Einar Ágústsson, Stein
brigðismála og opinberrar þjón-
ustu.
Þá lýsir fundurinn ánægju
sinni yfir löggjöf um sérstaka
íbúðarbyggingaráætlun á lands-
byggðinni og með nýtt átak í
rafvæðingaráætlun dreifbýlis-
ins.
Þrátt fyrir þær staðreyndir,
er að framan greinir, telur
fundurinn enn mikil verk óunn-
in til að koma á varanlegu jafn-
vægi í byggðum landsins, með-
al annars telur fundurinn nauð-
synlegt að efla Byggðasjóð.
Fundurinn felur fram-
kvæmdastjórn að láta undirbúa
og leggja fyrir næsta flokks-
þing tillögur um, hvernig áfram
skuli stefnt að auknu byggðar-
jafnvægi.
Nýr Fokker
kominn til F. í.
HINN 7. maí kom til Reykjavík
ur Fokker Friendship skrúfu-
þota sem Flugfélag íslands hef-
ur fest kaup á og sem n úbætist
í innanlandsflugflotann. Kaupin
vrou gerð með milligöngu
norsks fjárfestingarfyrirtækis
og með ábyrgð Flugleiða h.f.
Flugvélin er af sömu gerð og
tvær fyrri Friendship skrúfu-
þotur félagsins, „Blikfaxi11 og
„Snarfaxi" að öðru leyti en því,
að á þessari nýfengnu flugvél
eru stórar vörudyr, sem auð-
velda vöruflutninga og gera
reyndar mögulegt að flytja stór
stykki. Þessi slcrúfuþota, sem
keypt var af fyrirtæki í Þýzka-
landi ber einkennisstafina TF—
FIP. Kaupverð var um 55 millj.
kr. Henni var flogið til Reykja-
vikur frá Dusseldorf með við-
komu í Glasgow. Flugstjóri var
Ólafur Indriðason .
(Úr fréttatilkynningu).
AA-samlökin
AA-SAMTÖKIN voru stofnuð
í Bandaríkjunum 1935 af tveim
drykkjusjúklingum. Var annar
skurðlæknir, en hinn stundaði
viðskipti, og voru báðir „sokkn-
ir til botns“ í drykkjuskapnum.
Þeir ákváðu að reyna að
hjálpa hvor öðrum og tókst
það. Þeir hófu síðan hjálpar-
starf undir kjörorðinu, að hver
hjálpaði öðrum. ^
Samtökin starfa nú í meira en
eitt hundrað löndum, meðal
annars hér á landi og starfa
deildir á nokkrum stöðum á
landinu, m. a. hér á Akureyri,
þótt þær vinni að sameiginlegu
vandamáli, starfa þær óháðar
hver annarri.
Venjulega eru vikulegir
grímur Hermannsson, Erlendur
Einarsson, Þorsteinn Ólafsson,
Óðinn Rögnvaldsson, Jón Kjart-
ansson og Friðgeir Björnsson.
Varamenn: Ragnheiður Svein-
björnsdóttir og Ingi Tryggvason.
í framkvæmdastjórn Fram-
sóknarflokksins voru kjörnir:
Erlendur Einarsson, Eysteinn
Jónsson, Guðmundur Þórarins-
son, Helgi Bergs, Jóhannes Elí-
asson, Jón Skaftason, Jónas
Jónsson, Ragnheiður Svein-
björnsdóttir og Þórarinn Þórar-
insson. Varamenn eru: Krist-
inn Finnbogason, Eggert Jó-
hannesson og Hannes Pálsson
útibússtjóri.
„Jónsa amma“ fór svo fljótt
frá okkur og dimmdi skjótt.
Englar vaki alla stund
yfir þeirri góðu hrund.
Ég get ekki látið hjá líða að
skrifa fáein kveðjuorð til þess-
arar vin- og venzlakonu minnar.
Mér er margt minnisstætt frá
því í fyrsta skipti, sem ég kom
á þetta heimili, Austurbyggð 4.
Það má þá fyrst nefna höfðing-
legar móttökur, einstaklega við
feldið viðmót þeirra hjóna,
Bergs og Jónínu, og svo það,
hvað börnin þeirra, sem þá voru
enn unglingar í föðurhúsum,
voru skemmtileg og foreldrum
sínum samhent í gestamóttök-
unni.
Seinna vissi ég, að þetta var
ekkert sérstalct þarna. Fram-
koma þeirra er söm og jöfn við
þá, sem að garði bera. Eru þetta
augljós áhrif frá uppeldinu. Hér
hafa foreldrar þeirra gengið á
undan með góðu eftirdæmi.
Fljótt fann maður, að fjöl-
skyldan var mikið fyrir söng og
tónlist.
