Dagur - 01.10.1975, Side 8
AGUR
Akureyri, miðvikudaginn 1. okt. 1975
STEIN-
HRINGAR
NÝKOIVINIR,
IViiKIÐ
ÚRVAL
Knattspyrnumenn á Árskógs-
strönd komu nokkuð óvænt inn
í hina hörðu keppni íslands-
mótsins sumai'ið 1974 og aftur
nú í sumar, og stúlkurnar létu
heldur ekki sitt eftir liggja í
handbolta. Þá hefur það vakið
athygli, hve margir leikir og
einnig íþróttamót, hafa farið
fram á Árskógsströnd, en ástæð
an til þess er nýr knattspyrnu-
og íþróttavöllur í næsta ná-
grenni við skólahús og félags-
heimili hreppsins.
Á Árskógsströnd stunda
menn landbúnað og sjósókn og
hafa löngum nóg að starfa.
íbúarnir voru 319 við síðasta
manntal, og þegar við það er
miðað verður hlutur þessarar
sveitar í íþróttamálunum og
framkvæ'mdum vegna íþrótta,
umtalsverður.
Dagur hitti nýlega formann
Ungmennafélagsins Reynis á
Árskógsströnd, Gylfa Baldvins-
son, bónda í Engihlíð, og bað
hann að segja lesendum eitt-
hvað ,frá þeim málum, er hér
var drepið á. Hann sagði:
Já, Árskógsströnd hefur ver-
ið talsvert í sviðsljósinu nú í
sumar í sambandi við knatt-
spyrnuna, í annarri deild.
Mörgum kom það á óvart og
kannski okkur mest, að okkur
tókst að komast upp í 2. deild
sumarið 1974. Menn höfðu það
á orði í sumar, að þátttaka okk-
ar yrði aðeins til þess að við
féllum niður í 3. deild. En
margt fer öðru vísi en spáð er,
og ungmennafélagar Reynis
Gylfi Baldvinsson.
eru þekktir að því að. vera
ákveðnir þegar þeir tak:a sér
eitthvað fyrir hendur.
í voi' var tekið til við að
undirbúa knattspyrnuliðið fyrir
átök sumarsins í 2. deild. Og þá
bauðst okkur ei'lendur þjálfari.
Nokkuð óx mönnum kostnaður
við ráðningu erlends þjálfara í
augum. En þar sem félagið
hafði alveg sparað sér kostnað
Frétt frá Alþýðuleikhúsinu
Alþýðuleikhúsið hefur fengið
Stefán Baldursson leikstjóra til
að koma norður til Akureyrar
næstkomandi sunnudag og
segja frá svokallaðri Vasa-ráð-
stefnu, sem haldin var í Finn-
landi í júní síðastliðinn. Á ráð-
stefnunni voru saman komnir
fulltrúar allra starfsgreina leik-
húsa á Norðurlöndum til þess
að ræða um efnið: „Valdaupp-
bygging og stjórnunarfyrir-
komulag leikhúsa og áhrif þess-
ara þátta á listrænan árangur."
Var Stefán einn íslensku full-
trúanna á ráðstefnunni og mun
hann segja frá niðurstöðum ráð
stefnunnar og sjónarmiðum
sem þar komu fram og er síðan
ætlunin að fundarmenn ræði
þetta efni nánar.
Fundurinn verður að Hótel
Varðborg, neðri sal, næstkom-
andi sunnudag kl. 14.30 og er
opinn öllu áhugafólki um leik-
hús. Að gefnu tilefni er væntan
legum fundarþátttakendum
bent á að fundurinn verður því
aðeins að fært verði flugleiðina
til Akureyrar um helgina.
við þjálfara áður, var ákveðið
að ráða þjálfarann. Hann er
skoskur maður, Dankan Mac
Dowell að nafni, og kom hann
til starfa í júní. Þjálfaði hann
bæði yngri og eldri flokka og
náði mjög góðum árangri með
liðin. Enda fór það svo, að
Reynir hélt sæti sínu í 2. deild.
