Dagur - 23.10.1974, Blaðsíða 5
4
5
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar 1-11-66 og 1-11-67
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓHANN K. SIGURÐSSON
Prentverk Odds Björnssonar h.f.
...
Um raforkumál á
Norðurlandi
RAFVEITA Akureyrar synjar hús-
eigendum um raforku til húsaliitun-
ar. Ástæðan er raforkuskortur. Akur-
eyringar og fólk á því svæði, sem
orkutengt er Laxárvirkjun, horfir
fram á raforkuskort, ekki aðeins
næstu mánuði, lieldur um miklu
lengri framtíð.
íbúar í Norðurlandskjördæmi
eystra verða sem einn maður að
knýja á eins skjóta úrlausn þessara
mála og unnt er, og með lengra sjón-
armið og ört vaxandi orkunotkun í
huga. Orkuþörfin er svo aðkallandi,
að kjörorðið hlýtur að vera þetta:
Við verðum að fá aukna raforku,
hvaðan sem hún kemur. Þessi þörf
yfirskyggir allan skoðanamun um
smærri atriði málsins.
Byggðalína að sunnan gefur fyrsta
möguleika til lausnar raforkuvand-
ans á Norðurlandi. Bygging hennar
tekur eitt ár eða meira. Virkjun
Kröflu tekur lengri tíma, en jafn-
hliða byggðalínu rnilli Norður- og
suðurlands verður að standa fast að
framgangi þeirrar virkjunar. Ekki
mega deilur um eignaraðild, sein-
læti um stofnun Norðurlandsvirkj-
unar, eða önnur þau atriði, sem skoð
anir kunna að vera skiptar um, tefja
virkjun Kröflu, en undirbúningur
þeirrar virkjunar er í liöndum ríkis-
ins.
Nýlega var borað eftir lieitu vatni
í Reykjahverfi í Suður-Þingeyjar-
sýslu og kom þar upp í einni bor-
holu 42 lítrar af 125 stiga heitu vatni
á sekúndu. Beinist athygli nú mjög
að Reykjahverfi setn hugsanlegum
varntagjafa fyrir Akureyri, þótt þar
á staðnum muni notkun heits vatns
aukast mjög og sitji í fyrirrúmi.
Áður Iiöfðu nokkrar athuganir verið
gerðar á varmaveitu frá Bjarnarflagi
í Mývatnssveit. Nægur jarðhiti virð-
ist vera á báðum þessum stöðum. En
rannsókn á varmaveitu fyrir Akur-
eyri, þótt jákvæð reynist, má ekki á
neinn hátt tefja byggðalínu né raf-
orkuframkvæmdir, enda leysir heita
vatnið ekki raforku af hólmi nema
að takmörkuðu leyti.
Hér hafa aðeins verið nefnd tvö
atriði til raforkuaukningar sem á
þessum tíma sýnast líklegust til
skjótrasta úrbóta, þegar frá eru tald-
ar olíustöðvar. Hin rnörgu, norð-
lensku almannasamtök og einstakl-
ingar verða nú að setja raforkumálin
öðru ofar, þar til sigur er unninn. □
Yinnslu
Leiðrétting á atliugasemd frá Ingólfi Árnasyni
rafveitust jóra lijá Raímagnsveitum ríkisins
TAKIÐ EFTI-ft
SVO sem kunnugt er, standa
yfir margháttaðar framkvæmd-
ir á sviði mjólkurframleiðslunn-
ar í héraðinu. Vafasamt er, að
fólk almennt geri sér grein fyr-
ir, hversu gífurlega umfangs-
miklar þessar framkvæmdir
eru, og því sneri blaðið sér til
kaupfélagsstjóra Kaupfélags Ey
firðinga, Vals Arnþórssonar, til
þess að fá nánari upplýsingar
um þessar margháttuðu fram-
kvæmdir.
í hverju eru helzt fólgnar þær
miklu framkvæmdir, sem yfir
standa í héraðinu á sviði mjólk-
urvinnslunnar?
Við getum í megindráttum
skipt þessum framkvæmdum í
tvennt, annars vegar þeim, er
lúta að meðhöndlun mjólkur-
innar áður en hún berst til
mjólkurstöðvarinnar, og hins
vegar þeim, er lúta að vinnslu
mjólkurinnar hjá mjólkurstöð-
inni. í hvoru tveggja er að ger-
ast veruleg umbylting hér hjá
okkur í Eyjafirði.
