Dagur - 01.09.1976, Blaðsíða 1
öKimE
SlGURÐUR
ElNARSSON
;. s'imi 214 30
Akurcyri, miðvikudaginn 1. sept. 1976 — 36. tölublað
Hey brann í Hrísgerði
Á sunnudaginn lágu sldp og bátar inni á Þórshöfn og þá var hátíð haidin í tilefni af nýkeyptum tog-
ara og nýju frystihúsi. (Ljósm.: E. D.)
Nesi í Fnjóskadal, 30. ágúst.
Fyrir fáum dögum brunnu um
800 hestar af heyi í Hrísgerði í
Fnjóskadal. Þar býr Davíð Her-
bertsson ásamt konu sinni og
börnum. Heyið, sem brann, er
mikill meirihlutinn af heyi
bóndans og er tjónið því mjög
tilfinnanlegt. Talið er, að kvikn
að hafi í út frá rafsuðutækjum.
Búið var að steypa grunn og
nokkra veggi nýrrar hlöðu, en
heyhlaðan átti að öðru leyti að
vera stálgrindahús, og þetta
mikla hey, sem brann, var í
þessu hálfbyggða húsi, og mjög
þurrt. Þá bættist það við, að
nokkur vindur var og gerði það
slökkvistarf erfiðara ásamt
vatnsskorti.
Slökkvilið kom frá Akureyri
og margt manna úr sveitinni.
En við eldinn varð ekki ráðið,
nema fjárhús, þar nærri, voru
varin.
Hátíðahöld voru á Þórshöfn
Þórshafnarbúar héldu hátíð um
helgina í tilefni af nýkeypta
togaranum Fonti og ennfremur
í tilefni af því, að tekið er í
notkun á staðnum nýtt frysti-
hús. Þegar blaðamaður Dags
var þarna á ferðinni á sunnu-
daginn, voru bátar og skip í
um helgina
höfn, Fontur fánum prýddur,
nýkominn úr annarri veiðiferð
Raforkuframleiðsla'
Laxárvirkj uuar
Stjórn Larárvirkjunar kynnti fréttamönnum Laxárvirkjun á föstu-
daginn, 27. ágúst.
Vatnsaflstöðvar við Laxá framleiða um eða yfir 20 megavött.
Fyrsta stöðin var tekin í notkun 1939 og skilaði 1,5 megavöttum.
Árið 1944 var raforkuframleiðslan aukin um 3 megavött og 1953
um 8 megavött. Síðasta virkjunin var byggð 1973 og skilar hún
8—9 megavöttum. Samtals framleiða því Laxárstöðvarnar 20—21
megavött.
Disilstöðvar á Oddeyri geta framleitt 7,5 megavött og nýja disil-
stöðin á Rangárvöllum 6,9. Er þá ótalin gufustöðin í Bjarnarflagi,
sem framleiðir 3 megavött. Samtals eru þetta 36,4—37,4 megavött.
sinni með 75 tonna afla en 80
tonn fékk hann í þeirri fyrstu.
Þá lá Langanes, nýtt stálskip,
við bryggju þennan dag, en það
stundar rækjuveiðar á djúp-
miðum á vegum Hafrannsóknar
stofnunarinnar.
Götur á Þórshöfn eru mjög
FRIÐA
BJÖRNSDÓTTIR
BLAÐAMAÐUR
Um miðjan þennan mánuð
heldur Fríða Björnsdóttir blaða
maður vestur um haf og tekur
við ritstjórastarfi við vestur-
íslenska blaðið Lögberg-Heims-
kringlu. Hefur hún verið ráðin
þar um fjögurra mánaða skeið.
Fríða hefur um margra ára
skeið verið blaðamaður hjá
Tímanum og er framúrskarandi
fær og dugleg í starfi. □
Ytri-Nýpum í Vopnafirði, 30.
ágúst. Það var aðeins frostkali
í nótt, eftir mikla hita undan-
farna daga. Hitinn fór í 26 gráð
Ur á föstudaginn.
Laxar, veiddir í Selá, eru
farnir að nálgast 700 og í Hofsá
hef ég heyrt að búið væri að
veiða um 1100 laxa. En í báð-
um þessum ám var mjög treg
veiði fyrsta hálfa mánuðinn en
síðan góð veiði. Og þriðja lax-
veiðiáin er Vesturdalsá og þar
hefur maður heyrt um góða
veiði.
í samtali við frystihússtjór-
Leikfélag Akureyrar mun nú í
þann veginn að hefja starf. Leik
hússtjórinn, Eyvindur Erlends-
son, er kominn úr sumarleyfi
sínu og Suðurlandsrigningunni,
fundur mun hafa verið haldinn
í stjórn Leikfélagsins í gær og
þá væntanlega tekin ákvörðun
um fyrsta verkefni félagsins á
því leikári, sem nú fer í hönd,
og við það miðað að frumsýna
klassiskan gamanleik í október-
mánuði. □
ann kom fram, að vinna hefði
verið samfelld í frystihúsinu,
eftir að trillurnar fóru að fiska,
þrátt fyrir heldur lélegan afla
í allt sumar. En nú verður ekki
tekið á móti fiski þegar sauð-
fjárslátrun hefst um miðjan
septembermánuð, því þetta er
eitt og sama húsið.