Þótt knattspyrnan sé sú
grein, sem hæst ber í starfi
Reynis, hefur íþróttafólk félags-
ins náð mjög góðum árangri á
mótum UMSE. Þannig vann
handboltalið Reynis með yfir-
burðum alla sína leiki þar í
sumar og frjálsíþróttafólkið
sigraði á héraðsmóti UMSE,
sem haldið var á Árskógsvelli.
En þetta mót var það fyrsta,
sem haldið er á þessum nýja
velli en nýlega er lokið við að
ganga frá frjálsíþróttaaðstöðu
við völlinn, eg: honum hafa fé-
lagsmenn komið upp í sjálfboða
vinnu að mestu leyti og þykir
hann mjög góður.
Eins og sjá má af framan-
sögðu, hefur verið blómlegt
íþróttastarf hjá Reyni. Fleira
þarf. þó til að koma, því allt
kostar þetta talsverða peninga,
sem oft er erfitt að afla fyrir
■ svo lítið félag, sem aðeins hefur
um hundrað félagsmenn, án
þess að safna skuldum. En þetta
hefur þó tekist og hafa skemmti
nefndir félagsins verið iðnar s
við að ná inn peningum.
Margir félagsmenn hafa lagt
fram mikla vinnu og sýnt hug-
kvæmni, bæði við framkvæmd-
ir og tekjuöflunarleiðir. Þess
vegna stendur fjárhagur félags-
ins vel, þrátt fyrir mikinn kostn
að við þátttökuna í knattspyrnu
keppnínni. En sýnt er, að kostn
aðurinn verður miklu minni á
næsta ári, þar sem fjögur lið á
Norðurlandi leika þá í 2. deild.
Dagur þakkar upplýsingar
Gylfa Baldvinssonar, en þær
sýna svo ekki verður um villst,
að víðar er unnt að vinna fyrir
nútíð og framtíð en á stórum
þéttbýlisstöðum, þegar áhugi er
fyrir hendi í íþróttamálum. □
REYKINGAFOLK DAIVIK
5 — Daga Áætlunin er nú orðin
mjög vel þekkt hér á landi. Sí-
aukinn fjöldi fólks tekur þetta
námskeið og losnar undan oki
reykinganna.
Dagana 5.—9. okt. n. k. verð-
ur 5 — Daga Áætlunin fram-
kvæmd á Dalvík. Námskeiðið
fér fram í Dalvíkurskóla, Dal-
vík, hefst sunnudagskvöldið 5.
okt. kl. 20.30 og stendur yfir
fimm kvöld í röð. Allir — ungl-
ingar og fullorðnir, konur og
karlar sem mögulega geta, —
.eru hvattir til að nota þetta
Dalvík, 30. sept. Snjór er lítill á
Dalvík, en gangnamenn ui'ðu að
skilja eftir fé í göngum frammi
á áfrétt, vegna ófærðar.
Byrjað er að grafa fyrir nýrri
heilsugæslustöð. Búið er að
steypa kjallaraveggi í byggingu
stjórnsýslustöðvarinnar og er
ætlunin að steypa plötuna yfir
J fyrir veturinn.
Á dagskrá er að selja hinu
tækifæri til að losa sig við reyk
ingarnai'. Hættan,' sem af þeim
stafar, er öllum liós. Heilsan og
lífið er í veði. Á hverju kvöldi
verða ásamt fróðlegum erind-
um sýndar kvikmyndir, er
varpa óræku ljósi á raunveru-
leik þessara mála. Eini kostnað-
urinn, sem þátttakendur þurfa
að bera er kaup á handbók, sem
kostar kr. 500,00. Læknirinn,
sem starfa mun með Jóni Hj.
Jónssyni við þetta námskeið, er
Eggert Briem héraðslæknir,
Daivík.
opinbera. skuttogarann Baldur
á Dalvík til fiskileitar og haf-
rannsókna, en það mál var þó
ekki frágengið í gær.
