Dagur - 06.12.1975, Page 1
'éj ■ allatsteiöiP^
EFNAVHRKSMIÐJAN SJÖFN
Dague
■ LVIII. arg. — Akureyri, Iaugardaginn 6. des. 1975 — 51. tölublað
Haustuppboð á hrossum
Sýslumaður Eyjafjarðarsýslu
auglýsti í síðasta tölublaði Dags
uppboð á allt að 54 hrossum í
Þórustaðarétt í Glæsibæjar-
hreppi og á uppboðið að fara
fram í dag, laugardag. Þar sem
haustuppboð á hrossum eru
fremur óvenjuleg, spurðist blað
ið fyrir um það hjá sýslumanni,
hverju þetta sætti. Hann svar-
aði því svo, að hér væri um að
ræða hross Hallgríms á Vöglum
á Þelamörk. Hann væri orðinn
gamall maður og ekki heill
heilsu og hefði farið fram á það
sjálfur, að hrossin væru boðin
upp, þar sem hann hefði ekki
getað aflað heyja. Nokkrum
lirossum heldur hann þó eftir
og hefur hey og hús fyrir þau.
Uppboðshrossin munu ótamin
og á öllum aldri, og ekki er
ólíklegt, að þar kunni að leyn-
ast gæðingsefni og ekkert lík-
legra en þau séu mörg.
Uppboðið hefst kl. 1 e. h. □
Dalvík, 4. desember. Karlakór
Dalvíkur, undir stjórn Gests
Hjörleifssonar, hefur gefið út
söngplötu með 13 sönglögum
sínum. Undirleikari er Guð-
mundur Jóhannsson og ein-
söngvarar Jóhann Daníelsson,
Helgi Indriðason og Halla Jónas
dóttir. Upptakan var gerð hjá
Tónaútgáfunni.
Stjórnsýslumiðstöðin hér á
Dalvík er í byggingu. Byrjað
var á byggingunni í sumar og
var steyptur kjallarinn fyrir
veturinn. Um hana verður
getið síðar.
Aflabrögð hafa verið fremur
léleg, enda miklar ógæftir. Af
UMSE heim-
sótli skclana
Ungmennasamband Eyjafjarðar
hefur undanfarin ár heimsótt
barna- og unglingaskóla sýsl-
unnar og haft uppi fræðslu um
skaðsemi tóbaks og áfengis.
1 þessari viku hefur fram-
kvæmdastjóri UMSE, Þóroddur
Jóhannsson, og Hörður Zophoní
asson, skólastjóri Víðistaðaskól-
ans í Hafnarfirði, ferðast á milli
skólanna þessara erinda.
Þeir sýndu kvikmynd um
reykingar, aðra um skemmtanir
án áfengis og ræddu við nem-
endur um skoðsemi tóbaks og
áfengis og luku heimsólcn sinni
í ellcfu skóla á fimmtudaginn.
Heimsókn þeirra var hvarvetna
vel tekið og það er þakkarvert
hjá Ungmennasambandi Eyja-
fjarðar að leggja sitt af mörk-
um í baráttunni við skaðvæna
tísku. □
H!!ilEIS!lt!!ISII!lIii3l!ll!ilfi!8ISl
því leiðir, að of lítil vinna er í
hraðfrystihúsinu. Björgvin kom
inn í gær með 70 tonn af fiski.
Minni bátar hafa aflað mjög
lítið og nú er ekkert unnið við
rækjuna.
Bændur hafa liaft fé sitt í
húsi að undanförnu, bæði vegna
vondra veðra og snjóa. Hross
ganga úti. Reiðhestum fjölgar á
Dalvík. Menn hafa sótt gæðinga
og þó einkum gæðingsefni suð-
ur á land, en einnig vestur í
sýslur.
Að þeSsu sinni munu við-
skipti í verslunum hafa verið
eitthvað minni en á sama tíma
undanfarin ár. Er sýnilegt, að
fólk hefur minna fé handa á
milli en áður.
Tvær bækur eftir dalvíkinga
hafa komið út nú í haust. Er
hin fyrri ljóðabók Haraldar
Zophoníassonar, en hin síðari
er skáldsaga eftir ungan dalvík-
ing, Guðlaug Arason, og gefur
Iðunn hana út.
Fy rstu j ólaskrey tingarnar
eru komnar upp. V. B.
Hrossaeign bæjarbúa virðist fara vaxandi með hverju ári.
