Dagur - 23.10.1974, Page 1
Um fundi og lieysýni
BÆNDAKLÚBBSFUNDIR eru
nú að hefjast að nýju eftir
sumarhlé. Fyrsti fundur vetrar-
ins verður haldinn að Hótel
KEA mánudaginn 28. okt. n. k.
og hefst kl. 21.00. Frummælandi
verður dr. Björn Sigurbjörns-
son forstöðumaður Rannsókna-
stofnunar landbúnaðarins. Ræð-
ir hann um tilraunastarfsemi í
landbúnaði. Einnig mun hann
ræða nokkuð þær breytingar
sem framundan eru hér í Eyja-
firði á sviði tilrauna. Eru bænd-
ur hvattir til að mæta.
Taka á heysýnum stendur nú
yfir og eru þeir bændur sem
vilja fá tekin heysýni beðnir að
tilkynna það fyrir 31. okt. n. k.
til Búnaðarsambands Eyjafjarð-
ar, ef niðurstöður eiga að liggja
fyrir fljótlega.
Þeir sem búnir voru að leggja
inn pantanir, en hafa ekki feng-
ið tekin sýni enn, eru beðnir að
endurnýja pantanir sínar.
Þær niðurstöður sem nú
liggja fyrir benda til þess að
bæði prótein- og steinefnamagn
sé lægra en var á síðasta ári.
Frá Búnaðarsanibandi
Eyjafjarðar.
Bygging leiguíbnða
BÆJARSTJ ÓRN Akureyrar
hefur samþykkt tillögu leigu-
íbúðanefndar, að hún beiti sér
fyrir kaupum á 10 íbúðum á
þessu ári og jafnframt hefur
bæjarstjórn samþykkt áætlun
nefndarinnar um byggingar
næstu ára, samkvæmt lögum
um leiguíbúðir sveitarfélaga. í
75 félög
hafa sagf upp
SAMKVÆMT upplýsingum
skrifstofu Alþýðusambands ís-
lands mun nú láta nærri, að um
75 aðildarfélög sambandsins hafi
sent inn uppsögn kjarasamn-
inga. Uppsagnir hafa borízt frá"
flestum hinum stærri félögum
en nokkur smærri félög eiga
enn eftir að senda inn uppsagnir
samninga. Innan Alþýðusam-
bandsins eru einnig 25 sjó-
mannafélög en bréf þeirra eru
send Sjómannasambandi ís-
lands. □
Aðild ðð
Nerðurbraut hf.
AKUREYRARBÆR hefur ný-
lega samþykkt í bæjarstjórn
með 8:1 atkvæði, að gerast stofn
aðili að samtökum þéttbýlis-
staða á Norðurlandi um varan-
lega gatnagerð. Fjórðungssam-
bandið beitti sér fyrir stofnun
hlutafélagsins, sem heitir Norð-
urbraut h.f. Hlutabréf eru 10
milljónir og skiptast milli þétt-
býlisstaðanna í hlutfalli við
fólksfjölda og lengd ófrágeng-
inna gatna. Hlutur Akureyrar
verður 2,5 millj. kr. Gert er ráð
fyrir, að samvinna verði um
nauðsynleg tæki til gatnagerð-
ar, milli Akureyrarbæjar og
hins nýja félags. □
Vignir Giiðmundsson
blaðamaður látinn
VIGNIR Guðmundsson frá Mýr
arlóni við Akureyri og lengi
blaðamaður hjá Morgunblað-
inu er látinn, aðeins 48 ára.
Hann hafði átt við langvarandi
vanheilsu að stríða. □
þeirri áætlun er gert ráð fyrir
kaupum eða byggingu á 30 íbúð
um á næsta ári, og miðað við
núgildandi verðlag er kostnað-
arverð þeirra íbúða samtals um
114 milljónir kr. Til greiðslu á
árinu 1975 eiga að koma a. m. k.
