Dagur - 01.10.1975, Blaðsíða 4
4
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akurcyri
Símar 1-11-66 og 1-11-67
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓHANN K. SIGURÐSSON
Frentverk Odds Björnssonar h.f.
Skapatrausfogfesíu
Bæjastjórinn á Akureyri, Bjarni
Einarsson, hefur skrifað um byggða-
þróun í Samvinnuna. Hann rekur
fyrst hvernig mörg einkafyrirtæki
liafi stað'ið fyrir athöfnum á hinum
ýmsu stöðum og á hinum ýmsu
vaxtarskeiðum, sem dýrmætt afl í
þróuninni. En þessar „gullaldir“ ein
stakra landshluta hafa ævinlega
byggst á tímabundnum uppgripum,
* en síðan hafi fylgt samdráttur í at-
vinnulífi, venjulega þannig, að
einkafyrirtækin hafi dregið úr
rekstri jafnvel hætt eða ílutt burtu
og stundum hafi kaupfélagið staðið
eitt eftir. Hafi þá kotnið í þess hlut
að bjarga því sem bjargað varð og
byggja upp staðinn og félagssvæðið.
Sem samtök fólksins á hverjum stað,
segir bæjarstjórinn, hafa kaupfélög-
in tekið þátt í margvíslegri uppbygg-
ingu, auk hinnar kunnu þjónustu
við landbúnaðinn. Þau hafa tekið
þátt í flestu því, sem til heilla hefur
horft í viðkomandi byggðarlagi, og
það ekki fyrst og fremst með tilliti
til ágóðavonar. Dæmin um fisk-
vinnslustöðvar, bíla- og búvélaverk-
stæði og önnur þjónustu- og fram-
leiðslufyrirtæki eru svo mörg, að
óþarft er upp að telja. Einnig eru
þess mörg dæmi, að kaupfélögin hafi
stutt efnilega athafnamenn með
framlögum til fyrirtækja þeirra, jafn
vel með minnihlutaþátttöku. Hefur
kaupfélagið þá í senn verið aflgjafi
og skapari trausts og festu. Eitt
skemmtilegasta dæmið um slíkt er
stofnun Flugfélags Akureyrar.
„í sögu Akureyrar hafa skipst á
skin og skúrir,“ segir B. E„ „eins og
í sögu annarra byggðarlaga. Tími
liákarlaveiða leið og síldin kom í
staðinn og hvarf aftur. Einstakir
athafnamenn hafa lagt mikið af
mörkum til eflingar bæjarins. Sum
einkafyrirtæki hafa horfið af sjónar-
sviðinu, en önnur hafa haldið áfram
og í dag eru mörg merkileg fyrirtæki
rekin á Akureyri. En það er lán
Akureyrar, að í öllum sviptingum
íslensks atvinnulífs hefur bærinn átt
gífurlega sterkan bakhjarl, þar sem
er starfsemi Sambandsins og KEA.
Iðnaðarfyrirtæki samvinnumanna
hafa verið bænum sú trausta undir-
staða, sem staðið hefur af sér öll hret.
Ég er ekki í vafa um, að ef þýðing
starfsemi samvinnufélaganna fyrir
þróun byggðar á íslandi væri könn-
uð, kæmi í Ijós, að hún hefur ráðið
úrslitum í að byggð hefur haldist á
fjölda þeirra staða sem nú eru líf-
vænlegir. Ég vil sjálfur taka svo
djúpt í árinni að segja, að hefði sam-
vinnufélaganna ekki notið við, væri
ísland þegar orðið, eða að verða
borgríki við Faxaflóa.“ □
rSiiiiáli
Knútur Otterstedt:
Vegna þeirra athugasemda sem
birst hafa í blöðum út af því,
sem eftir mér er haft í dagblað-
inu Vísi þann 17. sept. sl., vil ég
, gera. nokkra grein fyrir því
hvernig raforkumál okkar norð
lendinga standa, út frá mínum
sjónarhóli.
