Dagur - 01.09.1976, Blaðsíða 4
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar 1-1166 og 1-11-67
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓHANN K. SIGURÐSSON
Prentverk Odds Björnssonar h.f.
BÆJAR-
STJÖRASKIPTI
Sjálfstæðismenn í bæjarstjórn Akur-
eyrar eru óánægðir með sjálfa sig út
af fremur bágborinni frammistöðu
sinni við kjör nýs bæjarstjóra á síð-
asta bæjarstjórnarfundi. En þar var
Helgi M. Bergs kosinn í það embætti
með sex atkvæðum en sjálfstæðis-
menn sátu hjá og hafa ekki getað
dulið vandræði sín. Sjálfir höfðu þeir
engan „kandidat“ og óánægja þeirra
er af því sprottin, að þeim voru eng-
in bitlinga-lirossakaup boðin til að
styðja það bæjarstjóraefni, sem meiri
hluti bæjarstjórnar varð ásáttur um
og kaus. Ýmislegt hafa sjálfstæðis-
menn látið frá sér fara í blöðum um
þetta mál. Sem svar við því er rétt að
taka fram þau atriði, sem Sigurður
Óli Brynjólfsson drap á í síðasta
Degi, en þar sagði hann meðal ann-
ars um liina óánægðu sjálfstæðis-
menn í bæjarstjórn Akureyrar:
„í fyrsta lagi fylgdust þeir með og
voru sammála undirbúningi málsins.
í öðru lagi leituðu þeir umsækj-
endur um bæjarstjórastöðuna, sem
mestan áhuga virtust hafa á starfinu,
jafnt kynningarviðtals við bæjarfull-
trúa Sjálfstæðisflokksins, sem meiri-
hlutann. Því gátu þeir, rétt eins og
meirihlutinn, myndað sér sjálfstæða
skoðun um umsækjendurna.
í þriðja lagi var tveim aðalfulltrú-
um sjálfstæðismanna sagt frá því sem
trúnaðarmáli, að samstaða væri hjá
meirililutanum um að styðja Helga
M. Bergs og óskað eftir þeirra stuðn-
ingi, en án lnossakaupa eða bak-
samninga, ef þeim sýndist eins og
meirihlutanum að hann væri álitlegt
bæjarstjóraefni. Þessu tilboði höfn-
uðu þeir, svo sem ljóst var þegar þeir
þá þegar brutu þann trúnað, sem
þeim var sýndur, með því að hlaupa
með málið í blöðin. Það voru því
bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins,
sem höfnuðu samvinnu um kjör
bæjarstjóra og þeir komu aldrei með
sinn „kandidat“.“
Þess er svo að vænta, og undir þau
orð munu bæði bæjarfulltrúar og
aðrir bæjarbúar taka, að vel hafi til
tekist um ráðningu nýs bæjarstjóra.
Verkefni bæjarfélagsins eru bæði
mikil og margvísleg, liagur þess
traustur, hinar ýmsu starfs- og fram-
kvæmdadeildir undir öruggri eigin
stjórn og fastanefndir á vegum bæj-
arins annast veigamikil verkefni.
Störf bæjarstjóra eru þó engu að
síður bæði vandasöm og þýðingar-
mikil. Þau liefur fráfarandi bæjar-
stjóri, Bjami Einarsson, leyst vel af
hendi og til hins sama er ætlast af
eftirmanni hans. □
MINNINGARORÐ
HELGIJÓNSSON
Fæddur 4. nóv. 1908. — Dáinn 30. júlí 1976.
Er ég sest niður til að minnast
með nokkrum fátæklegum orð-
um Helga Jónssonar, er mér
þakklæti, virðing og djúpur
söknuður efst í huga.
Helgi var fæddur að Mýrar-
lóni 4. nóv. 1908. Foreldrar hans
voru Jónasína Sigríður Helga-
dóttir og Jón Ólafsson og var
Helgi einn af 9 börnum þeirra
hjóna. Lífsbaráttan var flestum
hörð á þeim árum og kynntist
Helgi vinnustritinu snemma, og
má segja að því hafi ekki linnt
fyrr en hann lést, eftir stutta
en erfiða legu á F.S.A. 30. júlí
síðastliðinn. Það má með sanni
segja að á honum hafi sannast
máltækið: „vinnan göfgar mann
inn,“ því mikið vann hann, og
manna göfugastur var hann.
