Dagur - 29.09.1976, Qupperneq 8
BATAVELAR
5—45 ha.
5—45 hestafla
VÉLAR OG SKIP H.F.
Pósthólf 1006
Sími 27544 - Reykjavík
Bagu
Akureyri, miðvikudaginn 29. sept. 1976
Barnahnífapör
og
barnarammar
nýkomið.
GULLSMIÐIR :
SIGTRYGGUR
& PÉTUR
AKUREYRI
Búið er að semja og samþykkja
regiugerð um búfjárhald á
Akureyri en eftir er að fá reglu
gerðina samþykkta af stjórn-
völdum.
Reglugerð þessi er við það
miðuð, segir í fyrstu grein, að
stemma stigu við óhóflegu bú-
fjárhaldi innan lögsagnar-
umdæmis Akureyrar og tryggja
að gróðurlendi bæjarins verði
ekki spillt. Hana á að endur-
skoða 1982. Reglugerðin tekur
til hrossa, svína, sauðfjár, geita
og alifugla.
Sá, sem hyggst sækja um
leyfi til búfjárhalds, á að senda
umsókn sína til bæjarráðs og
leyfisveiting er háð því, að um-
sækjandi sé í viðkomandi félags
samtökum. Bæði hesta- og sauð-
fjáreigendum ber að greiða sér-
stakt búfjárgjald, kosta fjallskil
og greiða hagatoll fyrir beit á
Glerárdal.
„Afréttur Akureyrar er Gler-
árdalur og allt land ofan og
vestan fjallgirðingar, þ. e. vest-
an Hamratúns, Breiðumýrar og
jarða norðan Glerár.“ Jafnan
skal fylgjast með beitarþoli
landsins og endurskoða leyfða
beit í samræmi við það, og ef
nauðsynlegt reynist verður
gripið til ítölu á afrétti og skal
þá að jafnaði fyrst fækka sauð-
fé þeirra einstaklinga, sem eiga
fleiri en 10 vetrarfóðraðar kind-
. ur og/eða þeirra fjölskyldna,
sem eiga fleiri en 20. Tilsvar-
andi reglur gilda um eigendur
hrossa. Leyfður fjöldi fjár á
Sauðárkróki, 27. september. —
Laufskálarétt í Hjaltadal var á
laugardaginn. Þar voru 700 full-
orðin hross rekin til réttar, auk
300—400 folalda og er það mesta
stóðrétt hér um slóðir. Þangað
kom stóðið, er gekk á Kolbeins-
dal. Fjöldi manns kom á rétt-
ina, ekki aðeins úr héraði held-
ur einnig frá ýmsum stöðum
norðanlands og undi sér vel í
blíðviðrinu.
Á sunnudaginn voru svo stóð
réttir í Skarðarétt í Gönguskörð
um og Staðarrétt við Reynistað.
I haust er besta gangna- og
réttarveður, sem menn muna
um áratugi. Hér á Sauðárkróki
gengur slátrun greiðlega og féð
virðist í góðu meðallagi að væn-
leika. Búið er að lóga 24 þúsund
fjár, mest 2400 á dag. Hjálmar
Guðjónsson á Tunguhálsi lagði
inn 150 dilka, sem jöfnuðu sig
með 18 kíló og fóru allir í fyrsta
flokk. En margir miklir sauð-
fjárbændur eiga enn eftir að
lóga fé sínu. G. O.
afréítum bæjarins er nú 2000,
þ. e. vetrarfóðrað, en liross 100.
Hestaeigendur eiga að kosta
smölun hrossa sinna. Aðrar
reglur gilda um lögbýli.
Bæjarstjórn getur bannað
allt búfjárhald innan ákveðinna
svæða bæjarlandsins.
