Dagur - 22.01.1975, Síða 8
Dömu og
herra
steinhringar.
Mikiö úrval.
UM HÓLASTÓL
1 Á nýliðnu sumri rœddi ég ögn
og ritaði um Hólastól og endur-
reisn hans. Mér fannst rétt á
þessu minningarári að líta til
þess, sem frá Norðlendingum
var tekið 1798, er biskupsstóll
og skóli á Hólum voru lagðir
niður, og jafnframt leiða hug-
ann að væntanlegri endurreisn,
er um það bil 200 ár væru liðin
frá þeirri niðurlægingu og
menningarlegu tjóni, sem af því
hlaust. Hefur mér fundist að
lengur mætti ekki dragast að
sjálfur biskupsstóllinn risi á ný,
þótt skólinn megi teljast endur-
reistur, góðu heilli.
I Þessari ábendingu tóku ýmsir
vel í viðtölum og bréfum, m. a.
vígslubiskupinn nyrðra sem
vænta mátti, því að hann og
Hólafélagið, sem lengi hefir
starfað, mun að sjálfsögðu
keppa að þessu marki. En ekki
varð þó úr þessu nein almenn
umræða, nema sterk rödd merk
isbóndans og gáfumannsins í
. Eyhildarholti, Gísla Magnússon
ar. Sú rödd og undirtekt mun
hafa glatt fleiri en mig, en Gísli
telur lýðháskóla henta betur í
því endurreisnarstarfi líkt og í
Skálholti. Ég hafði nefnt nám-
skeið fyrir presta og kennara.
En vissulega væri mér það gleði
efni, að hugsa til lýðháskóla á
Hólum í Hjaltadal. Við slíkan
skóla er auövelt að tengja nám-
skeið af ýmsu tagi, svo að hvort
tveggja rúmist innan þess
ramma, sem báðir hugsa sér
! Enda munu slíkir skólar í fram-
tíð meir líkjast því, sem við höf-
STJÓRN F.Í.B.
MÓTMÆLIR
! „Stjórn F.Í.B. mótmælir harð-
lega þeirri hækkun á bensíni
sem varð þann 11. þessa mán-
aðar.
Á einu ári hefur verð á
bensíni hækkað úr 23 krónum
upp í 51 krónu hver lítri eða
um 121%.
Verð á bensíni hér á landi er
nú orðið með því hæsta sem
þekkist í heiminum og er það
mjög varhugaverð þróun í landi
sem byggir svo mjög á notkun
bifreiða." □
um nefnt námskeið, styttri eða
lengri.
Höfuðatriðið er að sjálfsögðu
'að endurreist verði hin forna og
merka hefðarstöð til forystu
norðanlands í málefnum kristi-
legrar menningar, lífstrúar og
þjóðrækni. Ég trúi því, að slík
aflstöð yrði mikill andlegur og
menningarlegur orkugjafi á
komandi tíð.
En ekkert gerist nema að sé
unnið, og líklegasti aðilinn til
forystu væri Fjórðungssam-
bandið, svo og kirkjunnar menn,
og þau blöð, sem liðsinni vildu
veita.
Mætti jafnvel nú þegar hefja
fjársöfnun, sem væri þá líka
Vegna mikillar aðsóknar og
eftirspurnar, hefur L. A. ákveð-
ið að hafa aukasýningar á
„MATTHÍASI“ n. k. fimmtu-
dags- og sunnudagskvöld. Þeir
sem enn hafa ekki séð sýning-
viljayfirlýsing. Það mundi lög-
gjafinn kunna að meta og
þannig hófst endurreisn Skál-
holts. En á meðan samstaða er
að skapast um þetta mál, sem
gera mætti ráð fyrir að yrði
jákvæð, gæti lítill vísir með fjár
framlagi í sparisjóðsbók orðið
hvatning. Sú bók ber nafn Hóla
stóls og er í vörslu Landsbank-
ans á Akureyri. Hún bíður þess
að í hana safnist og Hólastóll
njóti á sínum tíma. Og slíkum
bókum mun án efa fjölga þegar
stund ákvörðunar rennur upp.
28/12 1974.
Með beztu kveðju,
og árnaðaróskum.
Snorri Sigfússon.
una, eru eindregið hvattir til að
láta ekki úr greipum sér ganga
þetta tækifæri til að kynnast
hinum margbreytilega og litríka
persónuleika skáldsins og
mannsins Matthíasar Jochums-
sonar. □
SMÁTT & STÓRT
„ATTA BALA HÚS“
Byggingarlist íslendinga náði
víða furðu langt á meðan byggt
var úr torfi og grjóti. Veggir
voru hlaðnir með listrænu hand
bragði og risin voru brött vegna
lekahættu. Nú er byggt úr
steini og þök klædd járni. En
byggingarnienn nútínians hafa
ekki ennþá lært að byggja leka
laus hús, meðal annars vegna
hinna fáránlegu, flötu þaka. Því
miður skammast þeir sín ckki
einu sinni fyrir handarverk sín
en tala um svona og svona
margra bala hús! „Atta bala
hús“ merkir, að það hús leki á
átta stööum og þurfi því að setja
átta bala undir húslekann.
