Dagur - 06.12.1975, Síða 7
7
Ör búreikningunum 1974
W.V.V.V.V.V.V'.V.V.V.V.V.V.V.V.VAV.V.V.VV.V.V.V.V.V
iV.V.V.V.V.V.V.V.VV
KRISTJÁN FRÁ DJÚPALÆK
skrifar
11
um bækur
.o
Á árinu 1974 færðu 166 bændur
búreikninga í samvinnu við
Búreikningastofnun landbúnað-
arins, þar af voru 128 búreikn-
ingar teknir til endanlegs upp-
gjörs. Kúabú voru 42, sauðfjár-
bú 38, en blandaðan búskap
höfðu 48 bændur. Meðalstærð
búreikningabúanna reyndist
vera 529 ærgildi, eða 129 ær-
gildum stærra bú, en verðlags-
grundvallarbúið. Meðal fjöl-
skyldulaun af landbúnaði og
vextir af eigin fé reyndust vera
1.010 þús. kr.
Á síðastliðnu ári voru sauð-
fjárbúin með lítið eitt hærri
fjölskyldutekjur en kúabúin,
minnstar tekjur gáfu blönduðu
búin. Framleiðslutekjur voru
að meðaltali 2.548.265 kr., launa
greiðslugeta á vinnustund
reyndist vera 205 kr.
Að meðaltali keyptu bænd-
urnir tilbúinn áburð fyrir 254
þús. kr. og kjarnfóður fyrir 387
þús. kr.
Fundur með fulltrúum bygg-
ingameistari og verkalýðs-
félaga, er aðild eiga að bygg-
ingaiðnaðinum á Akureyri,
haldinn 3. desember 1975, leyfir
sér að vekja athygli bæjar-
stjórnar Akureyrar og atvinnu-
málanefndar bæjarins á þeim
mikla samdrætti í bygginga-
framkvæmdum, sem þegar er
orðinn, og ekki síður þeim alvar
legu horfum, sem framundan
eru í þessari starfsgrein.
Þegar er tekið að brydda á
atvinnuleysi og ljóst, að víð-
tækar uppsagnir starfsfólks eru
á næstu grösum, nema þegar í
stað verði gripið til nauðsyn-
legra ráðstafana til að tryggja
það, að byggingaframkvæmdir
geti haldið áfram með eðlileg-
um framkvæmdahraða.
Fundurinn væntir þess sér-
staklega, að bæjarstjórn og at-
vinnumálanefnd beiti áhrifum
sínum til hins ýtrasta í þessum
efnum og tryggi það, að opin-
berum framkvæmdum verði
haldið áfram og hlynnt verði að
framkvæmdum einstaklinga og
félaga.
Þá vekur fundurinn athygli
þingmanna, ríkisstjórnar og
Húsnæðismálastofnunar ríkis-
ins á því, að of sein og lítil fyrir
greiðsla Húsnæðismálastofnun-
arinnar í sambandi við íbúða-
byggingar er stærsti þátturinn
Minnisvarði
Inga T. Lárussonar
Nefnd sú, er vinnur á vegum
austfirsku átthagafélaganna að
því, að Inga T. Lárussyni tón-
skáldi, verði reistur minnis-
varði,' svokölluð Inga T. Lár-
nefnd; hefur opnað gíróreikning
nr. 19760, sem þeir geta greitt
inn á, sem styðja vilja þessa
fyrirætlun.
Reikningsnúmerið 19760 er
ártal næsta árs að viðbættu
einu núlli, en á því ári er ætlað
að varðinn i'ísi í fæðingarbæ
tónskáldsins, Seyðisfirði. Ingi
lést árið 1946 svo að á næsta
ári eru liðin 30 ár frá andláti
hins ástsæla listamanns.
Með fyrirfram þökk.
F. h. Inga T. Lár-
nefndarinnar,
Þórarinn Þórarinsson,
formaður.
Veltan jókst um 52% miðað
við árið áður, en framleiðslu-
kostnaður hækkaði um 48%.
Meðalnyt kúnna var 3.144 ltr.,
og framleiðslutekjur á árskú
voru rúmar 112 þús. kr., en
breytilegur kostnaður 51 þús.
kr. og framlegð því 60 þús. kr.
Mjög mikill munur var á
tekjum, mjólkurframleiðendur,
12 bændur höfðu yfir 80 þús. kr.
framlegð á árskú, en 5 minna
en 40 þús. kr.
Meðalfallþungi dilka var
14,47 kg, kjötþungi eftir kind
var 17,32 kg, kjarnfóður var
gefið að meðaltali 15,9 kg á
kind og að auki 3,3 kg af gras-
kögglum. Meðalframlegð á kind
var 3.892 kg. eða 1.309 kr. meiri
en árið áður.
Heildar framleiðslutekjur á
kind voru 5.357 k’r.
