Dagur - 10.12.1975, Qupperneq 4
4
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar 1-11-66 og 1-11-67
Ritstjóri og ábyrgðarniaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓHANN K. SIGURÐSSON
Prentverk Odtls Björnssonar h.f.
Þáttur
Þ
mffmanna
í útvarpsræðu 1. desember gerði
Eysteinn Jónsson hin ýmsu stórmál
þjóðarinnar, svo sem hina ævarandi
frelsisbaráttu, efnahagsmál, land-
helgismál og svo þátt Alþingis í úr-
lausnum, að umtalsefni. Hann sagði
þá meðal annars:
Vart verður við dálítið sérkenni-
lega gagnrýni á stjórnmálamenn og
stjórnmálastarf um þessar mundir.
Það er ekkert nýtt og er eðlilegt og
það er nauðsynlegur þáttur í fram-
kvæmd lýðræðis og þingræðis, sem
ég vona að við öll viljum í heiðri
halda. En mér finnst ástæða til að
vara við nokkrum hættumerkjum,
sem mér virðist bóla á. Ég vara við
því, að reynt sé að festa með þjóð-
inni þá skoðun, að kappræður stjórn
málamanna og annarra um úrræði í
þjóðmálum séu óþarfa þras, ósam-
boðið þeim, sem til trúnaðaistarfa
hafa verið kvaddir. Ég vara við þeirri
skoðim, að stjórnmálamenn séu ein-
hverskonar stöðluð manngerð og
gefa með því í skyn, þó að það sé
tæpast ætlunin, að óþarfi sé fyrir
menn, senn hvað líður, að leggja
vinnu í það að velja og hafna.
Umræður um stjórnmál eru mis-
jafnar að gæðum. Sumt má líklega
með réttu heita þras. En svo hlýtur
ætíð að verða og dregur það ekki
vitund úr nauðsyn þess, að kappræð-
ur um stjórnmál fari fram, því að
þær eru grundvöllur lýðræðis. Þörf
er á að rifja það upp sern oftast, að
það er skylda okkar allra að reyna
að greina vífilengjur og þras frá rök-
um og málefnalegum flutningi.
í lýðræðisþjóðfélagi eiga menn
ekki aðeins réttinn til þess að velja
og hafna, heldur ber mönnum skylda
til að gera það. Aðeins lítill hluti
mannkynsins býr við fullt frelsi til
þess að velja og hafna. Við, sem eig-
um þennan rétt, verðum að meta
hann að verðleikum og rækja þær
skyldur sem hann leggur okkur á
herðar. Sjálfsagt verður að bæta mál-
flutning, eflá gagnrýni og umræðu,
jafnvel finna heppilegri umræðu-
snið um erfið og flókin mál. En það
verður líka að hlusta betur, en oft
vill verða og fella »em flesta rök-
studda dóma um málefni og menn.
Farsæl framkvæmd lýðræðis og
þingræðis byggist á því, að menn
bregðist almennt ekki skyldum sín-
um í þessum efnum. Þingræðið er sú
vinnuaðferð, sem við höfum valið
okkur við framkvæmd lýðræðisins.
Alþingi er æðsta stofnun landsins, og
hafði forystu í frelsismáli þjóðarinn-
ar frá því það var endurreist og þar
til lokamarkinu var náð. Alþingi
(Framhald á blaðsíðu 2)
Á jörðu hér - síðasta hék ðlafs
Ólafur Tryggvason, huglæknir
frá Hamraborg, andaðist 27.
febrúar á þessu ári. Hann var
þjóðkunnur maður, huglæknir
og hafði opna lækningastofu á
Akureyri um margra ára skeið
og á efri árum .tók hann sér
penna í hönd og varð einnig
þekktur rithöfundur, þótt hann
hæfi ekki ritstörfin fyrr en urti
sextugt. Hann hafði lokið síð-
ustu bók sinni, Á jörðu hér,
áður en hann andaðist og hefur
Skuggsjá nú gefið hana út.
Kristján frá Djúpalæk ritaði
formála að þessari síðustu bók
Ólafs og gerir þar grein fyrir
lífi hans og starfi, sem hann
helgaði kærleiksverkum í ára-
tugi. Bækur Ólafs Tryggvason-
ar eru beint framhald af því
starfi hans, svo sem lesendum
bóka hans er kunnugt og þessi
nýja bók er enn ein grein á
þeim meiði.
