Dagur - 23.10.1974, Síða 8
Bagxjk
Akureyri, miðvikudaginn 23. okt. 1974
NÝKOMIÐ
ÚRVAL AF
GULLVÖRUM
ÆVINTÝRI Á GÖNGUFÖR SMÁTT & STÓRT
SENN Á FJÖLUNUMIIJÁ L. A.
Saga Geirdal (Lára) og Arnar Jónsson (Vermundur). (Ljm.: Páll)
NÆSTKOMANDI f ö s t u d a g
Jjann 25. okt. frumsýnir Leik-
félag Akureyrar hinn góðkunna,
gamansama söngvaleik J. C.
Hostrups, „Ævintýri á göngu-
för“ í þýðingu síra Jónasar
Jónassonar frá Hrafnagili, með
breytingum og nýþýðingum eft-
ir Lárus Sigurbjörnsson og
Tómas Guðmundsson. Sviðsetn-
ing og leikmyndir eru eftir Ey-
vind Erlendsson. Áskell Jóns-
son hefur æft söngvana og leik-
ur á flygilinn. Leikarar eru tíu:
Þráinn Karlsson (Hans), Kjart-
an Olafsson (Kranz), Björg
Baldvinsdóttir (frú Kranz),
Jakob Kristinsson (Pétur), Arn
ar Jónsson (Vermundur), Gest-
ur E. Jónasson (Ejbæk), Aðal-
steinn Bergdal (Herlöv), Saga
Aðsfcð við
Geirdal (Lára), Þórhildur Þor-
leifsdóttir (Jóhanna), og Ey-
vindur Erlendsson (Svale).
„Ævintýrið" er óþarft að
kynna frekar, svo lengi hefur
það átt vísan griðastað í hjört-
um þjóðarinnar, enda heldur
ekki í fyrsta sinn sem leikarar
L. A. reyna íþrótt sína á þessu
vinsæla verkefni.
Leikfélagið mun í vetur, í
fyrsta sinn, reyna að halda
tveim föstum sýningardögum í
viku hverri, það er á föstudög-
um og sunnudögum. Aukasýn-
ingar verða aðra daga vikunnar
þegar þurfa þykir. Aðgöngu-
miðasalan verður einnig opin á
föstum tímum, í'rá kl. 16 til kl.
18 hvern sýningardag og daginn
fyrir sýningu. Einnig hálfá
stundu fyrir opnun hverrar
sýningar. Leikhúsgestir eiga
þess kost nú sem áður að kaupa
áskriftakort sem gilda á fleiri
sýningar og veitist þá afsláttur
allt að 40% eftir því hvað keypt
er á margar sýningar í einu.
Einnig fást kort sem gilda á all-
ar frumsýningar félagsins. Sím-
inn er 11073.
í byrjun nóvember hefst leik-
listarkennsla á vegum L. A. og
skulu þeir sem áhuga hafa fyrir
þátttöku, hafa samband við leik
hússtjórann, sem gefur allar
nánari upplýsingar. Síminn er
11073. Kennsla og þjálfun verð-
ur bæði fyrir nýliða og lengra
komna.
Unnið hefur verið að ýmsum
lagfæringum á leikhúsinu í
haust. Komið er nýtt upphífinga
kerfi í loft leiksviðsins ásamt
nýjum ljósarám. Einnig hefur
verið reynt að prýða nokkuð
þann hluta hússins sem gesta-
móttaka fer fram í. Hugmyndin
er að koma þar fyrir ljósmynd-
um tengdum leikhúsinu, eink-
um úr fyrri sýningum L. A. og
standa vonir til að nokkuð af
þeim verði komið upp fyrir
frumsýninguna á „Ævintýrinu“
þann 25. þ. m. □
GYLFI Þ. HÆTTIR |
FORMENNSKU
Gylfi Þ. Gíslason, sem um ára-
bil hefur verið formaður Al-
þýðuflokksins, hefur opinber-
lega lýst því yfir, að hann gefi
ekki kost á sér til að gegna for-
mannsstörfunum áfram. En
hann er formaður þingflokksins.
Vaxandi óánægju hefur gætt
innan flokksins, einkum meðal
yngri manna, með stefnu flokks-
ins á undanförnum árum. Lík-
legt þykir, að Benedikt Gröndal
verði kosinn formaður flokks-
ins. Þá hefur Eggert G. Þor-
steinsson ákveðið, að gegna ekki
lengur ritarastörfum flokksins.