SNJÓRINN A HÚSÞÖKUM
Hin flötu eða hallalitlu luisþök
eru hinar mestu snjóakistur og
hafa fréttir af því borist, að svo
mikill snjór safnist á þau, að
sum hafi látið undan snjóþung-
anum, og er þetta raunar ekki
ný saga. Manni getur dottið í
hug, í samtölum við suma bygg-
ingameistara, að húsleki sé eitt
af náttúrulögmálunum, svo illa
cru þeir á vegi sttaddir í iðn-
grein sinni — og því miður
glæpist almenningur á að kaupa
þessi liús og fær ekki bætur
fyrir byggingargalla af þessu
tagi.
MUNIÐ AÐ GEFA
SMAFUGLUNUM
Fólk er oft á það minnt, að gefa
smáfuglunum og öndunum.
Fuglavinur leit inn á skrifstof-
una í síðustu viku og bað þá að
koina þeirri ósk á framfæri við
verslanir, að þær hefðu þær
vörur á boðstólum, er gefa
mætti auðnutittlingum og snjó-
tittlingum, en þær vörur fengj-
ust nú ekki. Er þessari ábend-
ingu hér með komið á framfæri
og því bætt við að margir bæjar
búar hafa af því mikiö yndi að
gefa fuglum þegar liarðindi eru
og fuglarnir taka því með þökk-
um, svo scm sjá má.
VÍSAÐ TIL BÆJARFÓGETA
Nokkrar mæður hafa lagt þá
spumingu fyrir blaðið, hvemig
á því standi, að unglingar, sem
vegna aldurs mega ekki hafa
vín um hönd, komi dauða-
drukknir út úr Sjálfstæðislms-
inu. Þessu er því til að svara,
að meint lagabrot í umdæmi
bæjarfógetans á Akureyri ber
að kæra til embættisins. Og ef-
laust er bæjarfógetinn einnig
fús til viðræðna uin vandamál
af þessu tagi, hvort sem þau eru
kærð eður ei.
ÞYKKJUÞUNGT FÓLK
Bálreiðar konur og þungorðir
rnenn hafa tjáð liug sinn um þá
ráðstöfun, að snjóruðningstæki
voru send upp í fjall, að Skíða-
hóteli, á nieðan ýmsar götur
bæjarins voru enn — og eru —
ófærar bifreiðum og sum liús
nú orðin olíulaus, þar sem ófært
er. Að stórum orðum slepptum,
er á þctta minnt fyrir þá, sein
þessum málum ráða og getur
það verið athugunarefni þegar
næsti liríðarkafli kemur.
„UM HEIMILIS-
LÆKNISÞJÓNUSTU
í ÞÉTTBÝLI“
Fundur haldinn að tilhlutan
landlæknis o. fl. í Domus
Medica þriðjudaginn 14. janúar
1975 ályktar eftirfarandi:
„1) Hraða ber byggingu heilsu-
gæslustöðva til þess að
bæta almenna læknisþjón-
ustu.
2) Til bráðabirgða verði bætt
úr brýnasta skortinum með
því að sjúkrasamlög og
bæjarfélög í samvinnu við
ríkið taki á leigu eða reisi
hentugt húsnæði og búi
heilbrigðisstéttum viðun-
andi starfsaðstöðu. Reynsla
ýmissa bæjarfélaga hefur
! einmitt sýnt fram á gildi
slíkrar lausnar.11 □
Grenivík, 20. janúar. Frystihús-
ið hér er undir háum bakka og
salthús er áfast. Ofan á þökin
kom á fjórða meters snjólag í
óveðrinu og lét þak salthússins
undan síga á sextán metra parti,
og féll það inn. Fiskur var eng-
inn í húsinu.
Tvær jarðýtur hafa unnið að
því að moka frá húsinu og
margir hafa unnið við að moka
af þakinu og er því verki ekki
enn lokið.
Verulegar skemmdir urðu
ekki aðrar, nema á Grýtubakka,
þar sem þak íbúðarhúss lét sig
eitthvað, en brotnaði þó ekki
verulega. Þá hafa bílar lagst
saman undan snjóþunganum,
svo sem bíll sóknarprestsins í
Laufási, sem stóð á þjóðvegin-
um. Þriggja metra skafl er hér
ofan á öðrum bíl, sem menn
hafa ekki enn þorað að moka
upp.
Hér er óskaplegur snjór.
Gamall maður sagði, að þetta
væri mesti snjór er hann myndi
eftir. Aðrir segjast muna meiri
snjó.
Ekki þurftu bændur að hella
niður mjólk, svo mér sé það
kunnugt, því að í gær komust
ruðningstækin hingað norður og
opnuðu veginn. Tveir vegheflar
og þrjár jarðýtur voru þá búnar
að vera að störfum á veginum
frá Akureyri hingað norður frá
því á miðvikudagsmorgun. Gef-
ur þetta hugmynd um, hve
snjóalögin voru mikil. Mokað
var dag og nótt. Fært er nú um
Dalsmynni austur að snjóflóð-
inu milli Skarðs og Þverár.
Snjóflóðið er ákaflega mikið og
hljóp það yfir Fnjóská og langt
upp í hlíðina að vestan. Skógur-
inn, þar sem snjóflóðið féll, er
illa farinn. P. A.
Ritstjóraskipti hafa orðið við
Frey. Gísli Kristjánsson lét af
ritstjórninni um áramótin, en
við tók Jónas Jónsson frá Yzta-
felli.
Freyr hefur verið gefinn út í
rúm sjötíu ár, og hefur Gísli
Kristjánsson verið ritstjóri hans
í tuttugu og níu ár samfleytt —
ailt frá heimkomu sinni frá Dan
mörku í lok heimsstyrjaldar-
innar síðari. □