Dagur - 21.12.1974, Blaðsíða 4

Dagur - 21.12.1974, Blaðsíða 4
4 5 Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akurcyri Símar 1-11-66 og 1-11-67 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: ERLINGUR DAVÍÐSSON Auglýsingar og afgreiðsla: JÓHANN K. SIGURÐSSON Prentvcrk Odds Björnssonar h.f. Að jólum Nú er að ljúka þjóðhátíðarári og jafnframt ári mikils atvinnugóðæris og meiri framkvæmda en oftast áður. í efnalegu tilliti býr fólk við góðæri, hefur miklar tekjur og kaupgetu og lætur margar þær óskir rætast, sem góður efnahagur getur veitt. Fjórði liver Islendingur ferðaðist til fjar- lægra landa lil að njóta surnars og sólar í ríkum mæli, nær tíu þúsund nýir bílar voru fluttir til landsins á nokkrum mánuðum og aðrar vörur í áþekkum mæli, þarfar og óþanfar. Gekk verulega á gjaldeyrisforðann á árinu, og þótt nú sé spáð nokkurri lífskjaralægð á næstu misserum og kaupmáttur launa hafi verið skertur til muna, má segja, að enn láti ver- öldin blítt við fólk hér á norður- slóðum. Þeir, sem taka mið af liinum ýmsu listgreinum, sem stundaðar eru með þjóðinni, virðast á einu máli um frjósemi þeirra á þjóðhátíðarári og grósku í menningarlífinu, þegar yfir það er litið í heild. Fólk stundar sem áður sagna- og ljóðagerð, lagasmíðar og tónleika, málara- og höggmynda- list og svo leiklist mjög ósleitilega. Efst trónar Þjóðleikhús og sinfonía, en þjóðarleikhúsið okkar allra, með sextíu fastráðna, stjórnar málefnum þjóðarinnar. En á meðan flestir rólfærir menn hraða sér milli yfirfullra verslana til jólainnkaupanna og kaupa varning hömlulítið undir skuggum skamm- degis og verðhólgu og ótiyggra við- skiptakjara, er jólahátíðin að ganga í garð, liátíð ljóssins og liátíð trúar- innar. Sii hátíð mun að venju hefja menn upp úr dægursorgum og striti og kalla fram hinar göfugri kenndir með ungum og öldnum. Að jólum loknum og enduðu þjóö hátíðarári, við hækkandi sól og þær vonir og fyrirætlanir, sem bundnar eru sól og sumri komanda, takast menn á við vandamálin á ný, hver eftir sinni getu, í trausti á giftu sína og starfsþrek. Þótt flest sé í heimi hverfult og öldurót hins ólgandi um- heims nái til okkar, verða íslending- ar að lifa af landsins gæðum, treysta guði sínum og þvx að landið skrýðist enn á ný grænu grasi. □ Gleðileg jól! Friðlýsingar þjóna því mark- miði, að vernda ýmiss konar minjar, bæði sögulegs (forn- minjar, þjóðminjar) og náttúru fræðilegs eðlis (náttúruminjar). Nóttúruminjar geta verið ein- stakir staðir, svo sem hólar, klettadrangai-, eða fossar, eða landssvæði, sem inniheldur fjöl breytt landslag, gróðurfar eða dýralíf. Sjálf friðlýsingin er lög- fræðilegs eðlis, og öðlast þá fyrst gildi, er hún er staðfest af löglegum aðiljum og auglýst. í friðlýsingu náttúruminja er jafnan tekið fram, hvaða reglur skuli gilda um hið friðlýsta svæði, og tiltekin mörk þess,. en reglur þessar eru breytilegar eftir aðstæðum á hverjum stað. Það má þó heita meginregla, sem fram kemur í öllum frið- lýsingum, að bannað er að raska landslagi á svæðinu með hvers konar mannvirkjagerð, en und- antekningar eru ‘ þó gerðar þegar sérstaklega stendur á. Ymsir virðast halda, að frið- lýsing lands sé fyrst og fremst fólgin í útilokun beitarnytja, þ. e. landið verði afgirt og þannig friðað fyrir beit. Mun þessi misskilningur kominn til af því, að friðun skóga fyrir beit var töluvert stunduð hér á landi, löngu áður en friðlýsing samkvæmt náttúruverndarlög- um kom til framkvæmda. Sannleikurinn er sá, að enn hafa