Steingrímur Þorsteinsson á
Dalvik hefur stoppað upp bjarn
dýr það,'sem sjómenn frá Olafs-
firði skutu fyrr á þessu ári og
Óláfsfjarðarkaupstaður á. Mun
þetta fyrsta bjarndýrið, sem
upp er stoppað hér á landi. V.B.
s
Passíukórinn, á Akureyri hefir
þegar hafið vetrarstarfsemi
sína, með æfingum þriggja tón-
verka fyrir kór, einsöngvara og
hljómsveit, sem flutt verða
næsta vor. Þau eru: Missa
Brevis eftir Mozart, Magnificat
eftir Vivaldi og Psalm 112 eftir
Hándel.
Einnig mun kórinn koma
fram á hljómleikum á jólaföst-
unni ásamt Lúðrasveit Akur-
eyrar, og flytja lag Björgvins
Guðmundssonar Aðfangadags-
kvöld og Deutzt Messe eftir
Schubert.
Kórinn er að miklu leyti
skipaður nemendum úr Tón-
listarskólanum á Akureyri, sem
er fólk á öllum aldri.
Öllum sem áhuga hafa er vel-
komið að vera með, og mæti þá
á laugardag kl. 13 í Tónlistar-
skólanum' (2. hæð).
Eins og áður verður fenginn
liðsauki frá Reykjavík. á vor-
tónleikunum, þ. e. a. s. ein-
söngvara og hljóðfæraleikara
til viðbótar við þá sem eru á
staðnum.
SMÁTT & STÓRT,
HVER ÆTLI STEFNAN SÉ?
Leiðara Alþýðubandalagsblaðs-
ins 12. sept. lauk svo um fyrir-
hugaðar landhelgisviðræður:
„Lágmarkskrafan hlýtur að
vera:' Engar undanþágur til fisk
veiða innan 50 mílna landhelgi.“
í næsta tölublaði kom svo leið-
rétting þar sem sagt er, að setn-
ingin hafi átt að hljóða svo:
„Engar undanþágur til fisk-
veiða innan 200 mílna land-
helgi.“ I þriðja tölublaði
Alþýðubandalagsblaðs, er svo
sagt frá saniþykkt alþyðubanda
lagsmanna á Vestfjörðum. Þar
stendur: „Sérstaklega varar ráð
stefnan við því að samið verði
við útlendinga um áframhald-
andi veiðar innan 50 mílna
markanna."
Af framansögðu er ekki
undarlegt þótt spurt sé, hver sé
stefna Alþýðubandalagsins í
landhelgismálum.
ALÞÝÐUSAMBAND
ÍSLANDS
Alþýðusamband Islands hefur á
fleiri en einn veg vakið athygli.
Má þar fyrst nefna einarða af-
stöðu þess til þeirrar þjóðar,
sem um skeið hefur sýnt mesta
óbilgirni á íslandsmiðum. En
þar er átt við vestur-þjóðverja
og hótun Alþýðusambandsins
um uppskipunarbann á þýskum
vörum. f öðru lagi hefur mið-
stjórn þess einróma samþykkt
að sagt verði upp gildandi kjara
samningum fyrir 1. desember
n. k. Og í þriðja lagi hefur AI-
þýðusambandið óskað viðræðna
við stjórnvöld um hugsanlegar
leiðir til hömlunar verðbólg-
OLÍA FRA NORÐMÖNNUM
f opinberri heimsókn forsætis-
ráðherra fslands til Noregs, var
landhelgismálið mjög á dagskrá
og ráðherrann fékk tækifæri til
að kynna málstað íslendinga.
En þar bar olíumál einnig á
góma. Möguleiki er talinn á því,
að íslendingar kaupi olíu af
norðmönnum strax á næsta ári,
ef það reynist hagkvæmt, í stað
þess að kaupa hana frá rússum,
svo sem verið hefur.
Undirtektir á tónleilcum kórs
ins sl. vor sýndu að fólk kann
vel að meta þessa tegund tón-
listar, og verður þetta vonandi
fastur liður í menningarlífi
bæjarins.