Eftirlifandi kona Helga er
Helga Sigurðardóttir frá Máná
á Tjörnesi. Þegar þau stofnuðu
sitt heimili var hún ekkja með
tvo unga syni, Aðalgeir og Sig-
urð. Þeim reyndist hann sem
bezti faðir, og það hefur Sigufð-
ur eiginmaður minn sagt mér,
að aldrei nokkurn tíma hafi
hann sagt til þeirra styggðar-
yrði en alltaf verið boðinn og
búinn að styðja þá og styrkja,
bæði sem börn og uppkomna
menn. Aðalgeir lézt ungur, er
hann var nýbúinn að stofna sitt
eigið heimili, en ekkja hans,
Snæborg og dætur þeirra Helga
Sigurlaug og Allý Halla, nutu
umhyggju hans og kærleika
meðan hans naut við.
Tvo syni lætur Helgi eftir sig.
Jón, sem hann átti með fyrri
konu sinni, en þau slitu sam-
vistum, og Gunnar, sem er
einkasonur þeirra Helga og
Helgu. Býr Jón í Skagafirði
ásamt Önnu konu sinni og 4
dætrum, Sigríði Kristínu, Hjör-
dísi Erlu, Kolbrúnu og Hrafn-
hildi.
Gunnar er kvæntur Laufeyju
Sigurbj örnsdóttur og búa þau
hér á Akureyri ásamt tveim
börnum sínum, Helga og Mar-
gréti. Oll eiga þau, ásamt mér,
manni mínum og börnum á bak
að sjá bjargföstum, óbifanlegum
bakhjalli sem ekkert getur kom
ið í staðinn fyrir. Þó veit ég,
Helga mín, að missir þinn og
söknuður hlýtur að vera mestur
og sárastur.
Ég tel mig ekki hafa kynnst
öðrum eins mannkosta manni,
sem Helgi var. Skyldurækni,
trúmennska, heiðarleiki og hóg-
værð voru hans aðalsmerki.
Komu þessir eiginleikar hans
glöggt í ljós í öllum hans orðum
og gjörðum.
Á Skinnaverksmiðjunni
Iðunni vann hann nær óslitið
seinustu 33 árin, og var ósér-
hlífni hans og dugnaði þar við
brugðið.
Við börn var hann slíkur að
vart er hægt að lýsa. Þá virtust
allir hans beztu eiginleikar
njóta sín til fulls. Ekki fólst það
í ærslum, háværri kátínu eða
austri sætinda. En þolinmæðin,
mildin og hin ríka kímnigáfa
hans komst þar óskert til skila.
Og þegar hann lyfti litlu barni
upp á kné sér og strauk í burtu
tár af vöngum með stóru vinnu
lúnu höndunum sínum fannst
ekki betra skjól né meiri hugg-
un lítilli barnssál.
Börn og unglingar, og flestir
þeir, sem á var hallað í áheyrn
hans, áttu sér öruggann for-
svarsmann, þar sem Helgi var.
Þau Helgi og Helga höfðu átt
heimili á fleirum en einum stað
hér á Akureyri, og ætíð var
sami hlýi sanni heimilisbragur-
inn yfir þeim öllum. Seinustu
árin bjuggu þau í Hólabraut 13,
Kristniboðshúsinu Zion og voru
þar húsverðir við góðan orðstír.
Gestrisni þeirra beggja var ein-
stök. Á móti öllum var tekið
eins og hver gestur og gangandi
væru komnir um langan veg.
Ekki get ég látið lokið þessum
minningarbrotum án þess að
geta þess, sem lyfti Helga áreið-
anlega oft upp yfir amstur og
strit hversdagsleikans. En það
voru samskipti hans við hest-
inn. Það var hans tómstunda-
gaman, yndi og unaður, og sá
eini munaður, sem hann veitti
sér, ef munað skyldi kalla. Því
tíminn sem fór í gegningar og
öflun fóðurs þessara vina hans
var tekinn af takmörkuðum
hvíldarstundum.
Og að lokum vil ég þakka
honum allt það góða, sem hann
gerði fyrir okkur Sigurð og
börnin okkar. Það góða sem
aldrei verður mælt á mælistiku
hins smáa og veraldlega, heldur
mælistiku góðmennskunnar þar
sem hún rís hæst í hógværð
sinni og almætti. Helgi, þökk sé
þér og blessuð sé minning þín.
Sonja Sveinsdóttir.