Bókarkaflarnir bera þessi
nöfn, auk formálans: Fjallið,
Við ána, Hjúkrunarkonan, Þátt-
ur Vilborgar, Skólinn, Á jörðu
hér, Njáludraumur Hermanns
Jónassonar, í leit að ljósi, Spá-
konan, Að vera barn, Ábyrgð,
Þekking, Samstilling, Ég vitja
þín æska, Sálvernd og náttúru-
Frá vordögum
Frá vordögum, Ijóð eftir Bene-
dikt Ingimarsson. Þetta er 96
blaðsíðna bók með ljóðum og
lausavísum. Utgefandi mun höf-
undur sjálfur. Prentverk Odds
Björnssonar vann bókina. Höf-
undur er þekktur að hag-
mælku og ljóðrænni hugsun. □
Náttfiðrildi
Náttfiðrildi, ljóð eftir Gylfa
Gröndal. Útgefandi Setberg.
Bók þessi er 48 bls. og skiptist
í 4 flokka. Höfundur hefur áður
birt ljóð sín í tímaritum, og
hann hefur lengi stundað blaða-
mennsku. Er nú ritstjóri Sam-
vinnunnar. □
r
Arbók Þingeyinga
Árbók þingeyinga 17. árgangur
er komin út og ritstýra henni
þeir Bjartmar Guðmundsson og
Sigurjón Jóhannesson, en út-
gefandi eru Þingeyjarsýslur og
Húsavikurkaupstaður. Ritið er
um 340 blaðsíður, prentað í
Prentverki Odds Björnssonar.
Hefst ritið á kvæði Kolbeins á
Strönd, er hann nefnir Svip-
myndir. Eins og í fyrri Árbók-
um þingeyinga kennir hér
margra grasa í lausu máli og
bundnu, auk beinna frétta úr
hreppum og kaupstað. Er ritið
bæði fróðlegt og skemmtilegt
að vanda. Q
vernd (viðtal), Um heimspeki-
rit Brynjóifs Bjarnasonar, Ragn
heiður BrynjóLfsdóttir, Ódauð-
leiki, Frelsi og Lífskoðun. Bók-
in er á þriðja hundrað blað-
síður.
Ólafur Tryggvason.
í einni af fyrri bókum sínum
segir Ólafur Tryggvason svo:
„Þegar öll kurl koma til grafar
er meira af gæðum í veröldinni
en vonsku, meira af fegurð í
heiminum en ljótleik, meira af
sannindum í tilverunni en
ósannindum. Sú skáldsaga sem
lýsir fegurð og manngöfgi, er
því engu síður „raunsæ", engu
síður „lalutlæg rannsókn“ en
greinargerð höfunda í skáld-
söguformi, sem greina eðlisgerð
mannsins í gegn um hjúp sið-
fágunar og menntunar sem
„fordild, nautnasýki, rag-
mennska og flærð“ og leitast
við að „tæta manninn sundur.“
Þess vegna skal eilífðarvissa,
ímyndunarafl og fegurðarskyn
ráða mestu um samningu skáld
sagna. Það mun greiðfærasta
leiðin til að bjarga þeirri tví-
fættu tegund, sem breytir auð-
æfum jarðar í vetnissprengjur
og geislavirkt úrfelli meðan
börnin svelta.“
Þannig var trú höfundar á
manninum og lífsskoðun.
Á einum stað í hinni nýju
bók, Á jörðu hér, í kaflanum
Spákonan, um Þórdísi spákonu
á Skagasti'önd, spyr hann:
„Hvað er lögmál? Það eru lög-
mál að íslag myndast á tjörn-
inni f tíu stigá frosti, og þeim
mun þykkra, sem frostið varir
lengur. Þetta lögmál þekkja all-
ir. Það er því enginn leyndar-
dómur. Það er einnig náttúru-
lögmál, að ef maður hatar
náunga sinn af öllum mætti, þá
myndast dökkt ský umhverfis
þá báða, þann sem hatar og
hinn, sem hataður er. Þetta lög-
mál er að miklu leyti leyndar-
dómur, því að það er tiltölulega
fáum mönnum fullkomlega aug
ljós staðreynd. En þetta lögmál
er spákonunni eins ótvíræður
veruleiki og íslagið á tjörninni.
