Dagur - 06.12.1975, Blaðsíða 2
2
Óratoría 74.
Saga úr sjúkrahúsi
Komin er út hjá Almenna bóka
félaginu ný bók eftir Guðmund
Daníelsson rithöfund, er heitir
ÓRATÓRÍA 74 — Saga úr
sjúkrahúsi.
Það er að verða augljóst öll-
um, sem vel fylgjast með skáld
sagnagerð á íslandi, að Guð-
mundur Daníelsson er upphafs-
maður nýrrar bókmenntagrein-
ar eða skáldskaparforms, sem
kannski msétti nefna „hina af-
hjúpuðu skáldsögu“, og eru
Landshornamenn — sönn saga
í h-dúr (1967) fyrsta bók hans
af þeirri gerð. Spítalasaga —
utanflokka í bókmenntunum
(1971) er af sömu ætt, og síðast
en ekki síst er svo þessi nýja
bók: Óratóría 74 — Saga úr
sjúkrahúsi:
í öllum þessum bókum beitir
Guðmundur tækni og aðferð-
um skáldsagnahöfundarins, en
víkur af alfaraleið (móderníser-
ar) með einstaklega hlífðar-
lausri bersögli um sitt eigið til-
finningalíf, líkt og hann sé að
sálgreina og brjóta til mergjar
annan einstakling eða með öðr-
um orðum hugsmíð sína úr
heimi skáldskaparins.
Óratóría 74 fjallar um það
sem raunverulega hefur gerst,
ýmist umhverfis höfundinn eða
innra með honum, mannlíf, sem
víða liggur á mörkum vits og
óvits, lífs og dauða. En hvernig
sem allt veltist og hvernig sem
horfir, bregst skopskynið höf-
undinum aldrei, og síst þegar
hann fjallar um sjálfan sig.
Halldór Pétursson teiknaði
myndirnar. Bókin kostar 2.640
krónur. □
Land og lýðveldi
Þriðja bindi.
Land og lýðveldi er þriðja bindi
ritgerðasafns Bjarna heitins
Benediktssonar, forsætisráð-
herra. Hörður Einarsson, sem
séð hefur um útgáfu þessa
bindis eins og hinna tveggjá,
segir í formálsorðum, að ritið
sé úrval úr ræðum og ritgerð-
um Bjarna Benediktssonar,
„sem hann flutti og saihdi eftir
að fyrri tvö bindi Lands og lýð-
veldis komu út .... Má því
segja, að í ritinu gefi að líta
nokkurt yfirlit um grundvallar-
skoðanir þess manns, sem ótví-
rætt hafði manna mest áhrif í
íslensku þjóðlífi á sjöunda ára-
tug þessarar aldar.“
Alls ei'u í bindinu 17 ræður
og ritgerðir, og er lengsta rit-
gerðin um Ólaf Thors, 70 bls.,
skrifuð að honum látnum. Af
öðru efni skal þetta nefnt:
Landið og tungan (1965), Frelsi,
sjálfstæði og friður koma ekki
af sjálfu sér (1967), Um stjórn-
mál og þekkingarleit (1968),
Lýðveldið 25 ára (1969), Ríkis-
forsjá og frjálsræðisstefna
(1965), Verðbólgan og vandi
íslenskra atvinnuvega (1966),
Þættir úr fjörutíu ára stjórn-
málasögu (1970).
Nafnaskrá f ylgir ritgerða-
safninu. Bókin er 214 bls. að
stærð. Q
Segið nú amen,
séra Pétur
Guðmundur G. Hagalín hefur
sent frá sér nýja skáldsögu,
hina fyrstu síðan 1967. Þessa
nýju sögu nefnir hann Segðu
nú amen, scra Pétur, og er aðal
persónan glæsileg, viljasterk og
fégráðug kona, sem brýst fram
á eigin í'ammleik og býður sið-
rænum venjum og almennings-
áliti byrginn. Á kápu bókar-
innar segir svo:
í þessari nýstárlegu og áhrifa
ríku skáldsögu lýsir Guðmund-
ur Gíslason Hagalín af alkunnri
snilld sinni hvernig mannleg
náttúra, fjárhyggja og kynhvöt
skapa mönnum örlög. Aðal-
persóna sögunnar, hin glæsilega
og geðríka Herborg Bjarna-
dóttir skeytir lítt um siðræna
hefð og illt umtal samborgar-
anna og misjafnt álit þeirra á
líferni hennar og framkomu.