Varðandi fyrra atriðið vil ég
í fyrsta lagi nefna þann veru-
lega fjölda nýrra og mjög full-
kominna fjósa, sem bændur í
héraðinu hafa verið að byggja
á síðustu árum. Auk þess að
vera mjög stór og myndarleg,
eru þessi fjós öll útbúin mjög
fullkomnum mjólkurhúsum og
yfirleitt alltaf með kælitönkum,
þangað sem mjólkin rennur
beint frá mjaltavélunum í gegn-
um rörmjaltakerfi. í öðru lagi
vil ég nefna, að fjöldi rörmjalta-
kerfa hefur á síðari árum verið
settur upp í eldri fjósum, sem
bætir mjög meðferð mjólkur-
innar. Og í þriðja og síðasta lagi
vil ég nefna tankvæðinguna,
sem að sjálfsögðu felur í sér
gjörbyltingu í geymslu og flutn-
ingi mjólkurinnar. Svo sem
kunnugt er felur tankvæðingin
það í sér, að mjólkin er geymd
heima á bæjunum í kælitönk-
um og af kælitönkunum er
henni dælt beint á geyma tank-
bifreiða, sem flytja hana til
mjólkurstöðvarinnar. Nú þegar
er búið að tankvæða Höfða-
hverfi, Svalbarðsströnd, Önguls
staðahrepp, Saurbæjarhrepp og
Hrafnagilshrepp, og á næsta ári
er áformað að Glæsibæjarhrepp
ur, Hörgárdalur og Öxnadalur
komi inn í tankvæðinguna. Nú
þegar hafa verið keyptar 4 tank-
bifréiðar til þessara flutninga
og sú fimmta bætist væntanlega
við í ársbyrjun 1975. í heild er
áætlað að tankvæðingin verði
komin um allt framleiðslusvæði
Mjólkursamlags KEA áður en
nýja mjólkurstöðin á Lunds-
túni tekur til starfa. Það hefur
þegar komið í Ijós, að gæði
mjólkurinnar halda sér betur
með þessari geymslu- og flutn-
ingaaðferð en áður var, og er
það mjög gleðilegt. Eyfirðingar
hafa haft forystu í landinu að
því er varðar gæði mjólkurinn-
ar. Sú forysta þarf að haldast og
til þess tel ég vera öll skilyrði,
m. a. vegna þeirra miklu fram-
kvæmda, sem hér hafa staðið
yfir og framundan eru.
Hvern þátt á KEA í þessum
framkvæmduni?
Bændur byggja að sjálfsögðu
fjós sín sjálfir og kaupa sín rör-
mjaltakerfi og mjólkurtanka.
Mjólkursamlag kaupfélagsins
kaupir hins vegar tankflutninga
bifreiðarnar og annast rekstur
þeirra. Hins vegar hefur kaup-
félagið sem betur fer getað að-
stoðað bændur verulega í sam-
bandi við uppbyggingu þeirra
og þá sérstaklega með lánsfjár-
SEGIR VAIUR ARNÞORSSON KAUPFELAGSSTJÓRI
fyrirgreiðslu vegna fjósbygging
anna meðan þeir bíða opinberra
lána og meðan aukin fram-
leiðsla í nýju og stærra fjósi er
að skila arði til þess að greiða
niður þann hluta fjárfestingar
innar, sem bændur ekki fá lán-
aðann úr opinberum sjóðum.
Því miður binda nú utanaðkom
andi erfiðleikar, þ. e. verðbólgu
bálið, hendur okkar verulega
umfram það sem áður var,
þannig að verulega verður að
draga úr þessari fyrirgreiðslu í
bili, einnig meðan við stöndum
í þeim gífurlegu framkvæmd-
um sem raun ber vitni á sviði
mjólkurframleiðslunnar, þ. e.
mjólkurstöðvarbyggingunni. —
Það er hins vegar ljóst, að áfram
haldandi uppbygging heima á
bæjunum er nauðsynleg þegar
litið er til lengri tíma, og von-
andi getur kaupfélagið síðar
stutt að þessum málum á svip-
aðan hátt og að undanförnu,
enda má öllum vera það ljóst,
að mjólkurbúskapurinn er ein
styrkasta stoðin undir auðlegð
Eyjafjarðar.
Viltu ræða þær forsendur,
sem liggja til grundvallar því,
að ráðist er í byggingu nýrrar
mjólkurstöðvar?
Forsendurnar eru að sjálf-
sögðu nokkuð margslungnar, en
ég skal nefna þær veigamestu.