í þessu vandamáli og stöðvun
íbúðabygginga og um leið stór-
fellt atvinnuleysi blasir við, ef
ekki verða hið bráðasta af-
greidd lögbundin lán Húsnæðis
málastofnunarinnar og enn-
fremur leyst lánamál bygginga-
kerfisins varðandi leiguíbúðir
og verkamannabústaði.
F. h. Meistarafélags bygginga-
manna á Norðurlandi
Ingólfur Jónsson.
F. h. Trésmiðafélags Akureyrar
Torfi Sigtryggsson.
F. h. Múrarafélags Akureyrár
Sigursveinn Jóhannesson.
F. h. Verkalýðsfél. Einingar
Þorsteinn Jónatansson.
Nýlega hefur verið stofnað á
Akureyri félag áhugamanna
um Esperanto. Eru stofnfélagar
urn 20 talsins, og ríkir mikill
áhugi fyrir útbreiðslu málsins.
Meðlimir í félaginu geta allir
orðið sem hafa áhuga á út-
breiðslu Esperanto og er ekki
skilyrði að þeir hafi lært málið.
Formaður félagsins er Ólafur
Jónas Rafnar:
Bæjarlýsingar og
teikningar
úr Eyjafirði fram
Útgefandi Sögufélag Eyfirðinga
(Eyfirsk fræði III.).
Sérkennileg bók. Einstæð bók.
Hér geta menn séð hvernig
húsakynni forfeðranna voru
fram um síðustu aídamót. Þó
aðeins sé um teikningar af
grunnum bæjanna að ræða, er
nákvæm lýsing af þeim með
flestum myndunum. Og þó þess
ar bæjalýsingar séu allar mið-
aðar við Eyjafjörð sunnan Akur
eyrar, þá var húsagerð þannig
um allt land. Trúlega var þó
víða verr byggt, a. m. k. hér
stóðu byggingar lengur og bet-
ur en í votviðrasamari héruð-
um. En hvernig er þessi ein-
staka bók til komin?
Þegar Jónas heitinn Rafnar
var yfirlæknir í Kristnesi ....
Notum hans eigin orð úr eftir-
mála bókarinnar:
„Á sólbjörtum sumardegi árið
1937 var mér gengið frá Krist-
neshæli út og upp að Hjálm-
stöðum, sem áður var næsti
bær við Reykhús, en hafði ver-
ið í eyði um alllangt skeið. Öll
þök bæjarhúsanna voru þá rifin
eða fallin inn, en eftir stóðu
opnar tóttir, signir og skældir
veggir, næsta ömurlegir á að
líta, og biðu þess eins að verða
jafnaðir við jörðu.------Þá
ílaug mér í hug, að fróðlegt
yrði komandi kynslóðum að
vita nákvæmlega, við hvaða
híbýlakost forfeður þeirra
Halldórsson, ritari Guðbrandur
Sigleifsson og gjaldkeri Harald-
ur Bogason.
Á næsta sumri verður haldið
alþjóðaþing Esþerantista í
Reykjavík og gefst mönnum
þar tækifæri til að hitta og
ræða við fólk frá hinum fjar-
lægustu þjóðlöndum.
(Fréttatilkynning)
hefðu búið á ofanverðri 19. öld
og allt þar til er sementssteyp-
an útrýmdi torfinu og grjótinu.
Ég mældi því og teiknaði upp
bæjarrústirnar á Hjálmstöðum
og skömmu síðar á Grísará, sem
þá var einnig komin í eyði.“
Þannig lýsir þessi valinkunni,
önnum kafni læknir tildrögum
þessa mikla verks, sem hér
liggur fyrir. Hann var sonur
þess manns, sem skráði hið
mikla fræðasafn íslenska þjóð-
hætti. Sjálfur var Jónas yngri
mikiil fræðaþulur, sagnasafnari
og í viðbót ágætur teiknari.
Áhuginn, sem vaknaði á rústum
Hjálmstaða sólskinsdaginn góða
1937, dó ekki. Jónas teiknaði
alla bæi í þrem hreppum inn-
fjarðarins, um 140, og það tók
hann 22 ár. Þó segist hann hafa
fengið ómetanlega hjálp margra
kunnugra manna, sem mundu
hrunin hús óg hvar hver tóft
hefði verið. Einnig studdist
hann við úttektarbækur hrepp-
anna svo langt sem þær náðu.
Hér er um mikið menningar-
afrek að ræða, sem mun því
meir metið, sem lengra líður.
Auk grunnmynda af bæjum
bjargast hér mikill fjöldi nafna
á hinum einstöku hlutum hús-
anna og innviðum.
Mikill er munurinn á híbýl-
um manna þá og nú. Sjáið
minnstu bæjargrunnana: Bað-
stofa, búr og fjós. En höfuðbólin
með milli 20 og 30 hús og kofa
í einni hvirfingu. Sjá t. d.