Nýlega útskrifaðist ellefti hópur sjúkraliða frá Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri, 24 að tölu. Þctta
er síðasti hópurinn, sem sjúkrahúsið útskrifar í þessu formi. Námið er ársnám. Inntökuskilyrði
hrcytast nú. Forstöðukona er Gunnur Sæinundsdóttir en kennarar sjúkraliðanna auk hennar eru
nokkrir. Ljósmyndastofa Páls tók meðfylgjandi mynd af liinum nýátskrifuðu sjúkraliðum.
Resta kýrin mjólkaði 8149 kíló
í síðasta hefti Freys eru birtar
niðurstöður úr skýrslum naut-
griparæktarfélaganna árið 1975.
Þar kemur fram, að kýr á
skýrslum voru 21746, en það eru
58% af kúm landsmanna. Meðal
nyt reyndist vera 3594 kg með
4.13% fitu. Hæst var nytin hjá
kúnum í Eyjafirði, 3797 kg með
4.33% fitu, eða 165 kg af rnjólk-
urfitu, þar var meðalbúið einnig
stærst, 28.4 árskýr.
Afurðir eftir reiknaða árskú
mælt í kg mjólkur hafa minnk-
að um 145 kg frá árinu áður.
Þetta er fjórða árið í röð. sem
meðaltalsafurðir kúnna dragast
saman og er lækkunin frá árinu
1971, þegar afurðir voru þær
hæstu, sem þær hafa orðið, fast
að 300 kg á kú eða 7.7%. Aðal-
ástæðan er fjölgun skýrslu-
færðra kúa.
Félagsbúið að Hamri, Rípur-
hreppi í Skagafirði hafði afurða
hæstu kýrnar árið 1975. Þar
voru 22.6 kýr, meðalnytin var
I MINNINGU HELGA JÓNSSONAR
Fæddur 4. nóvember 1908. — Dáinn 30. júlí 1976.
Kveðja frá vinnufélögiim.
Harmi er hugur vor lostinn,
Helgi var nuininn í burtu,
mannkostamaðurinn sanni,
mannvinur, dáður aí öllum.
Styrkur að starfinu gekk hann,
styrkur af kærleika sönnum,
þögull, en þelliýr í bragði,
þolinn í daglegum önnum.
Þakklæti kveðjan er þrungin,
þungbær sorg birtu Guðs vafin.
Helga rnynd gott er að geyma,
græðir það undir um síðir.
Hvar helst sem góðir menn ganga,
Guð liefur markað sér vegi,
tendrast þar ljós hans, er lýsir
leið frarn að eilífðar degi.
Oftast mun órituð saga,
alþýðumannsins, er hverfur,
enda þótt mynd hans og minning
merluð sé fegurstu litum.
Augun hin eilífu sáu,
ofursmátt jarðarblóm skarta.
Brosmildi bróðirinn geymdi
í barmi hið auðmjúka hjarta.
4917 kg. Næst í röðinni var kúa-
bú þsirra bræðra Sigurjóns og
Bjarna í Neðri-Tungu, ísafirði.
Þar voru 14.7 árskýr. Meðalnyt
þeirra var 4910 kg og það þriðja
í röðinni var hjá Steini Snorra-
syni, Syðri-Bægisá, Öxnadal.
Þar voru árskýrnar 26.1. Meðal-
nyt þeirra var 4830 kg. Besta
kýrin árið 1975 var Hrefna 61 á
Kroppi, Hrafnagilshreppi. Mjólk
aði hún 8149 kg með 4.71% fitu.
Mjólkurfita var 384 kg. Næst-
mesta mjólkurfitu hafði Bláma
í Hróarsholti, Villingaholts-
hreppi. Hún mjólkaði 5668 kg
með 6.68% fitu eða 379 kg af
mjólkurfitu.
Afurðir Hrefnu eru næst-
hæstu, sem um getur hér á
landi, hvort sem mælt er í kg
mjólkur eða mjólkurfitu. Grána
á Reykjarhóli í Fljótum mjólk-
aði 8190 kg árið 1972, en Kæti
á Ljótsstöðum í Vopnafirði gaf
af sér 430 kg af mjólkurfitu
árið 1973.
Mjólkurframleiðendum fækkar.