Fjölmargir akureyringar eru
aðfluttir sveitamenn og flestir
þeir, sem kalla mætti innfædda
í bænum og komnir eru til full-
orðinsára, hafa alist upp með
búskap meira og minna. Rækt-
arlönd akureyringa eru mjög
mikil og alltaf hefur verið hér
umtalsverður búskapur margra
einstaklinga. Nautgripirnir
hurfu úr bænum fyrir mörgum
árum, en eru á næstu lögbýl-
um. Hins vegar er margt af
111
sauðfé og hrossum ennþá í
bænum, þótt hús búfénaðarins
hafi víðast orðið að þoka um
set, út fyrir hið eiginlega þétt-
býli.
Samkvæmt upplýsingum
ásetningsmanns hér í bæ, Þór-
halls Péturssonar á Vökuvöll-
um, munu á sjöunda hundrað
hross hafa verið í eigu bæjar-
búa veturinn 1974—1975 og um
2500 fjár var þá á fóðrum. Nú
í haust hafa margir keypt hross
vestan úr Skagafirði og Húna-
vatrissýslum, svo búast má við,
að hrossaeignin aukist. Þá eru
nú settar mun fleiri lífgimbrar
á vetur en í fyrrahaust og bend
ir það til þess, að sauðfjárrækt-
in sé síður en svo á undanhaldi.
Margir munu hafa nokkurn
tekjuauka af sauðfjárrækt og
sumir af hrossarækt. Hitt veld-
Ur þé eflaust meiru, hve mörg-
um finnst það mikil sálubót í
þéttbýli og við einhæfa vinnu,
að eiga kinda- eða hesthúskofa
og hafa nokkurt sálufélag við
hina mállausu vini sína.
Þá eiga akureyringar 78
hunda, skrásetta og tryggða, og
ótalda ketti. Þessi húsdýraeign
er ekki öllum að skapi og stund
um ganga klögumál á víxl út
af dýrum. Stafar sumt af veru-
legri viðkvæmni, en annað af
því, að eigendiir dýranna gæta
þeirra ekki sem skyldi.
Að samanlögðu virðast bæjar
búar ákveðnir í því að halda
búskap sínum áfram, nytja tún
sín, eiga kindur í kofa og reið-
hesta við stall. □
Grænlendingar
fá 200 mílur
Danska stjórnin hefur sam-
þykkt að færa fiskveiðilögsögu
Grænlands út í 200 sjómílur ef
enginn árangur næst á hafrétt-
arráðstefnu S. þ. í New York
næsta vor.
Grænlandsráðherrann, Jörg-
en Peder Hansen, skýrði frá því
að loknum ríkisstjórnarfundi á
miðvikudaginn, að stjórnin
hefði einnig sapaþykkt starfs-
áætlun þá sem landsráð græn-
lendinga og hann gerðu í síð-
ustu viku. Samkvæmt henni á
að takmarka rækjuveiðar við
strönd Vestur-Grænlands með
tvíhliða samningum við þær
þjóðir sem stunda þær veiðar.
Frá lögreglunni
Verslanir eru opnar
6. deseinbcr.
a morgun,
□
IIBllllllllliBiBIXIIlllimilIlIIIIII
Söngskemmtun verður í Borgar
bíói þann 10. desember. John
Speight bariton syngur og kona
hans, Sveinbjörg Vilhjálms-
dóttir, leikur undir. Þau flytja
einsöngslög, bæði innlendra og
erlendra höfunda.
Þau hjónin eru bæði kennar-
ar við Tónskóla Sigursveins D.
Kristinssonar. □
í fyrradag varð harður árekstur
milli tveggja fólksbíla á Oxna-
dalsheiði, vestast í Giljareitum.
Var annar bíllinn með A-núm-
eri en hinn með K-númeri.
Fimm manns voru fluttir í
sjúkrahús á Akureyri, en ekki
mikið meiddir nema lítil stúlka,
skagfirsk, sem meðal annarra
meiðsla fótbrotnaði. Bílarnir
eru taldir nær ónýtir.
Að kveldi sama dags var
ungur maður á óskrásettri
skellinöðru tekinn á Akureyri,
eftir nokkurn eltingarleik lög-
reglunnar. Hjólið er í vörslu
lögreglunnar.
Bílaleigubíll valt neðan við
Eyrarland í Ongulsstaðahreppi
á miðvikudaginn. Bíllinn
skemmdist en enginn meiddist.
Nokkrir minniháttar árekstr-
ar hafa orðið í umferðinni í
bænum undanfarna daga. Q