engin friðlýst svæði hér- lendis verið girt til útilokunar á beitarnytjum, svo mér sé kunnugt, þótt reyndar séu beit- arnytjar háðar leyfi eða samn- ingi á sumum stöðum. Allt fram um 1970 var aðeins einn staður á Norðurlandi frið- lýstur sem náttúruminjar, en það eru Hveravellir á Kili. Með setningu nýrra náttúruverndar- laga 1971 og kosningu nýs náttúruverndarráðs á grund- velli þeirra, árið 1972, svo og aukins áhuga almennings á náttúruverndarmálum, sem leiddi til stofnunar náttúru- verndarfélaga víða um landið upp úr 1970, hafa orðið þátta- skil í þessum efnum. Á síðustu þremur árum (1972 —74) hafa fjórir staðir eða svæði verið friðlýstir á Norður- landi, þar á meðal einn þjóð- garður, og sérstök verndarlög hafa verið sett um heilan hrepp (Skútustaðahrepp), og hluta af öðrum. Verður nú greint nánar frá þessum friðlýstu stöðum og friðlýsingu þeirra: | ' ! í:| 'NU 1. Friðland Svarfdæla, þ. e. bakkar og hólmar Svarfaðar- dalsár, raunar allt flatlendið í Svarfaðardal neðanverðum, brekkna á milli, allt frá Tjörn og út til sjávarins, var friðlýst seint á árinu 1972. Forgöngu um friðlýsinguna hafði Náttúruverndarnefnd Eyjafjarðar, og sá einn nefndar manna, Hjörtur E. Þórarinsson, að mestu um undirbúning henn ar, svo Náttúruverndarráð þurfti þar lítið nærri að koma. Að þessu leyti mai'kar friðlýs- ing Svarfaðardals þáttaskil í friðlýsingarmálum þjóðarinnar, og þó ekki síður að því leyti, að þar var í fyrsta skipti frið- lýst nytjaland, með fullu sam- ráði og samþykki landeigenda, og jafnframt er þetta fyrsta vot- lendisfriðunin hér á landi. Hér er um að ræða flæði- engjar (flæður), með tjörnum, svo og tiltölúlega þurra bakka og hólma, þar sem er nokkur ræktun eða hálfræktun, en sjálfar flæðiengjarnar eru nú lítið notaðar nema til beitar, þótt fyrrum væru þær aðalhey- skaparland viðkomandi jarða. Að sjólfsögðu fá eigendur að halda öllum hinum hefðbundnu nytjum af svæðinu, en skuld- binda sig hins vegar til að taka ekki upp nýja nýtingu, og að breyta ekki landslagi með mann virkjagerð eða á annan máta, en þar tilheyra m. a. skurðir og vegir. Allar fuglaveiðar eru bann- aðar, enda er friðunin ekki síst gerð til þess að vernda hið auð- uga fuglalíf dalsins. Hefur verið komið á fót eftirliti í friðland- inu um varptímann, sem skátar á Dalvík hafa annast. Malarnám, sem fyrir. var á svæðinu (í HríÉahöfða) hefur ekki verið hindrað, en er nú undir eftirliti. 2. Þjóðgarðurinn í Jökulsár- gljúfrúm (Gljúfrágarðúrinn) var stofnaður með friðlýsingu jarðarinnar Svínadals 21. júní 1973, en land hennar nær yfir allt svæðið vestan Jökulsár, frá Hljóðaklettum suður að Detti- fossi, og að sunnan nær það vestur í fjallið Eilíf. Fossafélag- ið svonefnda keypti jörðina um aldamótin síðustu, og taldist hún því vera ríkiseign. Hún var fyrir nokkrum áratugum komin í eyði, en landið var nýtt sem afrétt af Keldhverfingum. Á síðasta ári (1974) bættist svo jörðin Ás við þjóðgarðinn, en hún var keypt af Náttúru- verndarráði í þessu skyni. Land hennar nær frá Hljóðaklettum og niður á miðjan Jökulsár- sand, og þar með hefur allt Gljúfrasvæðið vestan Jökulsár verið friðlýst sem þjóðgarður. (Þjóðgarður kallast samkvæmt lögunum friðlýst svæði í ríkis- eign). Hlutverk þjóðgarða er annars að jafnaði talið vera tvíþætt. Annars vegar að varðveita sýnis horn óspilltrar náttúru og hins vegar að veita almenningi að- gang að svæðinu, með vissum takmörkunum, svo ekki hljótist skemmdir af umgangi fólks. Vissir staðir í Gljúfrunum eru þegar