Munkaþverá um 1900.
Sögufélagsstjórninni þótti ein
sýnt að ráðast í að gefa út þetta
sérstæða verk, er því stóð það
góðfúslega til boða. En á því
voru margvíslegir örðugleikar,
m. a. tæknilegir og auðvitað
fjárhagslegir eins og vant er
þegar menning á í hlut. Og svo
var að fá mann til að sjá um
útgáfuna. Þetta síðasta leystist
vel. Valdimar Gunnarsson
menntaskólakennari frá Bringu
í Eyjafirði tók verkið að sér og
leysti það af hendi með sóma.
Og það má koma hér fram, að
allir, sem komið hafa nærri út-
gáfunni hafa gert sitt allra
besta. Jóhannes Óli Sæmunds-
son framkvæmdastjóri Sögu-
félagsins, á ógreiðanlega þökk
skilið fyrir sinn hlut svo og allir
starfsmenn og ráðamenn Prent-
verks Björns Jónssonar, sem
sáu um frágang bókarinnar all-
an. Séra Bolli Gústafsson teikn-
aði forsíðuna, andlit höfundar
með gamlan bæ að baki, hann
á einnig teikningu á bakhlið,
þ. e. gamla klukknaportið á
Möðruvöllum fram.
Verk þetta liggur nú frammi,
með formála Valdimars og eftir
mála Jónasar Rafnars og orða-
skýringum. Þetta verk á erindi
við þrjá hópa manna: a. Þá, sem
huga að fortíðarminnum í rann-
sóknarskyni, b. þá sem fræðum
unna og c. þá, sem búa á bæj-
unum, sem teikningarnar eru
frá. Og svo er að fylla gömlu
tóttirnar sögu. Mikilsvert er að
geta séð í anda ytra umhverfi
mannlífsins á liðinni tíð. Meira
að skyggnast inn í hug þeirra.
En „hver einn bær á sína sögu,“
og hana stóra.
Stjórn Sögufélags Eyfirðinga
má vera stolt af útgáfu þessari,
hvernig sem viðtökurnar verða.
Bókin er 167 bls. og mjög vel
unnin. □
I vikr;: ■■■•.: ... i
Vatnajökull
Texti dr. Sigurður Þórarinsson.
Myndir Gunnar Hannesson.
Útgefandi Iceland Revievv
Books.
Bók þessi, sem ég hef nú handa
á milli er á ensku, en hún kem-
ur einnig á íslensku. Forlagið
hefur gefið út áður hinar fögru
myndabækur: ísland, Eldgosið
í Vestmannaeyjum, Reykjavík,
Myndir af listaverkum Ásmund
ar Sveinssonar og svo bókina
um Akureyri. Þýðandi textanna
er Hallberg Hallmundsson, sem
er íslendingur búsettur í
Ameríku og kona hans May,
sem er þarlend. Hlutur þeirra
í bókum þessum er mikill og
góður.
Nú myndi margur halda að
Vatnajökull væri ekki mikill
myndheimur. En þar skjátlað-
ist þeim. Þetta er undraveröld.
Byggðin er við jaðar jökulsins
að sunnan, gróðurinn skríðm'
eins hátt og fótfestu er að fá.
Þarna eru naktar klappir, heit-
ar gufur, hveraaugu, lón jökul-
sprungur og svo hinn margvís-
legi ferill manna og farartækja
um snæbreiðurnar, og litbrigð-
in eru óendanleg.
Það er nóg að sjá þessar bæk-
ur til að sannfærast um að ljós-
myndun er list. Og Gunnar
Hannesson er sannur lista-
maður, vel búinn tækjum og
fundvís á fyrirmyndir.
Um texta dr. Sigurðar þarf
ekki að fjölyrða, hér fer saman
fullkomin þekking og afburða
frásagnargáfa. Hér er því sönn
konungsgersemi, bók, sem lengi
má við una. Kannski myndi ein
hver segja að þetta sé köld
fegurð. — En hún er björt.
Gísli B. Björnsson bjó bók-
inni stakkinn og er hans hlutur
góður. O
Ný sending al hveifi!
Robln
URVALS
HVEITI
10 lb. poki kr. 643
5 lb. poki kr. 324
10% lægra
í kjörmarkaði
MATVÖRUBÚÐIR
K.E.A.
EFNI TIL
ÖLGERÐAR
DUFT SEM BLANDAST í 10 LÍTRA
AF VATNI
Leiðarvísir með hverju boxi
OG ÞIÐ FÁÍÐ LJÚFFENGT JÓLAÖL
KJÖRBOÐIR k. e. a.
Upplýsingaþjónusta
landbúnaðarins.
íí
Dyggsnga
;vaemdnm á
FÉLAG ÁHUGAIANNA UM FSPERANTO