í fyrsta lagi var núverandi
mjólkurstöð tekin í notkun
1939, þegar mjólkurmagnið var
aðeins 3—4 millj. lítra á ári. Á
síðasta ári var mjólkurmagnið
hins vegar 21—22 millj, lítra,
þannig að mjólkurstöðin er ein-
faldlega að springa á því verk-
efni, sem nú er á hana lagt. í
öðru lagi koma núverandi hús-
næðisþrengsli í veg fyrir, að
m j ólkursamlagið geti aðhæft
framleiðslu sína markaðsvið-
horfunum á hverjum tíma og
framleitt þær vörur, sem arð-
mestar eru fyrir reksturinn fjár
hagslega. Þannig neyddist sam-
lagið til þess að framleiða í
miklum mæli smjör og kasein
á síðasta ári í stað 45% feits
osts. Mjólkurmagnið, sem í
þessa framleiðslu fór, hefði skil-
að yfir 6 krónum hærri arði pr.
lítra hrámjólkur í 45% feitum
osti. Og í þriðja lagi vil ég
nefna, að byggingin verður að
teljast mjög þýðingarmikil frá
sjónarmiði landbúnaðarins í
heild og reyndar þjóðarheildar-
innar. Talsvert magn mjólkur-
vara er flutt út á ári hverju og
hefur komið í ljós, að lang arð-
vænlegasti útflutningurinn á
þessu sviði er 45% feitur Óðals-
ostur. Hann skilar um tvöfalt
hærra verði í útflutningi en
Goudaosturinn, sem hingað til
hefur verið aðal útflutningsost-
urinn. Hins vegar krefst Óðals-
osturinn, eigi að framleiða hann
í umtalsverðu magni, mun
meira húsrýmis en við nú höf-
um yfir að ráða, en nýja mjólk-
urstöðin er einmitt hönnuð með
það fyrir augum að geta ráðið
bót á þessu vandamáli. Það er
sem sagt áformað að hún fram-
leiði þennan nýja ost í veruleg-
um mæli og spari með því þjóð-
arbúinu stórar fjárhæðir miðað
við útflutning á Goudaosti. Að
lokum vil ég segja það um for-
sendur mjólkurstöðvarbygging-
arinnar, að í rauninni var að-
eins um tvennt að velja, að
byggja nýja mjólkurstöð eða
stöðva algerlega frekari þróun
mjólkurframleiðslunnar í Eyja-
firði.
Hver eru hclztu atriðin varð-
andi tæknilega hlið byggingar-
innar?
Gróft reiknað verður bygg-
ingin öll ca. 40.000 rúmmetrar,
aðalbyggingin kjallari og ein
hæð, starfsmannaaðstaða, skrif-
stofur og húsrými fyrir rann-
sóknarstofur tvær hæðir í við-
byggingu austur úr aðalbygging
unni, og svo kyndistöð, verk-
Valur Arnþórsson.
stæði o. fl. í einnar hæðar bygg-
ingu vestan við aðalbygginguna.
Stöðin öll er hönnuð af sérfræð-
ingum sænska mjólkurbúasam-
bandsins og vélar allar skipu-
lagðar af sérfræðingum Alfa-
Laval í Svíþjóð, en auk þess
njótum við aðstoðar innlendra
sérfræðinga og þá bæði verk-
fræðinga hér á Akureyri og frá
Teiknistofu Sambands ísl. sam-
vinnufélaga í Reykjavík. Stöðin
er ekki hönnuð af verulegri um
framstærð miðað við það mjólk
urmagn, sem áætlað er að henni
berist á fyrstu starfsárunum, en
henni er hins vegar þannig fyrir
komið, að auðvelt eigi að vera
að byggja við hana eftir því,
sem þörfin vex. Sjálfvirkni við
vinnslu mjólkurinnar er aukin
mjög verulega frá því sem nú
er. Slíkt er að sjálfsögðu dýrt í
upphafi, en sjálfvirknin á að
spara verulega vinnuafl í fram-
tíðinni og þannig skila sér fjár-
hagslega.
Hvað miðar framkvæmdum
og hvenær er áætlað að þeim
ljúki?
Langt er á veg komið að gera
aðalbygginguna fokhelda og er
áformað að þeim áfanga ljúki
nú fyrir áramótin, Auk þess
hafa undirstöður kyndistöðvar
og móttökupallar fyrir mjólkur
flutningabifreiðarnar verið
steyptar. Þá er búið að ganga
frá kaupum á mjólkurvinnslu-
vélunum frá Alfa-Laval og
verða þær afhentar á árinu
1975. Reiknað er með, að stöðin
fullbúin geti tekið til starfa um
áramótin 1977—78, komi ekkert
sérstakt í veg fyrir ótruflað
áframhald framkvæmda, en það
væru þá einkum hinir alvarlegu
efnahagsörðugleikar með til-
heyrandi lánsfjárskorti, sem
gætu tafið framkvæmdir.
Eru fyrirliugaðar nýjar fram-
Ieiðslutegundir í nýju mjólkur-
stöðinni?