I. Orkuniarkaður.
a. Gert er ráð fyrir að Sigöldu-
virkjun verði tilbúin síðla
árs 1976 og mun þessi viðbót
duga Landsvirkjunarsvæð-
inu fram til 1980, skv. upp-
lýsingum frá Landsvirkjun.
Auk þess hefir orkuráð-
herra lýrt því yfir að í Hraun
eyjarfossvirkjun verði ráðist
strax á eftir Sigölduvirkjun.
b. Á fjárlögum þessa árs eru
um 150 millj. kr. til úndir-
búningsframkvæmda vegna
hugsanlegrar Bessastaðaár-
virkjunar og eftir því sem ég
best veit, er nú lagt mikið
kapp á að nota þessa fjár-
veitingu.
Ég er alveg sammála Ingv-
ari Gíslasyni þegar hann seg-
ir að Kröfluvirkjun hljóti að
þjóna Norðurlandi og Austur
landi saman, það er skynsam
legasta leiðin úr því sem
komið er.
Fjárveitingin og fram-
kvæmdir vegna Bessastaða-
árvirkjunar benda hins veg-
ar ekki til þess að Kröflu-
virkjun eigi að þjóna Austur
landi, fyrst um sinn.
Austurland þarf ekki bæði
30 MW virkjun og línu, en
yfirverkfræðingur Rafmagns
veitna ríkisins hefir lýst því
yfir að hafist verði handa við
virkjunarframkvæmdir þess-
ar, þegar á næsta ári.
c. Af framansögðu er ljóst að
varhugavert er að reikna
með öðrum markaði en á
Norðurl., a. m. k. næstu árin.
II. Orkuspár.
Með tilliti til framanritaðs
treysti ég mér ekki til þess að
reikna með öðrum markaði en
á Norðurlandi og ég tel mig
þekkja þá möguleika, sem þar
eru á orkusölu allvel, a. m. k.
á Laxársvæðinu, en þar fer
megin orkunotkunin nú fram.
Eftirfarandi tafla sýnir raf-
orkunotkunina á Norðurlandi
(samtengda svæðinu), undan-
farin ár svo og mína spá fram
til 1980.
enda er í þeirra spá gert ráð
fyrir að framhald verði á raf-
hitun og að hún fari ört vax-
andi þegar þarna er komið.
(Skeiðfosssvæðið er ekki með
talið enda með þeirri virkjun,
sem þar er nú unnið að, sjálfu
sér nógt fram undir 1980).
Notkun um marktaxta á
svæði Rafmagnsveitna ríkisins
frá Laxárvrkjun er mjög mikil
og þar af leiðandi einnig raf-
hitun, þannig' að á því svæði
verða engar stökkbreytingar
vegna rafhitunar.
Alvarlegar athuganir fara nú
fram á möguleikum á hitaveitu
fyrir Akureyri og nágrenni, og
orkuráðherra hefir lýst því yfir
að líta beri á Akureyri sem
hitaveitusvæði.
Vissulega er slík framkvæmd,
ef af verður, tímafrek en ekki
flýtir hún fyrir fullnýtingu
Kröf lu virk j unar.
Af þessu sést að rafhithn set-
ur mikinn svip á orkuspána og
er Ijóst að hitaveita á Akureyri
hefir þau áhrif að orkunotkunin
verður mikið minni heldur en
spá Verkfræðistofu Sig. Thor-
oddsen gerir ráð fyrir.
III. Varaafl og rekstraröryggi.
Ég er sammála Ingvari Gísla-
syni þegar hann segir að ónotað
afl í Kröflu (vél nr. 2) megi
skoða sem nokkurs konar vara-
afl. Byggðalínan eykur að sjálf-
sögðu einnig rekstraröryggið
verulega. Það hlýtur þó ætíð að
vera matsatriði hversu mikið
varaaflið á að vera miðað við
aflþörf og hversu mikið má fyr-
ir það greiða. Ég tel hins vegar
að ef á að líta á umframaflið í
Kröflu og línuna eingöngu út
frá rekstraröryggissjónarmiði,
a. m. k. fyrst um sinn, þá er
rekstraröryggið of dýru verði
keypt.