Og sé blásið að hatrinu um ára-
bil, veldur það báðum aðilum
mikilli vanlíðan og kann að
hafa margvíslegar verkanir í
för með sér til ógæfu og eyði-
leggingar. Alla þá ógæfu grein-
ir spákonan, og einnig veit hún,
með hverjum hætti unnt hefði
verið að afstýra henni. Þetta er
að sjá í tvo heimana.“
Hinum mörgu, sem kynnst
hafa Ólafi Tryggvasyni sjálfum
eða verkum hans, mun þykja
nokkurs um það vert, að fá enn
eina bók frá hans hendi. Bækur
hans eru mannbætandi. □
Sögulegur fundur í Kanada
f sambandi við 100 ára afmæli
landnáms fslendinga í Vestur-
heimi var boðað til sögulegs
fundar í Winnipeg, sem var
merkilegur fyrst og fremst fyrir
þá 'sök, að slíkur fundui' ýmissa
forystumanna ísl. austan hafs
og vestan hafði aldrei verið
haldinn áður. Við þetta tæki-
færi afhenti Árni Bjarnarson
útg. á Akureyri ávísun að upp-
hæð 6000 $ til Lögbergs Heims-
kringlu, en hér var um að ræða
frjáls framlög héðan að heiman,
þar. af verulegur hluti frá Norð-
urlandi. Um 50 manns sátu há-
tíðafund þennan á Winnipeg
Inn þar í borg og á þessari
mynd má sjá hluta gestanna frá
íslandi, m. a. talið frá vinstri:
Andrés Björnsson, Heimi Hann
esson, sr. Ólaf Skúlason, Árna
Bjarnarson að afhenda ávísun-
ina, en við henni tekur dr.
ÚTRÁS, ný AB-bók
Almenna bókafélagið hefur sent
frá sér skáldsöguna Útrás, sem
er raunsæ og hispurslaus lýsing
á lífi ekkju, sem missir mann
sinn af slysförum, eftir hjóna-
band, sem henni verður brátt
ljóst að byggst hefur á gagn-
kvæmri blekkingu. í beiskju
Námskeið íyrir frjótækna
Um síðustu mánaðarmót lauk í
Reykjavík námskeiði fyrir verð
andi frjótækna. Námskeiðið
hófst 3. nóv. Þátttakendur voru
9, víðsvegar af landinu og luku
þeir prófi sem fullgildir frjó-
tæknar.
Kennarar á námskeiðinu
voru ráðunautar Búnaðarfélags
íslands í nautgriparækt og dýra
læknar. Verkleg kennsla fór
fram í sláturhúsi Sláturfélags
Suðurlands á Selfossi, en bók-
legt nám í Bændahöllinni og á
Tilraunastöð Háskólans í meina
fræði að Keldum. Þetta var 5.
námskeiðið, sem haldið hefur
verið fyrir frjótækna.
Búfjársæðingar (tæknifrjóvg-
un) hófust hér á landi árið 1946.
Fyrsti kálfur, sem getinn var
með tæknifrjóvgun, fæddist á
„Yísið þeim vegiim”
Svo nefnist bók, er sr. Helgi
Tryggvason yfirkennari hefir
ritað, en Leiftur h.f. í Reykja-
vík gefið út.
Þessi bók er a&tluð stórum
hópi lesenda. Hún er ætluð öll-
um þeim, sem láta aig nokkru
varða uppeldi barna.
Notið hafa kennslu Helga
kennara margir. Mun því sumt
af efniviðum verksins þeim
kunnugt áður. En hins vegar er
þar mjög margt nýtt.
Höfundur setur fram kenn-
ingu þá, sem víða mun þykja
til nýjunga talin, að Biblían öll
og þó einkum Nýja testamentið
sé uppeldisrit frá hendi Guðs.
Staddur var ég eitt sinn á
fjölmennum fundi. Þar réðist
maður einn af mikilli mælgi á
boðorðin tíu, sem börnum voru
kennd. Hvort þau eru kennd nú
í skólum eða jafnvel fyrir ferm-
ingu, veit ég ekki. Hitt veit ég,
að ætti ég nú að kenna börnum
kristánfræði, mundi ég lesa og
lesa vandlega kafla marga í
bók Helga, og þá hvað helst
kafla, hans um boðorðin tíu.
Segja. má, að þau séu grund-
völlur þeirrar menningar hall-
ar, sem vér, vestrænir menn,
búum í nú.
Hvet ég alla foreldra, kenn-
ara, klerka- og- forráðendur
barna að kaupa bók Helga, lesa
hana og lesa hana vel.
Sæmundur G. Jóhannesson.