MISJÖFN AFKOMA
Fram fer um þessar mundir út-
tekt á stöðu sjávarútvegsins. En
flestir fiskframleiðendur bera
sig mjög illa, í von um aðstoð
ríkisvaldsins og er það raunar
ekki nýr söngur, heldur hinn
árlegi. Að sjálfsögðu er afkom-
an misjöfn, bæði hjá eigendum
skipa og vinnslustöðva. Þær
gleðilegu fregnir hafa t. d. bor-
ist frá Húsavík, þótt óstaðfestar
séu, að Fiskiðjusamlag Húsa-
víkur hafi, er átta mánuðir voru
liðnir af árinu, verið komnir
með 18 milljón króna hagnað á
rekstrinum. En þótt þessi tala
kunni að vera of liá má fullyrða,
að um góðan rekstur er það að
ræða. Eftirtektarvert er, að Fisk
iðjusamlag Húsavíkur hefur
greitt hluthöfum verulegan arð,
en hitt er ekki síður athyglis-
vert, að það hefur einnig greitt
sjómönnum uppbót á fiskverðið.
AÐ FJÁRFESTA Á SPÁNI
Skattayfirvöld telja sig hafa á
hendi gögn, er eindregið bendi
til þess, að íslendingar hafi Iagt
fé í fasteignakaup suður á
Spáni. Fer nú fram rannsókn á
þessu máli, því líklegt má telja,
Skólar byrjaðir á Sauðárkróki
LAUGARDAGINN 26. október
gengst Kiwanishreyfingin á ís-
landi fyrir merkjasölu um lánd
allt. Allur ágóði af sölunnhmun
renna til geðverndarmála.
Það er von okkar, að Norð-
lendingar leggi okkur lið, er
komið verður til þeirra með K-
lykilinn og hjálpi þann veg að
styrkja brýnt málefni og opni
jafnframt skilningi braut, svo
að geðlæg vandamál alls konar
komist til meðferðar hjá æfðu
hjúkrunarliði þegar í byrjun og
fordómar allir hverfi.
Ef margir leggjast á eitt næst
undraverður árangur. Framlag
þitt kann að verða LYKILL að
mikilli hamingju.
Kivvanisklúbbarnir
á Norðurlandi.
Sauðárkróki, 22. október. Skól-
arnir á Sauðárkróki hófu starf
um síðustu mánaðamót.
í Barnaskólanum eru 260 nem
endur í 11 gekkjardeildum. Nýr
skólastjóri er Björn Björnsson,
en eins og kunnugt er, andaðist
skólastjórinn, Björn Daníels-
son, á sl. sumri. Hafði hann
verið skólastjóri Barnaskólans
um fjölda ára og gengt starfinu
með mikilli prýði. Auk skóla-
stjóra starfa 10 kennarar við
skólann.
í Gagnfræðaskólanum eru 160
nemendur í 7 bekkjardeildum.
Sjóvinnunámskeið er við skól-
ann og verður það fram að ára-
mótum. Á.því eru 80 nemendur.
Skólastjóri er Friðrik Margeirs-
son. Auk hans starfa 10 kenn-
arar við skólann.
í Iðnskólanum eru nú 45 nem
endur og starfar hann í tveim
lotum. Fram að áramótum starf
ar fyrsti og annar bekkur, en
eftir áramót þriðji og fjórði
bekkur. Skólastjóri er Jóhann
Guðjónsson. Auk hans kenna
10 stundakennarar við skólann.
Tónlistarskólinn var settur í
byrjun október. Hann hefur nú
fengið mjög vistlegt og rúmgott
húsnæði í Safnahúsinu við Faxa
torg. Eru það mikil umskipti til
bóta, frá því sem var í gamla
spítalanum, en þar voru skilyrði
mjög ófullkomin. í skólanum
eru 50—60 nemendur. Skóla-
stjóri er Eyþór Stefánsson en
aðalkennari Eva Snæbjarnard.
Sauðfjárslátrun lauk 21. októ
ber. Lógað var 57 þúsund fjár.
Þyngsta dilkinn, sem var 39,4
kg — lýgilegt en satt — átti
Leiíur Þórarinsson í Keldudal,
og jafnframt er ]jað sjöunda árið
í röð, sem hann á þyngsta dilk-
inn á sláturhúsinu. En meðal-
vigt Leifs bónda var 20,6 kg.
Hann lagði inn 281 dilk í haust,
220 tvílembinga, 20 lambgimbra
lömb og 36 einlembinga. Sig-
urður Sigurðsson á Brúnastöð-
um fékk nær sömu meðalvigt.
Ennþá er unnið við flugvöll-
inn nýja, á söndunum niður við
Vötnin, og er verið að yfirkeyra
hann í haust. Flann verður tek-
inn í notkun næsta sumar.
Hegranes kom með 70 tonn
og Drangey með 120 tonn, og
var verið að landa úr þessum
skipum. Er því atvinna næg að
vanda, líf og starf. G. O.