Þessi nýja skáldsaga Haga-
líns er 203 bls. að stærð. Q
Hindenburg-slysið
Zeppelin loftförin vöktu geysi-
lega athygli hVar sem þau
komu komu, meðal annars liér
á íslandi. Þegar Hitler náði
völdum í Þýskalandi notaði
hann þau til að sýna glæsileik
og tækniþekkingu nasismans.
Hindenburg loftfarið var stolt
Ilitlers, það var stærra en
nokkurt herskip og bauð upp
á öll hugsanleg þægindi. Heims
frægt fólk sóttist eftir að ferð-
ast með loftfarinu og blöðin
kepptust um að skrifa um ferð-
ir þess og Hindenburg varð
tákn um mátt og megin nasis-
mans — þar til sprengingin
mikla varð, hinn 6. maí 1937,
við Lakehurst í Bandaríkjunum
og Hindenburg brann til ösku
og 36 manns fórust í augsýn
hjálparvana áhorfenda.
Höfundur byrjar bók sína á
því að rekja sögu Zeppelin-
loftskipanna, hverfur svo að
Hindenburg-farinu, lýsir ná-
kvæmlega seinustu ferðinni og
ýmsum af því fólki sem tók
þátt í henni, bæði af óhöfn og
úr hópi farþega. Síðan er gerð
grein fyrir eftirleiknum og rak-
in saga níkkurra þeirra sem af
komust úr slysinu.
Sagan er rituð að undangeng-
inni víðtækri heimildakönnun,
en höfundurinn, Michael Mac-
Donald Mooney, er kunnur
bandarískur blaðamaður og
hefur m. a. lengi verið ritstjóri
Saturday Evning Post.
Hindenburg-slysið er 170 bls.
að stærð. Q
Menn og múrar
Menn og múrar er sjálfsævi-
saga þýskrar stúlku sem bjarg-
aði lífi á annað þúsund norskra
og danskra pólitískra fanga sem
Gestapó hafði klófest í síðari
heimsstyrjöldinni og lifðu við
hungur og pyndingar víðsvfegar
um Þýskaland. Fyrir þetta
ávann hún sér heitir Engill
fanganna. Almenna bókafélagið
gefur bókina Menn og múrar
út, Tómas Guðmundssön ís-
lenskaði.
Bókin bregður upp ljóslifandi
myndum af daglegu lífi alménn
ings í Þýskalandi frá þeim
tíma, þegar veldi Hitlers var að
hrynja í rústir og flugflotar
bandamanna helltu sprengjum
5'fir boi'girnar nótt eftir nótt.
Hér kj'nnumst við einnig hinu
„dulda Þýskalandi“, fólkinu
sem hafði fullan skilning á því
sem var að gerast, en hafði ekki
möguleika á því að láta að sér
kveða.
Hiltgunt Zassenhaus, höfund
ur bókarinnar, er nú sjúkra-
húslæknir í Baltimore í Banda-
ríkjunum.
Þýðandinn, Tómas Guð-
mundsson skáld, segir í lok for-
mála síns fyrir bókinni: „. . . . á
vorum tímum, þegar mörgum
er það þungbært áhyggjuefni,
hversu lítið og sjaldan örlar í
bókum, blöðum og öðrum fjöl-
miðlum á þeim hugsjónum
mannúðar og mildi, sem einar
geta gert vora gömlu jörð að
varanlegum samastað hamingju
og friðar, er það mikil gæfa að
hitta fyrir sér fólk eins og höf-
und þessarar bókar." Q
Suðrið
Suðrið eftir Borges í þýðingu
Guðbergs Bergssonar heitir ný
bók sem komin er út hjá Al-
menna bókafélaginu.
Argentíska skáldið Jorge
Luis Borges er fæddur í Buenos
Aires 1899, en á árunum um og
eftir fyrri heimsstyrjöldina
dvaldist hann á Spáni og í Sviss
landi, þar sem hann lagði m. a.
stund á nám, en hann er sér-
fræðingur í málvísindum, eink-
um engilsaxneskri tungu. Jafn-
framt kynnti hann sér ger-
mönsk mál, og þá ekki síst forn
íslenskar bókmenntir, sem
hann ann af alhug. Hann hefur
sagt að hann hafi lært mikið af
knöppum stíl fornrar íslenskrar
sagnritunar.
