Dagur - 22.01.1975, Page 1
Skíðalyftur og miðasala
Þar sem nú eru starfræktar 4
lyftur í Hlíðarfjalli, er nauðsyn-
legt að breyta miðasölufyrir-
komulagi, þannig að í stað þess
að selja 5, 20 eða 80 ferða kort
eins og gert hefir verið, verða
seld dagkort, sem veita hand-
hafa rétt til að nota allar lyft-
urnar að vild þann dag, sem
kortið gildir. Eftir kl. 14 verða
á boðstólum Vz dags kort. Þá
Húsfreyja
hrapaði
Á Skefilsstöðum á Skaga varð
það slys, að húsfreyjan, Margrét
Viggósdóttir, lenti ásamt drátt-
arvél er hún stjórnaði, fram af
Skefilsstaðabökkum, 15—20
metra háum. Hún fótbrotnaði
og brákaðist í baki og liggur nú
í sjúkrahúsinu á Sauðárkróki.
Margrét, sem er ekkja og býr
með börnum sínum á Skefils-
stöðum, var ásamt sonum sínum
að bjarga reka er slysið varð.
Þykir með ólíkindum, að konan
komst lifs af úr þessu falli.
Menn af næstu bæjum komu
þegar á slysstáð og báru konuna
upp á bakkann, en síðan flutti
slysavarnasveit frá Sauðárkróki
hana í sjúkrahús og var læknir
með í þeirri ferð. Slysið varð á
föstudaginn. G. O.
verða einnig á boðstólum kvöld-
kort, sem gilda frá kl. 19—22,
en fyrirhugað er að hafa tog-
brautirnar við hótelið og
Stromp í gangi til kl. 22 frá
mánudegi til föstudags. Þá
verða einnig til sölu árskort,
sem gilda í allar lyftur í allan
vetur. Handhafi árskorts þarf
að leggja til mynd af sér, sem
síðan er límd á árskortið og því
komið fyrir í plastveski. Árs-
kort gildir aðeins á nafn.
Börn innan 12 ára hafa
ókeypis aðgang að togbrautun-
um við Skíðahótelið virka daga
frá kl. 10—19, um helgar frá kl.
10—17.30.
Þessi árskort eru tvímæla-
laust mikil hagræðing fyrir þá,
sem stunda skíðaferðir í ein-
hverjum mæli.
í vetur verða skíðalyfturnar
opnar sem hér segir: Stólalyftan
daglega frá kl. 10—12 og 13—
17.30, nema mánudaga frá kl.
13—17.30. Togbrautin við
Stromp frá kl. 13—22 mánudag
til föstudags. Laugardaga og
sunnudaga frá kl. 10—17.30.
Togbrautirnar við hótelið mánu
daga til föstudags kl. 10—22,
laugardaga og sunnudaga kl.
10—17.30.
Skíðabrekkurnar við SStromp
og hótelið verða upplýstar á
kvöldin.
Greiðasalan í Skíðahótelinu
verður opin daglega frá kl.
8—22.30. □
LOÐNUVERÐIÐ ÁKVEÐÍÐ
Loðnuvertíðin er nú hafin og
mörg skip komin á miðin aust-
an við land.
Verð á loðnu hefur verið
ákveðið og er mun lægra en sl.
ár. í tilkynningu Verðlagsráðs
sjávarútvegsins segir:
„Á fundi yfirnefndar Verð-
lagsráðs sjávarútvegsins í dag
var ákveðið eftirfarandi lág-
. marksverð á loðnu til bræðslu
eftirgreind tímabil á loðnuver-
tíð 1975.
1. Frá 17/1 til 8/2
hvert kg kr. 2,80.
2. Frá 9/2 til 15/2
hvert kg kr. 2,05.
3. Frá 16/2 til 22/2
hvert kg kr. 1,90. i
4. Frá 23/2 til 1/3
hvert kg kr. 1,60.
5. Frá 2/3 til 8/3
hvert kg kr. 1,35.
6. Frá 9/3 til 15/3
hvert kg kr. 1,25.