Það má ekki gleyma því að á
hinu samýengda svæði á Norður
landi eru dísilstöðvar sem sam-
tals að afli eru um 21 MW,
þannig að þar er til staðar um
40% af aflþörf Norðurlands
árið 1980, miðað við ofan-
greinda spá.
Það er misskilningur hjá
Ingvari Gíslasyni að varaaflið í
Kröflu komi í stað núverandi
dísilstöðva. Dísilstöðvarnar fara
þá fyrst að gegna sínu vara-
aflshlutverki þegar nægilegt afl
er að öllum jafnaði fyrir hendi,
en skammtímatruflanir verða
og það hefir víst engum dottið
í hug að taka þessar dísilstöðv-
Ár 70 71 72 73 74 75 76 77 78 79 80
MW 22,2 25,0 26,6 32,0 34,8 37,9 40,6 43,6 46,7 49,9 53,3
Gwh 121 137 149 170 180 200 220 239 256 273 290
Framleiðslugeta núverandi
. vatnsaflsstöðva á svæðinu er
ásamt gufustöðinni við Náma-
fjall um 185 Gwh/ári og aflget-
an að vetrarlagi um 23 MW.
Séu þessar tölur dregnar frá
orkuspánni verður mismunur-
inn í árslok 1980 um 30 MW og
rúmlega 100 Gwh, sem Kröflu-
Virkjun kemur tl með að fram-
leiða.
Vitanlega eru orkuspár óviss-
ar og aðstæður og orkuþarfir
geta breyst, en þær þurfa að
breytast mikið til þess að fá
fram þá tölu, sem Ingvar Gísla-
son nefnir.
Skv. upplýsingum frá verk-
fræðistofu Sigurðar Thorodd-
sen er þeirra orkuspá fyrir
Norðurland árið 1978 um 52
MW og um 260 Gwh, en árið
1980 um 73 MW og 365 Gwh.
Af þessu sést að munurinn á
minni orkuspá og þeirra er ekki
mjög mikill árið 1978, hins veg-
ar miklum mun meiri árið 1980,
ar niður. Þær eru og verða
alltaf nauðsynlegur þáttur í
raforkukerfi Norðurlands.
IV. Lokaorð.
Ég harma það að ekki skuli
mega ræða þessi þýðingarmiklu
mál fyrir okkur norðlendinga
án þess að gripið sé til persónu-
legra ádeilna og skætings.
Það sem ég fyrst og fremst
hefi haft í huga er það, að þegar
framkvæmdum við Kröfluvirkj
Föstudaginn 19. september af
henti Lionsklúbburinn HUG
INN, Fjórðungssjúkrahúsinu á
Akureyri öndunar og hj.arta
hraðamælingartæki til notkun
ar við gjörgasslu ungbarna.
Sigurður Jóhannesson fráfar
andi formaður HUGINS afhenti
tækið og sagði að það væri
keypt fyrir það fé, sem safnað
un og línuna lýkur, þá hefst
rekstur þessara mannvirkja og
einhver verður að borga stofn-
kostnaðinn, ásamt árlegum
rekstrarkostnaði, og ég er ekki
einn um það að hafa áhyggjur
af því að erfitt verði fyrir raf-
magnsnotendur á Norðurlandi
að standa undir. þeirri miklu
fjárfestingu, sem hér á sér stað,
og hætt er við að hún endur-
speglist í verulega hækkuðu raf
orkuverði, nema óafturkræf
framlög ríkisins til þessara
framkvæmda komi til.
Með tilliti til þess að athugun
fer nú fram á stofnun Norður-
landsvirkjunar, þá tel ég nauð-
synlegt að þessi mál öll verði
þar rædd með rökum og allar
staðreyndir lagðar fram. Uti-
lokað er fyrir norðlendinga að
stofna til Norðurlandsvirkjunar
án þess að vita hvernig afkoma
þess fyrirtækis verður og hver
verði rekstrargrundvöllur þess,
en þar vegur vissulega kostn-
aður vegna Kröfluvirkjunar
mjög þungt.