Ytri-Varðgjá í Eyjafirði 23.
janúar 1947. Fyrsti sæðinga-
maður, eins og þessir starfs-
menn bændasamtakanna voru
kallaðir lengi framan af, var
Hjörtur E. Þórarinsson, bóndi á
Tjörn í Svarfaðardal.
í dag starfa 31 frjótæknir í
öllum héruðum landsins. Frá
árinu 1972 hafa um 84% af kún-
um f landinu verið tækni-
frjóvgaðar. Reknar eru tvær
nautastöðvar, f Laugardælum á
vegmn Búnaðarsambands Suð-
m-lands og á Hvanneyri á veg-
um Búnaðarfélags íslands.
Sauðfjársæðingar eiga sér
lengri sögu hér á landi. Þær
hófust árið 1939, en var hætt
árið 1943. Á árunum 1945—1958
voru sæddar á hverjum vetri
nokkur fjöldi áa, en þá varð
aftur hlé fram til ársins 1963.
Á sl. ári voru sæddar 15.885 ær,
þ. e. 2,2% af ám, sem settar
voru á.
Nawtgriparækt.
í upphafi árs 1974 var fjöldi
nautgripa í landinu 66.530, þar
af voru mjólkurkýr 37.087. Síð-
astlíðin 5 ár hefur kúnum f jölg-
að um 212, en innvegin mjólk
f mjólkurbúin aukist á sama
tíma um tæp 15 millj. kg. Á
fyrstu árum þessarar aldar var
meðalnyt fullmjólka kúa í naut
griparæktarfélögunum 2.200 kg.
Þá voru aðeins 880 kýr á skýrsl-
um. Á sl. ári voru 12.945 full-
mjólka kýr á skýrslum. Meðal-
nyt þeiri'a var 3.728 kg.
Að meðaltali hefur nyt kúnna
aukist um rúm 20 kg á ári á
þessari öld. Fita í mjólkinni
hefur einnig aukist. Hún var
um aldamótin 3,60% en er nú
4,10%. Verulegar breytingar
hafa orðið á íslensku kúnum
frá því að fyrstu nautgripa-
ræktarfélögin voru stofnuð. Þá
voru hyrndar kýr í meirihluta,
en nú eru innan við 10% af
kúnum hyrndar. Fyrir 50 árum
var meðalvigt kúnna 338 kg, en
nú 410 kg.
Upplýsingaþjónusta
landbúnaðarins.
BYSSA!
Winchester haglabyssa
3ja skota sjálfvirk í
skinnliylki. tapaðist í
sl. mánuði úr bíl.
Skilvís finnandi eða þeir
sem gætu gefið upplýs-
ingar vinsamlegast
hringi í síma 2-32-85.
Fundarlaun.
Vil kaup
a
notaða jeppakerru,
helst léttbyggða.
Uppl. í síma 1-11-61.
sinni og ráðleysi varpar hún
sér út f hringiðu skemmtana-
lífsins og kemst þá' í kynni við
ýmsar dekki'i hliðar lífsins,
fyrst hér heima og síðan í
Bandaríkjunum.
Sagan er gáskafull og um-
búðalaus lýsing, sem ber í senn
svip af þjóðfélagsádeilu, ástar-
sögu og djörfum bókmenntum.
Höfundur bókarinnar, Jó-
hanna Þráinsdóttir, er Reyk-
víkingur, hefur dvalist víða er-
lendis, þar á meðal í Banda-
ríkjunum, og ber bókin þess
glöggt vitni, að hún er þaul-
kunnug staðháttum þar.
Utrás er fyrsta frumsamda
bók höfundar, en áður' hefur
hún birt smásögur f tímaritum.
Umf. Skriðu-
hrepps sigraði
Skákmót UMSE, 4ra manna
sveitakeppninni, lauk sl. sunnu-
dag. Umf. Skriðuhrepps varð
sigurvegari mótsins, hlaut alls
15V2 vinning. Fyrir félagið
tefldu: Guðmundur Búason,
Ármann Búason, Hreinn Hrafns
son, Rúnar Búason, Búi Guð-
mundsson, Jósavin Gunnars-
son .og Hreiðar Aðalsteinsson.
Heildarúrslit mótsins urðu
þessi: Vinn.
Umf. Skriðuhrepps 15%
A-sveit umf. Saurbæjar-
hrepps og Dalbúans 12
Umf. Svarfdæla 1©%
Umf. Möðruvallasóknar 9
B-sveit umf. Saurbæjar-
hrepps og Dalbúáns 6
Skákkeppninni stjórHaði Þitr-
oddur Jóhannsson.
