Dagur - 16.04.1975, Síða 4
4
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar 1-11-66 og 1-11-67
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓHANN K. SIGURÐSSON
Prentverk Odds Björnssonar h.f.
Byggðastefnan
í hættu
Alþingi er að undirbúa málmblendi-
verksmiðju við Hvalfjörð. Hana á
að reisa fyrir erlent f jármagn að öllu
leyti, því að hlutur fslendinga í verk-
smiðjunni, allmargir milljarðar
króna, verður erlent lán. I’essi verk-
smiðja krefst mikillar raforku og
nýrrar virkjunar. Eignarhlutur ís-
lendinga verður stærri en erlendra.
Búið er að lofa gróða af verksmiðj-
unni.
Á sama tíma og Alþingi f jallar um
verksmiðjnírumvarpið, er tilkynnt,
að spara eigi ríkissjóði 3—4 milljarða
útgjöld, þó óskilgreind og varnögl-
um slegin. Andófsmenn málmblendi-
verksmiðjunnar óttast mengun og
lxfríkisröskun í Hvalfirði og jafnvel
víðar, * ennfremur smærri atriði
saniningsúppkasts við erlenda og
fjársterka móteigéndur.
Eitt veigamesta stefnuatriði nú-
verandi ríkisstjórnar er að lialda
uppi öflugri byggðastefnu, jafnvel
meiri en á vinstristjómarárunum.
Margt er hægt að fyrii'gefa mistækri
stjórn, sem gengur fram undir merki
byggðasfefnunnar í verki, jafnvel ný
fjárlög með hverju nýju tungli. En
stundum villást menn eða hrekjast
af aðalleið, jafnvel þótt liún Iiafi
verið skýrt mörkuð. Og nú sýnast
stjórnvöld hafa tapað byggðastefn-
unni. Ný stóriðja á Suðvesturlandi
og ný stórvirkjun hennar vegna,
einnig á Suðvesturlandi og niður-
skurður verklegra framkvæmda, sem
auðvitað kæmi fyrst og fremst niðúr
á landsbyggðinni, er stórkostleg
stefnubreyting eða alger villa, því
þessar ráðstafanir ganga þvert gegn
byggðastefnu.
En hvérnig stendur á áttavillu
stjórnar og þings? Hafa þingmenn
og þjóðin beygt sig fyrir lævísum
áróðri um, að þeim BERI að byggja
upp og treysta atvinnulífið á einum
stað landsins, en öðrum landshlut-
um verði aðeins AÐ SINNA f
NEYÐ. Á þessu tvennu er sá regin-
munur, að fulltrúar á löggjafarþingi
og stjórnsýslunarmenn hefðu átt að
halda vöku sinni. Þessi meginmunur
kemur meðal annars frain í stór-
virkjunum, hverri af annatri á Suð-
vesturlandi, stóriðju, vegagerð, hafn-
arbótum o. fl. á meðan sú deyfð ríkir
á Norðurlandi, sem orkumálin ]>ar
er glöggt dæmi um.
Ef marka má yfirlýsingar ráða-
manna þjóðarinnar um hagkvæmni
málmblendiverksmiðju á Suðvestur-
landi, ættu t. d. þingmenn Norð-
lendinga að krefjast hennar og stór-
virkjunar norðan f jalla, þó ekki væri
nema til að bjarga heiðri byggða-
stefnunnar frá algeru skipbroti. □
Frá Fj órðungssambandinu
Fulltrúar landshlutasamtak-
anna á Vesturlandi, Vestfiörð-
um, Norðurlandi og Austur-
landi koma-reglulega saman til
skiptis í landshlutunum til að
ræða hagsmunamál þessara
landshluta og landsbyggðarinn-
ar almennt. Þessi starfshópur
heldur reglulega tvo fundi ár-
lega með alþingismönnum þess
ara landshluta. Samstarfsnefnd
þessara landshluta, sem í eiga
sæti tveir fulltrúar frá hverj-
um samtökum, kom saman til
fundar dagana 8. og 9. apríl á
Akureyri. Fundurinn gerði til-
lögur um þau málefni sem mest
brenna á sameiginlega í lands-
hlutunum.