Á undanförnum árum hafa
árlega um 200 bændur hætt
mjólkurframleiðslu. Árið 1974
lögðu 3103 bændur inn mjólk
hjá mjólkursamlögunum en á
síðasta ári voru þeir'2883. Þeim
hafði því fækkað um 220. Hver
framleiðandi skilaði að meðal-
tali 38.684 kg mjólkur á síðast-
liðnu ári, en það var 1313 kg
meiri mjólk á hvern framleið-
anda en árið áður, Mest var
mjólkin á hvern bónda á svæði
Mjólkursamlags KEA, rúmlega
64 þús. kg, en meðalinnlegg á
hvern framleiðanda hjá Mjólk-
urbúi Flóamanna var 46.153 kg.
Hlutfallslega hefur mjólkur-
framleiðendum fækkað mest á
svæði mjólkursamlagsins í
Búðardal eða um 21%, Þeim
fækkáði um 9.4%, sem lögðu
inn hjá Mjólkursamlagi KEA,
en hjá Mjólkurbúi Flóamanna
rétt um 4%, en á öllu landinu
nam fækkunin 7%.
Meðalflutningskostnaður á
hvert kg mjólkur frá framleið-
anda að stöðvarvegg var á síð-
astliðnu ári kr. 2,47, en árið 1974
kr. 1,60. Hæsti flutningskostnað
ur var kr. 5,73 á hvert kg, en
lægstur kr. 1,75.
Upplýsingaþjónusta
landbúnaðarins.
Sængurgerð Ullarverksmiðj-
unnar Gefjunar hefur nú verið
flutt frá Akureyri og sett niður
á Sauðárkróki. Að sögn Hjartar
Eiríkssonar frkvstj. er hún þar
í húsnæði, sem Iðnaðardeild
hefur á leigu hjá Kaupfélagi
Skagfirðinga. Vinna f sængur-
gerðinni á Sauðárkróki hófst
hinn 17. ágúst, og í byrjun
munu starfa þar um 10 manns.
Þar mun fara fram öll fram-
leiðsla Ullarverksmiðjunnar
Gefjunar á ullarsængum, dralon
sængum, svefnpokum, rúm-
teppum og kerrupokum, og auk
þess stendur til að setja þar
einnig upp sérstaka deild til að
framleiða ryateppi.
Að sögn Hjartar er hér um
að ræða lið í viðleitni Sam-
bandsins til að skapa aðstöðu
fyrir iðnað sem víðast á land-
inu. Eins og kunnugt er rekur
Iðnaðardeild eina af verksmiðj-
um sínum í Borgarnesi, Húfu-
verksmiðjuna Hött, og auk þess
rekur Kaupfélag Skagfirðinga
saumastofu fyrir fána á Hofs-
ósi, sem Iðnaðardeild sér fyrir
verkefnum.
Sambandsfréttir.
HVASSAFELL KOM
Hinn 12. ágúst voru liðin 30 ár
síðan íslenski fáninn var dreg-
inn að húni á Hvassafelli, fyrsta
Sambandsskipinu. sem keypt
var á ítalíu fyrir forgöngu Vil-
hjálrns Þór. Þar með hófst nýr
kafli í sögu samvinnuhreyfing-
arinnar, þar sem þetta varð
upphafið að kaupskiparekstri
Sambandsins.
Skipaflotinn jókst fljótlega.
Arnarfell var byggt fyrir Sam-
bandið í Svíþjóð 1949 og Jökul-
fell 1951. Á næstu árum bætt-
ust enn við þrjú skip, og 1956
var svo ráðist [ þav stóra átak
að kaupa olíuskipið Hamrafell.
sem var 16.300 burðarlestir ig
sameign Sambandsins og Olíu-
félagsins h.f. Fyrir skammsýni
ráðamanna í landinu neyddust
þessir aðilar þó til að hætta
rekstri Hamrafells og selja það.
(Framhald á blaðsíðu 2)
GYÐA JÓNSDÓTÍÍR
Minniiigarorð.
Þann 10. ágúst sl. lézt í Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á Akureyri
Gyða Jónsdóttir á Hjalteyri og
hafði þá um skeið átt við van-
heilsu að stríða.
Utför hennar er gerð frá
Möðruvöllum í Hörgárdal mið-
vikudaginn 18. ágúst.
Mig langar að minnast Gyðu
örfáum orðum, en skortir vafa-
laust þekkingu til að rekja
hennar ævislóð í smáatriðum,
enda ekki ætlun mín.
Hún fæddist á Akureyri 25.
ágúst 1918, dóttir hjónanna
Guðnýjar Jóhannsdóttur og
Jóns Sigurðssonar, sem þar var
bæði skipa- og húsasmiður.