Eftir 15. mars er ekki verð í
Auk framangreinds verðs
greiði kaupendur kr. 0,15 fyrir
hvert kg frá 17/1 til 15/2, en kr.
0,10 frá 16/3 til 8/3 í loðnuflutn-
ingasjóð. Eftir þann tíma er
ekki greitt framlag í loðnu-
flutningasjóð.
Afhendingarákvæði eru ó-
(Framhald á blaðsíðu 5)
Eftir síðasta norðangarð var
komið mikið fannfergi á Norður
landi og Austurlandi og féllu þá
enn víða snjóflóð í síðustu viku.
í Stíflu í Fljótum féllu tvö að
austanverðu. Skall annað á
bænum Lundi, bæði íbúðarhús
og fjárhús, en bærinn er í eyði
og grandaði snjóflóðið því
hvorki mönnum né skepnum.
En á þriðja hundrað hestar heys
voru þar og munu þeir hafa
Bændaklúbbsfmidur
Fyrsti fundur Bændaklúbbsins
verður á Hótel KEA mánudag-
inn 27. janúar og liefst kl. 21.00.
Frummælandi verður Jón
Kristjánsson fiskræktarfræðing
ur hjá Veiðimálastofnuninni og
tnlar um fiskræktarmál í ám
og vötnum. □
skemmst eða eyðilagst. Hitt snjó
flóðið féll hjá Melbreið, skammt
frá bæ og sleit þar símalínu og
raflínu.
Aðfaranótt þriðjudags, einnig
í síðustu viku, féll snjóflóð á
fjárhús á Ljótsstöðum á Höfða-
strönd og eyðilagðist það, svo
og hlaða og um 70 fjár drápust.
Bændur á Ljótsstöðum eru
tveir: Sveinbjörn Sveinbjörns-
son og Trausti Fjólmundsson.
Sömu nótt féll mikið snjóflóð
í Dalsmynni, milli Þverár og
Skarðs, en þar féll einnig gnjó-
flóð í fyrra og tók með sér veiði
mannahús.
Þá féll snjóflóð í Óslandshlíð,
um þriggja km breitt en gránd-
aði ekki fólki né fénaði, að því
er talið er, en eyðilagði girðing-
ar. Hafa snjóflóð ekki fallið þar
í mannaminnum. □
j
m
Þessi gamla mynd minnir á, að nú mun víðast jarðlaust fyrir hross og þarf því að gefa þeim,í
úti eða inni. Til að gcfa hrossunum út henta vélbundnu baggarnir vel og fýkur heyið síður en
<r
(Ljósm.: E. D.) <3
£ laust hey.
©
1 £
f <3
Á laugardaginn kom til Akur-
ejuar með flugvél, sex manna
snjóbíll, sem Flugbjörgunar-
sveitin á Akureyri keypti ónot-
aðan suður í Borgarfirði. Hann
mun, með fullum búnaði, kosta
hálfa aðra milljón króna. Hann
er útbúinn til farþega- og sjúkra
flutninga.
Samkvæmt umsögn formanns
flugbjörgunarsveitarinnar, Gísla
Lórenzsonar, á sveitin annan
snjóbíl gamlan, svo þetta er
nánast endurnýjun og auk þess
á sveitin tvo fjallabíla og jeppa,
allt góð tæki.
Um 120 manns eru í Flug-
björgunarsveit Akureyrar og er
bækistöð sveitarinnar í Strand-
götu 55 B. Stór hópur vaskra
manna er jafnan reiðubúinn til
björgunarstarfa. Nú í stórhríð-
inni voru 15—25 manns að störf
um við akstur í bænum hálfan
þriðja sólarhring, stanslausa
vakt. Annaðist sveitin þá flutn-
ing starfshópa sjúki'ahúss og
fleiri stofnana og vinnustaða, og
kom sér vel.
Auk formanns, Gísla Lórenz-
sonar, eru í stjórn Vernharður
Sigursteinsson varaformaður og
Tryggvi Gestsson gjaldkeri.
Hinn nýi bíll er keyptur fyrir
happdrættiságóða 1973 og 1974.