Samstarfsnefndin átti fund
með alþingismönnum landshlut
anna að Hótel Sögu í Reykja-
vík föstudaginn 11. apríl. Fram-
sögumenn fyrir tillögum sam-
starfshópsins voru Jóhann
Bjarnason, framkvæmdastjóri
Fjórðungssambands Vestfirð-
inga og Guðjón Stefánsson,
framkvæmdastjóri Samtaka í
Vesturlandskjördæmi. • Síðan
hófust almennar umræður, sem
þátt tóku í alþingismenn og full
trúar í samstarfsnefndinni.
HELSTU NIÐURSTÖÐUR
OG ALYKTANIR.
Samstarfsnefndin bendir á,
" að sú jákvæða búsetuþróun,
sém átti sér stað í dreifbýlinu
1973, er að snúast til hins verra.
Bendir nefndin á, að engin
landshluti utan Faxaflóasvæðis
ins nái meðaltalsfjölgun íbúa í
landinu 1974 og í sumum þrótt-
miklum þéttbýliskjörnum var
fólksfækkun.
Sú atvinnuaukning, sem kom
í kjölfar skuttogarakaupa og
frystihúsauppbyggingar skapar
ekki búsetuaukningu um lengra
tímabil, nema á eftir fylgi aukn
' ing atvinnutækifæra í iðnaði
og þjónustugreinum.
- Misræmið á milli dreifbýlis-
ins annars vegar og Faxaflóa-
svæðisins hins vegar, þar sem
iðnaðuj- og þjónustustarfsemi
þjóðarinnar er að mestu stað-
sett, veldur að dómi nefndar-
innar, ásamt húsnæðisskorti að
aðstöðumun til menntunar,
mestu um búseturöskun í land-
■ inu.
Heildartekjur á hvern íbúa
eru lægri úti á landi, en í
Reykjavík. Þessi mismunur
Svig karla. - Tími
Haukur Jóhannsson, KA 83,32
Tómas Leifsson, KA 83,50
Teodór Sigurðsson, ÍMA 85,79
Konur. “ Tími
Margrét Baldvinsd., KA 106,01
Margrét Vilhelmsd., KA 107,53
Guðrún Frímannsd., KA 107,53
Drengir 15—16 ára. Tími
Karl Frímannsson, KA 90,71
Ingvar Þóroddsson, KA 90,91
Ottó Leifsson, KA 94,10
Stórsvig karla. Tími
Haukur Jóhannsson, KA 110,54
Tómas Leifsson, KA 112,87
Teodór Sigurðsson, ÍMA 117,60
Veður og skíðafæri eins og
best var kosið, sól, logn og ný-
fallinn snjór.
Mótsstjóri var Óðinn Árna-
son en tímavörður Grétar Ólafs
son.
Mjög margt fólk á skíðum í
Hlíðarfjalli. Eftirleiðis verða
lyfturnar í Hlíðarfjalli opnar
frá kl. 13—21 alla virka daga,
en um helgar eins og venjulega
9.30—17.30. □
hlýtur að hafa veruleg áhrif á
búsetuþróunina. Sé álagningar-
aðstaða sveitarfélaga borin sam
an kemur í ljós, að álagningar-
tekjur á hvern íbúa í Reykja-
vík eru hærri en í dreifbýlinu,
án þess að beitt sé hærri gjald-
stigum. Samstarfsnefndin telur,
að þennan aðstöðumun eigi að
jafna með breyttum úthlutunar
reglum Jöfnunarsjóðs sveitar-
félaga, sem stefni að jöfnun á
aðstöðu sveitarfélaganna, til að
sinna verkefnum sínum.
Samstarfsnefndin væntir þess
að byggðanefndin skili áliti á
þessu Alþingi og verði síðan
samþykkt lög um afgerandi ráð
stafanir til að tryggja búsetu
og fjölbreytni atvinnulífs í hin-
um dreifðu byggðum landsins.
Landshlutasamtök.
Samstarfsnefndin leggur sér-
staka áherslu á, að lög um lands
hlutasamtökin verði samþykkt
á yfirstandandi þingi, og minnir
á að aðalfundur allra landshluta
samtakanna hafa samþykkt
áskoranir til alþingismanna á
þann veg.