Stjórnandi kórsins er Roar
Kvam. □
Sauðárkróki, 30. sept. í fyrri-
nótt varð sá atburður, að stór-
um vörubíl var stolið hér.
Fannst hann síðar og þá utan
vegar og ekki mikið skemmdui'.
Stóðréttir voru í Skagafirði
um helgina. Má þár fyrst nefna
Laufskálarétt í Hjaltadal og
Skarðarétt eða Tungurétt í
Gönguskörðum, ennfremur
Staðarrétt og Mælifellsrétt.
Margt hrossa var í réttum þess-
um, enda mun stóðhrossum
fara fjölgandi. Eins og vanalega
voru flest hross í Laufskálarétt,
SAFNA FYRIR
SJÁLFA SIG
Nokkuð ber á því, og liefur
verið undan því kvartað, að
börn gangi um bæinn, þykist
vera að safna fyrir eitthvert
félag eða stofnun, en finni upp
á þessu sjálf og séu að gabba
fólk. Því núður munu kvartanir
þessar ekki með öllu ástæðu-
lausar og þarf að leiða börnun-
um það fyrir sjónir, að verkn-
aður þeirra sé óheiðarlegur.
Auk þess gerir þetta allar safn-
anir tortryggilegar í augum
almennings.
NORÐLENSKUR j
SKÓLASTJÓRI
Norðlenkur skólastjóri gerði
það m. a. að umræðuefni við
skólasetningu nú í haust, hvort
það væri rétt stefna hjá forráða
mönnum fræðslumála, að ætla
að stytta til muna sumarlilé
skólanna og gera þar með nem-
endum erfiðara að afla sér
vinnu en efna í þess stað til
dýrrar skólakennslu um verk
og vinnubrögð, svo nemcndur
verði ekki reynslulausir glópar
o. s. frv. Væri ekki nær, segir
skólastjórinn, að lofa unga fólk-
inu að stunda líkamlega vinnu
um bjargræðistímann og jafn-
vel ætlast til þess af því, cins
og kínverjar gera.
SKÓLAHÚSNÆÐIÐ OG
FJÁRHÚSIN
Og enn segir: Er ekki kenning-
in um íengri árlegri nýtingu
kólahúsanna'í þörf fyrir endur-
skoðun? Þætti það góð hagfræði
hjá bónda, að reka fé sitt heim
úr afrétt um hásumar og taka
það á hús og gjöf til þess að fá
lengri árlega nýtingu fjárhúsa
sinna?
„RINGULREIÐ í KOLLINUM
Á KNÚTI“
Hinn 17. september lét fram-
kvæmdastjóri Laxárvirkjunar,
Knútur Otterstedt á Akureyri,
liafa það eftir sér í viðtali við
Vísi, að „önnur hvor fram-
kvæmdin er óþörf“, byggða-
línan eða Kröfluvirkjun. Enn-
fremur, að orkuöflun við
Kröfíu sé alltof mikil, og ringul
reið ríki í þessum málum.
Iðnaðarráðherra, Gunnar
Tlioroddsen, svarar þessu í Vísi
tveim dögum síðar og segir þar,
að ringulreiðin sé einkum í
kollinum á mönnum, sem þann-
ig tali. Ráðherranum finnst
einkennilegt, að * þeir, sem
liáværast hafi kvartað um orku
skortinn fyrir norðan, kvíði því
nú mest, að raforkan verði of
mikil!
Layfskálaréll
eða 7—800 talsins, einkar falleg-
ur hópur og með stærsta móti
nú. Þessi hross gengu á Kol-
beinsdalsafrétt í sumar.
Hrossasala er dauf í sumar
og lítið selt innanlands og til
útlanda.
Ekki þarf að kvarta um at-
vinnuleysi, því atvinna er meiri
en hægt er að sinna.
Fyrri og seinni göngum er
lokið. Féð reynist fremur vænt.
En nú eru komin frost og hætt
við að dilkar leggi af, nema þeir
gangi á káli eða grösugum tún-
um. G. Ó.