Ekki veit ég betur en hennar
bernsku- og unglingsár hafi liðið
með líkum hætti og þá gerðist
almemat. Hún fór snemma að
taka til hendi og vistaðist hjá
fólki bæði á Akureyri og hand-
an fjarðar.
Gyða var tápmikil og glaðvær
fríðleikskona og slíkt gat ekki
farið fram hjá Jóhannesi Björns
syni á Nolli í Grýtubakka-
hreppi. Þau gengu í hjónaband
14. des. 1935.
Það þori ég að fullyrða, að
Jóhannes telji að þann dag hafi
hann fengið sína veglegustu
afmælisgjöf um ævina, en það
er einmitt hans fæðingardagur.
Þau hjón eru svo til heimilis
að Nolli á meðan Jóhanrtes
byggir þeim Sæból úr landi
föður síns, en þangað fluttu þau
1937.
Það er svo fljótt upp úr 1940,
að þau flytja til Hjalteyrar og
þar var þeirra heimili æ síðan.
Ég sagði fyrr, að Gyða hefði
verið tápmikil og glaðvær
stúlka á yngri árum. Þeim eðlis
kostum hygg ég, að hún hafi
haldið.
Sannarlega varð það hennar
hlutskipti að ganga í gegnum
súrt og sætt. Um það verður
ekki fjallað hér.
Ævistarf Gyðu varð að sjálf-
sögðu húsmóðurstarfið. Ekki
veit ég betur en að þar hafi
Frá golfmóti
Norðurlandsmót í golfi var hald
ið á velli Golfklúbbs Húsavíkur
dagana 28. og 29. ágúst. Keppt
var í þremur flokkum, karla-
flokki, kvennaflokki og flokki
drengja 12—16 ára. Leiknar
voru 36 holur með og án for-
gjafar. í karlaflokki var keppt
um farandbikar, gefinn af Sam-
vinnubankanum á Húsavík. í
kvennaflokki var keppt um far-
andbikar, sem gefinn var af
Kísiliðjunni. Þátttakendur voru
56. Frá Akureyri voru 32, frá
Ólafsfirði 10 og frá Húsavík
voru 14. Fegursta veður var
báða daga en nokkuð hvasst.
Úrslit urðu sem hér segir:
Karlafl. án forgjafar: högg
Gunnar Þórðarson, A. 166
Frímann Gunnlaugsson, A. 167
Árni Jónsson, A. 171
Karlafl. með forgjöf: högg
Jónas Geir Jónsson, H. 140
Óli Kristjánsson, H. 146
Karl Hannesson, H. 146
Kvennafl. án forgjafar: högg
Katrín Frímannsdóttir, A. 208
Karolína Guðmundsd., A. 225
Sigríður Birna Ólafsd., H. 236
Kvennafl. með forgjöf: högg
Sigríður Birna Ólafsd., H. 166
Katrín Frímannsdóttir, A. 172
Karolína Guðmundsd., A. 177
henni farið verk vel úr hendi.
Heimili þeirra hjóna var vel
búið og smekklegt og hafa þar
efalítið farið saman handbrögð
beggja.
Með prýði kom hún á legg
fjórum sonum sínum, studdi
dyggilega við bak manns síns í
blíðu og stríðu og bjó þeim öll-
um fagurt heimili.
Gyða var gæðakona og greið-
vikin, trúuð kona og trygglynd.
Ég veit, að hjónabandið var ein-
lægt og gott. Til marks um það
hefi ég gjarnan, að oftar heyrði
maður talað urn „Gyðu og Jóa“
í sömu andrá en sitt í hvoru
lagi. Þar sem annað fór, fór
oftast hitt.
Og ekki má gleyma um-
hyggju hennar fyrir sonabörn-
unum.
Af öllum hennar ástvinum
missir Jóhannes að sjálfsögðu
mest. Við hann vil ég aðeins
segja með Grími Thomsen, að:
„Þó að fornu björgin brotni,
bili himinn og þorni mar,
alláx- sortni sólirnar,
aldrei deyr, þótt allt um þrotni,
endurminning þess, sem var.“
Öllum ástvinum Gyðu og
skylduliði óska ég blessunar
Guðs.
Hjalteyringur.