Daglegt eftirlit með jarðeign-
um bæjarins og vörslu bæjar-
landsins skal vera undir stjórn
umsjónarmanns jarðeigna bæj-
arins, eða þess sem bæjarstjórn
ákveður. Q
STYÐJIÐ GOTT
MÁLEFNI
Happdrætti Náttúrulækninga-
félags Akureyrar er í fullum
gangi. Happdrættisbíllinn er
daglega á stæðinu við Amaró-
húsið en miðarnir seldir í bóka-
versluninni Eddu og vefnaðar-
vörudeild Amaró. Styðjið gott
málefni og kaupið miða, því
allur ágóði af happdrættinu
rennur til byggingar heilsu-
hælis við Eyjafjörð. □
Laugardagsmyndin
Hótelgesturinn er næsta laugar-
dagsmynd Borgarbíós. Myndin
er bresk og fjallar um sögulega
atburði í litlu hóteli að vetrar-
lagi. Aðalhlutverk leika Vanessa
Redgrave, Cliff Robertsson og
Susan George. Q
SMÁTT & STÓRT
HALLAR UNDAN FÆTI
Þau tíðindi gerðust á kjördæmis
ráðstefnu Samtaka frjálslyndra
á Vestfjörðum, að samþykkt
var að kjósa nefnd til að ganga
á fund Alþýðuflokksins til að
vita hvort hann sé reiðubúinn
til samstarfs við Samtökin fyrir
næstu kosningar. Þá er fram
tekið í ályktun kjördæmisráðs-
ins, að það hljóti að vera verk-
efni landsfundar síðar á árinu,
að taka ákvörðun um, hvort
halda heri áfram starfi samtak-
anna. Má segja, að nú sýnist
halla undan fæti hjá Samtök-
unum, og það gæti vafist fyrir
mönnum, hvor flokkurinn yrði
hækjan. En svo illa, sem Sam-
tökin eru á vegi stödd, virðist
Alþýðuflokkurinn litlu betur
staddur. Hann hefur t. d. upp-
gefist við að gefa út sitt eigið
blað, Alþýðublaðið, og gefur
Vísir það nú út.
SAGT TIL SYNDANNA
Kurt Waldheim gagnrýndi og
sagði, er hann tók á móti full-
trúum á þing Sameinuðu þjóð-
anna fyrir nokkrum dögum,
meðal annars:
Starfsemi Sameinuðu þjóð-
anna gengi ólíkt betur ef full-
trúar eyddu skemmri tíma í
samkvæmi, mættu stundvís-
lega á fundi og semdu skjöl og
samþykktir með orðalagi, sem
venjulegt fólk skilur, en ekki á
innantómu frasamáli, sem er
oft einkar yfirborðskennt og
nánast óskiljanlegt fyrir þá sem
utan við standa. Hann sagði
ennfremur, að yfirgengilegt
samkvæmislíf væri að lama
starfsemi samtakanna.
Orð Waldheims hafa vakið
mikla athygli, enda í fyrsta sinn
rðsevri
Hjá Kaupfélagi Svalbarðseyrar
verður í haust lógað um 20 þús-
und fjár. Tekið er á móti 650
fjár á dag. Búið var um helgina
að lóga 6500 og var njeðalvigt
dilkanna 15,24 kg, sem er heldur
meiri vigt en heildar meðalvigt
in var í fyrrahaust.
Tvær leiguíbúðir á vegum
hreppsins eru í byggingu, verið
að byrja á einbýlishúsi og ann-
að er í smíðum og orðið fok-
helt.
Framkvæmdir kaupfélagsins
við frystihúsið hafa staðið yfir
og er ekki lokið, þótt farið sé
að síga á seinni hlutann.
fbúar á Svalbarðseyri eru fast
að hundrað, álítur kaupfélags-
stjórinn, Karl Gunnlaugsson, og
íbúum hefur fjölgað verulega á
síðustu árum. Mest hefur verið
byggt við Smáratúnið og hófust
þær byggingar fyrir fjórum
árum.
Noklcrir menn stunda sjóinn
í frístundum sínum. Þeirra elst-
ur er fyrrverandi hreppstjóri,
Jóhannes Laxdal í Tungu, sem
leggur kolanet þar skammt
noi'ðan við og aflar oft vel af
rauðsprettunni, orðinn 85 ára
og er einn á bát sínum.