■ ■ ■ ^ • t ; I
Þéttbýlisvegafé og
gatnagerðaráætlun.
Sérstaka áherslu þarf að
leggja á að tryggt sé lánsfjár-
magn til að standa undir 50%
kostnaðar á 10 ára fram-
kvæmdatímabili gatnagerðar-
áætlunar. Núgildandi lagaregl-
ur um úthlutun þéttbýlisvega-
fjár eru óraunhæfar, sem sést
m. a. á því, að landshlutamir
Vestan, Norðan og Austan eru
með 48.0% þjóðvega í þéttbýli
en til þeirra rann aðeins 23.4%
þéttbýlisvegafjárins, á tímabil-
inu 1964—1974.
Einnig skal á það bent, að
þéttbýlisvegaféð hefur skipst
ójafnt, höfuðborgin hefur feng-
ið á síðustu 10 árum rúmar
18.400 kr. á hvern kílómetra, en
sá landshluti, sem minnst fékk
hefur aðeins fengið 2.717 kr. á
km þjóðvega í þéttbýli. Séu
þessir þrír landshlutar (V A N)
reiknaðir sem heild, koma út
að meðáltali 7.051 kr. á hvern
kílómetra, en landsmeðaltal er
13.489 kr. á km. Af þessu er
ljóst er skipting þýttbýlisvega-
fjár eftir íbúareglunni er byggð
á rangri forsendu.
Nefndin skorar á þingmenn
dreifbýlisins að reyna að ná
fram leiðréttingu á núverandi
misrsémi.
Húsnæðismál.
Húsnæðismálastofnun ríkis-
ins hefur gert tillögur um að
byggðar verði 277 leiguíbúðir,
á vegúm sveitarfélaga á yfir-
standandi ári. Nú þegar er búið
að úthluta lánsfé til byggingar
138 íbúða.
Mjög" áríðandi er að útvega
Byggingasjóði ríkisins fjármagn
til að lána til þeirra 139 íbúða,
sem enn skortir fjármagn til.
Sýning á íslenskum minkaskinn
um var í Varðborg á Akureyri
á sunnudaginn, sú fyrsta sinnar
tegundar liér á landi. Minka-
ræktin, sem nú er stunduð hér
á landi, hefur staðið í finun ár
og eru minkabúin sjö talsins.
Þessi atvinnuvegur liefur átt í
fjárhagsörð'ugleikum, sem tald-
ir eru stafa af ónógri frjósemi
dýrannn, of litlum fóðurfram-
leiðslustöðvum fyrir minkabúin
og reynslulcysi minkahirða.
Verð á minkaskinnum hefur
ekki verið hagsætt fyrir fram-
leiðendur síðustu finun árin,
Samstarfsnefndin ítrekar hér
með ósk sína um að ráðherra
skipi framkvæmdanefnd, sem
annist framkvæmd áætlunar
um leiguíbúðir á vegum sveitar
félaga. í nefndinni eigi sæti full
trúar landshlutanna.
Framkvæmdastofnun ríkisins.
Samstarfsfundurinn leggur
til að lög og starfshættir Fram-
kvæmdastofnunar ríkisins verði
endurskoðuð, til að auka starf-
semi að byggðamálum, með efl-
ingu Byggðasjóðs og stofnun
byggðamáladeildar.
Dreifing opinberrar þjónustu.
Samstarfsnefndin telur það
vera eitt af meginstefnumálum
dreifbýlisins, að skipulegar að-
gerðir í dreifingu opinberrar
þjónustu • út á landsbyggðina
verði hafnar hið fyrsta.
Jafnframt slíkum flutningi
þjónustu þarf að koma til í rík-
ari mæli aukning valds hinna
einstöku landshluta í sérgreind
un málefnum þeirra.
Orkumál.
Samstarfsnefndin bendir á
gífurlegt misræmi f hitunar-
kostnaði húsa, eftir byggðalög-
um. Hraðað verði rannsóknum
og undirbúningi að gerð stærri
orkuvera í þeim landshlutum,
sem þau eru ekki fyrir. Orku-
ver landsins verði samtengd til
að tryggja öryggi í orkuflutn-
ingi og orkudreifingu.