Sennilega hefur aldrei verið
meira byggt í Vopnafjarðar-
kauptúni. Bændur eiga mikil og
ágætlega verkuð hey. Allan
ágústmánuð var samfelldur
þurrkur, en í júlí var tíu daga
úrkomusöm veðrátta og þótt
eitthvað lítils háttar af heyjum
hrektust þá, er það varla til að
hafa orð á því.
Þ. Þ.
Oddvar Nordli, í
forsætisráðherra Noregs.
Allvel sýnist ganga með
Kröflulínuna. Stauralínan er
komin og verið er að ganga frá
þvertrjám á staurunum.
Hey munu vera heldur minni
hér í sveit en í fyrra, en þau
eru einstaklega vel verkuð.
V. K.
sundur grafnar, enda verið að
skipta um jarðveg í þeim og
leggja nýjar leiðslur, til undir-
búnings malbikun, sem fram á
að fara næsta sumar.
Blaðið hafði lauslegt samband
við Bjarna Aðalgeirsson, nýráð-
inn sveitarstjóra, og frystihús-
stjórann, Sveinbjörn Hannes-
son, og létu þeir báðir vel yfir
atvinnumálum nú, enda þarf nú
mikið til, að standa undir vöxt-
um og afborgunum af miklum
fjárfestingum, bæði þeim, sem
nefndar hafa verið og íbúða-
byggingum í kauptúninu. Q
fallhlífarstökki
Fallhlífarklúbbur Reykjavíkur
hefur að undanförnu gengist
fyrir námskeiði í fallhlífar-
stökki fyrir byrjendur. Tuttugu
manns tóku þátt í námskeiðinu,
þar af fimm konur. Ákveðið er,
segir í fréttatilkynningu til
blaðsins, að halda slíkt nám-
skeið á Akureyri og hefst það
6. september. Lágmarksaldur er
16 ár og ennfremur þurfa þátt-
takendur að standast s. k. 3.
flokks læknisskoðun. Allur út-
búnaður verður til staðar s. s.
hjálmar, stígvél, gallar, aðalfall
hlíf og varafallhlíf. Notuð verð-
ur flugvél af Cessna-gerð, sem
hentar mjög vel til þessara nota.
Kennari verður Sigurður Bjark
lind. Að námskeiði loknu veður
stofnfundur fallhlífaklúbbs hér
á Akureyri. Q
TÍU ÁRA
Á þessu hausti eru tíu ár liðin
síðan Bókaútgáfan Örn og
Örlygur hf. tók til starfa. Fyrsta
bókin kom út 25. nóvember
1966. Það var bókin LANDIÐ
ÞITT eftir Þorstein Jósepsson.
Hún hefur verið ein mest selda
bókin á landinu síðan. ásamt
öðru bindi bókarinnar sem
Steindór Steindórsson frá Hlöð-
um samdi.
í tilefni 10 ára afmæli bóka-
útgáfunnar hefur fyrirtækið
ákveðið að gefa almenningi kost
á að eignast DÝRARÍKI í S-
LANDS með sérstaklega hag-
stæðum greiðsluskilmálum fram
til afmælisdagsins 25. nóvem-
ber n. k., en nú mun rétt rúmur
helmingur upplagsins vera
óseldur. Q
FRÁ LÖGREGLUNNI
Um helgina var rólegt. Tveir
voru teknir fyrir meinta ölvun
við akstur. Tíu manns gistu hjá
okkur í fangageymslunum um
helgina. Q
Forsætisráðherra Noregs gestur
Á sunnudaginn komu til Norður
lands forsætisráðherra Noregs,
Oddvar Nordli, og sjávarútvegs
ráðherra, Eivind Bolle, ásamt
Geir Hallgrímssyni forsætisráð-
herra og Gunnari Thoroddsen
iðnaðarráðherra, ráðuneytis-
stjórum og sendiherrum, ásamt
eiginkonum.
Flugvél gestanna lenti á Aðal
dalsflugvelli og þaðan var farið
í Mývatnssveit og dvalist þar
fram eftir degi. Kröfluvirkjun
var m. a. skoðuð. Til Akureyrar
kom svo hópurinn á sjöunda
tímanum um kvöldið og bauð
bæjarstjórn þá til kvöldverðar
á Hótel KEA.
í kvöldverðarboðinu ávarpaði
Valur Arnþórsson forseti bæjar
stjórnar Akureyrar gestina og
forsætisráðherra Noregs þakk-
aði móttökur.
Oddvar Nordli forsætiráð-
herra, samráðherra hans og frítt
föruneyti, kom í opinbera heim-
,sókn hingað til lands á föstu-
daginn og mun hafa haldið
heimleiðis í gær. Q