Sannleikurinn er sá, að þrátt
fyrir þrengslin í gömlu stöðinni
höfum við verið, og erum enn,
að fikra okkur áfram með nýjar
framleiðslutegundir og nýjar
umbúðir, en á þetta verður að
sjálfsögðu hægt að leggja aukna
áherzlu í nýju stöðinni. Við höf-
um jú þegar tekið upp fernu-
pökkun á mjólk o. fl. vörum,
sem má skoðast sem hluti þeirr-
ar byltingar í meðferð mjólkur-
innar, sem áður er á minnst. Þá
höfum við þegar í nokkrum
mæli tekið upp framleiðslu á
Óðalsosti og framleiðsla youg-
urt er á næsta leiti, en hvoru
tveggja mun fá stórbætta að-
stöðu í nýju stöðinni. Má segja
að það sé meira af vilja en
mætti að farið er út í þessar
greinar framleiðslunnar í gömlu
stöðinni, en hér hjálpar einstök
ósérplægni starfsfólks samlags-
ins, sem við þröngar aðstæður
lætur ekki sitt eftir liggja að
leitast sífellt við að bæta fram-
leiðsluna. í nýju stöðinni er
áformað að framleiddur verði
rjómaís í nokkrum mæli, og
fleiri framleiðslugreinar hafa
komið til álita, sem of snemmt
er að ræða um á þessu stigi.
Svo flókin sem tæknihlið
svona stórframkvæmdar hlýtur
að vera, hýst ég við að f jármálar
hliðin sé enn flóknari, eða er
ekki svo?
Þegar ágæt aðstoð ýmiss kon-
ar sérfræðinga bætist við hæfni
og reynslu þeirra, sem fyrir dag
legum rekstri mjólkurvinnsl-
unnar standa, svo og byggingar
stjóra okkar og byggingar-
manna, má segja að tæknihliðin
sé tæpast nokkurt vandamál.
Hún krefst vissulega mikillar
athygli og umhugsunar og út-
heimtir mikið starf, en hún er
eins og hvert annað viðfangs-
efni, sem þessir aðilar eru full-
færir um að leysa. Fjárhagshlið
svona stórframkvæmdar er hins
vegar á þessum síðustu verð-
bólgutímum að verða nánast
óleysanleg krossgáta og virðist
nauðsynlegt, að opinberir aðilar
taki lánamál o. fl. atriði varð-
andi svona framkvæmdir til
algerrar endurskoðunar, eigi
uppbygging mjólkurvinnslu-
stöðva í landinu að geta átt sér
stað. Eina lánsféð, sem fáanlegt
er innanlands, er 50% lán frá
Stofnlánadeild landbúnaðarins
út á byggingarframkvæmdirn-
ar, en ckki út á vélarnar. Fyrir
u. þ. b. ári var byggingarkostn-
aður áætlaður ca. kr. 350 millj.
kr. og vélakaup 150 millj. kr.,
eða alls ca. 500 millj. kr. Nú
hefur byggingarvísitala hækkað
stórlega og gengið hefur bæði
sigið og fallið, þannig að sam-
bærilegar tölur eru nú vafa-
laust nær því að vera 460 millj.
kr. og 200 millj. kr., eða alls 660
millj. kr. Á einu einasta ári hef
ur því fjárfestingarþörfin um-
fram lán Stofnlánadeildarinnar
hækkað um hvorki meira né
minna en kr. 105 millj. og ekki
einu sinni víst, að Stofnlána-
deildin hafi peninga til þess að
svara sínum hluta. Vissulega er
hægt að fá lán erlendis til véla-
kaupanna, en þau eru þá til svo
stutts tíma yfirleitt, að greiðslu-
byrði þeirra kemur á alltof stutt
an tíma í kjölfar svo mikillar
fjárfestingar. Ég skal ekki hafa
um þetta langt mál, en vil að
lokum gera í megin dráttum
grein fyrir þeim atriðum, sem
opinberir aðilar þurfa að mín-
um dómi að taka til endurskoð-
unar til þess að greiða fyrir
svona framkvæmdum. í fyrsta
lagi þurfa lán Stofnlánadeildar-
innar að hækka í sömu prósentu
og lán Fiskveiðasjóðs til vinnslu
stöðva sjávarútvegsins, þ. e.