Hafnarmál.
Samstarfsnefndin 1 e g g u r
áherslu á, að komið verði upp
umdæmisskrifstofum hafnar-
málastofnunarinnar úti um
land.
Fundurinn bendir á, að ein-
ungis 1.7% af heildarupphæð
fjárlaga 1975 er ætlað til hafnar
framkvæmda, og telur að ekki
komi til greina að dregið verði
úr þessari fjárveitingu við vænt
anlegan niðurskurð fram-
kvæmdafjár.
Jöfnun flutningskostnaðar.
Samstarfsnefndin bendir á að
vegna aukins flutningskostnað-
ar búi dreifbýlið við mun hærri
framfærslukostnað, en Faxa-
flóasvæðið. Telur nefndin að
brýnni þörf sé nú, en nokkm
sinni fyrr, að jafna þennan að-
stöðumun með opinberum að-
gerðum.
Samstarfsnefnd urn vegamál.
Samstarfsnefndin óskar þess,
að með lögum verði komið á
fót samgöngumálanefndum,
sem skipaðar verði fulltrúum
Vegagerðar ríkisins og samtaka
sveitarfélaga í viðkomandi
landshlutum.
Skipan opinberra framkvæmda.
Samstarfsnefndin ítrekar ósk
ir sínar um, að löggjöf um skip-
an opinberra framkvæmda
eða 80 danskar krónur meðal-
verð fyrir skinnið. Minkastofn-
arnir í þessum sjö minkabúum
eru taldir sæmilegir og mikið
af íslcnsku skinnunum mjög
góð vara. Veðrátta hér á landi
er talin hagstæð framleiðslu
úrvals minkaskinna og aðalefni
minkafóðurs er fyrir hcndi og
mjög gott. Nú á að flytja inn
alhnikið af minkum frá Finn-
landi og stofna minkabú, sem
verður sameign Finna og íslcnd
inga, þar sem hinir fyrrncfndu
leggja m. a. til þekkingu sína
og reynslu.
verði breytt, svo að sveitar-
stjórnir geti áfrýjað stöðvunar-
valdi Framkvæmdadeildar Inn-
kaupastofnunar ríkisins.
Símamál.
Samstarfsnefndin bendir á
það mikla óréttlæti sem lands-
byggðin býr við í símakostnaði.
Vekur nefndin athygli á, að
hægt er að tala 30 símtöl, með
ótakmarkaðri tímalengd, innan
Reykjavíkursvæðisins fyrir
sama gjald, og eitt viðtalsbil
kostar í sjálfvirkum síma t. d.
frá ísafirði, Akureyri eða Egils-
stöðum til Reykjavíkur.
Niðurskiirður opinberra
framkvæmda.
Samstarfsnefndin varar mjög
alvarlega við niðurskurði á
framkvæmdum ríkisins úti um
land, þar sem stærstu framlögin
eru til málaflokka, sem hafa
grundvallarþýðingu í byggða-
þróun, svo sem til heilbrigðis-
mála, skólamála, hafnarmála og
annarra samgöngumála. Sér-
staklega varar nefndin við
skerðingu á fjáröflun til
Byggðasjóðs.
(Fréttatilkynning)
- Stutt fréttabréf ...
(Framhald af blaðsíðu 8)
gera sér vonir um, að þar verði
risin jafnstór bræðsla fyrir
næstu loðnuvertíð og sú, sem
snjóflóðin eyðilögðu í vetur.
Að því er stefnt.
Virkjunin við Lagarfoss skil-
ar enn ekki fullum afköstum,
en nú er hætt að keyra dísil-
vélarnar, allt frá Borgarfirði
eystra til Djúpavogs. Þetta er
heimafengin orka í stað þess að
hún var áður keypt frá aröbun-
um og er það blessaður munur
og mikill gjaldeyrissparnaður.