orðnir vinsælir ferða- mannastaðir, og má þar nefna einkum Ásbyrgi, Vesturdal og Hólmatungur. í Ásbyrgi hefur Skógrækt ríkisins haft vissa um sjón með höndum síðustu úrin, og í Vesturdal var byrjað að skipuleggja útivist (bílastæði, tjaldstæði o. fl.) síðastliðið vor, og gæslumaður var þar á veg- um Náttúruverndarráðs sl. sumar. Reglur um þjóðgarðinn eru að sumu leyti nokkuð strangar. Ekki má aka utan merktra vega eða slóða og ekki tjalda nema á merktum tjaldstæðum, nema með sérstöku leyfi gæslumanna garðsins. Ekki má hrófla við bergmyndunum, skemma gróð- ur né trufla dýralíf. Enda má ekki kveikja, nema með leyfi, og allt sorp skal flytja burt úr þjóðgarðinum. Þá eru ákvæði sem banna umferð á hestum utan merktra slóða og beit er einnig bönnuð að nafni til, en Keldhverfingar fá þó að nota landið til beitar samkvæmt sér- stökum samningi, og að sjálf- sögðu einnig að smala það. Víða á þjóðgarðssvæðinu er uppblástur eða uppblásturs- hætta, og má því vera, að nauð- synlegt reynist að friða hluta svæðisins fyrir beit um tak- markaðan tíma. Mun beitar- ákvæðið einkum vera sett með tilliti til þess. Ákvæðið um hestaferðir verður e. t. v. fellt niður. Öll mannvirkjagerð er háð samþykki Náttúruverndarráðs. Tekur þáð að sjálfsögðu einnig til virkjunarframkvæmda við Dettifoss, ef til þess kemur. Slík virkjun hefur veruleg áhrif á fossana, og næsta umhverfi þeirra, einkum á meðan fram- kvæmdir standa yfir, en þarf ekki að spilla landslagi eða líf- ríki svæðisins að öðru leyti. Landslag Jökulsárgljúfra er einstaklega fjölbreytt, svo vart Úr taólmatungum í jökulsárgljúfrum. (Ljásm.: H. Hg.) ¥ mun nokkurt annað svæði kom ast þar í samjöfnuð hérlendis. Það er mótað af þremur megin- öflum, jarðeldi, vatni og jökli, sem skipst hafa á um að ríkja yfir því. Þar er að finna menjar um stórkostleg vatnsflóð, sem helst verður líkt við Kötlu- hlaupin. Ásbyrgi er myndað í einu slíku hlaupi. Gróður er víða mjög ríkulegur í Gljúfr- unum og dýralíf auðugt. Linda- árnar, sem fossa niður í Gljúfr- in í Hólmatungum og víðar, eiga vart sína líka. Allt rennur þetta saman í eina undursam- lega heild, sem þó er óendan- lega samsett og fjölbreytileg. Fer vel á því að þarna skuli nú hafa verið stofnaður fyrsti þjóð garður Norðlendinga. Helgi Hallgrímsson, náttúruíræóingur. 3. Herðubreiðarfriðland var stofnað með auglýsingu 14. ágúst 1974. Það nær yíir Herðu- breið, Herðubreiðarlindir og Grafarlönd (og Grafarlandaá), og er því álíka stórt eins og þjóð garðurinn við Jökulsá. Hins vegar er mikill hluti þess eyði- land, hraun eða sandar. Svæðið er talið heyra undir Reykjahlíð og þar með Skútustaðahrepp, enda notað sem afrétt af Mý- vetningum, og verður svo áfram. Þá fær Ferðafélag Akur eyrar að reka þar skála sinn, svo sem verið hefur, en gæslu- maður hefur verið þar undan- farin sumur. Annars eru reglur um friðlandið svipaðar og í þjóð garðinum. Sem kunnugt má teljast, eru Frá Mývaíni (Vogum). Hverfjall í baksýn. (Ljósm.: H. Hg.) Herðubreiðarlindir einstök gróð urvin í eyðimörkinni miklu, sem kenna má við Ódáðahraun. Sést þar hve miklu vatnið fær áorkað, þar sem gnótt er af því, eða öllu heldur hve vatnsskort- urinn er afdrifaríkur fyrir þetta land. Að því leyti eru Lindirnar sama eðlis og hinar nafntoguðu vinjar í eyðimörkum Afríku. En gróður Lindanna er viðkvæm- ur, bæði fyrir beit sauðfjár og troðningi ferðafólks, sem mjög hefur vaxið á síðustu árum. Er því full þörf, að hafist sé handa um skipulega verndun þessara svæða. í