Skóli sveitarinnar var settur
fyrir viku síðan, nýr skólastjóri
er Þórunn Magnúsdóttir frá
Reykjavík. Q
Nýlega samþykktu bæjaryfir-
völd að veita íþróttafélaginu
Þór á Akureyri sérstaka viður-
kenningu, peningaupphæð, fyr-
ig ágætan árangur á sviði knatt
spyrnunnar. En félagið hefur
nú unnið sér rétt til keppni í
fyrstu deild á næsta sumri.
Ennfremur var samþykkt að
veita íslandsmeistaranum í
golfi, Björgvini Þorsteinssyni,
nokkurn fjárhagslegan stuðn-
ing fyrir framúrskarandi árang
ur í golfíþróttinni. Q
Frá Svalbaðsströnd.
(Ljósm.: E. D.)
að valdamesti maður stofnunar-
innar sakar fulltrúana opinber-
lega um veislusýki.
. .. . ,, ^ ^
KJÖLFESTA TVEGGJA
RIKISSTJÓRNA
Menn minnast þess gjarnan um
þessar mundir, að tvö ár eru
liðin frá myndun núverandi
ríkisstjórnar, eða ríflega það og
nær helmingur kjörtímabilsins
eftir. I stað vinstri stjórnarinn-
ar undir forsæti Ólafs Jóhannes
sonar, sem einkenndist af miklu
framkvæmda- og athafnalífi um
land allt, kom núverandi ríkis-
stjórn Geirs Hallgrímssonar. I
báðum þessum ríkisstjórnum er
Framsóknarflokkurinn kjölfest-
an.
ÓSÁTTIR VH) ÍHALDIÐ
Þess var vænst af flestum íhalds
andstæðingtmi við síðustu
stjórnarskipti, að ný vinstri
stjórn yrði mynduð, með þátt-
töku eða hlutleysi Alþýðuflokks
— og þess Y»r jafnvel krafist.
En val Framsóknraflokksins
eftir síðustu alþingiskosningar
stóð ekki um það, hvort mynda
ætti nýja vinstri stjórn eða
mynda stjórn með Sjálfstæðis-
flokknum. Framsóknarflokkur-
inn átti aðeins um þá kosti að
velja, að mynda stjórn þá með
Sjálfstæðisflokknum, sem mynd
uð var, eða vera utan stjórnar.
Stjórnarmyndun með vinstri
flokkunum var reynd til þraut-
ar og bar ekki árangur.
GÆLUR OG STAÐ-
REYNDIR
Þegar þessar staðreynlir eru
athugaðar, munu flestir fram-
sóknarmenn hafa fallist á rétt-
mæti þess, að flokkur þeirra
tæki á sig ábyrgð á núverandi
stjórn landsins að sínum hluta,
hvort sem þeir voru hlynntir
vinstri stjórn eða ekki, ef mögu
leikar hefðu verið á því. Þeir
sjá, að það var þýðingarlaust
að kalla á það, sem ekki var til
og ástæðulítið, eins og á stóð,
að gæla við hugmyndir um
vinstri stjórn, sem útilokað var
að koma á laggirnar. Menn geta
haldið áfram að gæla við liug-
myndir um vinstri stjórn og
kannski kemur hún síðar. En
menn mega ekki setja þær gæl-
ur fyrir bæði augu og neita að
horfa á staðreyndir.
RÉTT ÁKVÖRÐUN
Efnahagsmálin eru enn og ætíð
í brennidepli með þjóðinni.
Verðbólgan er ennþá allt of
mikil, einnig skuldasöfnun, en
þó hafa þessi mál bæði verið að
færast í betra horf að undan-
fömu. Verulegum opinberum
framkvæmdum er haldið uppi
mjög víða um land, atvinna
hefur verið góð og kaupgeta
almennings mikil. f fjármálum
og atvinnumálum þjóðarinnar
numu margir hafa vænst mik-
ilJa átaka og skörulegri ákvarð-
ana en raun ber vitni. En víst
er, að sífellt stærri hluti fram-
sóknarfólksins í Iandinu hefur
af tveggja ára reynslu komist
á þá skoðun, að stjórnarsam-
starf með Sjálfstæðisflokknum
var frá sjónamiiði þjóðarinnar
og Framsóknarflokksins rétt
ákvörðun.
(Framhald á blaðsíðu 5)