Vandkvæði hafa verið á því
að halda uppi nægilegri spennu
syðst á svæðinu, vegna þess að
dreifilínur eru of veikar. Ætl-
unin er að bæta úr því á næsta
sumri með nýrri línu frá Gríms
árvirkjun, yfir Þórsdalsheiði til
Reyðarfjarðar. Við það er kom-
in hringlína, sem eykur öryggið
til mikilla muna.
Svo er áformað hjá rafmagns
veitunum að setja rennslislokur
í Lagarfossvirkjunina til að
Vyggja vatnsmiðlun að vetri
til. En það gæti hins vegar orð-
ið upphaf að nýjum Laxár-
sviftingum.
Enn hefur ekki fundist lík
Hlínar Ingvarsdóttur, 5 ára, er
drukknaði í Eyvindarstaðaánni
í síðustu viku. V. S.
F ulltr úaráðsf undur
Sambands ísl.
Sveitarfélaga
Fulltrúaráðsfundur Sambands
íslenskra sveitarfélaga verður
haldinn hér á Akureyri n. k.
þriðjudag og miðvikudag, og er
það aðalfundur, sá fyrsti, sem
haldinn er utan Reykjavíkur.
Páll Líndal formaður fulltrúa
ráðsins setur fundinn á þriðju-
daginn. Geir Hallgrímsson for-
sætisráðherra fyltur ávarp, enn
fremur forseti bæjarstjórnar,
Valur Arnþórsson.
Jón Sigurðsson forstjóri Þjóð
hagsstofnunar flytur ræðu síð-
ari fundardaginn, um búskap
sveitarfélaganna. Á eftir verða
fyrirspurnir og umræður um
ræðu þessa.
Framkvæmdastjóri Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga er
Magnús E. Guðjónsson fyrrver-
andi bæjarstjóri á Akureyri. □
Loðskinnasýning
5
Fæddur 26/9 1917.
Dáinn 25/3 1975.
Tak skíðin og
MINNING
Enn hefur dauðinn höggvið skarð
í hópinn vinnuhaga,
þitt endadægur óvænt varð,
nú öll er lífs þíns saga.
Við andlát' þitt hér allt varð snautt,
það andar kalt uni lundinn.
Nú sorg er hjúpað sætið autt,
og sár er kveðjustundin.
Þitt líf hér brast sem leifturskin,
þvi Iauk nær niiðjum degi.
Með þér við kveðjum kæran vin,
þitt kall við skiljum eigi.
Þín minning lifir, mild og tær,
hún mýkir lijartasárin.
Á ferli þínum friðarblær
þér fylgdi gegnum árin.
Og takmark lífsins trúin sér,
þó tárin glitri á hvörmum,
því Hann, sem ljós og lífið er,
þig lykur náðarörmum.
Við þökkum tryggð og létta lund
og ljúfa daga, — bjarta.
Þú óvænt mættir efstu stund
með yl hins trúa hjarta.
Ó, Ijúfi Jesús, lof sé þér
þá Iiljublómin anga,
og eins er þrautir þjaka hér
er þyngist jarðarganga,
þú hefur opnað himins dyr,
þar liólpin sál er fundin.
Og yl þinn gefðu enn sem fyr
um auða skógarlundinn.
J. S.
Nokkra umhugsun og umtal
hefur grein mín vakið, sú er
birtist í síðasta tbl. Dags, og er
það vel. En ekki eru þar allir á
mínu máli, sem ekki er von. Þá
sagði einn, að greinin væri svo
háfleyg, að hann skildi mig
ekki. Þótti mér þetta næsta
ótrúlegt, nema vera kynni í
sambandi við línúbrengl, sem
varð í prentverkinu. Þar færð-
ist lína til og varð jafnvel mér
sjálfum talsvert erfitt að lesa
hana inn á réttum stað! — Sum-
ir segja, að ég sé. þarna á eftir
tímanum, orðinn gamaldags. og
skilji ekki. viðhorf þeirra yngri,
sltíðaklossaliðsins, en af umtali
finn ég, að þá eru allmargir
fleiri á sama stigi og ég.