60 milljónir kr., þar af á bæjar-
félagið að leggja fram 12
milljónir. En gert er ráð fyrir
að bærinn selji skuldabréf fyrir
9 millj. kr. af þeirri upphæð.
Samkvæmt lögum leggur Hús
næðismálastofnun ríkisins fram
80% af stofnverði húsanna, sem
lán til langs tíma. Að fimm ár-
um liðnum geta leigjendur
keypt íbúðir þessar með góðum
greiðsluskilmálum. □
SKlÐALYFTA IHL
f SUMAR hefur verið unnið að
því að byggja skíðalyftu í Reit-
hólum við Stromp í Hlíðarfjalli.
Lyfta þessi er staðsett á sama
stað og gamla kaðallyftan við
Stromp, en hún hefur nú verið
flutt neðar í fjallið. Nýja lyftan
er um 530 m löng og er hæðar-
mismunur í henni 200 metrar
og afköst á klst. um 350 manns.
Þessi lyfta er toglyfta og er fólk
dregið eftir snjónum á skíðum.
Lyftan er nú fullgerð og til-
búin til notkunar um leið og
nægur snjór er kominn og verð
ur hún þá formlega vígð.
Norðurverk h.f. annaðist
smíði á undirstöðum en lyftan
er að öðru leyti keypt frá sama
fyrirtæki og stólalyftan sem
fyrir er en það er fyrirtækið
Doppelmayer í Austurríki.
hér í Þistilfirði
Gunnarsstöðum í Þistilfirði, 22.
október. Slátrun sauðfjár er að
ljúka á Þórshöfn, en þar á eftir
hefst nautgripaslátrunin. Féð
reyndist mun léttara en í fyrra.
Fjárleitum er lokið á Hvamms
heiði og Dalsheiði, einnig á
Tunguselsheiði og var farið á
vélsleðum. Fundust þá 24 kind-
ur samtals. Heimtur eru ekki
slæmar, en á Langanesströnd
og í Vopnafirði berast fregnir
um lélegar fjárheimtur eða mun
lakari.
Meiri hníslasótt er í lömbum
en nokkru sinni fyrr. Einn
bóndi missti úr henni sjö lömb,
en veikin er að heita má á hverj
um bæ. Dýralæknirinn, Rögn-
valdur Olafsson, er störfum
hlaðinn, skoðar t. d. kjöt í slát-
urtíðinni á þrem stöðum: Þórs-
höfn, Vopnafirði og Kópaskeri.
Kemur dugnaður hans sér vel,
og einnig sú fyrirgreiðsla, sem
konu hans, Emelíu Kristjönu
Kristjánsdóttur frá Grímsstöð-
um, er í blóð borin.
Sjálfvirk símstöð kom hér
snemma í september og aldrei
hefur verið erfiðara að nota sím
ann hér í sveit en eftir þau um-
skipti. Átján bæir eru á einni
línu og nú í langan tíma næst
ekki í miðstöð nema margir
hringi í einu, helst ekki færri
en sex svo miðstöð heyri hring-
inguna og er þar þó ekki síma-
afgreiðslufólki um að kenna.
Suma daga næst ekki einu sinni
á milli bæja í sveitinni, og verða
menn þá að bregða fyrir sig
betri fætinum og ferðast á milli,
í stað þess að síma. Þykir okkur
þetta vægast sagt léleg þjón-
usta.
Sjómenn afla á línu og fiska
ofurlítið þegar gefur. Komið
mun á land svipað aflamagn og
þó aðeins minna en á sama tíma
í fyrra.
Ó. H.
Myndin er af endastöð nýju
skíðalyftunnar ofarlega í Reit-
hólum, í um 900 m hæð yfir sjó.
(Ljósm.: H. S.).
FRÁ LÖGREGLUNNI
Á AKUREYRI
SAMKVÆMT umsögn lögreglu
varðstjóra á mánudaginn voru
um helgina fjórir ökumenn
teknir fastir fyrir meinta ölvun
við akstur.