67%, og ná bæði til húsa og véla
eins og lán Fiskveiðasjóðs. í
öðru lagi þurfa að koma óaftur-
kræf framlög úr opinberum sjóð
um til byggingar mjólkurstöðva
í líkingu við framlög þau, sem
veitt hafa verið til byggingar
sláturhúsa, en slík framlög
koma jafnt neytendum sem
framleiðendum til góða. í þriðja
lagi þarf að örva innlög bænda
í stofnsjóði mjólkursamlaganna
með því að gera slíka stofnsjóði
skattfrjálsa til jafns við al-
menna stofnsjóði og almennt
sparifé, en reynslan sýnir að
mjög erfitt er að fá umtalsverð
framlög bænda í stofnsjóði sam-
laganna, meðan þau ekki njóta
skattfríðinda til jafns við annað
sparifé. I fjórða og síðasta lagi
tel ég svo að leyfa ætti upp-
byggingu skattfrjálsra bygg-
ingar- og endurnýjunarsjóða við
samlögin, en þetta atriði gæti
að einhverju leyti komið í stað
stofnsjóðanna, sem ég nefndi
hér á undan. Þessa, leið er mér
kunnugt um að Svíar hafa farið
og þekki ég t. d. dæmi þess, að
nýlega, er byggð var þar ný
mjólkurstöð, var helmingur
stofnkostnaðarins til í bygging-
arsjóði, sem samlagið hafði
fengið að byggja upp skatt-
frjálst. Það hlýtur að verða
miklu skemmtilegri og heppi-
legri leið að hvetja til uppbygg-
ingar eigin fjármagns en að
svona framkvæmdir þurfi að
mestu leyti að vera upp á náð
og miskunn fjárvana lánasjóða
komnar. Því vil ég í lokin leggja
áherzlu á að opnuð verði sú
leið, að byggja megi upp skatt-
frjálsa byggingar- og endur-
nýjunarsjóði við mjólkursamlög
in í landinu. Slíkt myndi koma
að ómetanlegu gagni í framtíð-
inni, þegar búið væri að byggja
upp slíka sjóði, en gagnvart yfir
standandi framkvæmdum er
það að sjálfsögðu fyrsta atriðið,
er ég nefndi, liækkun lána-
prósentunnar og lán bæði út á
hús og vélar, sem að gagni get-
ur komið, að sjálfsögðu svo að
ógleymdum óafturkræfu fram-
lögunum, segir Valur Arnþórs-
son að lokum og þakkar blaðið
hin fróðlegu svör hans. □
NÝLEGA birti Ingólfur Árna-
son, rafveitustjóri á Akureyri
athugasemdir við ályktun bæjar
stjórnar Húsavíkur frá 19. sept.
sl. um sjónvarpssendi á Húsa-
víkurfjalli.
í nafni bæjarstjórnar Húsa-
víkur geri ég eftirfarandi leið-
réttingu á athugasemdum hans
að fengnum upplýsingum frá
tæknideild Landssímans í
Reykjavík 2. þ. m.
I. Tæknideild Landssímans
sneri sér í upphafi beint til Raf-
magnsveitu ríkisins í Reykjavík
með beiðni um gerð kostnaðar-
áætlunar fyrir raflögn upp á
Húsavíkurfjall ásamt beiðni um
að framkvæma verkið.
II. Rafmagnsveitur ríkisins í
Reykjavík skiluðu kostnaðar-
áætluninni til tæknideildar
Landssímans á sl. ári og greiddi
Landssíminn Rafmagnsveitum
ríkisins í Reykjavík fyrir verk-
ið samkvæmt þessari áætlun í
júlí 1973.
Enda þótt Húsavíkurfjall sé í
landi Húsavíkurkaupstaðar, hef
ur Rafveita Húsavíkur engar
raflínulagnir í fjallinu.
Raflínan út á Tjörnes liggur
hins vegar þvert í fjallshlíðinni
ofan við bæinn og er styzt úr
þeirri línu að endurvarpsstöð-
inni.
Tjörneslínan er eign Raf-
magnsveitna ríkisins og því var
leitað til þeirrar stofnunar um
framkvæmd verksins.
Rafveita Húsavíkur var hins
vegar aldrei beðin um að fram-
kvæma þetta verk og því er
rangt að segja að hún hafi skor-
ast undan að vinna það.
Bæjarstjórn Húsavíkur harm-
ar það sambandsleysi sem virð-
ist ríkja milli aðalstöðva Raf-
magnsveitna ríkisins í Reykja-
vík og rafveitustjóra þessarar
stofnunar á austanverðu Norð-
urlandi, en til Rafmagnsveitna
ríkisins í Reykjavík hafa bæjar
yfirvöld hingað til snúið sér
með kvatanir yfir drætti á þess-
ari línulögn.
Jafnframt lýsir bæjarstjórn
Húsavíkur því yfir að athuga-
semd hennar þann 19. sept. var
ekki beint gegn neinni ákveð-
inni persónu, enda var bæjar-
fulltrúum þá ekki kunnugt um
hvað olli seinaganginum við að
leggja raflínuna upp á Húsa-
víkurfjall.