Allir, sem handgengnir eru
fögrum bókmenntum, kunna
einhver skil á ritverkum Jorge
Luis Borges. Þau eru sérstæð
og persónuleg, taka mið af um-
hverfi höfundar,, en eru þó
ekki síður alþjóðleg í þeim
skilningi, að þau eiga erindi við
fólk, hvar í heiminum sem er.
Suðrið er fyrsta ritsafn
Borges, sem út kemur hér á
landi, og er að því mikill feng-
ur, ekki síst vegna þess, að sög-
urnar eru þýddar beint úr
spænsku. Guðbergur Bergsson
hefur valið sögurnar og þýtt
þær og hefur lagt mikla alúð
við verk sitt. Það er hnýsilegt
að kynnast því, hvernig þessir
tveir gjörólíku höfundar knýja
saman dyra hjá íslenskum les-
endum. Q
Stjörnuskipið
Ný skáldsaga eftir Kristmann
Guðmundsson er komin út hjá
Almenna bókabélaginu. Nefnist
hún Stjörnuskipið — geimferða
saga og telst til þeirrar tegund-
ar bókmennta, sem nefnd heíur
verið vísindaskáldskapur.
Kristmann Guðmundsson hef
ur einn íslenskra höfunda feng-
ist við ritun vísindaskáldsagna
og er Stjörnuskipið þriðja skáld
saga hans í þessari bókmennta-
grein. Segir hún frá íslenskum
stjörnufræðingi sem tekur þátt
í vísindalegum rannsóknar-
leiðangri og fer víðsvegar um
himingeiminn. Eru leiðangurs-
menn frá ýmsum stjörnum og
margvíslegir að gerð og útliti.
Þeir rannsaka einkum lífið á
stjörnunum og komast að hin-
um ótrúlegustu sannindum, og
gæðir þessi fui'ðuveröld frá-
sögnina mikilli spennu.
Stjörnuskipið er 155 bls. að
stærð. Q
Njósnari nasista
í þjónustu breta
Nýlega er komin út hjá Al-
menna bókafélaginu einhver
þekktasta alvörunjósnasagan
frá síðari heimsstyrjöldinni.
Bókin nefnist Njósnari nasista
í þjónustu breta og er sjálfs-
ævisaga hins kunna njósna-
foringja Dusko Popovs.
Bókin lýsir einstæðum njósna
ferli Popovs í síðari heims-
styrjöldinni í spennandi frá-
sögn. í orði kveðnu vann hann
fyrir þjóðverja — sem kölluðu
hann Ivan, og töldu hann fær-
asta njósnara sinn —■ en í reynd
njósnaði hann fyrir breta, sem
nefndu hann Þríhjólið og not-
færðu sér snilli hans á þaul-
hugsaðan og mjög árangurs-
ríkan hátt. Hann átti ríkan þátt
í að blekkja þjóðverja fyrir inji-
rásina í Normandy, enda sagði
breski hershöfðinginn Petrie að
Popos hefði einn síns liðs látið
sjö til fimmtán herfylki þjóð-
verja bíða óvirk og aðgerðar-
laus fyrstu tvær vikur inn-
rásarinnar.
En Popov var ekki aðeins
njósnari — hann var líka gleði-
maður og hrókur alls fagnaðar,
kunni að meta fagrar konur en
þær urðu býsna margar á vegi
hans!
Bókin er 287 bls. að stærð. □
Húsnæði____________
Einbýlisliús á Hjalteyri
til sölu.
Sími 3-21-09.
2ja herbergja íbúð ósk-
ast til leigu frá áramót-
um.
Uppl. í síma 2-15-16
milli kl. 7—8 á kvöldin.
Nemandi í M.A. óskar
eftir lierbergi til leigu
frá áramótum.
Uppl. í síma 6-13-88.
Ungur maður óskar að
taka á leigu herbergi
eftir áramót, helst sem
næst Iðnskólanuin.
Hringið í síma 6-22-60.
BEIN LÍNA
Islenzkt Ijóðasafn
II. bindi komið út.
Almenna bókafélagið hefur
gefið út II. bindi af „íslensku
ljóðasafni“. Spannar það ljóð
frá sautjándu öld til fyrri hluta
19. aldar. Fyrsta skáldið sem
safnið tekur til er séra Hall-
grímur Pétursson en síðasta
Steingrímur Thorsteinsson. Um
er að ræða úrval ljóða þeirra
skálda, sem þá voru uppi. Bók-
in er 460 síður og hefur Kristján
Karlsson, sem ritstýrir þessum
bókaflokki, valið ljóðin í sam-
vinnu við Hannes Pétursson
skáld. Áður vár III. bindið af
ljóðasafninu komið út en það
nær til frá síðari hluta 19. aldar
og fram til upphafs þeirra
tuttugustu.