Á sunnudaginn varð bílvelta
í Arnarneshreppi og var hálku
um kennt. Fimm manns voru í
bílnum og meiddist enginn
alvarlega.
Að öðru leyti var fremur ró-
legt, en að venju nokkur ölvun
um þessa helgi. Q
STÚKAN BRYNJA 70 ARA
SÍÐASTLIÐIÐ laugardagskvöld
minntist stúkan Brynja nr. 99
sjötíu ára afmælis síns með há-
tíðarfundi á Hótel Varðborg.
Til fundarins var boðið, auk
Brynjufélaga, félögum stúkn-
anna ísafoldar og Akurliljunnar
á Akureyri og Norðurstjörnunn
ar á Dalvík, svo og fulltrúum
Stórstúku íslands og flciri gest-
um úr Reykjavík. Slæm flug-
æta yið Skeiðsfossvirkjun
VERIÐ er að stækka Skeiðsfoss
virkjun í Fljótum. Blaðið leitaði
upplýsinga um þetta hjá Sverri
Sveinssyni rafveitustjóra á
Siglufirði og fékk þá eftirfar-
andi upplýsingar:
Unnið er að byggingu nýrrar
stöðvar, sem verður byggð 1200
metrum neðar en núverandi
virkjun, við Fljótaá. Gamla
Skeiðsfossvirkjunin er 3,2 mega
vött en nýja virkjunin verður
1,6 megavött. Vatn til hennar er
tekið neðan við gömlu stöðina,
án stíflugerðar, og leitt í skurði
alllangt niðureftir og fæst þá 30
metra fallhæð. Unnið er við
gerð skurðarins og hefur Norð-
urverk tekið það að sér, sam-
kvæmt útboði.
Gert er ráð fyrir að nýja stöð-
in verði tilbúin eftir rúmlega
eitt ár. Jafnhliða skurðgreftrin-
um er nú unnið að byggingu
stöðvarhússins. Vélar hafa allar
verið pantaðar og verið að end-
urskoða áætlunargerð um að-
færslupípu, en þar verður valið
á milli trés og járns. Búið er að
sprengja fyrir pípuinntaki og
vann Norðurverk það og
sprengdi einnig fyrir stöðvar-
húsinu. Lyftir á Sauðárkróki og
Tréverk á Siglufirði hafa einnig
verk að vinna við þessa fram-
kvæmd.
Enn hefur ekkert fram komið,
sem valdið hefur töfum við
verkið. Unnið verður eins langt
fram á vetur og veður leyfir.
Siglufjarðarkaupstaður á
Skeiðsfossvirkjun og einnig
hina nýju rafstöð. Ætlunin er
að tengja þessa stöð Skagafjarð-
arveitu, en leiðsla liggur nú
þegar til Sléttuhlíðar og Ólafs-
fjarðar. □
skilyrði hömluðu þó, því miður,
komu sunngnmanna.
Á fundinum rakti Eiríkur
Sigurðsson sögu Brynja og
minntist stofnenda hennar og
þeirra manna sem mest og best
hafa þar unnið í þágu bindindis
og félagsmála. Þar voru einnig
flutt ávörp og kveðjur og stúk-
unni færðar ýmsar góðar gjafir.
Þrjár konur, þær Jónína
Steinþórsdóttir, Ágústa Tómas-
dóttir og Sigríður Friðriksdótt-
ir, voru gerðar að heiðursfélög-
um.
Núverandi æðstu templarar
stúkunnar eru þeir Árni Valur
Viggósson og Eiríkur Jónsson.
Stúkan heldur að jafnaði fund
annan hvern mánud. í Varðborg
16. flokksþing
ÁKVEÐIÐ hefur verið að flýta
16. flokksþingi framsóknar-
manna um einn dag frá því sem
áður hafði verið ákveðið. Hefst
þingið því kl. 10 árdegis sunnu-
daginn 17. nóvember. Verður
það haldið í veitingahúsinu
Glæsibæ. Q