Virðingarfyllst.
Haukur Harðarson,
bæjarstjóri.
SJÁLFSBJÖRG, félag fatlaðra
Akureyri, sendir aðalfélögum
og styrktarfélögum sínum bestu
kveðjur, um leið og bent er á
jólabasar félagsins, sem halda á
um miðjan nóvember n. k. eða
um 23. nóv. i síðasta lagi. Óskað
er eftir að félagsfólk muni bas-
arinn og geri stórt átak með
stórum basar, gefa má kökur,
prjónavörur, svo og aðra góða
muni.
í stjórnarnefnd basarsins eru:
Synjað um raforku til húshifunar
ENN einu sinni hefur það skeð,
að Rafveita Akureyrar hefur
ekki séð sér fært að verða við
beiðni húseigenda um raforku
til húsahitunar. Þetta kemur
fram í fundargerð Rafveitu-
stjórnar frá 10. október sl. þeg-
ar synjað var umsókn um raf-
hitun frá 17 húsbyggjendum við
Eikarlund. Skýring á synjun-
inni er sú, að engin raforka er
til, til húsahitunar. □
Jón G. Pálsson, Skarðshlíð 16 A.
Sími: 22583. Iðunn Ágústsdóttir,
Ránargata 5. Sími: 21150. Guð-
rún S. Sigurbjarnardóttir, Odd-
eyrargata 36. Sími: 23039. Sig-
ríður Marteinsdóttir, Löngu-
hlíð 1 E. Sími: 22917. Snæfríður
Ingólfsdóttir, Ránargata 18.
Sími: 11489. Sigurbjörg Snæ-
bjarnardóttir, Skarðshlíð 21.
Sími: 21361. Margrét Antons-
dóttir, Langholti 15. Sími: 22633.
Til ofanskráðs nefndaríólks
skulu félagar og velunnarar fé-
lagsins snúa sér viðvíkjandi
basarnum. En síðar mun verða
auglýst hvenær basarinn verð-
ur haldinn, og taki fólk eftir því
í blöðunum, mun verða auglýst
snemma í nóvember n. k., og
svo nokkrum dögum fyrir bas-
ar. Höldum góðan og stóran
basar, (jólabasar).
Vinsamlegast.
Nefndin.
ALLIR sem lesið hafa Islands-
söguna með svolítilli eftirtekt,
geta með eigin augum séð,
hvernig baráttan gegn sjúkdóm-
um og fyrir bættu heilbrigði
landsmanna hefur gengið frá
öndverðu og fram á þennan
dag. Það er ástæðulaust að rifja
upp alla þá stóru sigra sem unn-
ist hafa, enn síður væri rétt að
eyða tíma og rúmi í að telja
saman einstök atriði né gera
yfirlit yfir nýjungar og fram-
farir. Fjölmiðlar nútímans sjá
sómasamlega um þær hliðar
heilbrigðisþjónustunnar. En það
sem yfirleitt alltaf er látið sitja
á hakanum, oftast verður út-
undan, sárasjaldan verið kennt
né kynnt almenningi er svo-
nefnd geðheilbrigðisþjónusta
eða almenn geðvernd í land-
inu. Ekki skal þó gert lítið úr
starfi Geðverndarfélags íslands
sem gefur út tímaritið Geð-
vernd, en fyrir utan þetta er
ekkert það til hér innanlands,
sem flokkast gæti undir skipu-
lega ahnenna fræðslu um þessi
mál.
Félagar Kiwanisklúbba um
allt land eru um þessar mundir
Fáein orð um Læknamiðstöðina
í „Degi“ 16. október er rætt um
erfiðleika á að ná símasambandi
við Læknamiðstöðina á Akur-
eyri, í grein, sem ber fyrirsögn-
ina „Aðeins einn sími“.
Læknamiðstöðin á Akureyri
er enn í mótun, þótt hún hafi
starfað í rúmlega eitt ár. Það
var fyrst hinn 1. október sl. sem
allir heimilislæknar bæjarins
voru komnir á Læknamiðstöð-
ina.
Læknamiðstöðin er því þakk-
lát fyrir allar ábendingar um
það, sem betur má fara. Lækna-
miðstöðin hefur orðið vör við
auknar kvartanir um erfiðleika
á að ná símasambandi við hana,
en þar sem telja verður hættu
á vegna fyrirsagnarinnar fyrir
greininni og óskarinnar í lok
greinarinnar að hún valdi mis-
skilningi hjá fólki á ástæðum
til þessara erfiðleika, þykir rétt
að taka fram eftirfarandi.