Þess gat ég ekki í fyrri grein
minni, að slysahætta reynist
mikil með þessum tæknibúnaði
til fótanna. Oryggisbúnaðurinn
reynist ekki öruggur, skíðin
losna stundum ekki við fall,
ökklinn er fjötraður, og leggur-
inn brotnar ofan við hart reim-
aðan klossann. Orsökin er sögð
sú, að um of er hert að skrúf-
um til þess að verða sem stöðug
astur við skíðin. Það þarf' að
kynna þennan umbúnað fyrir
börnum og byrjendum. Lækn-
ir, við sjúkrahúsið hérna, sagði
það fyrir nokkrum dögum, að
höfuð áhyggjuefni þeh-ra við
slysavarðstofuna, væri Hlíðar-
fjallið, meiðslin og brotin þar
væru hræðilega tíð. Því betur
voru slysin ekki svo tíð nú um
páskana, færið mýkra en um
tíma áður.
í raun og veru er sá fótabún-
aður og bindingar, sem tíðast
sjást nú hér í Hlíðarfjalli, bara-
fyrir atvinnumenn og þá, sem
eru að æfa og búa sig undir
erfiða keppni. Fjöldinn ætti að
fá annað og heppilegra á fæt-
urna, þ. e. a. s. þeir sem vilja
njóta fjölbreytni skíðaferðanna
til fjalla og alhliða þjálfunar
þeirra fyrir líkamann. Þetta er
mín skoðun á málinu, aðrir hafi
sína, ef vilja.
Við þyrftum að fá á markað-
inn sportskíði, létt á fæti, liðug
til sveiflu í brekku, og þó vel
hæf til göngu, þ. e. fyrir þá,
sem ekki stefna og æfa til kapp
Karlakórinn GOÐI
Karlakórinn Goði, sem skipað-
ur er söngmönnum úr fjórum
hreppum austan Vaðlaheiðar,
hefir í vetur æft af kappi og
hafa æfingar verið tvisvar í
viku síðan í janúarlok. Æft er
í Stórutjarnaskóla. Stjórnandi
kórsins í vetur sem og undan-
farna vetur er tékkneski hljóm
sveitarstjórinn Robert Bedzek,
en hann starfar við Tónlistar-
skóla Húsavíkur og tónlistar-
deild Stórutjarnaskóla, er stofn-
sett var haustið 1973, og hefir
því starfað tvo vetur.
Robert er í sumar á förum
til Prag, þar sem hann er fast-
ráðinn við „Prag-konsetrt“.
Kórinn mun halda marga
samsöngva á næstunni víða um
Norðurland, og flytja fjölbreytt
efni, eins konar úrval þess efn-
is, er kórinn á síðustu vetrum
hefir flutt, en uppistaða skrár-
innar er þó flutt í fyrsta sinn
nú.
Með kórnum koma fram fjór-
ir einsöngvarar, þeir Viktor A.
Guðlaugsson, Bragi Vagnsson,
Helgi R. Einarsson og Sigurður
Stefánsson.
Þá koma þessir hljóðfæraleik
arar fram með kórnum: Sigurð-
ur Árnason flauta, Helgi R.
Einarsson gítar,
riksson harmonikka og Robert
Bedzek fiðla og xýlófónn.
Þá mun Goðakvartettinn
syngja nokkur erlend þjóðlög,
en hann er skipaður kennurum
úr Stórutjarnaskóla þ. á. m.
söngstjóranum, Robert Bedzek.
Kvartettinn hyggur á sjálf-
stæða tónleika síðar í vor og í
sumar.
Kórinn mun á næstunni
syngja á þessum stöðum: Þriðju
daginn 15. apríl kl. 21.30 á
Grenivík, fimmtudag 17. apríl
kl. 21.30 í Ljósvetningabúð,
laugardag 19. apríl kl. 20.30 í
Samkomuhúsinu á Akureyri,
sunnudag 20. apríl kl. 16.00 á
Húsavík, og kl. 21.30 í Skúla-
garði, þriðjudaginn 22. apríl kl.
21.00 í Freyvangi og tvo sam-
söngva ráðgerir kórinn í Skaga-
firði fimmtudaginn 24. apríl n.k.
Stjórn kórsins skipa nú:
Viktor A. Guðlaugsson, Stóru-
tjarnaskóla, Sigtryggur Vagns-
son, Hriflu og Jón G. Lúters-
son, Sólvangi.