Árin liðu og ég kynntist því
betur, hvað það var sérstaklega
góður andi á þessu heimili, glað
værð og gott samkomulag. Ég
held, að Jónína hafi verið óvana
lega mikill félagi barna sinna
og mikið hefur nú reynt á hana,
þar sem eiginmaður hennar var
svo mikið fjarverandi.
Við Jónína áttum sömu áhuga
málin, sem sé blessuð barna-
börnin okkar, og mörg voru sam
tölin, þar sem orðgnóttin entist
varla til að dást að þeim.
Jónína var ekki aðeins mikil
móðir og húsfreyja, hún var
líka dásamleg amma.
Mér er í minni frá því í fvrra-
fundir hjá deildunum. Engin
skilyrði eru fyrir inngöngu í
samtökin og engin inntökugjöld
eru greidd, og geta allir notið
félagsskaparins, sem löngun
hafa til að hætta að drekka.
Fjöldi manns, sennilega þús-
undir manna, hafa af eigin raun
kynnst AA-samtökunum þau
tuttugu ár, sem þau hafa starfað
hér á landi og margir unnið sig
upp úr drykkjuskapnum að
fullu. En drykkjumennirnir
verða sjálfir að koma til samtak-
anna af frjálsum og fúsum vilja,
því að það er frumskilyrði, að
þeir vilji fá aðstoð og hafi löng-
un til að losna við áfengisböl
sitt.
Hingað á skrifstofu Dags kom
kom nýlega ungur fjölskyldu-
faðir, stór maður og vasklegur.
Hann spurði hvort blaðið vildi
fyrir sitt leyti styðja við bakið
á AA-samtökunum, ef til þess
yrði leitað. Afstaða Dags til
áfengismála hefur um langt
skeið verið ljós og er óbreytt. —
Dagur er fús að ljá þeim rúm í
blaðinu, sem gegn áfengisböli
vilja vinna.
Á tuttugu ára afmæli AA-
samtakanna á íslandi, á þessu
ári, munu þau gefa út mikið
fræðslurit um áfengismálin, í
senn fræðilegt og alþýðlegt, og
ætti það að geta komið að góðu
gagni, fremur en hátíðahöld eða
annar venjulegur afmælisfagn-
aður.
Á Akureyri er sími AA-sam-
takanna 2-23-73. O
sumar einstaklega skemmtileg-
ur dagur. Ég var að passa tvær,
litlu sonardætur mínar, þadr
Guðrúnu Jónínu og Guðnýjú,
en Jónína passaði systkini
þeirra, Steingrím og óskírða,
sem síðar hlaut nafnið Hrefná.
Svo fór ég með litlu systurnar
upp í Austurbyggð að heirn-
sækja . krakkana og „Jónsp.
ömmu“, eins og þau kölluðú
hana.
Okkur var forkunnar vel tek-
ið og það var mikill fagnaðar-
fundur. Við Jónína settumst að
kaffidrykkju á sólpallinum. en
börnin léku sér í garðinum.
Þetta var fagur sumardagur og
sól skein í heiði.
Margar fleiri góðar minning-
ar koma í hugann. Stundum
sungum við saman ásamt fieir-
um og var þá hvorki hljóðfæri
né raddir sparað.
Það kom líka fyrir, að við
sungum bara tvær og vorum þá
stundum að kenna hvorri ann-
arri textana. Við vorum eins
með það að hafa jafn gaman af
lagi og texta.
Mig langar að flétta hér inn
í mín fátæklegu kveðjuorð
hinu gullfallega ljóði Elínar Ei-
ríksdóttur skáldkonu:
i
Ég minnist þín frá morgni
æskuljósum.
Ég minnist þín, er heyri ég
fagurt lag.
Ég minnist þín, er sólin sendir
ljóma
á sundin blá um heiðan vorsins
dag.
Ég minnist þín, er lít ég ljós í
glugga,
er logar út í dimmá vetrarnótt.
Ég minnist þín, er mæður börn
sín hugga.
Ég minnist þín í bænum mínum
hljótt.
Oft fannst okkur, þegar við
höfðum ekki hitzt lengi, að við
þyrftum að taka ærlegt símtal.
Núna, þegar Jónína er farin,
síma ég til hennar og veit, að
Vinir Jónínu sakna hennar
ég fæ samband.
mjög, þá vildi hún ávallt gleðja
og þeim öllum gott gjöra.
Ég hef hugsað mikið til
þeirra, sem hér eiga um sárast
að binda, en það er vandi að
vita, hvað helzt skal segja und-
ir slíkum kringumstæðum, svo
manni verður orðfátt.
En ég veit, að ástvinum Jón-
ínu er það ljóst, hvílík auðæfi
það eru, að eiga slíka minningu.
G. S. F.
Kosningar á midstjórnarfundi