í upphafi voru 4 símar, 4 síma
númer á Læknamiðstöðinni.
Það leiddi til þess, að sjúkling-
ur, sem þurfti að ná til læknis
hringdi fyrst í eitt númer, ef
það var á tali reyndi hann ann-
að númer og svo koll af kolli.
Þetta þótti okkur frá upphafi
ákaflega óheppilegt fyrirkomu-
lag, og fengum okkur við fyrsta
tækifæri eitt símanúmer með 4
línum út í bæ. Það þýðir, að 4
menn geta náð samtímis í mið-
stöðina, og númerið er ekki á
tali nema allar 4 línurnar séu
uppteknar. Það er því ekki rétt,
sem segir í greininni, að símum
hafi fækkað, þeir eru jafnmarg-
ir, en símanúmerum var fækk-
að úr fjórum í eitt. Af því ætti
að vera augljóst hagræði eins
og að framan segir, og við verð-
um því að vona, að forysta síma
mála, sem Dagur heitir á, verði
ekki við þeirri ósk blaðsins að
færa í hið upphaflega horf.
Læknamiðstöðin hefur fyrir
nokkru fengið síma utan skipti-
borðs Læknamiðstöðvarinnar,
sem hugsaður er sem neyðar-
sími og jafnframt til þess að
læknar stöðvarinnar geti hringt
þaðan að einhverju leyti og létt
þannig á skiptiborðinu. Aðeins
- Landssíminn, lögreglan og lækn
ar hafa símanúmerið.
Þá hefur Læknamiðstöðin
einnig fyrir nokkru lagt inn
beiðni um skiptiborð með 6 lín-
um út í bæ og hefur símstjór-
inn tekið vel f þá beiðni og mun
hafa gert ráðstafanir til þess að
það megi verða hið fyrsta.
Á Læknamiðstöðinni starfa
nú 8 heimilislæknar, 4 fyrir há-
degi og 4 eftir hádegi. Símavið-
talstímum er þannig fyrir kom-
ið, að fleiri en 2 læknar hafa
ekki símaviðtalstíma samtímis
og hafa saman 4 línur. í síma-
viðtalstíma má því gera ráð
fyrir, að læknar séu að jafnaði
að tala á 2 linum, en tveir sjúkl-
ingar bíði. Það fer því nokkuð
eftir lengd hvers viðtals, hvað
næsti maður kemst fljótt að og
þá hvað auðvelt eða erfitt er að
ná í Læknamiðstöðina.
Afgreiðsla Læknamiðstöðvar-
innar hefur einnig þann hátt á,
ef erfiðlega gengur að ná til
læknis, að bjóða sjúklingum að
rita niður símanúmer þeirra og
láta síðan viðkomandi lækni
liringja til sjúklingsins.
Þetta eykur að sjálfsögðu enn
meira álag á símann, en er þó
bæði sjálfsögð og nauðsynleg
þjónusta við sjúklinga. Ef til
vill er rétt fyrir sjúklinga, að
nota sér það, í stað þess að bíða
lengi í símanum t. d. þegar þeim
er sagt að viðkomandi læknir sé
á tali og sjúklingar bíði.
Læknamiðstöðin mun leitast
við að fullnægja óskum sjúkl-
inga eftir mætti, og vonar, að
með væntanlegu 6 línu skipti-
borði verði auðveldara að ná
sambandi við Læknamiðstöðina
en verið hefur.
F. h. Læknamiðstöðvarinnar
Ragnar Steinbergsson.
að undirbúa víðtæka fjársöfnun
og er ákveðið að söfnunarfé
renni til geðverndarmála, en af
því tilefni hefur undirrituðum
gefist kostur á að koma eftir-
farandi á framfæri:
Er ekki kominn timi til að
stofna geðverndarfélag hér, góð
ir Akureyringar og págrannar?
Væri ekki alveg tilvalið — um
leið og við opnum budduna og
gefum aura í söfnun — að leiða
hugann um stund að því hvað
geðvernd er í raun og veru? Er
því nægilegur gaumur gefinn,
hvernig störf og verksvið geð-
verndarfélags gætu tengst ýms-
um öðrum heilsugæzluþáttum
þjóðfélagsins, bæði opinberum
aðilum og eins áhugamanna-
hópum og félagasamtökum? Við
fyrstu athugun finnst mér mjög
sennilegt að geðverndarfélag
hér í bænum gæti á mjög marg-
víslegan hátt komið til liðs við
þá sem þegar eru byrjaðir á
hjálpar- og mannúðarstörfum,
er flokka mætti undir geðvernd
í víðasta skilningi þess orðs.
