Dagur - 06.12.1975, Side 8
GULLSMIÐIR -S-yí
SIGTRYGGÚR
&\PÉTUR
akOreyri
LV.V
SMÁTT & STÓRT
•" Nokkrir mætir meiin og konur við nýja sjúkrabíiinn á Akureyri í haust. (Ljósm.: E. D.)
Síðustu daga hafa um fimmtíu
breskir tog'arar stundað veiði-
þjófnað hér við land, í umsjá
gæsluskipa og herskipa breska
flotans. Landhelgisgæslan hefur
losað níu breska togara við
veiðarfæri sín með klippunum
siðan undanþágusamningurinn
rann út 13. nóvember í haust.
| Varðskipið Oðinn er nú kom-
ið' heim eftir viðgerð í Árósum
í Danmörku. Skipherra er Sig-
urður Árnason. Skip Land-
helgisgæslunnar eru því sex að
i tölu. Svo er að sjá, sem starfs-
menn Landhelgisgæslunnar á
| sjó, eflist við hverja raun, því
: þeim hefur tekist að klippa
i aftan úr veiðiþjófum, þar sem
] herskip, eftirlitsskip og dráttar-
UM 100 FÉLÖG MEÐ
LAUSA SAMNINGA
NÚ'ÞEGAR
] Um eitt hundrað verkalýðsfélög
| hafa sagt upp samningum.
] Kjaramálaályktun Alþýðusam-
bands íslands hefur vei'ið send
atvinnurekendum og er búist
j við, að viðræður um nýja kjara-
samninga hefjist bráðlega.
Átján manna viðræðunefnd
ASÍ, undir forystu Björns Jóns-
sonar, mun fara með málefni
verkalýðsfélaganna. □
bátar hafa verið til verndar
þeim.
Einn af' síðustu togurunum,
sem varpan var klippt frá, á
Vestfjarðamiðum, reyndist hafa
ólög'legan búnað veiðarfæra.
Trollpoki togarans yar klæddur
og er það bi'ot á alþjóðalögum.
Með þessu móti sleppa smá-
fiskar ekki og er þetta smáfiska
dráp alvarlegt brot, og þar sem
varpan er nú í höndum Land-
helgisgæslunnar, er unnt að
nota hana sem sterkt sönnunar-
gagn gegn fyrri eigendum.
Bretar smygluðu einum
fréttamanna sinna af miðunum,
með sjúkum manni í land á
Norðfirði. Fréttamaðurinn var
frá BBC. Hann var tekinn fast-
ur á Egilsstöðum, þar sem hann
var skilríkjalaus og koma hans
algert brot á banni því, er ís-
lensk stjórnvöld hafa sett í
sambandi við hin bresku skip.
Sjúkum er veitt móttaka, cn
önnur þjónusta bönnuð. Mir-
öndu, er mann þennan flutti í
land og komin var á miðin, var
gei't að snúa-til lands og sækja
manninn og var svo gert, og
sáu stjórnvöld1 ekki ástæðu til
frekari málareksturs af þessu
tilefni.
Dómsmálaráðherra, Ólafur
Jóhannesson, hefur sagt, að
þetta atvik geti oi'ðið til þess,
að taka þurfi á arinah veg á
þessum málum, og að bresk
skip fái ékld að koma með slas-
aða menn til hafnar, nema um
alvai-leg meiðsl sé að ræða.
SnemnTa í gærmorgun klippti
Þór togvír á tíunda breska tog-
aranumj þar sem hann' var í
hópi veiðiþjófa og í vernd her-
skips og dráttarbáta, sem
fylgdu váfðskiþlriu fast eftirj'
án þess að geta komið í veg
fyrir klippinguna. Bresku tog-
araskipstjórarnir létu miður
fögur orð falla um framgöngu
flotans. Hins vegar dáðu fjöl-
miðlar Bretlands dáðríka fram-
göngu sjóhersins á íslands-
miðum. . Q
HÁSKÓLI A AKUREYRI
ReykVískur alþingismaður, Þór-
arinn Þórarinsson, flutti ræðu
á haustfagnaði framsóknar-
manna á Akurcyri 9. nóvember
í liaust. Hann lagði áherslu á,
a'ð norðlendingar fengju sinn
liáskóla og færði rnörg rök að
. nauðsyn þess. Hann sagði m. a.:
Það er ekki nóg fyrir lands-
byggðina að fá togara og verk-
smiðjur, ef unga fólkið, sem
stcfnir að langskólamenntun,
verður allt að safnast saman á
einn stað. Þá mun margt annað
fylgja á eftir.“ Ilann mótmælti
því eindregið, að ekki væri til
nema eitt öflugt menntasetur á
landinu, sem licfði mikið að-
dráttarafl.