„íslenska ljóðasafnið“, sem
verður í 5 bindum kemur út
hjá Bókaklúbbi AB, og eiga
ekki aðrir en klúbbfélagar kost
á að kaupa safnið. Klúbburinn,
sem er ársgamall um þessar
mundir, hefur nú 4000 meðlimi.
Markmið Bókaklúbbs AB er
að sjálfsögðu að gefa klúbb-
félögum kost á að eignast vand-
aðar bækur með betri kjörum
en ella væri hægt. □
Undanfarin ár hefur útvarpið
tekið upp það nýmæli að fá for-
ráðamenn þjóðfélagsins til þess
að sitja fyrir svörum í útvarpi
og sjónvarpi. Margir hafa þessir
þættir verið vinsælir meðal
hlustenda. Kemur það líka til
að þáttunum hefur verið vel
stjórnað af fréttamönnum út-
varpsins. í efnisvali hefur þess
oftast verið gætt, að velja við-
fangsefni sem snerta alla þjóð-
ina eða efni, sem ekki væru
tengd sérstökum landshlutum.
Nú virðist í skjóli vinsælda
þáttarins eiga að fara að
smeygja inn efni sem er bundið
við þröngt svið vissra byggðar-
laga og pólitískra þrýstihópa.
Það voru margir sem tóku
eftir því á sunnudagskvöldið,
að á besta hlustunartíma eftir
kvöldfréttir, sat borgarstjórinn
í Reykjavík fyrir svörum út af
skipulagsmálum í Breiðholts-
rverfum. Gert var mikið úr því
af stjórnendum, að í framtíðinni
væru í þessum hverfum fjórð-
ungur reykvíkinga og áttundi
hver íbúi landsins, sem bæri að
taka tillit til. Ekki skal gert
lítið úr nauðsyn þess, að þeir í
Breiðholtum komist í kallfæri
við borgarstjóra sinn. Hins veg-
ar er skörin farin að færast upp
í bekkinn, þegar borgarstjórinn
í Reykjavík er farinn að nota
útvarpið til þess að ná sam-
bandi við borgarbúa um hverfa-
málefni. Þess er að geta að Sjálf
stæðisflokkurinn ræður yfir
öflugum hverfasamtökum í
Reykjavík, sem er opinn vett-
vangur fyfir borgarstjórann.
Eigum við eftir að fá fleiri
fróðlega hverfaþætti um Reykja
vík? Er útvarpið að fara hér
inn á nýja braut? Er hugsan-
legt að bæjarstjórum stærstu
kaupstaðanna gefist tækifæri
til þess að tala við úthverfafólk
sitt á Beinni línu? Margt bendir
til, að þá yrði þungt fyrir fæti.
Það er í minnum haft, að sjón-
varpið kynnti rækilega skipu-
lagshugmyndir í Reykjavík í
sérstökum þætti. Menn hafa
tekið eftir því, að ekki hefur
hinu nýja aðalskipulagi Akur-
eyrar verið gerð skil með sama
hætti.
í fyrra voru í vetrardaglcrá
hljóðvarpsins og sjónvarpsins
sérstakir dreifbýlisþættir, Eng-
ir slíkir þættii' eru á dagsk^'á
þessa vetrar. Einnig virðist bera
minna á í fréttaskýringarþætt-
inum Kastljósi efni sem snerta
byggðamál. Auðvitað byggist
þetta að sjálfsögðu mest á mati
þeirra, sem efnisvali ráða. Hver
og einn lítur sér næst? Hver
er réttur hinna dreifðu byggða
í aðalfjölmiðli þjóðarinnar?
Hvenær situr bæjarstjórinn á
Akureyri fyrir svörum í þætt-
inum Bein lína? Geta norðlend-
ingar, sem eru fjölmennari en
Breiðholtið rætt við framámenn
þjóðarinnar um byggðamál í
Beinni línu? Við bíðum á með-
an eftir næsta hverfaþætti fyrir
Reykjavík. □
□