Mér verður hugsað m. a. til
Félagsmálastofnunar bæjarins,
Geðdeildar F.S.A., skólasálfræði
þjónustunnar, Barnaverndar-
félagsins, AA-samtakanna og
fleiri aðila er fást beinlínis við
afleiðingar geðrænna truflana
hjá mannfólkinu. En geðvernd
er ekki fyrst og fremst hugsuð
sem þessháttar aðstoð, þótt
brýn sé. Miklu fremur hlýtur
geðvernd að beinast að því að
fyrirbyggja þær geðrænu trufl-
anir sem leika fólk það grátt að
hjálpar sé þörf. Geðvernd er
hliðstæð almennri heilsuvernd
og heilsurækt og takmarkið er
einfaldlega það að gera öllum
kleift að lifa lífi sínu þannig og
jafnframt reka áróður fyrir því
að allir hagi líferni sínu þannig,
að sem allra minnst hætta sé á
því að geðheilsa bili.
Geðvernd má skipta í 2 undir
flokka, geðvernd einstaklingsins
og geðvernd fjöldans.
Gcðvernd fjöldans beinist
annars vegar að því að styðja
og efla vísindalegar rannsóknir
á eðli allra geðrænna sjúkdóma.
Auk þess er stefnt í æ ríkara
mæli að því að minnka það and-
lega álag sem fylgir því að lifa
í nútíma þjóðfélagi. Á þeim
vettvangi má tala um langtíma-
markmið, eins og þjóðfélagsum-
bætur, t. d. jafnrétti kynjanna
og afnám launamisréttis, en auk
þess hafa fleiri og fleiri áhuga
á að gera þjóðskipulagið mann-
úðlegra, reyna að koma sam-
keppnishugsjón þjóða og ein-
staklinga fyrir kattarnef, en
skapa samstarfsvilja og efla sam.
vinnu í staðinn. Svo má einnig
nefna það að réttara gildismat
en nú tíðkast er hollara fyrir
geðheilsuna þegar til lengdar
lætur, andleg verðmæti heilsu-
samlegri en veraldleg verð-
mæti.
Geðvernd einstaklingsins mið
ar að því að varðveita andlegt
jafnvægi og geðheilsu hvers ein
staks manns frá vöggu til graf-
ar. Það má segja að starfið hefj-
ist löngu fyrir fæðingu hvers
einstaklings, með því að hyggja
að líðan móðurinnar á með-
göngutíma og við fæðinguna.
Fyrstu tilfinningatengsl barns
við móður eru háð líðan beggja
og margir álíta að þroski barns-
ins á þessu sviði, strax á fyrsta
æviskeiði ráði úrslitum um það
hvernig geðheilsa verði síðar á
ævinni. Ekki má gleyma til-
finningatengslum við föður, og
hafa mörg rök verið leidd að
því, að beztu uppvaxtarskilyrði
hvers einstaklings séu í svo-
nefndri kjarnafjölskyldu eða
með einni móður og einum föð-
ur í heimilinu. Með þetta í huga
vil ég hvetja til rækilegrar um-
hugsunar um þá ráðstöfun að
reisa nýja vöggustofu hér í bæn
um. Er ekki þróuninni stefnt í
öfuga átt, væri ekki nær að
reyna að koma til móts við allar
einstæðar mæður fjárhaglega,
þannig að þær þyrftu alls ekki
að láta börnin á vöggustofur
yfirleitt?
Heimilis- og hjónabandsráð-
gjöf heyrir undir geðvernd ein-
staklingsins, fjölskylduráðgjöf
og almenn heilsugæzla hafa
einnig það markmið að varð-
veita heill og heilsu einstakl-
ingsins. Skólar móta börn og
unglinga og eiga sinn þátt í upp
eldinu auk heimilanna. Þroski
og uppbygging persónuleika
einstaklings hefst á fyrsta ári
og lýkur ekki fyrr en á fullorð-
insárum. Skólaandi og félagslíf
í skólum eru þættir, sem skipta
geðheilsuna e. t. v. meira máli
en þekkingarítroðslan og námið
sjálft, en þetta finnst mér of oft
gleymast, þegar yfirstjórn
menntamála ætlar að hrista and
legan doða af landslýðnum með
fræðslukerfinu.
Að lokum þetta: Margir
þekkja hörmungar drykkju-
sjúklinga og heimila þeirra. Ef
nógu margir taka höndum sam-
an um vel skipulagt geðverndar
starf, er ekki að vita nema unnt
sé að minnka og vonandi fyrir-
byggja með öllu böl ofdrykkj-
unnar. Stofnum geðverndar-
félag á Akureyri hið bráðasta.
Brynjólfur Ingvarsson. [j