Grafarlöndum er einnig víða fallegur gróður. Eyrarrósar- breiðurnar niður með Grafar- landaánni verða minnisstæðar hverjum, sem þær sér. Þess má geta hér, að árið 1973 voru Hvannalindir við Kreppu friðlýstar, en þar er svipað linda svæði og í Herðubreiðarlindum, en Krepputungan (milli Kreppu og Jökulsár) er venjulega talin til Austurlands. Er Herðu- breiðarfriðlandið því raunar þriðja landssvæðið, sem er frið- lýst við Jökulsá á Fjöllum og þverár hennar. Því má enn bæta við, að rætt hefur verið um friðlýsingu á neðsta hluta Jökulsársandsins í Öxarfirði, einkum vegna hins auðuga gróðurs og fuglalífs, sem þar er. Verður það fjórða friðsvæðið við Jökulsá, ef til kemur, og má segja að þá verði umhverfi þessa merkilega vatnsfalls vel tryggt. 4. Lög um verndun Mývatns og Laxár í S.-Þing., voru sam- þykkt á Alþingi síðastliðinn vetur (1974), og undirrituð af forseta 2. maí sama ár. Lögin eru liður í sáttagerð þeii-ri, sem samþykkt var af deiluaðiljum í Laxárdeilunni svonefndu, sem ekki mun þurfa að kynna fyrir Norðlendingum. Frumvarp að þeim var þó komið fram fyrir nokkrum árum, eða meðan Laxárdeilan stóð sem hæst, en þá var það svæft. Lögin taka til alls Skútustaðahrepps og Laxár með hólmum og kvíslum, allt að ósi hennar við Skjálfanda, ásamt 200 m breiðri spildu með fram Laxá, beggja megin. Á nefndu landssvæði er öll mannvirkjagerð og annað jarð- rask óheimilt, nema leyfi Nátt- úruverndarráðs komi til, sömu- leiðis breytingar á rennsli eða vatnsborði vatnanna. Þó skulu heimilar framkvæmdir, sem nauðsynlegar og eðlilegar telj- ast til búskapar á lögbýlum, nema spjöllum valdi að dómi Náttúruverndarráðs. Einnig eru heimilar byggingar samkvæmt staðfestu skipulagi, enda hafi Náttúruverndarráð fallist á skipulagsáætlunina. Af þessu sést, að hér er um að ræða landslagsvernd, og Náttúruverndarráði fengin víð- tæk heimild til íhlutunar um mannvirkjagerð. Er það þó raunar ekki mikil breyting frá hinum almennu lögum um náttúruvernd hvað snertir Mý- vatnssveit sjálfa, því þar verður mestallt landslag að teljast sér- stætt og merkilegt, en í slíkum tilfellum hefur ráðið íhlutunar- rétt án sérstakra laga. Þá er gert ráð fyrir því í lög- unum, að sett verði reglugerð um várnir: gégn méngúh, þar sem jafnframt verði kveðið á úm verndúri og hýtirigú lífríkis ins á svæðinu og takmörkun á aðgangi ferðafólks. Loks mæla lögin svo fyrir, að náttúrurannsóknastöð skuli reisa og reka við Mývatn, en stöð þessi hefur lengi verið á döfinni, og hefur nú verið reist lítið hús fyrir hana í landi Geirastaða. Stjórn stöðvarinnar skal vera stjórnvöldum til ráðuneytis um frekari framkvæmd laganna, en um starfsemi stöðvarinnar skal setja sérstaka reglugerð. Með verndunarlögum þessum er í fyrsta skipti hérlendis, gerð tilraun til að vernda landslag og náttúrufar heils sveitar- umdæmis, sem þar að auki er fjölbyggt og í mikilli aukningu á mörgum sviðum. (Eysteinn Jónsson formaður Náttúru- verndarráðs hefur stungið upp á, að slík umdæmi verði fram- vegis kölluð þjóðgarðssveitir). Það fer hins vegar að sjálf- sögðu alveg eftir framkvæmd- inni, hvort slík lög koma að einhverju gagni éða ekki. Reynslan frá Kröflu á síðast- liðnu sumri, bendir til þess að framkvæmdaaðiljar ætli sér ekki að taka verndarlögin alvar lega, enda voru meginákvæði þeirra þar þverbrotin, án þess að fyrir væri refsað. Slík aðferð hlýtur að skapa mjög hættulegt fordæmi, og hætt er við að öll slík lög verði framvegis merk- ingarleysa, ef ekki tekst að framfylgja