TVEIR HASKÓLAR SKAPA
JAFNVÆGI OG AÐHALD
Þórarinn Þórarinsson gat þess
einnig í ræðu sinni, að með því
að hafa aðeins einn háskóla í
landinu, væri sú hætta yfirvof-
andi, að þar mvndaðist andleg
einokun, og þar gæti skapast
deyfð og doði, en einnig upp-
lausn og stjórnleysi. Hæfileg
r samkeppni væri holl á milli
tveggja slíkra menntasetra. Há-
skóli á Akureyri, skapaði bæði
jafnvægi og aðliald. Það cr eltki
lit í bláinn, sagði ræðumaður,
að bretar hafa valið þá leið, að
fjölga háskólunum í stað þess
að stækka þá.
IIASKÓLINN HRAPAÐI
í ALITI
Þéssi rökstuðningur Þórarins
Þórarinssonar rifja'ðist upp 1.
deseniber, þegar námsmenn við
Háskóla fslands fluttu liátíða-
dagskrá sína þann dag. Ræðu-
höld þeirra hneyksluöu satt að
segja margan manninn og særði
fólk djúpum, andlegum sárum.
Vonbrigði fólks voru lík því
þegar foreldrar verða vitni að
ófarnaði einkabarns. Mönnurn
fannst Háskóli íslands setja
niður, sem kallað er og fólkið
minha fremur á nemendur í
unglingaslcóla en háskóla. Ætli
svokallað háskólahneyksli hefði
átt sér sta'ð ef Háskóli íslands
Stórutungu, 27. nóvembcr. Veð-
ur haía verið góð síðustu vik-
urnar. Fé er hýst en lítiö gefið.
Það er góð uppbót fyrir illviðra
kafla í haust, sem allir vita
hvernig var.
Störf hinna ýmsu félagasam-
taka eru að hefjast, spilin tekin
A I
Ekki liggja fyrir enn nákvæmt
yfirlit um fjölda fjár sem slátr-
að var á þessu hausti, en tekið
hefur verið saman yfirlit um
framleiðslu kindakjöts.
Af dilkakjöti fengust 13.003
smálestir, en í fyi-ra reyndist
magnið vera 11.966 smálestir.
Heildarmagn kindakjöts nú
varð 14.577 smálestir, það er
8,23% aukning frá árinu 1974.
Reiknað er með nokkurri
aukningu í slátrun nautgripa.
Sala á nautakjöti hefur vérið
mjög áþekk og undanfarin
haust. Ekki hefur orðið sú aukn
ing á sölu nautakjöts og gert
hafði verið ráð fyrir, þegar
ákvörðun var tekin um lækkun
á smásöluverði þess. Ástæðurn-
ar er að nokkru hægt að rekja
til nnutakjötsútsölunnar en þá
seldust á skömmum tíma rúmar
300 smálestir.
Margt fólk hefur eflaust ekki
ennþá áttað sig á að hægt er að
gera hagstæð matarkaup á
nautakjöti, þegar keypt er í
hálfum og heilum skx-okkum.
Upplýsingaþjónusta
landbúnaðarins.
fram og bridge sþilað einu sinni
í viku hverri. Saumaklúbbur
kvenna hefur hafið starf sitt.
Svo eru Ixin sjálfsögðu félö'g,
svo sem ungmennafélag og
kvenfélag, sexn vinna' gott starf.
Hinn 15. september átti Dag-
rún Pálsdóttir á Stóruvöllum
sjötuesaj'mæl.l Veðurfar og
annríki þá, varð þess valdandi,
að ekkert varð um dagamun af
því tilefni. Dagrún er sérlega
félagslynd, hefrir tekið þátt í
félagsstöríum Urnf. Einingar-
innar, scm er mjög starfandi
félag og hefur ætíð verið og er
með elstu ungnxennafélögum
landsins. Dagrún er nú heiðurs-
félagi þess. Dagrún hefur einnig
verið mjög virkur þátttakandi
í kvenfélaginu Hildi, hér í fram
hluta Bárðardals. Ætíð hefur
hún verið boðin og búin til
hverskonar þjónustustarfa fyr-
ir þessi félög, sjálfkjörin við"
kaffiketilinn, þegar svo bar við.