Ég vil í þessu sambandi nefna
að orkumálastjóri hefir ítrekað
bent á nauðsyn þess að kanna
nú þegar orkusölumöguleikana
frá Kröflúvirkjun og að rætt
verði við hugsanlega kaupend-
ur um orkUverð og fleira í því
sambandi.
Að lokum langar mig að
varpa fram eftirfarandi spurn-
ingum til orkuráðherra.
1. Hver er áætlaður stofnkostn-
aður Kröfluvirkjunar og
hvað er ársframleiðslugetan
mikil við fulla nýtingu?
2. a) Er ákveðið að hefja fram-
' kvæmdir við Bessastaða-
árvirkjun á næsta ári?
b) Ef svo er ekki, því er þá
verið að verja þarna 130-
140 millj. kr. í ár í undir-
búningsframkvæmdir?
c) Ef ákveðið er að hefja
framkvæmdir næsta ár,
verður þá háspennulína
frá Kröflu til Austurlands
samt sem áður byggð
3. Hefir verið gerð athugun á
greiðslu- og rekstrarafkomu
Kröfluvirkjunar nokkur ár
hver er niðurstaðan?
4. Er gert ráð fyrir að orku-
notendur á Norðurlandi eigi
að standa undir rekstri
Kröfluvirkjunar (og Byggða
línunnar)? Ef ekki, hver á
þá að bera kostnaðinn?
Ég vil að endingu, til þess að
fyrirbyggja misskilning, lýsa
því yfir að það er ekki mín
skoðun að Kröfluvirkjun sé
óþörf, enda fyrirsögn Vísis.
Bæði Byggðalínan og Kröflu-
virkjun eru þarfar framkvæmd
ir, sem ekki er ágreiningur urn
að skuli koma, en það hefir
eklíi verið sýnt fram á að í full-
virkjun Kröflu og Byggðalínu
þurfi að ráðast samtímis. Eins
og ég sagði við blaðamann Vís-
is, getur hvor framkvæmdin um
sig leyst núverandi orkuvanda
norðlendinga, og hefði því mátt
fresta milljarða fjárfestingu um
nokkur ár, og ætli það hefði
ekki komið sér vel í þeim efna-
hagsörðugleikum sem þjóðin á
nú við að stríða? □
var með sölu á ljósaperum og
jóladagatölum á siðasca ári.
Fyrir hönd sjúkrahússins tók
Baldur Jónsson, yfirlæknir á
Barnadeild við tækinu, færði
Lionsklúbbnum HUGINN kær
ar þakkir, og gat þess að það
myndi stuðla að enn betri
gæslu ungbarna og auðvelda
starfsfólki gæslu þeirra. □
Dömu-
skyrtublússur
Nýjar gerðir, 6 litir.
Verð kr. 1625.
VERZLUNÍN DRÍFA
SÍMI 2-35-21.
TAKÍÐ EFTIl
ALLT VERÐUR
SELT!
Ýmislegt vænt á góðu
verði.
Gerið reyfarakaup str
í dag.
Opið aðeins í nokkra
daga enn.
Baraafataversl.
ÁSGEÍR
Skipagötu 2, Akureyr
Nýkonúð
Rósastrengir
í ullarjava.
Gobelin-myndir,
strengir og púðar.
Veggmyndir
með fléttusaumi.
Strannnamyndir.
VERZLUNÍN DYNGJ/
NÝKOMIÐ!
Ullarnærföt á 1—5 ár
M'k'k
Langermabolir
úr bómull á 1—7 ára
Mkk
Jersey náttkjólar
á 6—12 ára.
Mkk
Skólapeysur nreð vös-
uun, ný gerð.
VERSLUNIN
ÁSBYRGI
SÍI
2141
í Teppadeild:
TEPPABÚTAR
Mikill afsláttur
Ný sending
ENSK
GÓLFTEPPI