Stórutjarnaskóli er nú orðinn
eins konar félagsmiðstöð á
þessu svæði, og á sl. vori var
stofnaður Lionsklúbburinn Sig
urður Lúter, sem þar hefir að-
syngur
Grímur Frið- setur sitt, auk ýmiss konar starf
semi kvenfélaga. Ráðgert ér að
borun eftir heitu vatni verði
hafin við skólann innan
skamms, og er gert ráð fyrir, að
bor sá, er að undanförnu hefir
verið á Hrafnagili, verði notað-
ur til verksins. Framkvæmdir
við sundlaug eru nú á lokastigi,
og jafnframt er unnið við gerð
tengiálmu skólans, en í henni
er íþróttaaðstaða öll, bókasafn,
setustofa nemenda o. fl.
göngu. Og skíðabönd eða gorma
þarf að miðað við alhliða notk-
un, þar sem fóturinn er ekki
fjötraður við skíðin í göngu,
en festing sæmileg til brekku-
ferða, þar sem ökklinn fær að
þjóna sínu hlutverki og styrkist
við æfinguna, alveg öfugt við
það, sem klossabindingurinn
leyfir.
Mér varð það á síðast, að
segja eina ferð í stólalyftunni
kosta kr. 85,00. Verðið er aðeins
80 krónur, en það er nóg. Dags-
kortið kostar 600 kr. Fyrir það
verð fáum við, þegar margt er
um manninn, að standa lengi í
biðröðinni milli ferða. En það
skyldi varast, að hafa þessi kort
með sama lit frá dégi til dags,
breyting aðeins sú, að skipt er
um einn tölustaf, og er það leik-
ur einn að haga og nota sama
kort t. d. bæði 30. og 31. Ungl-
ingarnir, sem í biðröðina þyrp-
ast, eiga fáir „peninga eins og
skít“ og það er ekki rétt að
freista þeirra — eða annarra —
að láta vera að borga 600 kr.
nema annan daginn! Umsjónar-
maðurinn hefur enga aðstöðu
til að sjá hið rétta úr klefa sín-
um. En svangur strákur, sem
kominn er í stólinn og líður upp
í „Stromp“ á kortinu frá því í
gær hugsar e. t. v.: Eftir næstu
ferð skrepp ég inn í sal og fæ
mér að éta. Ég get fengið tvær
stórar brauðsneiðar með áleggi
og eitt mjólkurglas fyrir 600
krónurnar, sem ég sparaði mér
þarna! En hótel í Hlíðarfjalli
virðist miðað við aðsókn þeirra,
sem hafa miklu meira af pen-
ingum en skít, og slíkir virðast
enn til með þessari barlóms —
syngjandi þjóð eins og t. d. kall
inn (fyrir sunnan?), sem keypti
sér hest fyrir 70 þús. krónur.
Kunningjarnir, sem aldrei
höfðu getað fengið hann með
sér á hestbak, spurðu, hvað
hann ætlaði að gjöra með hest.
„Mig vantar skít á lóðina mína,“
sagði kall.
Það er vissulega gaman og
unaðslegt líka, að koma upp í
sóldýrð og fannir Hlíðarfjalls,
sjá mannfjöldann og alla mögu-
leikana, sem bjóðast, og njóta
dýrindiskrása í fallegum veit-
ingasal. Og þó óska ég umbóta:
Að biðraðirnar (aðgerðaleysið)
styttust, en fleiri og fleiri leit-
uðu út um ása, lægðir og hlíðar
í göngu og rennsli, með gott á
fótum. Ög fólk á skíðum, ungl-
ingar og áhugafólk á öllum
aldri, þarf að eiga kost á góðri
hressingu fyrir lítið verð, t. d.
mjólkurglas (kvart-lítra), og
væna brauðsneið með smjöri og
osti, fyrii- 75—100 krónur, þ. e.
nál. búðarverði í bænum, að
viðbættu álagi um 100%. Á
slíku og öðru þvílíku gæti orðið
góð sala. Mál er að linni, meinar
ritstjórinn.
„Brekknakoti" á páskum. j
Jónas Jónsson.