þeim. í\ a flufl vi Skipstjóri og skipáhöfn b/'v Kaldboks. Góðir tilheyrendur. í dag er merkum áfanga náð í atvinnusögu Akureyrar, er tog- araflota okkar bætist nýr og glæsilegur liðskostur þar sem er skuttogarinn Kaldbakur, er nú kemur til heimahafnar fyrsta sinni. Óhætt mun að fullyrða, að síðar meir verði 19. desember 1974 talinn merkur minjadagur í atvinnusögu bæjarfélags okk- ar, því ekki hefur fiskiskipa- stóll okkar áður tekið slíkt risa- stökk í einum áfanga sem nú, er þetta stórvirka atvinnúfæki 5. Skútustaðagígar voru frið- lýstir árið 1973, sem náttúru- vætti, en svo ncfnast í lögunum einstakir staðir eða náttúru- minjar, sem friðlýstir eru. Þetta er mikil þyrping af liinum al- kunnu gervigígum, sem hvar- vetna má sjá við Mývatn og Laxá, en óvíða eru eins fjöl- breytilegir og samfelldir eins og á tanganum norðan við Skútu- staði, en tanginn hefur nú verið friðlýstur. Friðlýsing ýmissa annarra náttúruvætta er nú í athugun, svo sem Rauðhóla í Laxárdal, Kotagils í Norðurárdal, Vatns- dalshóla, Spákonufellshöfða og fleira. Af stærri svæðum, sem fyrir- hugað er að friðlýsa má nefna Vestmannsvatn og umhverfi þess, en að þeirri friðlýsingu hefur verið unnið á vegum Sam- taka um náttúruvernd á Norður landi. Verður það væntanlega friðlýst á næsta ári. Helgi Hallgrímsson. - Öruggur akstur (Framhald af blaðsíðu 8) bæjaryfirvalda að koma ekki upp umferðarljósum á fleiri gatnamót í bænum, Skorar fundurinn því á nefnd yfirvöld að hraða framkvæmdum í þess- um málum, þar sem umferðar- ljós þau sem í notkun eru hafa sannað ágæti sitt með ört fækk- andi bifreiðaslysum." „Aðalfundur klúbbsins Örugg ur akstur á Akureyri haldinn 15/12 ’74 skorar á Vegagerðina að láta setja biðskyldumerki á allar þverbrautir er liggja að Norðurlandsvegi frá Akureyri að Ólafsfjarðarvegi (Ólafsfjarð- arvegur þar meðtalinn).“ Stjórnarkjör. — Fráfarandi stjórn var endurkjörin en hana skipa: Stefán Tryggvason for- maður, Jón Tryggvason og Ein- ar Gunnarsson meðstjórnendur. í varastjórn voru einnig endur- kjörnir þeir Baldur Kristjáns- son, Sigfús Þorsteinsson og Ingólfur Kristinsson. □ Valur Arnþórsson. kemur fullbúið til átaka við það mikla verkefni, sem því er ’ ætlað. Það hefur frá upphafi verið lán Akureyrar, að atvinnulíf bæjarins er spunnið mörgum sterkum en að ýmsu leyti ólík- um þáttum. Þetta hefur gert það að verkum, að atvinnulíf okkar hefur ekki verið svo sveiflu- kennt sem atvinnulíf fjölmargra staða annax-ra í landi voru. Hinn öflugi landbúnaður Eyjafjarðar skapar mikla atvinnu við úr- vinnslu, verslun og þjónustu. Góð höfn frá náttúrunnar hendi renndi snemma stoðum undir Akureyri sem innflutnings-, verzlunar- og þjónustumiðstöð. í bænum hefur þróast, miðað við íslenzkar aðstæður, mjög sterkur iðnaður. Akureyri hef- ur orðið sterkasti skólabærinn utan höfuðborgarsvæðisins. Síð ast en ekki síst má svo nefna, að á Akureyri hefur þróast ein öflugasta togaraútgerð landsins og í tengslum við hana eitt aíha afkastamesta frystihúsið á ís- landi. Allir styðja þessir þættir beint eða óbeint hvern annan og hafa skapað þá órofa heild, sem hefur gert það að verkum, að atvinnulífið hefur ekki liðið svo mjög, þótt á hafi bjátað í þjóðlífinu fyrir einstaka þætti um stundarsakir. Ég hygg að öllum sé okkur það ljóst, að fjölbreytni atvinnulífsins er mjög æskileg fyrir bæjarfélag okkar og að atvinnulífið þurfi áfram að þróast alhliða. Að SKEMMTIFERÐ Kjördæmissamband framsóknar manna í Norðurlandskjördæmi eystra hefur í hyggju