SAMKVÆMT viðtali við Krist-
ján Ármannsson, kaupfélags-
stjóra á Kópaskeri, er sauðfjár-
slátrun lokið þar. 28.000 fjár var
lógað og meðalþungi dilka var
14,8 kg eða 340 grömmum létt-
ara en í fyrra. Auðveldara var
að fá fólk til sláturhússtarfa en
á fyrirfarandi árum. Fjárheimt-
ur voru góðar hjá bændum og
víða ágætar, en hins vegar mun
féð hafa verið í afleggingu síð-
ustu vikurnar, þótt það reyndist
betra en á horfðist.
Rjúpnaveiði er ekki mikil enn
þá í þessari sveit, en er mun
meiri í Kelduhverfi, að því er
rjúpnaskyttur herma.
í gær var verið að steypa upp
íbúðarhús, annað af tveimur
sem trésmiðir eru að byggja sér
hér á Kópaskeri. í ráði er að
hreppurinn byggi tvö íbúðar-
hús.
Við höfum ekki séð snjó í
byggð á þessu hausti. Vegirnir
eru með besta móti, en við erum
óhressir yfir því, að hingað eru
engar fastar áætlunarferðir í
vetur, til fólksflutninga, hvorki
á landi eða í lofti. Norðurflug
kemur þó hingað tvær póstferð-
ir í viku og við höfum vöru-
flutningabíla í ferðum allt árið,
þegar færi gefur, sagði kaup-
félagsstjórinn að lokum. □
að ef svo reynist, sé um að ræða
liin grófustu skattsvik.
ÓKEYPIS TANNVIÐGERÐIR
Samþykkt hafa verið á Alþingi
lög um ókeypis tannviðgerðir
barna á aldrinum 6—15 ára og
raunar fleiri aðila í þjóðfélag-
inu. Kostnaður á að skiptast
milli sveitarfélaga og Trygging-
arstofnunar ríkisins. Þessi lög
eru þó ekki komin til fram-
kvæmda ennþá, og mun ósamið
við tannlækna um þetta mál.
T ANNFIIRÐIN GIN
Tannhirðingu er mjög ábóta-
vant, einnig meðal barna og
unglinga, að því er tannlæknar
segja. En tannhirðingin er for-
senda þess, að viðgerðir komi
að verulegum notum, og hún er
jafn nauðsynlegur heilbrigðis-
þáttur, hvort sem viðkomandi
einstaklingar greiða hann eða
hið opinbera. Talsverður áróður
hefur verið tekinn upp, varð-
andi tannliirðu og hefur hann
án efa borið verulegan árangur.
SPARAKSTURSKEPPNI
Síðan bensínið hækkaði svo
mjög, að bifreiðaeigendur fóru
aö finna fyrir bensínkostnaðin-
um, jókst áhugi manna á spar-
neytnum bílum. Þar af spratt
sú sparaksturskeppni, sem fram
fór í Reykjavík um síðustu
helgi. Bílarnir fengu 5 lítra af
bensíni hver og var keppnin í
því fólgin að komast sem lengst
á þessu eldsneyti. Sá bílinn,
sem lengst komst, var Citroen
2 CV og komst liann austur að
Seljalandsfossi, rúmlega 130 km
vegalengd. Sparaksturskeppnin
vekur, ásamt bensinverðinu,
athygli á sparneytnu bílunum.
Nýja
heilsuhælið
BÆJARSTJÓRN Akureyrar
hefur samþykkt að verða við
erindi NLFA, þar sem óskað
var eftir því, að félagið fengi að
byggja heilsuhæli í landi Skjald
arvíkur, og hefur því verið val-
inn staður nyrst í landi Skjaldar
víkur. Ekki hefur enn verið
tekin ákvörðun um, hvort félag
ið fær leyfi til að nýta jarðhit-
ann á Laugalandi á Þelamörk.
VERSLUNARSKÓLI
Á AKUREYRI?
BÆJARSTJÓRN hefur ítrekað
fyrri áskorun sína til ríkisvalds
ins um að stofna verslunarskóla
á Akureyri, og í framhaldi af
þeirri áskorun hefur bæjar-
stjórn samþykkt þá tillögu
skólanefndar Akureyrar, að kos
in verði nefnd heimamanna, til
að vinna að framgangi og undir
búningi þessa máls.
Oft hafa þessi mál verið rædd
áður og þess má geta, að á sl.
ári lá frumvarp fyrir Alþingi
um verslunarskólanám og í því
frumvarpi gert ráð fyrir, að
fyrsti verslunarskóli, sem ríkið
stæði að, yrði á Akureyri. Ekki
náði þá þetta frumvarp fram að
ganga, en vonir standa til, að
málið verði tekið þar upp að
nýju. □