Lovísa
(Fréttatilkynning)
Hinn 18. apríl verður húsfreyj-
an á Norðurvegi 15 í Hrísey, sjÖ
tug, og vildi ég gjarnan senda
góðri vinkonu heillaóskir og
örfá kveðjuorð á þessu merkis-
afmæli hennar. Lóa er Þingey-
ingur að ætt, fædd að Brettings
stöðum á Flateyjardal og kom-
in af hinum gamla og sterka
stofni Brettingsstaðaættar, sem
á sér djúpar, traustar rætur í
þingeyskum jarðvegi. Frá því
að hún stofnaði heimili með
manni sínum, Júlíusi Stefáns-
syni í Hrísey, hefur hún af
alhug unnað Eyjafirði og eyj-
unni sinni góðu. Júlíus, maður
hennar, vel þekktur bátasmiður
og mikill hagleiksmaður, lézt
fyrir 5 árum, og átti Lóa þar á
baki að sjá hinum ágætasta
eiginmanni og ljúfum heimilis-
föður. Þá miklu sorg bar hún
með stillingu og reisn.
Börn þeirra hjóna eru 8, sem
komizt hafa til fullorðinsára, og
eru öll mannvænleg og hafa öll
haft með sér að heiman ágæta
lyndiseinkunn, þrek og dugnað,
glaðværð og gott hjartalag.
Dagsdaglega er Lovísa kona
hæglát og fremur hlédræg.
Mikil og erfið störf hefur hún
um áratugi leyst af hendi sem
móðir og húsfreyja á umsvifa-
Þakkir til menntamálaráðherra
Á aðalfundum félaga áfengis-
varnanefnda á eftirtöldum stöð
um hafa verið samþykktar þakk
ir til Vilhjálms Hjálmarssonar
menntamálaráðherra fyrir þá
ákvörðun hans að veita ekki
áfengi á vegum ráðuneytisins:
Gullbringusýslu, Kjósarsýslu,
Mýra- og Borgarfjarðarsýslu,
Snæfellsness- og Hnappadals-
sýslu, Vestur-ísafjarðarsýslu,
Norður-ísafjarðarsýslu, Stranda
sýslu, Austur-Húnavatnssýslu,
við Eyjafjörð, Suður-Þingeyjar-
sýslu, Austurland, Austur-
Skaftafellssýslu, Vestur-Skafta-
fellssýslu, Rangárvallasýslu,
Árnessýslu.
Mörg þessara félaga hvetja
jafnframt aðra ráðherra til að
fara að dæmi Vilhjálms Hjálm-
arssonar.
Fréttatilkynning 9. 4. 1975.
(Áf engisvarnaráð )
miklu heimili, og hennar mesta
hamingja er vafalaust að sjá þá
góðu ávexti sem hús hefur upp-
skorið í börnunum sínum, og
þau sjálf hafa einnig kunnað
vel að meta þá gæfu, sem það
er að eiga jafn góða foreldra.
Oft hefur verið glatt á hjalla,
þegar fundum okkar Lóu bar
saman. Hún virðist svo sannar-
lega ausa af ótæmandi brunni
kjarks og glettni, sem lífgar allt
hennar umhverfi. Við slík tæki-
færi getur hún átt það til að
kasta fram vísu, því hún er vel
hagmælt eins og margt af henn-
ar fólki. Hún er sannur höfð-
ingi heim að sækja, tíguleg
kona í framkomu allri, og sú
reisn sem hún hefur til að bera,
er henni meðfædd og eðlileg
kynfylgja frá gömlum þingeysk
um ættum. Lífsgleði hennar og
bjartsýni er af sama toga spunn
in. Fjölmargir hafa notið gest-
risni fjölskyldunnar að Norður-
vegi 15 í Hrísey, því allir finna,
að þeir eru þar innilega vel-
komnir, og þaðan fer maður
alltaf léttari í lund og með góð-
ar minningar.
Á þessu merkisafmæli þínu
vil ég fyrir hönd fjölskyldu
minnar senda þér hugheilar
hamingjuóskir og bið þér og
öllum þínum nánustu blessun-
ar. Vinur. j