Dagur - 08.01.1975, Síða 1
TÓLFMANN
Hinn 20. desember féllu mikil
snjóflóð á Neskeupstað og lét-
ust þar 12 manns. Utför þeirra
var gerð 30. desember og þeirra
tveggja minnst, er ófundnir
voru.
Snjófióð eyðilagði Síldar-
vinnsluna, skemmdi hraðfrysti-
húsið og lagði með því atvinnu-
Hrísey, 6. janúar. Veðráttan
hefur verið mjög óstöðug hér í
Hrísey í desembermánuði. Tjón
hefur þó ekki orðið í óveðrum
að heitið geti. Þó sökk trilla hér
í höfninni, en hún náðist strax
upp, óskemmd.
Talsverður snjór er nú kom-
inn. Fólk hefur borðað mikið,
einnig dansað og sungið og læt-
ur sér líða vel.
Frá Utgerðarfélagi Akureyr-
inga h.f. hengum við nær 20
tonn af fiski og er verið að
vinna hann, en Drangur færði
okkur þennan fisk og svo eru
þrír bátar búnir að leggja net
en ekki hefur viðrað til að vitja
um. Þessir bátar eru: Eyrún,
Hafrún og Eyfell. S. F.
líf staðarins í rúst. Mörg liundr-
uð tonn af svartolíu runnu í
sjóinn og menguðu fjörðinn.
Ríkisstjórnin ákvað strax að
bætt skyldi tjón það af völdum
snjóflóðanna, sem unnt er að
bæta, og Rauði krossinn og
Hjálparstofnun kirkjunnar hófu
þegar fjársöfnun.
Fannfergi og raforkuskortur
gerðu allt lijálparstarf erfitt á
staðnum.
Snjófióð féll á Siglufirði dag-
inn áður, skemmdi tvö hús, en
manntjón varð ekki, og á Seyðis
firði og raunar miklu víðar féllu
snjóflóð, sem litlum sögum fer
þó af, vegna þess að þau hurfu
í skugga snjóflóðanna miklu og
hörmulegu á Neskaupstað. □
Fr. Vestmann tók þessa mynd í skólanum í fyrrakvöld.
Myndlistarskóli á Hkureyri
Á fyrra ári varð nokkurt umtal
um myndlistarmál á Akureyri.
í bænum starfar myndlistar-
skóli eins og fyrirfarandi ár og
kennir þar Sólveig Stefánsson
myndlistarkennari. Skólinn hef
ur aðsetur í Verslunarmanna-
húsinu við Gránufélagsgötu og
mun þar starfað flest kvöld
vikunnar af áhugasömum nem-
endum skólans, auk þess sem
barnaflokkar hafa þar sérstaka
tima, síðari hluta dags ákveðna
daga í viku hverri.
Myndlistarskóli Akureyrar er
rekinn á ábyrgð þeirra Aðal-
steins Vestmanns, Helga Vil-
bergs og Ullu Þormar. Nemend-
ur eru um 50 í 5 flokkum.
Á fyrra ári ákvað bæjarstjórn
in stuðning við Myndlistarskól-
ann, sem þá hét Myndsmiðjan,
sem svaraði launum eins kenn-
ara. Þar sem þessi skóli hefur
tekið við af Myndsmiðjunni,
hefur það verið talið sjálfsagt,
að bærinn styrkti hann á hlið-
stæðan hátt.
í þessu sambandi má geta
þess, að bærinn tók á sl. hausti
Verslunarmannahúsið á leigu
til afnota fyrir Námsflokka
YEÐRAHAMUR í
Sigurður 0. Bj örnsson
látinn
Sigurður O. Björnsson prent-
meistari og prentsmiðjustjóri á
Akureyri andaðist í Fjórðungs-
sjúkrahúsinu 3. janúar, nær 74
ára.
Utför hans verður á laugar-
daginn. — Hans verður nánar
minnst hér í bíaðinu. □
Dagu
kemur næst út: 15. janúar'. —
Dalvík, 4. janúar. Skemmdir
urðu á þrem bæjum í roki
kvöldið fyrir gamlársdag. Hluti
af fjárhúsþaki fauk á Koti í
Svarfaðardal, járnplötur af
íbúðarhúsi á Atlastöðum og
jeppi skemmdist þar einnig,
m. a. af áfoki og mikill hluti
þaks af íbúðarhúsinu á Sandá
fauk þá einnig, bæði járnplötur
og klæðning.
Sama kvöld var dansleikur í
Árskógi á Árskógsströnd og
kjánuðust þangað margir héðan
frá Dalvík, en svo varð fólk
þetta veðurteppt og komst ekki
heim fyrr en daginn eftir, og
■ gekk, heimferðin misjafnléga. . . I
Hér var dansleikur á. nýárs-
nótt og varð þá rafmagnslaust
í klukkustund og þótti það víst
nokkur tilbreyting. Þá hélt
karlakórinn samsöng á laugar-
daginn milli jóla og nýárs.