Norðurlands
Drengjafl. án forgjafar: högg
Jón Gunnarsson, A. 180
Stefán Jóhannesson, Ó. 189
Gunnar Straumland, H. 190
Drengjafl. með forgjöf: högg
Jón Gunnarsson, A. 132
Stefán Jóhannesson, Ó. 141
Baldur Sveinbjörnsson, A. 150
Þ. J.
SUNDKENNSLA
FYRIR KONUR
Nú á tímum jafnréttis karla og
kvenna hefur verið lagður nið-
ur sértími kvenna í sundi sem
undanfarið hefur verið í fimmtu
dagskvöldum.
í staðinn býður sundlaugin
upp á sundkennslu fyrir konur
á fimmtudagskvöldum og verð-
ur kennt í innilauginni. Kennsla
þessi er fyrir allar konur, jafnt
byrjendur og þær sem lengra
eru komnar í íþróttinni. Kenn-
ari verður Ásdís Karlsdóttir
íþróttakennari og er kennslan
konum að kostnaðarlausu. Þær
þurfa aðeins að greiða venju-
legan aðgang að lauginni.
Kennsla þessi hefst í byrjun
september og eru konur hvattar
til að fjölmenna í laugina, því
fáar íþróttagreinar eru betur
við hæfi hins almenna borgara
en sundið.
ianSíium
ÞÓR VARÐ AKUREYRARMEISTARI
Þór og KA léku í Akureyrar-
móti, meistaraflokki, sl. mið-
vikudag. Tveimur síðustu leikj-
um þessara aðila lauk með jafn
tefli og bjuggust menn nú við
skemmtilegum leik. Svo fór þó
ekki, leikurinn var leiðinlegur
á að horfa. Hann hófst ekki fyrr
en kl. 20 og þess vegna var síð-
ari hálfleikur leikinn íl !hálf-
rökkri.
Fyrsta mark leiksins kom á
17. mín. Sendur var góður bolti
fyrir markið frá vinstri og Sig-
tryggur Guðlaugsson skallaði
að marki KA. Ævar markmað-
ur hafði hendur á boltanum en
tókst ekki að verja og í netið
fór boltinn.
Næstu 15 mínútur sóttu KA-
menn nokkuð og fengu þá
dæmdar þrjár hornspyrnur sem
þeim tókst ekki að skora úr.
Tvisvar varði Samúel mark-
maður mjög vel á þessu tíma-
bih. Á 32. min. átti Árni Gunn-
arsson gott skot að marki KA
en Ævar varði vel.
Þannig var staðan í hálfleik,
eitt mark gegn engu fyrir Þór.
í byrjun seinni hálfleiks sóttu
KA-menn nokkuð, þar til að
inná kom markaskorarinn
Björn Víkingsson. Hann hafði
aðeins verið á vellinum í nokkr
ar mínútur þegar hann hafði
skorað annað mark Þórs.
Á 25. mín. átti Guðjón gott
skot að marki Þórs en framhjá.
Árni Gunnarsson bætti síðan
þriðja markinu við á 30. mín.,
og úr því hófst hinn dramatíski
kafli leiksins þegar mótlætið
fór að fara í taugarnar á KA-
mönnum. Á 32. mín. var Herði
fyrirliða KA vísað af leikvelli
eftir að hafa verið helst til orð-
ljótur við dómarann. Á sama
tíma var Steinþór Þórarinsson
uppvís að því að sparka í aftur-
endann á nafna sínum Sigur-
geirssyni að ástæðulausu.
Á 35. mín. var dæmd auka-
spyrna á Þór skammt utan víta-
teigs. Gunnar Blöndal fékk
boltann vel fyrir og skallaði
óverjandi í markið.
Þannig lauk leiknum með
sigri Þórs þrjú mörk gegn einu,
og með þessum sigri urðu Þórs-
arar Akureyrarméistarar í
knattspyrnu 1976.
Dómari f leiknum var Stein-
dór Gunnarsson og línuverðir
Ólafur Jensson og Steingrímur
Björnsson.
ÍBV VINNUR KA 5:1 Á AKUREYRARVELLI
Það voru allar aðstæður fyrir
hendi á Akureyrarvelli sl.
sunnudag til að leika góða
knattspyrnu. Veður gott, völlur
góður og liðin sem léku skipuð
mönnum sem vitað var að geta
leikið góðan bolta ef þeir vilja.
Fyrir leikinn voru Vest-
mannaeyingar ósigraðir í deild-
inni og var strax séð á leik
þeirra að það var engin tilvilj-
un. Liðið er skipað leiknum og
duglegum mönnum, og er sókn-
arkraftur liðsins mikill.