í tilefni afmælisins glöddu
þessi tvö félög liana með veg-
legu samsæti í barnaskólanum
22. þ. m., og þá var sumar-
veður. Fram voru bornar rausn
ai'legar veitingai', ræður flutt-
ar, sungið og spiluð félagsvist.
En síðast var dansað af miklu
fjöri þangað til langt var liðið
fram á nótt. Þ. J.
hefði átt keppinaut norðan
fjalla?
BILUN I LAXÁRVATNS-
VIRKJUN
Svo illa vildi til, að bilun varð
í dísilvél Laxárvatnsvirkjunar í
Húnavatnssýslu, en líklegt tal-
ið, að viðgerð ljúki fyrir jól. En
frá því bilunin varð, hafa 2—3
megavött frá Laxárvirkjun kom
ið að góðu gagni fyrir vestan.
Þetta atriði sýnir betur en rnörg
orð, hvers virði það er að fá
sem fyrst samtengingu allra
orkuvera Iandsins. Því miður
verður nokkur dráttur á því, að
svokölluð byggðalína verði full-
gerð. Áætlað er nú, að línan frá
Andakílsárvírkjun til Hrúta-
fjarðar verði fullbúin að hluta
í vetur. Og það verður ekki
fyrr en á næsta ári, að lokið
verður við kaflann á milli Lax-
árvatnsvirkjunar og Varma-
hlíðar.
MEÐ SIGURBROS A VÖR
Mikil hálka var í bænum í gær
og áttu margir í erfiðleikum á
leiðinni upp Kaupvangsgilið
vegna þess að malbikuð gatan
var svellrunnin. Sumir bílar
voru á keðjuin og komust ekki,
aðrir á negldum dekkjum og
runnu þeir framhjá og voru
ökumenn þeirra með sigurbros
á vör. Þess ber þó að geta, að
þegar meira snjóar eru keðj-
urnar metri, því þá njóta þær
sín. En gangandi fólk átti
einnig í erfiðleikum í liálkunni,
einkum það, sem var á ferðinni
árla morguns á mcðan veður-
liæð var nokkuð mikil. Skó-
sólarnir þurfa, þegar svo ber
undir, einnig að vera til þess
búnir, að unnt sé að ganga á
þeim í liálku.
NÚ ATHUGA MENN
VERÐIÐ
Glöggur verslunarmaður á Ak-
ureyri tjáði blaðinu, að svo
virtist sem fólk gerði nú meiri
verðsamanburð á vörum í versl
unum en áður og eyddi jafnvel
talsverðum tíma til þeirra
lduta. Taldi hann það merki
þess, að betur þyrfti að gæta
fjármunanna vegna minnkandi
kaupmátar launa. Verslunar-
maðurinn sagði þó, að mikið
yrði keypt fyrir jólin, eins og
ætíð áður, enda virtust margir
hafa rúm fjárráð. En vel er það,
að alinenningur geri verðsaman
bur'ð í verslunum, áður en hann
velur og liafnar. Verðskynið
hefur raskast mjög í vitund
manna hin síðari ár, vegna tíðra
verðbreytinga, en einnig vegna
þess hve fjórráð hafa verið rúm.
átverkasýning á HóSel KEÁ
Hinn kunni véstur-þýski mynd-
listarpi'ófessor og íslandsvinur
Rudolf Weisauer er nú staddur
í bænum og er með málverka-
sýningu að Ilótel KEA.
Rudolf er þekktur listamað-
ur, sem sýnt hefur víða um
heim, en sérstöku ástfóstri hef-
ur hann tekið á íslandi og hefur
hann haft fjölmargar sýningar
í Reykjavík og víða út um land.
Sérgrein Rudolfs eru stein-
prents- og vatnslitamyndir, og
hefur hann skapað íslenskum
myndlistarmönnum fagurt for-
dæmi með verkum sínum, auk
þess, sem hann hefur fengist til
að leiðbeina í þessum listgrein-
um, í Myndlista- og handíða-
skóla íslands.
Rudolf þarf ekki að kynna
fyrir Akureyringum, þar sem
hann hefur sýnt oft hér, en sér-
stök athygli skal vakin á hinu
hógværa verði myndanna, sem
er langt undir sannvirði og í
engu samræmi við verðbólgu
nútímans.
Sýningin er opin frá kl. 14.00
til kl. 22.00 daglega til mánu-
dagsins 8. desember n. k.
(Fréttatilkynning)
GILTU
TÍSKUHÁLS-
KEÐJURNAR
NÝKOMNAR