Stjórnandi er Gestur Hjörleifs-
son og undirleikari Guðmundur
Jóhannsson frá Akureyri. Veð-
ur var heldur rysjótt, eins og
fyrri daginn og tóku fjórir bílar
þátt í að flytja undirleikarann
til Dalvíkur. Sá fyrsti bilaði,
annar hélt ekki veginum o. s.
frv. Maðurinn komst á ákvörð-
unarstað klukkan hálf ellefu
um kvöldið.. Söngurinn þótti
góður og mun verða endur-
tekinn. V. B.
Akureyrar og gerði aðilum
Myndlistarskólans um leið
kleift að halda þar uppi kennslu.
Er af þessu ljóst, að Mynd-
listarskóli starfar í bænum með
góðri þátttöku og stuðningi
bæjaryfirvalda. Hins vegar hafa
forvígismenn Myndlistarfélags-
ins á Akureyri lýst því yfir, að
það félag væri úr sögunni.
Námsefni skólans er hið sama
og á sambærilegum námskeið-
um við Myndlista- og handíða-
skólann í Reykjavík. Einnig má
geta þess, að forráðamenn þess
skóla hafa viðurkennt Mynd-
listarskólann á Akureyri og
tekist hefur nokkurt samstarf
skólanna, sem- væntanlega á þó
eftir að aukast.
Forráðamenn skólans hér á
Akureyri vænta þess, að hér
geti orðið tveggja vetra forskóli
fyrir þá, sem myndlistarnám
hefja syðra, og er auðséð hve
mikilvægt það er.
Myndlistaráhugi hefur ætíð
verið verulegur og jafnvel mik-
ill á Akureyri. Myndlistarskól-
inn er framhald af starfi margra
manna, sem bæði í orði og
verki hafa haldið uppi mynd-
listarlífi í bænum, en þar má
m. a. nefna Hauk Stefánsson,
sem fyrir mörgum árum hélt
hér námskeið fyrir áhugafólk
um myndlist, ennfremur Einar
Helgason, sem síðar kenndi hjá
Námsflokkum Akureyrar.
Síðari námskeið skólans hefj-
ast nú 20. janúar og er hægt að
bæta nokkrum nemendum við,
en að sögn forráðamanna tak-
markar húsrými skólans nem-
endafjöldann. □
Akuréyrartogararnir
Svalbakur landaði í gær og
fyrradag 130 tonnum.
Harðbakur landaði 48 tonnum
3. janúar
Sólbakur landaði 70 tonnum
2. janúar.
Sléttbakur landaði 27. desem-
ber 147 tonnum.
Kalclbakur nýi fer á veiðar
einhvern næsta dag. □
Hlulti verðlaun
Á gamlársdag hlutu þau Jenna
og Hreiðar Stefánsson kennarar
frá Akureyri og Kristján Reyr,
verðlaun úr Rithöfundasjóði
ríkisútvarpsins, sem formaður
sjóðsstjórnar, dr. Jónas Krist-
jánsson, afhenti við hátíðlega
athöfn. Verðlaunin námu 150
þúsund krónum.
Jenna og Hreiðar eru kennar-
ar við Langholtsskóla en eru
Akureyringar og kunn af sínum
mörgu og góðu barnabókum. □
Á síðasta ári voru 73 bruna-
útköll hjá slökkviliði Akur-
eyrar, en 63 árið áður.
Enginn stórbruni var á árinu,
en tvær miklar sprengingar ollu
tugmilljóna tjóni.
Af þessum 73 skiptum var
slökkviliðið kallað 10 sinnum út
vegna elds í ökutækjum og 12
sinnum vegna sinubruna.
Útköll sjúkrabíls voru 804 á
síðasta ári, þar af 177 utanbæjar
eða 22%. Árið 1973 voru út-
köllin 732, þar af 150 utanbæjar.
Um 70% af sjúkra- og bruna-
útköllunum voru að degi til,
eða frá klukkan 8 að morgni til
kl. 8 að kveldi.
(Skv. uppl. Tómasar B. Böðv-
arssonar slökkviliðsstjóra)
Sigurður ÓIi Brynjólfsson.
... aJ
Framsóknarfélögin á Akureyri
halda fund annað kvöld, fimmtu
dag, kl. 20.30 í Hafnarstræti 90.
Fundarefni er: Fjárhagsáætlun
Akureyrarkaupstaðar, fram-
sögumaður Sigurður Óli Brynj-
ólfsson bæjarfulltrúi, og fjárlög
ríkisins, framsögumaður Ingvar
Gíslason alþingismaður.
Bæði eru þessi fundarefni
mikil og verðug umræðuefni og
nauðsynlegt að sem allra flestir
lóti sig þau nokkru varða.
Blaðið hvetur fólk til að
sækja fund þennan vel og stund
víslega, hlýða á mál manna,
taka þátt í umræðum og bera
fram fyrirspurnir. □
Ingvar Gíslason.