að efna til hópferðar í vor, til Norður- landa og Rínarlanda, vegna fjölda áskorana og vegna ágætr ar reynslu af Norðurlandaferð sambandsins, sem þótti takast með ágætum. Áformað er að fljúga beint frá Akureyri til Kaupmanna- hafnar og Hamborgar, eftir því hvort fólkið kýs Norðurlönd eða Rínarlönd. Upp úr miðjum janúarmánuði verður búið að skipuleggja ferð ina nánar og þá mun skrifstofa flokksins (sími 21180 á Akur- eyri) gefa allar upplýsingar og taka á móti pöntunum. □ slíkri þróun vill bæjarstjórn Akureyrar einhuga stuðla. Það er ekki launungarmál, að á undanförnum árum og áratug hefur togarafloti okkar valdið áhyggjum að því leyti, að ný- sköpunartogarar okkar voru að úreldast og ekki var séð, hvern- ig endurnýjun togaranna yrði við kömið. Endurnýjun óg aúkn ing fiskiskiþastóls landsmanna beindist einkum að kaupum á nótaveiðiskipum og minni bol- fiskveiðiskipum, en endurnýjun togaraflotans öx mönnum í augum. Ljóst var, að minni fiski skipin. hentuðu okkur á Akur- eyri ekki sem grundvöllur hrá- efnisöflunar fyrir stórvirkan fiskiðnað bæjarins og því var það okkur áhyggjuefni, hversu lengi dróst að hefjast handa um endurnýjun togaraflota lands- manna. í þessu efni hefur orðið gleði- leg breyting á allra síðustu ár- um. Þjóðin hefur ráðist í það stórvirki að endurnýja og stór- efla togaraflotann á örskömm- um tíma og við Akureyringar höfum ekki látið okkar hlut eftir liggja. Á skömmum tíma hafa okkur bæst þrjú nýleg og afkastamikil skuttogskip, í dag bætist okkur nýr og glæsilegur farkostur og innan skamms • kemur til heimahafnar systur- skip togarans, sem við fögnum í dag. Okkur er það vissulega ljóst, að æskilegt hefði verið, að endurnýjunin hefði hafist fyrr og dreifst yfir lengri tíma. Okk- ur er það einnig ljóst, að svo mikil og hröð uppbygging skap ar Útgerðarfélaginu okkar og bæjarfélaginu í heild miklar fjárhagsskuldbindingar, sem erfitt kann að reynast að standa undir. En jafnframt því að benda á þetta, leggjum við höf- uðáherslu á, að það hlýtur að verða sameiginlegt verkefni þjóðarinnar allrar að skapa togurunum þann rekstursgrund völl, með beinum efnahagsleg- um aðgerðum og ekki síður með útfærslu og verndun fiskveiði- lögsögunnar, svo þessi mikil- virku atvinnutæki geti haldið ótrufluðum rekstri og þannig dregið stórfelldan auð í sam- eiginlegan sjóð þjóðarinnar. Þannig viljum við geta treyst því, að togaraútgerð og fisk- vinnsla geti til frambúðar verið einn af þeim sterku þáttum, sem renna stpðum undir velsæld og framfarir í Eyjafirði. Bæjarstjórn Akureyrar hefur í verki sýnt stuðning sinn við endurnýjun togaraflota okkar og sú viðleitni, að stuðla að endurnýjun hans, hefur verið eitt af megin verkefnum bæjar- stjórnar á síðustu árum. Um leið og ég segi þetta vil ég í nafni bæjarstjórnar þakka öfl- ugt starf forustumanna Útgerð- arfélagsins að því að útvega hentug skip í stað þeirra gömlu, sem voru að úreldast. Ég vil jafnframt minnast á og þakka starf skipstjórnarmanna okkar og sjómanna, sem með færni sinni og' dugnaði hafa stuðlað að því, að afkoma togararútgerðar okkar er með því jafn bezta sem þekkist í landinu. Allt þetta góðra manna, hefur borið þann starf, svo og stuðningur margra árangur, að endurnýjuninni að þessu sinni lýkur nú innan skamms, er systurskip Kald- baks bætist í flotann. í dag fögnum við innilega komu Kaldbaks, skipstjóra hans og áhöfn. Megi heill og ham- ingja jafnan fylgja skipi og skipshöfn. Q

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.