Bæjarbúar hafa jafnan sýnt
okkur mikla vinsemd, er við
höfum verið að safna fé til starf
seminnar, sagði formaður að
lokum. □
jan opin 3 daga í viku
Sú nýbreytni verður nú upp
tekin, að í vetur mun Akur-
eyi'arkii'kja verða opin á mánu-
dögum, þriðjudögum og föstu-
dögum frá klukkan 6 til 7.30.
Þar sem kirkjan er yfirleitt
ekki opin nema á sunnudögum
á messutíma, er þetta gert í því
skyni, að fólk, sem ekki kemst
til kirkju á sunnudögum, geti
notfært sér þetta tækifæri og
Fjárhagsáætlun Ákureyrarhæjar
er komin ti! fyrri umræðn
Fyrri umræða um fjárhags-
áætlun bæjarsjóðs Akureyrar-
kaupstaðar fyrir árið 1975, fór
fram í gær.
Hér fara á eftir helstu liðir
um tekjur og gjöld, eins og það
er samandi'egið í áætluninni:
Tekjur: Þús. kr.
Útsvör................ 396.700
Aðstöðugjöld .......... 70.800
Framlag úr Jöfnunarsj. 84.200
Skattar af fasteignum . 113.900
Tekjur af fasteignum . . 9.400
Gatnagerðargjöld...... 17.000
Hagnaður af rekstri
bifreiða og vinnuvéla 4.500
Hluti bæjarsj. af vegafé 14.400
Vaxtatekjur ............ 2.800
Ýmsar tekjur.............. 400
Gjöld: Þús. kr.
Stjórn bæjarins og
ski'ifstofur........ 27.450
Eldvarnir .............. 23.550
Félagsmál ..............116.820
Menntamál .............. 89.675
íþróttamál ............. 21.312
Fegrun og skrúðgarðar 16.280
Heilbrigðismál ......... 15.920
Hreinlætismál........... 46.300
Gatnagerð, skipulag og
byggingaeftirlit... 173.500
Fasteignir ............. 18.800
Styrkir til félaga..... 8.370
Framlag til Framkv.sj. 33.000
Vextir af lánum........ 20.978
Ýmis útgjöld ........... 17.600
komið í kirkjuna til að eiga
hljóðar stundir.
Æskulýðsfélagar munu sjá
um gæslu kirkjunnar.
(Fréttatilkynning)
Hörmulegt flugslys
Hinn 17. janúar fórst þyrla á
Kjalarnesi. Með hcnni fórust:
Indriði II. Einarsson yfirverk-
fræðingur, Lúðvík Karlsson
flugmaður, Kristján S. Ilelga-
son frainkvæmdastjóri, Sigur-
björg Guðmundsdóttir ráðs-
kona, Stcfán Ólafsson verkfræð
ingur, Guðmundur Ilannesson
verkstjóri og Tóxnas Sigurðsson
verkfræðingur.
Þyrla þessi var eign Þyrlu-
flugs h.f., nýlega keypt frá
Bandaríkjununi. □
Björn Sigmundsson
Björn Sigmundsson, fyrrum
deildarstjóri hjá KEA á Akur-
eyri og einn af vinsælustu leik-
ururn bæjarins um árabil, er
látinn, á níræðisaldri, Hann
varð bráðkvaddur að heimili
sínu, Munkaþverárstræti 4, síð-
asta laugardagskvöld. Hann var
ekkjumaður. Útför hans verður
á laugardaginn. □
Þús. kr. 714.100
Rekstrargjöld samt. kr. 629.555
Fært á eignabreytingar 84.545 Stefáll Bjai'man
Dagur
kemur næst út 29. janúar. —
Þús. kr. 714.100
Hækkanir frá fyrra ári eru
mjög miklar, bæði gjalda- og
tekjumegin, og er það bein
(Framhald á blaðsíðu 6)
Stefán Bjarman lést í Fjórðungs
sjúkrahúsinu á Akureyri 28.
desexnber, áttræður. Hann var
snjall og landskunnur þýðandi
bóka margra heimsfrægra höf-
unda er rituðu á enska tungu.
Ilann var maður skarpgáfaður.