Strax á fyrstu mínútu átti
Jóhann Jakobsson gott mark-
tækifæri við mark ÍBV en skaut
beint á markmanninn sem var
rétt staðsettur að vanda. Á 29.
mín. kom síðan fyrsta mark
leiksins. Það var Örn Óskarsson
sem rak endahnútinn á góða
sóknarlotu Vestmannaeyinga
og skoraði efst í bláhornið,
algjörlega óverjandi fyrir Guð-
berg markmann. KA-menn
sóttu síðan nokkuð og á 40. mín.
fengu þeir hornspyrnu og tví-
vegis varði markmaður Vest-
mannaeyinga stórglæsilega.
Fyrri hálfleik lauk með sigri
ÍBV, 3—0. í seinni hálfleik tóku
Vestmannaeyingar 1 e i k i n n
smám saman í sínar hendur og
fór nú nokkuð að dofna yfir
KA-liðinu sem annars hafði
staðið sig vel í fyrri hálfleik,
þrátt fyrir markamuninn. Á 16.
mín. bættu síðan Vestmanna-
eyingar fjórða marki sínu við
eftir að hafa skotið hörkuskoti
í stöng. Aðeins mínútu síðar
fékk Gunnar Blöndal boltann í
erfiðri aðstöðu og vippaði lag-
lega yfir markmann Vestmanna
eyinga og minnkaði muninn í
4—1. Á 39. mín. skora Vest-
mannaeyingar sitt 5. mark og,
þannig lauk leiknum með sigri
ÍBV, 5 mörk gegn einu.
ÖNNUR ÚRSLIT 1
Önnur úrslit í annarri deild
urðu þau, að Selfyssingar sigr-
uðu Hauka með fjórum mörk-
um gegn þremur, og Völsungar
sigruðu Reyni með tveimur
gegn einu.
Leik Þórs og ÍBÍ var frestað
þar er ekki var flugveður til
ísafjarðar.
Staðan í annarri deild að lokn-
um leikjum helgarinnar er nú
ÍBV 15 13 2 0 61-11 28
Þór 14 9 4 1 37-13 22
Ármann 15 6 4 4 24-17 16
Völsungui- 15 6 4 5 23-15 16
KA 16 5 4 7 29-35 14
ÍBÍ 14 3 5 6 16-28 11
Haukar 15 4 3 8 24-31 11
Selfoss 15 4 3 8 25-48 11
Reynir 15 2 1 12 14-45 5
AKUREYRINGAR SIGRA í KERLINGARFJ.
Um verslunarmannahelgina var
hið svokallaða Fannborgar
skíðamót í Kerlingarfjöllum.
Keppendur voru alls staðar að
af landinu. Keppni þessi er
svigkeppni og svokölluð tveggja
brauta keppni, þ. e. a. s. að
tveir keppendur eru ræstir sam
hliða í tveimur brautum og
vinnur sá sem kemur fyrr í
mark. Sá sem tapar er úr leik
og sigurvegari í svona móti þarf
því að fara margar ferðir þar
til hann stendur einn uppi
ósigraður. Minnir keppni þessi
svolítið á bændaglímu.
í flokki 10 ára og yngri sigr-
aði Ingólfur Gíslason (Lórenz-
sonar), í flokki 11—14 ára
Ólafur Harðarson (Ólafssonar
skólastj.) og í flokki 15 ára og
eldri sigraði Tómas Leifsson
eftir mjög skemmtilega keppni
við Austurríkismanninn Hel-
mudt Mayer sem verið hefur í
Kerlingarfjöllum við kennslu í
sumar.
Um síðustu helgi fór svo
fram opið mót í svigi. Keppt var
í öllum flokkum. í flokki full-
orðinna varð Tómas Leifsson
nr. 3, í flokki 13—14 ára sigraði
Finnbogi Baldvinsson (Þor-
steinssonar), f flokki 11—12 ára
sigraði Ólafur Harðarson, og í
kvennaflokki 15—16 ára varð
Sigurlaug Vilhelmsdóttir (Þor-
steinssonar) í þriðja sæti en
þar sigraði Steinunn Sæmunds-
dóttir.
Margir af bestu skíðamönn-
um landsins voru í keppnum
þessum og er árangur Akur-
eyringanna þeim og okkur til
sóma. ii
„ Ó. A.' íi