Hraðskákmót UMSE fer- éram
í skátaheimihnu Hvammi, Akur
eyri, sunnudaginn 14. þ. m,- og
hefst klukkan 13.30. — Keppt
verður í tveim aldursflokkum,
þ. e. eldri flokki, svo og ungl-
ingaflokki 16 ára og yngri. —
Þátttakendur hafi með sér töfl
og skákklukkur.
( Fr éttatilky nning )
Lárus ’ Sigurðsson, læknir í
Winnipeg. Við hlið þeirra situr
Vilhjálmur Hjálmarsson,
menntamálaráðherra, Grettir
Leo Johannsson, sem stjórnaði
samkomunni og sr. Pétur Sigur
geirsson. Margar ræður voru
fluttar á þessum hátíðlega
fundi, m. a. lýsti menntamála-
ráðherra yfir sérstökum áhuga
sínum og ísl. ríkisstjórnarinnar
að efla menningarsamskipti ís-
lendinga áustan hafs og vestaru
V.-ísl. megin borðið má greina
dr. Paul Thorlaksson, lækni,
formann hátíðanefndar við há-
tíðahöldin vestra nú í október
svo og frú Hrund Skúlason,
bókavörð, sem er ættuð frá
Norðurlandi, fædd á Akureyri.
Ljósm.: Gísli Ólafsson. Q
Flauelið er komið
11 litir.
Aðeins í 20 til 30 púða
af lit.
Hannyrðaverzlunin
HRUND HF.
Haínarstræti 103.
Sími 1-13-64.
Til jólagjafa!
Mikið úrval af mjög
fallegum
klukkustrengjum,
'veggstykikjum,
púðum og
borðrenningum
í ullarjava.
Hannyrðaverzlunin
HRUND HF.
Hafnarstræti 103.
Sími 1-13-64.
Til jólagjafa!
Handþryikktar herra-
svuntur.
Handþrykkt dágatöl.
Ódýrar diskaþurrkur,
■ 3X í pakka.
Dúkar, dúkaefni.
Allskonar hanyrðavörur
í gjafapakkningum.
VERZLUNIN DYNGJA
Við höfum úrvaið í jólamatinnn
DILKAKJOT:
Heil lær
Úrbeinuð lær
Úrbeinaður hryggur
Heill hryggur
Kótelettur
Lærsneiðar
Súpukjöt
Hamborgarhryggur
Hamborgarlær
Saltkjöt, úrvalsgott
Svið, óverkuð og verkuð
Nýru — Hjörtu
London Lamb
HANGIKJÖT:
Lær
Lær, beinskorin
Frampartar
Frampartar, beinskornir
Magáll
ALIKÁLFAKJÖT:
Kraftsteik
Gullash
Buff, barið og óbarið
Fíle — Hakkað
Nautatunga
T.bone
FUGLAR:
Alihænur
Kjúklingar
Kjúklingalæri
Kjúklingabrjóst
Rjúpur
SVÍNAKJÖT:
Kótelettur
Hamborgarhiyggur
Lærsteik
Lærsteik, beinlaus
Bógsteik
Kambur, beinlaus, nýr
Kambur, beinlaus,
léttreyktur
Bæonskinka Bacon
Við viljum sérstaklega benda
á okkar Ijúfffenga, léttreykta
lambakjöt,
LONDON LAMB
°g
HAMBORGARHRYGG,
beinl. og með beini
ÚR DJPÚPFRYSTI:
Emmess ís: jarðarberja,
súkkulaði, vanillu, nougat.
Istertur
með alls konar íssósum
Ennfremur frosið grænmeti,
jnargar tegundir
MEÐ
JÓLASTEIKINNI:
Rauðkál, nýtt og niðursoðið
Hvítkál, nýtt
Gulrætur, niðursoðnar
Rauðrófur, nýjar, niðurs.
Agurkur í glösum
Pickles, margar tegundir
Asíur í glösum
Blandað grænmeti, m. teg.
Grænar baunir, m. tegundir
Snittubaunir
Tómatar í dósum
Paprika í glösum
Aspargus
Sveppir
Remulade sósa
Mayonaise
Hollensk sósa
Tómat-sósa
ALLS KONAR
SMÁRÉTTIR:
Beinlausir fuglar
Lambasnitcel og fl.